Morgunblaðið - 26.09.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.09.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 35 ✝ Guðrún Magnús-dóttir fæddist á Hjalla í Ölfusi 31. ágúst 1915. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Uppsölum í Fá- skrúðsfirði 19. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Jóns- dóttir, f. 6. apríl 1889 á Kúludalsá í Innri- Akraneshreppi í Borgarfjarðarsýslu, d. 4. nóvember 1955 í Reykjavík, og Magn- ús Jónsson, f. 4. maí 1889 á Hlíðarenda í Ölfusi, d. 9. ágúst 1922 í Vestmannaeyjum. Systkini Guðrúnar eru: Magnús, f. 25. júlí 1917, d. 9. maí 1922, og Þór- unn, f. 12. desember 1920. Hinn 4. október 1934 giftist Guð- rún Stefáni Birni Björnssyni, f. 15. júní 1906, d. 27. maí 1971. Börn Guðrúnar og Stefáns eru: 1) Birgir, f. 30. september 1937. Fyrri kona hans var Guðný Þóra Þórisdóttir, f. 5. júlí 1941, d. 25. febrúar 1981. Þeirra börn eru: a) Elísabet Guð- rún, f. 28. júlí 1960, maki Valgeir Kristján Guðmundsson, f. 7. apríl 1958. Börn þeirra eru: A) Jón Ein- ar, f. 26. maí 1978, maki Martina Hlavacova, f. 20. febrúar 1978. B) Þóra Elísabet, f. 18. ágúst 1981, maki Ingvar Már Konráðsson, f. 15. apríl 1975. Börn Þóru og Ingv- ars eru: Stefán Ingi, f. 26. ágúst 1999 og Elísabet Sif, f. 29. septem- ber 2001. C) Hafþór Ingi, f. 4. sept- ember 1988 og D) Karítas Ósk, f. 21. janúar 1994. b) Stefán Þórir, f. Snjólfur Marel, f. 4. júní 1998 og Bergvin Einir, f. 20. júlí 2000. d) Magnús Þorri, f. 9. febrúar 1969, maki Valborg Jónsdóttir, f. 4. maí 1970. Þeirra börn eru: Valtýr Ar- on, f. 7. júlí 1991 og Dagný Sól, f. 18. apríl 2001. e) Elis Frosti, f. 27. febrúar 1970, maki Camilla Ró- bertsdóttir, f. 16. mars 1970. Sonur Frosta er Aðalsteinn Hugi, f. 10. mars 1994 og dóttir Frosta og Camillu er Ronja Snædís, f. 20. jan- úar 2002. 3) Þórunn, f. 5. ágúst 1943, maki Bjarni Björnsson, f. 25. nóvember 1943. Þeirra börn eru: a) Guðrún, f. 26. desember 1964, maki Hallur F. Beck, f. 2. október 1970. Þau eiga óskírðan son, f. 12. apríl 2003. b) Elfa Bára, f. 25. jan- úar 1966, maki Stefán Hjálmars- son, f. 22.12. 1967. Dætur hennar eru: Þórunn Sylvía Óskarsdóttir, f. 2. október 1988 og Sæunn Sunna Samúelsdóttir, f. 20. ágúst 1991. c) Björn Kristinn, f. 13. janúar 1972, maki Hiep Thi Khuc Bjarnason, f. 12. júlí 1972. Dóttir Björns er Ísa- bella Rún, f. 18. febrúar 1994 og sonur Björns og Hiep Thi Khuc er Toni Bjarni, f. 10. desember 2000. Guðrún flutti með foreldrum sín- um til Vestmannaeyja árið 1920 og ólst þar upp en fljótlega eftir ferm- ingu fór hún í vist til Reykjavíkur. Þar kynntist hún Stefáni manni sínum og þar dvöldu þau fyrstu bú- skaparárin. Árið 1936 flytja þau austur að Berunesi við Reyðarfjörð og búa þar til ársins 1971 er Stefán lést. Eftir það átti Guðrún heima á Fáskrúðsfirði, lengst af hjá Magn- úsi syni sínum og Petru konu hans en síðustu árin bjó hún á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum. Útför Guðrúnar fer fram frá Fá- skrúðsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Bálför fer fram síðar og jarðsett verður í Vestmannaeyjum. 2. ágúst 1965, maki Unnur Sigurðardóttir, f. 14. júlí 1967. c) Guð- laugur Björn, f. 14. júlí 1967, maki Kristín Guðmundsdóttir, f. 30. júní 1965. Börn þeirra eru: Guðmundur Daði, f. 3. desember 1989, Guðný Björg, f. 5. september 1991 og Berglind Lilja, f. 20. maí 1995. Síðari kona Birgis: Aðalbjörg Raf- nhildur Hjartardóttir, f. 18. júlí 1942, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Bjarki, f. 5. apríl 1977, b) Börkur, f. 1. júní 1979, unnusta Dögg Ásgeirsdóttir, f. 10. mars 1983. Barn hennar: Ýr Adolfsdótt- ir, f. 26. mars 2000. c) Birgitta, f. 4. febrúar 1983, maki Jóhann Helgi Harðarson, f. 22. desember 1978. Sonur Birgittu er Grétar Rafn Sig- urbjörnsson, f. 9. ágúst 1999 og dóttir Birgittu og Jóhanns er Sæsól Ylfa, f. 12. nóvember 2002. 2) Magnús, f. 6. ágúst 1939, maki Petra Kristín Jakobsdóttir, f. 12. september 1945, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Jakob Ingvar, f. 24. ágúst 1963, maki Bryndís Ósk Sig- fúsdóttir, f. 30. desember 1962. Þeirra dóttir er Ásta Erla, f. 26. mars 1991. b) Guðrún, f. 25. októ- ber 1965, maki Sigurður Ásgeirs- son, f. 30. janúar 1959. Þeirra synir eru: Kristján Björn, f. 8. ágúst 1986 og Kristófer, f. 12. mars 1997. c) Stefán Björn, f. 11. desember 1966, maki Þóra Kristín Snjólfsdóttir, f. 13. júní 1973. Þeirra synir eru: Guðrún móðursystir okkar bjó á Berunesi við Reyðarfjörð frá því að hún var tvítug, að hún hóf búskap með manni sínum Stefáni Björns- syni, því í mikilli fjarlægð að okkar mati í æsku. Guðrún var elst þriggja systkina, næstur Magnús sem dó á fimmta ald- ursári og Þórunn, móðir okkar fimm systkina. Þær systur voru bara tvær og bjuggu langt hvor frá annarri og ólu upp sinn barnahópinn hvor. Þær voru ætíð í góðu sambandi hvor við aðra, ekki brást það að síminn hringdi á afmælum mömmu þar sem Guðrún var að hringja í systur sína í tilefni dagsins. Sama átti við um mömmu sem hringdi austur á afmæl- um Guðrúnar, en brá út af vananum 31. ágúst síðastliðinn með því að senda systur sinni blómvönd til að ómaka hana ekki í síma, enda rúm- liggjandi orðin á hjúkrunarheimilinu á Fáskrúðsfirði. Guðrúnar minnumst við sem ein- staklega alúðlegrar og gestrisinnar frænku sem tók okkur ætíð opnum örmum er við komum í heimsókn, hvort sem það var að Berunesi eða síðari árin á Fáskrúðsfirði. Ekki var um annað að ræða en að borða og þiggja gistingu. Það var sumarið 1999 sem við syst- ur ferðuðumst saman með fjölskyld- um okkar um Austfirðina. Komum þá við hjá Guðrúnu frænku á dvalar- heimilið Uppsali á Fáskrúðsfirði þar sem hún var búin að koma sér vel fyr- ir. Það var kannski þreytandi að taka á móti frændsystkinunum í hverjum bílnum eftir öðrum þennan dag, en Guðrún mátti ekki til þess vita að eitthvert okkar frændsystkinanna færi framhjá enda stóð það ekki til. Hún náði góðu sambandi við börn- in, enda vinur ömmubarna sinna sem eru mörg og fylgdist með hverjum nýjum einstaklingi. Hún var ánægð þegar henni voru sendar myndir af börnum frændsystkina sinna. Hlýjunnar sem stafaði frá Guð- rúnu frænku minnumst við nú og sendum samúðarkveðjur til barna hennar Þórunnar, Magnúsar og Birgis, tengdabarna og afkomenda, einnig til móður okkar við andlát systur hennar. Erla Bil og Eygló Bjarnardætur. Elsku Gunna frænka, þá er langri þrautagöngu þinni lokið og baráttan við illvígan sjúkdóm hefur tekið enda. En það var okkur mikið áfall þegar við fengum þær fréttir að þú hefðir kvatt þennan heim. Það var alltaf mjög gaman að koma til ykkar Stjána upp á Hól þeg- ar við vorum litlar. Alltaf tókst þú vel á móti okkur og brölluðum við margt saman. Þú gafst þér alltaf tíma fyrir okkur, sama hversu upptekin þú varst. Eins og þegar þú varst að vinna í Flugsjoppunni, það voru ófá- ar stundir sem við eyddum þar með þér. Það var alltaf stutt í grínið hjá þér, alltaf gast þú hlegið að bullinu í okk- ur og tekið þátt í vitleysisganginum. Það var ósjaldan að maður gleymdi sér í glensi og gríni í hádeginu á laug- ardögum inni í Höfða, þegar öll fjöl- skyldan hittist „í graut“ hjá ömmu og afa, þar varst þú oft hrókur alls fagn- aðar. Og þrátt fyrir erfiðleikana sem fylgdu sjúkdómi þínum gastu alltaf séð spaugilegu hliðina á öllu og kunn- ir vel að meta þegar umræðurnar voru á léttu nótunum. Við systurnar þökkum þær stundir sem við áttum með þér, þær verða okkur ávallt mikilvægar í minning- unni. Elsku Kristján, Benjamín, María, Guðjón og Guðrún Helga, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð á þessari erfiðu stundu. Sigríður Rósa og Freyja Björk. GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR Það er margt sem kemur upp í hugann við andlát frænda míns, Harðar Guðmundssonar. Hann hafði verið í sveit hjá föður mínum áður en við systkinin fæddumst og tryggð hans við okkur og sveitina var mikil. Hann er nátengdur fyrstu bernsku- minningum okkar, frændfólksins í Hreiðri. Segja má að hann hafi kom- ið á hverju sumri er við vorum litlir krakkar. Oftast með móður sinni, en móðir hans og pabbi minn voru systkin. Var þá alltaf glatt á hjalla því hann var óþreytandi að leika við okkur. Svo átti hann þessa fínu kassamyndavél og tók myndir af okkur. Eru það einu myndirnar sem til eru af okkur fjölskyldunni frá þeim árum. Hann var líka ólatur að skrifa okkur og með móður sinni og fleira frændfólki sendi hann okkur jólagjafir. Var það mikil gleði og spenningur þegar sá kassi var opn- aður á aðfangadagskvöld. Hörður var hamingjumaður í sínu einkalífi. Hann eignaðist góða konu sem hann mat mikils og fjögur yndisleg börn sem öll hafa menntað sig, hvert á sínu sviði. Hann var ekki lítið stoltur þegar hann kom með Kristrúnu sína í fyrstu heimsóknina að Hreiðri og seinna börnin sín. Hann var mikill fjölskyldumaður og barnavinur og einstaklega frændrækinn. Alltaf stóð hús þeirra hjóna okkur opið, frændfólkinu að austan, og sannaðist á þeim að þar sem er hjartrúm þar er húsrúm. Við systkinin frá Hreiðri þökkum Herði alla hans elskusemi og tryggð gegnum árin. Með þessum fátæklegu línum kveð ég minn góða frænda og bið honum fararheilla. Eiginkonu, börnum og fjölskyld- um þeirra sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka, Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði, guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljót skalt. (V. Briem.) Laufey S. Valdimarsdóttir. Lífshlaup okkar er undarlegt ferðalag, en endirinn er óumflýjan- legur. Mest er um að vert að okkur hafi vegnað sæmilega á þeirri lífsgöngu sem okkur er ásköpuð í upphafi ferð- ar. Með örfáum orðum langar mig að þakka Herði Guðmundssyni fyrir samfylgdina á okkar lífsgöngu lið- inna áratuga, sem ekki er hægt ann- að en segja að hafi verið í flestu ánægjuleg. Þú minntist oft á ferð okkar á Pópetunni um Norður- og Austurland í ákaflega blíðu veðri sumarið 1956. Vegir voru slæmir í þá daga, en okkur hlekktist ekki á þótt vafasamt væri um tíma hvort við kæmumst upp Siglufjarðarskarð, Pópetan var heldur vélarvana fyrir svo ógreiðan fjallgarð. En við kom- umst það og okkur var lengi í minni hve stúlkurnar á Siglufirði voru handfljótar við að raða síldinni í tunnurnar á síldarplaninu. Við fórum nokkrum sinnum í sveitina þegar drengirnir okkar voru að hjálpa afa og ömmu við búskapinn í Hólmum. Þeir höfðu byggt sér lítið sumarhús úti við læk og drógu þang- að hvor annan a kassabíl. Það var gaman að sjá hvað þeim leið vel í sveitinni. Ég minnist margra góðra stunda er ég kom í kvöldkaffi á Fornhagann og til umræðu voru ýmsar stundir úr fortíðinni og þú leitaðir í fræðibókum þínum réttra skýringa á málefnun- um. Já, það er svo margt sem kemur upp í hugann á skilnaðarstund, en hér skal staðar numið. Guð blessi þig, þú átt það skilið. Andrés Guðnason. fer gátum við uppfyllt þá ósk þína. Ég veit, elsku mamma mín, að þú ert loksins laus við alla verki sem þig hafa þjáð síðustu 20 árin og þú ert komin til ömmu Sæunnar og afa Þor- steins. Elsku mamma, við kveðjum þig með minningu um þig bjarta. Góða nótt, elsku mamma mín, guð veri með þér, varðveiti þig og gefi þér góða nótt. Þín dóttir Jóhanna. Nú kveðjum við þig, elsku mamma mín, þú ert nú farin frá okkur. Sárt er að sjá á eftir þér en við vitum að þú ert núna komin á betri stað þar sem vel verður tekið á móti þér. Skrýtið verður nú samt að geta ekki hringt í þig og fengið ráð, t.d. við að elda baunasúpu og saltkjöt og að geta ekki labbað í kaffi til þín lengur en svona er víst lífið, guð gefur og guð tekur. Við verðum ávallt með þig í huga okkar og hjörtum. Við elskum þig, mamma mín. Guð varðveiti þig og geymi. Þín dóttir Guðbjörg og fjölskylda. Sú kona sem ég dái mest í þessu lífi er mamma. Ég dái hana fyrir alla hennar takmarkalausu og fórnfúsu ást, fyrir alla hennar þolinmæði og þrautseigju og fyrir allt hennar æðruleysi. Í öll þessi tuttugu ár sem hún hefur verið sjúklingur, hef ég aldrei heyrt hana kvarta. Heppin að fá fyrir hjart- að því þá uppgötvaðist krabbameinið í lungunum! Dæmigert fyrir hana að líta svona á málin. Það hefur aldrei þurft mikið til að gleðja mömmu. Pabbi og við krakkarnir vorum alltaf hennar mesta gleði. Þó við gætum stundum valdið henni vonbrigðum. En hún elskaði okkur eins og við er- um. Hún vissi nákvæmlega hvað hvert okkar vildi og hverju við hefð- um gaman af. Þegar ég kom í heim- sókn vissi hún hvaða sængurver ég vildi helst. Vegna veikinda sinna var hún mikið heimavið. En hún var dug- leg við að hafa samband. Hún elskaði að fara í heimsóknir og fá fólk í heim- sókn. Og hún lagði á sig löng og erfið ferðalög til að vera hjá okkur. Hún hafði sterkar taugar til Flateyrar og þangað kom hún oft eftir að þau fluttu þaðan. Það var sama hvort eitt- hvert okkar bjó á Vestfjörðum, Grímsey eða Svíþjóð, þangað skyldi hún. Það var einmitt á ferðalagi sem hún veiktist nú. Í allt sumar hlakkaði hún til. Það var ekki svo sjaldan sem við ræddum hvað við ætluðum að gera með Jóhönnu og hennar fjöl- skyldu og Valdísi og langömmubörn- unum. Okkur grunar að hún hafi fundið fyrir þeim veikindum, sem drógu hana til dauða, í einhvern tíma áður en við fórum í fríið en leynt okkur því. Hún náði að vera hálfan sólarhring í Svíþjóð áður en hún veiktist. Sá tími sem þá fór í hönd var erfiður, í fyrstu vissum við ekki hvort hún mundi vakna aftur. Matti bróðir kom strax út ásamt sambýliskonu sinni, og vor- um við þakklát fyrir að vera þarna hjá mömmu. Hún vaknaði og þrátt fyrir augljósan skaða var hún ótrú- lega hress. Og við fylltumst von. Því þrátt fyrir allt þá höfðum við hana. Gátum hlegið með henni, séð brosið hennar, fundið lyktina hennar og snert hana. En svo hrakaði henni, trúlegt er að hún hafi áttað sig á að- stæðum sínum og ekki viljað meir. Hún virtist hressast þegar talað var um að nú færi hún að komast heim. En eftir að hún kom heim hrakaði henni. Við erum bara þakklát fyri að hún komst heim og að við gátum öll verið hjá henni. Ég er stolt yfir því að vera dóttir hennar og þakklát fyrir að hún er móðir mín. Ég þakka pabba fyrir að hafa staðið eins og klettur með henni í gegn um öll þessi veik- indaár. Ég kveð hana með hjartað fullt af sorg og söknuði. En sú fullvissa að nú sé hún laus við allan sársauka léttir það aðeins. Takk fyrir allt. Þín dóttir Helga.  Fleiri minningargreinar um Málfríði Ólínu Þorsteinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.