Morgunblaðið - 26.09.2003, Side 28

Morgunblaðið - 26.09.2003, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SVIPTINGARNAR í íslensku viðskiptalífi að undanförnu hafa vakið athygli. Morgunblaðið spurði formenn þingflokkanna um áhrif þess- ara sviptinga á gang þjóðmála, um hlut bank- anna í þessum sviptingum og hvort ástæða væri til að setja viðskiptalífinu nákvæmari starfsramma. Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir að ómögulegt sé að segja til um til hvers þessar sviptingar muni leiða. Guðjón A. Kristjánsson, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins, tekur í sama streng. Hjálmar Árnason, for- maður þingflokks Framsóknarflokksins, segir að íslenska fjármála- og efnahagslífið sé smátt og viðkvæmt fyrir snöggum dýfum. Bryndís Hlöðversdóttir, formaður þingflokks Ekki hlutverk bankann ráðandi í stórum fyrirt EINAR K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segist vera viss um að sviptingarnar í viðskiptalífinu veki pólitískar spurningar og það kæmi sér á óvart ef málið myndi ekki rata með einhverjum hætti inn í sali Alþingis, en tím- inn verði að leiða í ljós til hvers sviptingarnar leiði. „Það er alveg ómögulegt að segja til um til hvers þessar sviptingar muni leiða, hvort þær að lokum leiði til aukinnar valdasamþjöppunar eða hvort þær geti haft hið gagnstæða í för með sér,“ segir Einar. „Yfirlýst markmið þeirra sem hafa spilað hvað ákafast á þessum velli hefur verið það að örva viðskipti með hlutabréf og auð- velda þar með almenningi þátttöku í hlutabréfaviðskiptum. Ef það geng- ur eftir þá er það vissulega til góðs.“ Einar segist vera sammála því sem hafi komið fram hjá Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, að það sé mjög óheppilegt að bankar séu ráðandi í stórum og öflugum fyr- irtækjum til langs tíma. „Það getur verið réttlætanlegt á einhverju tímaskeiði af ýmsum ástæðum, bæði til þess að stuðla að einhverri umbreytingu og til að verja hags- muni bankans, en það er alveg úti- lokað að það geti gengið til lengri tíma.“ Formaður þingflokks Sjálfstæð- isflokksins telur sjálfsagt að fara í gegnum það hvort þörf sé á að setja viðskiptalífinu nákvæmari starfs- ramma með lögum og reglum. Þess- um reglum hafi verið breytt mjög mikið eins og til dæmis lögum um verðbréfaviðskipti, lögum um Kaup- höll Íslands, upplýsingaskyldu og ýmislegt fleira auk þess sem farið hafi verið í gegnum bókhaldslög. „Allt hefur þetta verið liður í því að gera upplýsingarnar aðgengilegri, bæði fyrir almenning og stofn- fjárfesta, og eins að stýra ábyrgð stjórnvalda og þeirra sem fara með ráðandi vald í hlutafélögum, en þetta er hins vegar síkvikur mark- aður og sjálfsagt að hafa breytingar alltaf undir.“ Einar K. Guðfinnsson Síkvikur markaður Einar K. Guðfinnsson GUÐJÓN A. Kristjánsson, for- maður þingflokks Frjálslynda flokksins, segir að þó hann sé já- kvæður gagn- vart breytingum í íslensku við- skiptalífi sé það stór spurning til hvers þessar sviptingar sem orðið hafa muni leiða. „Ég held að enginn viti það í dag til hvers þetta leið- ir. Það er spurning í svona litlu þjóðfélagi hvort sviptingar fram og til baka séu einmitt það sem okkur þykir gott. Ég dreg það mjög í efa.“ Að sögn Guðjóns hefði t.d. mátt stýra ferlinu betur við einkavæð- ingu bankanna. „Út af fyrir sig var ég og minn flokkur ekki andvígur því, en við gerðum hins vegar miklar kröfur um að bankarnir yrðu í dreifðri eignaraðild og jafn- framt að ekki væri hægt að safna þeirri dreifðu eignaraðild á fáar hendur á örfáum mánuðum eftir að slík sala fór fram, heldur að settar hefðu verið einhverjar kvaðir á það hvenær menn mættu selja eign- arhluti sína.“ Þá segist Guðjón telja að bank- arnir séu að fara út fyrir sitt verk- svið þegar bankastofnanir séu farnar að hafa áhrif á eignaraðild stórra fyrirtækja á Íslandi. „Mér finnst það ekki alveg þeirra hlut- verk og set mikið spurningamerki við það hvort venjulegir viðskipta- bankar eigi að fara inn í þetta með þessum hætti. Við hljótum að þurfa að skoða hvaða lagarammi er utan um venjulegar bankastofnanir og hversu langt bankarnir megi ganga í því að hafa hin og þessi áhrif til að breyta eignastöðu í ís- lenskum fyrirtækjum. Það getur haft mikil áhrif út um allt land og jafnvel á atvinnulíf fólks á ein- stökum stöðum.“ Guðjón segist þó ekki vilja full- yrða fryrirfram hvort löggjafinn þurfi að setja nýjar reglur en að þessi mál þurfi skoðunar við eftir síðustu atburði í viðskiptalífinu. Að sögn Guðjóns hefur þessi fram- vinda mála örugglega pólitísk áhrif því flokkar muni skoða sína pólitík út frá þessum sviptingum og hvaða lærdóm megi draga af þessari reynslu. Guðjón A. Kristjánsson Enginn veit til hvers þetta leiðir Guðjón A. Kristjánsson HJÁLMAR Árnason, formaður þingflokks Framsóknarmanna, segir að sviptingarnar að und- anförnu í ís- lensku við- skiptalífi sýni hve íslenska fjármála- og efnahagslífið sé smátt og þá um leið viðkvæmt fyrir snöggum dýfum. Að mati Hjálmars eru átökin og svipt- ingarnar í viðskiptalífinu ekki á milli pólitískra blokka, heldur séu þetta fyrst og fremst fjárfestar sem takist grimmilega á. Aðspurður hvort löggjafinn þurfi í ljósi þessarar reynslu að setja við- skiptalífinu nákvæmari ramma seg- ir Hjálmar að það hljóti að koma til umræðu á komandi þingi, hvort skerpa þurfi á lögum og reglum við- skiptalífsins. „Ég hlýt líka að setja spurn- ingamerki við hlutverk bankanna. Eru þeir að missa sinn trúverð- ugleika sem viðskiptabankar? Mér finnst það vera ein meginskylda þingsins núna að fara einmitt í gegnum eignarhald bankanna og áhrif bankakerfisins á atvinnulífið með eignarhaldi, fara í greiningu á því og velta upp þeirri spur hvort við þurfum að grípa t hverra aðgerða.“ Að sögn Hjálmars hefur jafnframt lagt það til við fo efnahags- og viðskiptanefn þingis að nefndin taki sérst fund í að kanna hvort þau s sem sett voru til kaupa á L bankanum hafi verið uppfy Hjálmar segist telja að s Búnaðarbankanum hafi he mjög vel, en setur spurning við söluna á Landsbankanu ég set það í samband við hi tísku markmið ríkisstjórna um dreifða eignaraðild, þá segja að það hafi heppnast með Búnaðarbankann, en s hluthafinn þar á ekki nema berum við það saman við L bankann, og með fullri virð ir ráðandi eigendum þar, þ tölurnar okkur einar og sér hafi ekki tekist þetta megin mið.“ Vegna fyrirhugaðrar söl Landssímanum segir Hjálm tryggja verði samkeppnisg völlinn, annars sé betur he ið. „Ef meintir nýir eigend einuðust Og Vodafone, hva samkeppnin? Þá vil ég frek ríkisrekstur heldur en eink fákeppni. Ég held að þetta okkur líka að einkavæðing geiranum er mál sem er ek skrá.“ Hjálmar Árnason Skylda þingsins að kanna eign- arhald banka Hjálmar Árnason BRYNDÍS Hlöðversdóttir maður þingflokks Samfylk arinnar, segir enga spurn að ákve tengsl s milli svi fjármál og stjór anna en sé að sp hvort þ góðs eð „Það se kannski athygli sviptingum er þáttur bank ég held að þar sé mikilvæ stjórnmálamenn skoði hvo sé eðlilegt að bankar geti þessum hætti hlutast til u viðskiptalífinu. Ég leyfi m efast um að það sé hægt t um Norðurlöndum ef mað ar þátt bankanna í viðskip þar.“ Að mati Bryndísar þarf mælalaust að endurskoða bankanna í viðskiptalífinu sambandi gæti verið mjög að skoða hvaða leiðir önnu hafa farið í þessu. „Ég hel sé eitthvað sem er skoðun og ég tel að hvergi sé jafn unarlaust, ef við getum or þannig, fyrir banka að kom beinum hætti inn í viðskip og hér á landi. Ég held að arnir eigi fyrst og fremst þjónustustofnanir en ekki þátttakendur í valdablokk Þeir verða ekki mjög trúv sem sjálfstæðar þjónustus fyrir neytendur, fyrirtæki staklinga, ef þeir eru með hætt að taka þátt í sviptin markaði, eins og þeir hafa Bryndís Hlöðversdótt Bankar sé fyrst og fremst þjó ustustofna Bryndís Hlöðversdóttir INNANTÓMT „VALFRELSI“ Í grein hér í blaðinu í síðustu vikusagði Katrín Jakobsdóttir, einnfulltrúi Reykjavíkurlistans í fræðsluráði Reykjavíkur: „Við [Reykja- víkurlistinn] höfum einnig ýtt undir sveigjanleika í skólastarfi og reynt að gera skólum kleift að sérhæfa sig, t.d. með því að verða móðurskólar í tiltekn- um fögum. Og við höfum að sama skapi ýtt undir valfrelsi almennings. Börn eru ekki lengur skyldug til að sækja sinn hverfisskóla þó að sjálfstæðismenn virðist stundum halda það. Þau geta farið annað og staðreyndin er sú að um 12% reykvískra grunnskólabarna kjósa að sækja annan skóla en sinn hverfis- skóla.“ Í frétt í Morgunblaðinu í dag kemur fram í máli Gerðar G. Óskarsdóttur, fræðslustjóra í Reykjavík, að þetta hlutfall barna, sem ganga í skóla utan síns hverfis, hafi verið óbreytt lengi. Það bendir ekki til að foreldrar hafi nýtt sér hið nýja valfrelsi, sem Reykja- víkurlistinn segist hafa ýtt undir. Aukinheldur bendir Gerður á að val foreldra um skóla sé háð ýmsum skil- yrðum, t.d. að pláss sé í skólanum, sem sótt er um, og að skólastjórinn sam- þykki umsóknina. Í fréttinni segir: „Hún segir þessa kosti ekki hafa verið kynnta fyrir for- eldrum með aðgengilegum bæklingi, eða auglýsta sérstaklega, heldur hafi þessum upplýsingum verið komið á framfæri í árlegri Starfsáætlun fræðslumála í Reykjavík. Starfsáætlun- in er kynnt fyrir öllum foreldraráðum í grunnskólum borgarinnar.“ Hvers konar valfrelsi er það, þegar fólk veit ekki af valkostunum? Hvernig nýtist þá sérhæfing skólanna foreldrum og nemendum? Í foreldraráðum sitja þrír foreldrar í hverjum skóla og þrír til vara. Það má því ætla að í 34 almennum grunnskólum borgarinnar hafi „valfrelsið“ verið kynnt fyrir 100–200 foreldrum af þeim þúsundum, sem eiga börn í grunnskól- um Reykjavíkur. Á vef Fræðslumiðstöðvarinnar, undir hausnum „innritun“ segir að foreldrar verði að skrá börn sín „í sínum heima- skóla“. Ekki orð um val, enda segir Gerður G. Óskarsdóttir í frétt Morg- unblaðsins: „Foreldrar eru ekki hvattir til þess að láta börn sín í skóla utan hverfis síns, enda er stefnan sú að byggja hverfaskóla.“ Það gæti ekki verið mikið skýrara, að tal fulltrúa Reykjavíkurlistans um „val- frelsi“ er innantómt hjal. Það er í raun ekki ætlazt til að foreldrar í Reykjavík velji um skóla fyrir börnin sín. Gerður G. Óskarsdóttir segir að nú séu „uppi áætlanir hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur að veita meiri upplýsingar um skólana en gert hefur verið“. Í því skyni stendur til að færa slíkar upplýs- ingar inn á heimasíðu grunnskólanna. Ef slík upplýsingagjöf til foreldra leiðir til þess að valfrelsið eykst í raun, ber að fagna því. En hvaða hvata munu skólar borgarinnar hafa til að bjóða foreldrum að velja og til að veita sem bezta þjón- ustu? Munu fjárveitingar fylgja nem- endum, þannig að eftirsóttir skólar njóti vinsælda sinna? Ef ekki, hafa skól- arnir ekkert annað en óhagræði af því að foreldar velji þá. Þá eru kostir sam- keppni milli skólanna, sem Morgun- blaðið hefur m.a. hvatt til, ekki nýttir. ÖRUGGARI LYFJAGJÖF Yfirleitt fer saman þegar talað er umsparnað í heilbrigðisþjónustu að draga verði úr þjónustu. Sú er þó ekki alltaf raunin og nýr íslenskur hugbún- aður ber því vitni. Íslenska hugbúnaðar- fyrirtækið Theriak hefur undanfarið unnið að því að koma á markað hugbún- aði, sem notaður er til að stjórna lyfja- gjöf sjúklinga á sjúkrahúsum. Í Morg- unblaðinu í gær var greint frá því að notkun þessa hugbúnaðar hjá St. Elisa- beth-sjúkrahúsinu í Oberhausen í Þýskalandi hefði leitt til þess að lyfja- kostnaður þar hefði lækkað um 15 til 20 af hundraði á þessu ári. Kemur fram að notkun hugbúnaðarins hafi einnig haft í för með sér að líðan sjúklinga hafi batn- að og legutími styst, sem einnig hafi lækkað útgjöld. Hugbúnaðurinn virkar þannig að læknar skrá fyrirmæli á stofugangi um lyfjagjöf og skammtastærð í þráðlausar handtölvur, sem eru búnar hugbúnaðin- um. Tölvurnar veita læknunum greiðan aðgang að upplýsingum varðandi lyfja- meðferð sjúklinganna og yfirsýn yfir framgang meðferðarinnar. Með hug- búnaði Theriak er notað lyfjasérfræði- kerfið Dax, sem kemur úr smiðju Ís- lenskrar erfðagreiningar og er ætlað að auðvelda val á lyfjum, en með notkun þess koma fram ábendingar um auka- verkanir, ofnæmi, milliverkanir milli lyfja, skammtastærðir og fleira. Forsvarsmenn þýska sjúkrahússins hafa ákveðið að fjárfesta frekar í hug- búnaðinum fyrir önnur sjúkrahús, sem þeir reka. Búnaðurinn frá Theriak er einnig til reynslu í verkefnum í Hollandi, Dan- mörku og á Ítalíu og segir Gunnar Hall, framkvæmdastjóri Theriak, að margir spítalar fylgist spenntir með framvind- unni. Einnig er verið að prófa búnaðinn á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og segir Gunnar að náist sambærilegur árangur þar og í Þýskalandi gæti lyfjakostnaður lækkað um 375 milljónir króna á ári mið- að við að ráðgert er að 2,5 milljarða króna lyfjakostnaður verði á LSH árið 2003. Sparnaður er vissulega mikilvægur, en ekki má gleyma öryggisþættinum. Glögg fyrirmæli um lyfjagjöf fyrir- byggja mistök í þeim efnum, en þau geta reynst afdrifarík. Í umfjöllun í Morgun- blaðinu í byrjun janúar kom fram að er- lendar rannsóknir hafa leitt í ljós að dauðsföll af völdum rangra lyfjagjafa séu allt að tvöfalt fleiri en dauðsföll af völdum umferðarslysa. Norskar athug- anir benda til að 500 til 1.000 Norðmenn deyi árlega vegna lyfjamistaka og sam- kvæmt rannsóknum deyja allt að 98 þús- und Bandaríkjamenn á ári vegna lyfja- mistaka eða um helmingi fleiri en látast í umferðinni að meðaltali á ári. Sigurður Guðmundsson, landlæknir, dró mjög í efa í samtali við Morgunblaðið að hægt væri að yfirfæra þessar tölur á Ísland. Þær ættu ekki við hér þrátt fyrir að við- urkennt væri að á íslenskum heilbrigð- isstofnunum ættu sér stað mistök við lyfjagjafir, líkt og annars staðar, sem hefðu leitt til dauða sjúklinga. Tækni sem gerir kleift að spara og bæta um leið þjónustu og öryggi sjúk- linga hljómar nánast of vel til að geta staðist. Reynslan af hugbúnaði Theriak lofar hins vegar góðu og verður spenn- andi að fylgjast með framhaldinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.