Morgunblaðið - 26.09.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA ÞÓRUNN VIGFÚSDÓTTIR
frá Stóru Hvalsá,
síðar búsett á Selfossi,
sem lést föstudaginn 19. september, verður
jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn
27. september kl. 11.00.
Haukur Arnarr Gíslason, Kristín Pétursdóttir,
Gunnþór Gíslason, Elísabet Sigurðardóttir,
Vígsteinn S. Gíslason, Fjóla Bachmann,
Þorbjörg S. Gísladóttir, Steindór Gunnarsson,
Einar Þór Gíslason, Erna Eggertsdóttir,
Ragnar Gíslason, Lísbet Nílsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ELÍAS BALDVINSSON
slökkviliðsstjóri
í Vestmannaeyjum,
sem andaðist þriðjudaginn 16. september,
verður jarðsunginn frá Landakirkju laugar-
daginn 27. september kl. 14.00.
Halla Guðmundsdóttir,
Baldvin Skæringsson,
Þórunn Lind Elíasdóttir,
Unnur Lilja Elíasdóttir, Gunnólfur Lárusson,
Kristín Elfa Elíasdóttir, Sigurjón H. Adólfsson,
Guðmundur Elíasson, Sæunn Erna Sævarsdóttir,
Sigrún Elíasdóttir, Logi Friðriksson,
Eygló Elíasdóttir, Viðar Sigurjónsson,
Elísa Elíasdóttir, Magnús Benonýsson,
Baldvin Elíasson, Íris Davíðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR BERGMUNDSDÓTTIR
frá Látrum í Aðalvík,
síðast Víðihlíð,
Austurvegi 5, Grindavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnu-
daginn 21. september.
Jarðsungið verður frá Grindavíkurkirkju laugardaginn
27. september kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast
hennar, láti Sjálfsbjörg á Suðurnesjum njóta þess.
Gísli Hólm Jónsson,
Ester Gísladóttir, Vigfús Árnason,
Haraldur Gíslason,
Ágústa Halldóra Gísladóttir, Hafsteinn Sæmundsson,
Margrét Rebekka Gísladóttir, Gunnar Eyjólfs Vilbergsson,
Sigríður Jóna Gísladóttir, Þórarinn Heiðmann Guðmundsson,
Páll Gíslason, Ásta Agnes Jóhannesdóttir,
Inga Fríða Gísladóttir, Óttar Hjartarson,
ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
Breiðumörk 11,
Hveragerði,
sem lést föstudaginn 19. september, verður
jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn
27. september kl. 14.00.
Guðfinna Sigmundsdóttir, Árni Guðmundsson,
Karlinna Sigmundsdóttir, Magnús Gíslason,
Ingibjörg Sigmundsdóttir, Hreinn Kristófersson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
HELGA BALDVINSDÓTTIR,
Hægindi,
Reykholtsdal,
sem andaðist á Dvalarheimili aldraða, Borgar-
nesi, laugardaginn 20. september, verður
jarðsungin frá Reykholtskirkju þriðjudaginn
30. september kl. 14.00.
Auður Pétursdóttir,
Vigfús Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför
HELGU SIGRÍÐAR EIRÍKSDÓTTUR,
Starhaga 14.
Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk K-1 og L-5 á
Landspítala Landakoti og hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir einstaka umönnun og vináttu.
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
Andrés Jón Esrason, Bjarni Jónsson,
Jón Eiríksson, Áslaug K. Sigurðardóttir,
Timothy David Creighton, Ruth Barnett Creighton.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ÞÓRARINS SVEINBJÖRNSSONAR,
Birkihlíð,
Stokkseyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Selfossi fyrir auðsýnda um-
hyggjusemi og alúð.
Einnig til starfsliðs krabbameinsdeildar Landspítala.
Þórgunnur Jónsdóttir,
Matthías Þórarinsson.
✝ Þórir Laxdal Sig-urðsson fæddist á
Akureyri 24. júlí 1927.
Hann lést á Landa-
kotsspítala 18. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Sigurður Jón-
atansson, f. 1.3. 1864,
d. 10.1. 1949, frá Ein-
arsstöðum í Reykja-
dal, og kona hans
Ágústa Rósa Jósefs-
dóttir, f. 12.10. 1891,
d. 19.2. 1974, frá
Hillnabakka á Ár-
skógsströnd. Systkini
Þóris voru 16 talsins, þar af fjögur
alsystkin 1) Guðmunda, f. 6.8. 1921,
d. 29.10. 1992. 2) Jón, f. 26.8. 1922, d.
6.11. 2002. 3) Hermína, f. 13.11. 1923.
4) Hreinn f. 20.2. 1930, d. 18.4. 1993.
Hinn 29. desember 1951 kvæntist
Þórir Herborgu Kristjánsdóttur
kennara, f. 20.12. 1922, d. 19.9.
1989. Foreldrar hennar voru hjónin
Kristján Þórarinsson, f. 14.5. 1877,
d. 4.3. 1942, bóndi í Holti í Þistil-
firði, og kona hans Ingiríður Árna-
dóttir, f. 23.2. 1887, d. 29.6. 1971,
húsfreyja í Holti.
Börn Þóris eru: 1) Ágústa Rósa, f.
16.12. 1947, maki Hjörvar Garðars-
son; börn þeirra: Borgþór og Svan-
hildur Fanney. 2) Guðfinna Anna
Hjálmarsdóttir, f. 30.11. 1948,
maki: Grímur Ingólfsson; börn:
Þórunn Ragnheiður, Hjálmar Axel
og Vilhjálmur Árni. 3) Ingiríður, f.
19.6. 1952; maki: Ingvar Einarsson;
börn þeirra: Þórir Brjánn, Ásrún
myndíðanefnd um skipan mynd- og
handmenntanáms í íslenskum skól-
um 1971–73, formaður 1973 og for-
maður í námskrárnefnd mynd- og
handmennta 1973–77. Þá var Þórir
prófdómari í teikningu á barna-
prófi og unglingaprófi í Reykjavík
1967–75 og sat í stjórn Félags ís-
lenskra myndlistarkennara. Einnig
sat hann í stjórn Félags kennara á
eftirlaunum og var formaður þess
um skeið. Fulltrúi Íslands í INSEA
– alþjóðlegum samtökum mynd-
menntakennara frá 1972.
Höfundur og meðhöfundur
fjölda rita um teikningu og mynd-
og handmennt.
Með störfum sínum í tvo áratugi
sem námstjóri í menntamálaráðu-
neytinu, námsefnishöfundur og
leiðbeinandi kennara hafði Þórir
mikil áhrif á framþróun í mynd- og
handmenntakennslu og skriftar-
kennslu hér á landi.
Með ritun og samningu forskrift-
arbóka og fleiri kennslubóka og
handbóka um skriftarkennslu hafði
hann mótandi áhrif á rithönd ís-
lenskra ungmenna á síðustu ára-
tugum.
Þórir var mikill áhugamaður um
listir og listfræðslu, skrift og skrift-
arkennslu. Hann var sjálfur lista-
skrifari og var oft fenginn til að
annast skrautritun m.a. á verð-
launaskjöl af ýmsu tagi. Hann
myndskreytti fjölda kennslubóka í
ýmsum námsgreinum. Hann hafði
áhuga á handverki hvers konar og
sat um árabil í ritnefnd tímaritsins
Hugur og hönd. Þá var hann einnig
liðtækur skákmaður og hafði m.a.
umsjón með skákstarfsemi fyrir
eldri kennara.
Útför Þóris fer fram frá Áskirkju
í Reykjavík í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Brynja og Herborg
Harpa. 4) Þóra Björg,
f. 17.4. 1957, maki
Ámundi Sigurðsson;
börn þeirra: Örn Alex-
ander, Sigurður Þórir
og Óskar Þór. 5) Guð-
rún, f. 10.7. 1959, maki
Ari Magnússon; börn:
Páll og Jón Ingvar. 6)
Sigurður Kristján, f.
10.7. 1959, börn: Nína
Guðríður og Þórir Ey-
steinn. Barnabarna-
börnin eru ellefu tals-
ins.
Þórir lauk gagn-
fræðaprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1944 og teiknikennara-
prófi frá Handíðaskólanum 1949.
Hann var við framhaldsnám í Dan-
mörku 1964 og sótti fjölmörg kenn-
aranámskeið innan lands og utan
1969–82.
Þórir var teiknikennari við
Laugarnesskóla 1949–1969 og
stundakennari þar 1969–83. Um-
sjónarkennari með myndmennta-
kennslu á skyldunámsstigi og safn-
akennslu í Reykjavík 1969–74.
Hann var starfsmaður skólarann-
sóknadeildar menntamálaráðu-
neytisins frá 1974, var námstjóri í
mynd- og handmennt frá 1975 fram
til ársins 1992 og sinnti eftir það
ýmsum verkefnum á vegum ráðu-
neytisins fram til 1994.
Þórir stjórnaði endurmenntunar-
námskeiðum fyrir mynd- og hand-
menntakennara 1971–78 og 1983.
Hann sat í ýmsum nefndum, t.d. í
Það er ósjaldan sem við höfum
sagt og heyrt aðra segja, að afi okkar
ætti engan sinn líka. Hann var ein-
stakur maður og mikill karakter.
Afi var teiknikennari og lista-
skrifari og í æsku sátum við syst-
urnar oft við eldhúsborðið á Vest-
urbrún með bunka af blöðum, nóg
af pennum og alla þá liti sem hægt
var að hugsa sér, með afa okkur við
hlið, óþreytandi við að kenna okkur
alls kyns kúnstir. Við höfum án efa
notið góðs af leiðsögn hans, lært að
vanda okkur og skila hlutunum vel
frá okkur. Hann fylgdist ætíð með
því sem við systurnar vorum að
gera og hafði gaman af að rökræða
við okkur um allt frá illa skrifaðri
blaðagrein til málefna líðandi
stundar.
Að horfa á grínmynd með afa var
oft ævintýri líkast, þar sem aðalat-
riðið hjá okkur var ekkert endilega
að horfa á myndina heldur að fylgj-
ast með afa þar sem hann sat í stóln-
um sínum og hristist af hlátri þar til
tárin láku niður kinnarnar og erfitt
annað en að hlæja með.
Mikið eigum við eftir að sakna
þess að heyra ekki í Volvo-inum hans
afa renna inn Réttarbakkann á
sunnudögum og heyra afa kalla hó,
til að gefa til kynna að hann væri
mættur.
Afi og amma skilja eftir sig stóran
hóp afkomenda, og er það gleðiefni
að Bergur Kári flýtti sér í heiminn
áður en að langafi hans kvaddi.
Við munum geyma í hjörtum okk-
ar minninguna um yndislegan afa.
Guð blessi hann og varðveiti.
Ásrún og Herborg.
Elsku afi. Það er dýrmætt að hafa
fengið að eiga svona góðan afa eins
og þig.
Við erum mjög þakklátir fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
með þér og fyrir það hvað þú hefur
alltaf reynst okkur vel.
Þú hefur alltaf stutt við bakið á
okkur, hvað sem við höfum tekið
okkur fyrir hendur og alltaf fylgst
vel með okkur og verið áhugasamur
um allt sem við höfum verið að gera.
Þú hefur alltaf verið svo góður
vinur okkar og við höfum alltaf getað
leitað til þín. Þú áttir alltaf til svör
við öllum okkar spurningum og varst
alltaf tilbúinn að hjálpa okkur við
hvað sem var.
Þær eru ófáar stundirnar sem þú
eyddir í að hjálpa okkur með heima-
lærdóminn og aukatímarnir sem við
fengum hjá þér í hinum ýmsu fögum
voru ófáir. Við ætlum aldrei að
gleyma öllu því sem þú hefur kennt
okkur.
Elsku afi. Lífið verður tómlegt án
þín. Okkur finnst eins og það vanti
bút í hjörtu okkar.
En við yljum okkur við allar góðu
minningarnar um þig og huggum
okkur við tilhugsunina um það að nú
ertu kominn til ömmu Herborgar í
himnaríki og nú þarftu ekki lengur
að berjast við veikindin.
Við biðjum algóðan Guð að blessa
þig og passa að þér líði alltaf vel.
Þínir
Páll og Jón Ingvar.
Þegar ég hugsa um afa minn koma
í huga minn margar minningar.
Við unnum saman í garðinum á
Vesturbrún og brenndum rusl, tálg-
uðum saman í tré í Katlagili, hann
kenndi mér að tefla, hann leiðbeindi
mér í teikningu og þreyttist aldrei á
að segja mér til hvað betur mætti
fara. Hann var fyrst og fremst ynd-
islegur maður og ég var svo heppinn
að hann var afi minn. Þegar ég ákvað
hvað ég vildi læra tók afi mig í fóstur
og miðlaði til mín alls kyns fróðleik
sem hann taldi að ég þyrfti á að
halda. Ég á mjög erfitt með að sætta
mig við að afi sé farinn, en amma
hefur beðið lengi eftir honum.
Við eyddum ófáum stundum sam-
an á Vesturbrún þegar ég var yngri
og hitti ég afa að minnsta kosti einu
sinni í viku nú seinni ár. Afi var alltaf
tíður gestur í mat hjá mömmu eftir
að amma dó og var stór partur af
fjölskyldunni. „Þetta er búið, hó, safi
ÞÓRIR LAXDAL
SIGURÐSSON