Morgunblaðið - 26.09.2003, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 26.09.2003, Qupperneq 43
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 43 Styrktarmót fyrir Ragnhildi Sigurðardóttur sunnudaginn 28. september í Grafarholti Leikinn verður tveggja manna Scramble. Mæting kl. 12:00, ræst út af öllum teigum kl. 13:00. Glæsileg verðlaun fyrir 10 efstu sætin. Nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Dregið úr skorkortum í leikslok. Skráning í síma 585 0210 og í golfverslun í Grafarholti. Þátttökugjald kr. 3.000 á mann. DANIR urðu sigurvegarar í opna skandinavíska mótinu í handknatt- leik, sem fór fram í Farum í Dan- mörku í vikunni. Þeir fögnuðu sigri á Svíum í úrslitaleik, 30:29. Hetja þeirra var Claus Flensborg, sem skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok, en hann skoraði þrjú mörk sín í leiknum á lokakaflanum. Danir höfðu áður lagt heimsmeistarana frá Króatíu að velli, 28:21. Norð- menn unnu Króata í leik um þriðja sætið, 27:25. Danskir fjölmiðlar gera ekki mikið úr sigri Dana – kalla danska liðið heimsmeistara í æfinga- leikjum, en landslið Dana olli mikl- um vonbrigðum á heimsmeistara- mótinu í Portúgal sl. vetur, eftir að hafa verið á mikilli siglingu fyrir HM. Torben Winther, landsliðsþjálf- ari Dana, segir að hann ætli að skerpa á sínum mönnum fyrir Evr- ópukeppnina í Slóveníu í janúar, en þar leika Danir í riðli með Spán- verjum, Króötum og Portúgölum. Danir leika átta landsleiki á rúm- um mánuði. Þeir mæta Sólvenum í tveimur leikjum í Danmörku um næstu helgi, síðan leika þeir gegn Þýskalandi, Noregi og Serbíu- Svartfjallalandi á móti í Danmörku 24.–26. október og gegn Ungverja- landi, Rússlandi og Noregi á móti sem hefst í Noregi 7. nóvember. Lið frá Balkanskaganum Winther var ánægður með leik sinna manna gegn Króatíu í Farum og einnig að framundan séu leikir gegn Slóveníu og Serbíu-Svart- fjallalandi. „Það er mjög gott fyrir okkur að leika gegn liðum frá Balk- anskaganum áður en við höldum þangað til að taka þátt í Evrópu- keppninni í Slóveníu,“ sagði Winther. Danir undirbúa sig vel fyrir EM ÍSLAND sigraði Albaníu, 3:1, í fyrsta leik sínum í undanriðli Evrópumóts drengjalandsliða í knattspyrnu sem fram fór í Litháen í gærmorgun. Matt- hías Vilhjálmsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks og Rúrik Gíslason bætti tveimur mörk- um við með tveggja mínútna millibili í þeim síðari. Albanir náðu síðan að laga stöðuna seint í leiknum. Íslenska liðið leikur við Litháa í dag og Rússa á sunnu- dag en Rússar unnu stórsigur á Litháum, 5:0, í fyrstu um- ferðinni í fyrradag. Rúrik með tvö gegn Albaníu VARDAR Vatrostalna Skopje, einn af mótherjum Hauka í Meistaradeild Evrópu í vetur, byrjaði deildakeppnina í Makedóníu með miklum látum um síðustu helgi. Vardar burstaði þá nýliðana Stru- mica, 42:19, í fyrstu umferð. Liðinu er spáð öruggum sigri í makedónsku deildakeppninni í vetur en það er með lang sterkasta leikmannahópinn, sjö núverandi landsliðsmenn og auk þess Pepe Manaskov, besta handknattleiksmann Makedóníu fyrr og síðar, sem nú er orðinn 39 ára gamall. Vardar vann tvö æfingamót í haust, annað í Bosníu og hitt í Serbíu-Svartfjallalandi. Þar sigraði Vardar lið á borð við Pick Szeged frá Ungverja- landi, Partizan Belgrad og Steaua Búkarest. Haukar leika við bæði Barcelona og Magdeburg í Meistaradeild Evrópu áður en þeir fá Vardar í heimsókn 8. eða 9. nóvember. Liðin mæt- ast síðan aftur í lokaumferð riðilsins í Skopja í lok nóv- ember. Risasigur hjá mótherj- um Hauka  FORRÁÐAMENN norska knatt- spyrnuliðsins Rosenborg brosa breitt þrátt fyrir að hafa misst af allt að 700 millj. kr. tekjum vegna meist- aradeildar Evrópu. Leikmenn liðsins sváfu á verðinum þegar samið var um bónusgreiðslur hvað varðar UEFA-bikarinn en í gegnum tíðina hafa leikmenn liðsins skipt á milli sín 30% af hagnaði félagsins vegna meistaradeildarinnar. Sá samningur rann út á dögunum án þess að leik- menn gerðu sér grein fyrir því.  ERIK Hoftun, talsmaður leik- manna Rosenborgarliðsins, segir að menn þar á bæ hafi ekki gert sér grein fyrir þessu og þessi mistök megi skrifa á leikmenn liðsins.  HINN litríki, markvörður José, Luis Chilavert, fyrrverandi lands- liðsmarkvörður Paragvæ, hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna þegar samningur hans við Penarol í Úrúgvæ rennur út. Chilvert er 38 ára gamall og var þekktur fyrir að taka flestar víta- og aukaspyrnur sinna liða í gegnum tíðina og skora mörg glæsileg mörk. Auk þess sem hann var í fremstu röð sem mark- vörður.  CHILAVERT útilokar ekki að hann snúi sér að þjálfun í framtíðinni en fyrst um sinn mun hann vera meira með fjölskyldu sinni. FÓLK Reuters Helgi Sigurðsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, gerði góða ferð til Grikklands með Lyn. Hann skoraði sigurmarkið gegn PAOK í UEFA-leik, 1:0. Þess má geta að Helgi, sem sést hér í Evrópuleiknum, lék með gríska liðinu Panathin- aikos áður en hann gerðist leikmaður Lyn, sem á nú góða möguleika á að komast áfram í UEFA-keppninni. ÓLAFUR Stefánsson skoraði 9 mörk, þar af þrjú úr vítaköstum, þeg- ar lið hans Ciudad Real vann Pilotes Posada í spænsku 1. deildinni í handknattleik í fyrra- kvöld. Þetta var þriðji sigur Ciudad á leiktíðinni og er liðið efst í deildinni ásamt Valladolid með sex stig en Barcelona er í þriðja sæti með 5 stig. Ólafur og samherjar lentu í kröppum dansi í leiknum og voru m.a. undir í hálfleik, 14:12 og fram undir miðjan síðari hálfleik þegar gamla brýnið Talant Dujshebaev tók til sinna ráða í sókninni og lék félaga sína uppi og þótti reynsla hans ríða baggamuninn fyrir Ciudad Real á loka- sprettinum. Auk mark- anna níu var Ólafur rek- inn af leikvelli í tvígang. Það gengur ekki sem best hjá Bidasoa, liði Heiðmars Felixsonar og Patreks Jóhannessonar. Það er í 13. sæti af 16 lið- um í deildinni og hefur aðeins eitt stig þegar þrír leikir eru að baki. Í fyrrakvöld tapaði liðið fyrir Barce- lona í Katalóníu með tíu marka mun, 34:24. Heiðmar þótti vera besti maður Bidasoa í leiknum en hann skoraði sjö mörk. Patrekur átti erfitt uppdráttar og gerði eitt mark úr vítakasti. Ólafur með 9 mörk í þriðja sigri Ciudad Ólafur Þá hafa Stefán Arnaldsson ogGunnar Viðarsson fengið fjögur verkefni á næstu vikum. Þeir fara til Danmerkur núna um helgina og dæma tvo vináttulandsleiki milli kvennaliða Dana og Slóvena, sem verða leiknir í Kolding og Haderslev. Síðan dæma þeir leik í meistaradeild kvenna milli Besancon frá Frakk- landi og Motor Zaporozhye frá Úkraínu í Frakklandi hinn 12. októ- ber og leik Quintus frá Hollandi og Michalovce frá Slóvakíu í Evrópu- keppni bikarhafa kvenna í Hollandi hinn 18. október. Dæma tvo leiki í Portúgal Þeir Hlynur Leifsson og Anton Helgi Pálsson fara til portúgölsku eyjunnar Madeira og dæma þar tvo leiki í EHF-bikarkeppni kvenna dagana 18. og 19. október. Sá fyrri er á milli CS Madeira og Zeeman Vastgoed frá Hollandi en sá síðari á milli Madeira Andebol og Slovan Duslo Sala frá Slóvakíu. Ennfremur verða fjórir Íslending- ar eftirlitsmenn á Evrópuleikjum í næsta mánuði. Hákon Sigurjónsson verður á leik Ademar Leon frá Spáni og Alpla Hard frá Austurríki í meist- aradeild karla hinn 11. október. Gunnar Gunnarsson verður á leik Créteil frá Frakklandi og Sviesa Vilnius frá Litháen í Evrópukeppni bikarhafa karla hinn 12. október. Björn Jóhannesson verður á leik GOG frá Danmörku og Ionikos frá Grikklandi í sömu keppni 12. okt. Kjartan Steinbach verður á leik Nordstrand frá Noregi og Hypo Niederösterreich frá Austurríki í meistaradeild kvenna 18. október í Noregi. Guðjón og Ólafur dæma í Lemgo GUÐJÓN L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, milliríkjadómarar í handknattleik, dæma viðureign þýsku meistaranna Lemgo og ítölsku meistaranna Conversano í Meistaradeild Evrópu í karla- flokki. Leikurinn fer fram í Lemgo 18. febrúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.