Morgunblaðið - 26.09.2003, Side 44
ÍÞRÓTTIR
44 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Grolsch Open
á Akranesi
sunnud. 28. september
www.golf.is/gl
Víkingsballið
Stórdansleikur verður haldinn í Víkinni
laugardagskvöldið 27. september.
Hljómsveitin BUFF leikur fyrir dansi.
Forsala miða verður í Víkinni milli kl. 14:00 og 16:00.
Húsið opnað kl. 23:00.
Allir velunnarar hvattir til að mæta
meðan húsrúm leyfir.
3JA golfmót
hreyfihamlaðra
2003
verður haldið hjá Golfklúbbi Kiðjabergs
laugardaginn 27. september nk. og hefst kl. 13.00.
Þátttökurétt eiga allir, sem búa við hreyfihömlun
og eru félagar í golfklúbbi.
MÓTIÐ ER EINNIG OPIÐ ÓFÖTLUÐUM.
Veitt verða verðlaun bæði í flokki fatlaðra svo og gesta.
Leikfyrirkomulag Stableford, full forgjöf.
Ræst út á öllum teigum kl. 13.00.
GOLFSAMTÖK FATLAÐRA Á ÍSLANDI.
UNGLINGALANDSLIÐ kvenna í knatt-
spyrnu stendur mjög vel að vígi í undanriðli
Evrópumótsins, undir 19 ára, eftir sigur á
Slóvakíu, 5:3, í gær. Riðillinn er leikinn í
Slóvakíu. Ísland var komið í 3:0 eftir aðeins
17 mínútna leik með mörkum frá Dóru Mar-
íu Lárusdóttur, Hörpu Þorsteinsdóttur og
Dóru Stefánsdóttur. Slóvakar minnkuðu
muninn en þær Nína Ósk Kristinsdóttir og
Greta Mjöll Samúelsdóttir bættu við mörk-
um í síðari hálfleiknum og staðan var orðin
5:1. Undir lokin náðu heimastúlkur að laga
stöðuna með tveimur mörkum.
Ísland er með 6 stig, Tékkland 3, Slóvakía
3 og Lettland 0. Tékkar unnu Letta, 7:0, í
gær en Slóvakar unnu Tékka, 3:0, í fyrstu
umferðinni. Íslenska liðið, sem vann Letta
4:0 í fyrstu umferð, mætir Tékkum í síðasta
leik sínum á morgun og nægir jafntefli til að
tryggja sér áframhald í keppninni.
Góð staða
í Slóvakíu
ÍSLENSKU kylfingarnir fjórir sem taka þátt í úrtökumótinu fyrir
evrópsku mótaröðina á Five-Lakes vellinum á Englandi héldu sínu
striki í gær á þriðja keppnisdegi og eru Björgvin Sigurbergsson úr
GK og Sigurpáll Geir Sveinsson úr GA með forystu fyrir loka-
hringinn sem fram fer í dag, en Bandaríkjamaðurinn Johan Kok er
einnig 7 högg undir pari.
Björgvin lék best íslensku kylfinganna í gær en hann notaði 68
högg og var á 4 höggum undir pari. Sigurpáll Geir lék á parinu í
gær en þeir hafa báðir leikið á samtals 7 höggum undir pari og eru
í efsta sæti ásamt Johan Kok frá Bandaríkjunum.
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék einnig vel í gær, eða 69
höggum. Hann er á samtals 3 höggum undir pari og er í 12.-13.
sæti . Ólafur Már Sigurðsson úr GK náði sér ekki eins vel á strik og
lék nú á 75 höggum, eða 3 yfir pari. Hann er samtals á tveimur
höggum yfir pari, en er í 31.- 40 sæti.
Um 40 kylfingar komast áfram á annað stig úrtökumótsins af
þessum velli en keppt er á fimm völlum þessa dagana.
Á öðru stig úrtökumótsins mæta til leiks kylfingar sem léku m.a
á áskorendamótaröðinni í vetur (Challenge Tour) en náðu ekki að
tryggja sér rétt til þess að fara beint inná síðasta úrtökumótið.
Sigurpáll og Björgvin
með forystu
Argentínumaðurinn knái, JavierSaviola, er öllu vinsælli og vilja
flestir að hann fái fleiri tækifæri til að
spreyta sig sem mið-
herji en Frank
Rijkaard, þjálfari
liðsins, hefur látið
hinn smávaxna Sav-
iola leika sem hægri útherji. Kluivert
segir í viðtölum í fjölmiðlum í Barce-
lona, að hann átti sig ekki á hvers
vegna áhorfendur púi á hann í heima-
leikjum á Camp Nou. Hann bendir á
að þó hann setji ekki alltaf mörk, þá
hafi hann lagt upp mörg mörkin og
tvöfaldað stoðsendingar sínar frá því
að hann kom fyrst til Barcelona.
Það á eflaust sinn þátt í óvinsæld-
um hollenska landsliðsmannsins, að
hann hefur margoft sagt að hann hafi
mikinn áhuga á að spreyta sig í ensku
knattspyrnunni.
Settur út fyrir að tala í farsíma
Gerard, miðjumaður Barcelona,
var settur út úr liðinu fyrir UEFA-
leikinn gegn Puchov í Slóvkíu á mið-
vikudaginn. Ástæðan fyrir því var að
hann talaði í farsíma inni í búnings-
klefa rétt fyrir leikinn. Frank Rijka-
ard, þjálfari, sagði að Gerard hafi
brotið reglur með hegðun sinni og
hann hafi ekki sætt sig við hegðun
hans. „Þetta er aðvörun fyrir hann og
aðra leikmenn, að fara eftir þeim
reglum sem við setjum.“
Gerard er einn af efnilegustu leik-
mönnum Spánar – var keyptur frá
Valencia fyrir þremur árum á 1,6
milljarða ísl. kr.
Luis Enrique var færður inn á
miðjuna fyrir Gerard og Ricardo
Quaresma settur á hægri kantinn.
Kluivert skoraði mark liðsins.
Nýtt æfingasvæði í Madrid
Þegar Florentin Perez var kjörinn
forseti Real Madrid, var eitt af kosn-
ingaloforðum hans að lækka skuldir
liðsins, sem eru miklar. Einn liður í
því er að búið er að selja æfingasvæði
liðsins, sem er í hjarta Madridar og
mjög verðmætt byggingarland. Búið
er að kaupa svæði lengra frá og er
verið að vinna við að ganga byggja
það upp. Á meðan æfa leikmenn Real
Madrid á bráðabirgðasvæði, sem er
að mati heimamanna fyrir neðan all-
ar hellur. Lítil sem engin aðstaða er
fyrir áhorfendur og fælir það fjöl-
marga stuðningsmenn liðsins frá,
sem hafa fjölmennt til að fylgjast
með æfingum.
Iker Casillas, markvörður Real, er
einn þeirra sem er ekki sáttur við
breytinguna. Menn segja að það sé
ekki nema von – hann bjó við húsgafl-
inn á gamla æfingasvæðinu, Las
Rosas.
Raúl ekki með
Raúl, fyrirliði Real Madrid, mun
líklega ekki leika með liðinu gegn
Valencia á laugardaginn, vegna
meiðsla. Raúl hefur, eins og Ronaldo,
skorað þrjú mörk í fyrstu fjórum
leikjunum í 1. deildarkeppninni á
Spáni. Real og Valencia eru með 10
stig eftir fjórar umferðir, en La Cor-
una er með fullt hús stiga, 12.
Reuters
Patrick Kluivert og Javier Saviola fagna marki.
Kluivert frá
Barcelona?
HOLLENSKI framherjinn Patrick Kluivert hefur ekki átt sjö dagana
sæla undanfarið í Barcelona, þar sem hann er langt frá því að vera í
náðinni hjá stuðningsmönnum liðsins. Ástæða fyrir þessum óvin-
sældum er að áhangendurnir eru ósáttir við hvað Patrick hefur nýtt
illa marktækifæri í leikjum Barcelona, en hann hefur að undanförnu
hreinlega vaðið í marktækifærum án þess að ná að nýta sér þau.
Ingi Úlfar
Helgason
skrifar
frá Spáni
ÚRSLIT
KEVIN Keegan, knattspyrnu-
stjóri Manchester City, segist vera
afar vonsvikinn með stuðningsmenn
liðsins vegna þess að þeir bauluðu á
leikmenn City þegar þeir gengu til
búningsherbergja sinna í hálfleik
gegn Lokeren í fyrrakvöld, en þá
voru þeir undir, 2:1. „Stuðnings-
menn verða að standa á bak við liðið
jafnt í mótbyr sem meðbyr. Það hef-
ur ekki verið baulað á liðið fyrr, ekki
einu sinni þegar við voru 4:0 undir
gegn Arsenal í fyrra,“ sagði Keegan.
ÞÁ segir Keegan að markvörður-
inn David Seaman hafi beðið félaga
sína afsökunar á fyrra marki Loker-
en í leiknum en þar var Seaman ekki
vel á verði. „Seaman bað félaga sína
velvirðingar strax í hálfleik og bað
þá jafnframt að standa þétt saman
og vinna leikinn í síðari hálfleik,“
sagði Keegan sagði að mistök
Seamans myndu engu breyta um
stöðu hans sem aðalmarkvarðar liðs-
ins. „Sá maður sem ekki gerir mistök
hefur enn ekki fæðst.“
JONATHAN Woodgate, varnar-
maður Newcastle og enska lands-
liðsins í knattspyrnu, gengst undir
aðgerð á báðum nárum um helgina
og verður frá keppni næstu vikurn-
ar. Woodgate verður þar með ekki í
enska landsliðinu í hinum þýðingar-
mikla úrslitaleik við Tyrki um sæti í
lokakeppni Evrópukeppni landsliða í
Portúgal. Leikurinn fer fram í Ist-
anbúl 11. október.
DAÐI Hafþórsson, handknatt-
leiksmaður úr Gróttu/KR, verður
frá keppni næstu 6-8 vikurnar. Hann
tognaði aftan í læri þegar lið hans lék
við Fram á Íslandsmótinu í fyrra-
kvöld.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, hefur beðist afsökun-
ar á framkomu nokkurra leikmanna
sinna í lok kappleiks Manchester
United og Arsenal um síðustu helgi.
Wenger segir leikmenn sína hafa
farið yfir strikið og hann og þeir
harmi að það hafi gerst.
NORSKI landsliðsmaðurinn John
Carew, leikmaður með Roma, var í
gær ekki búinn að svara símhring-
ingum frá Nils Johan Semb, lands-
liðsþjálfara Noregs, sem vill ræða
við Carew um Evrópuleik gegn Lúx-
emborg. Samb sendi Carew heim á
dögunum fyrir vináttuleik gegn
Portúgal, eftir að Carew hafði
lumbrað á samherja sínum John
Arne Riise. Þar sem Ole Gunnar
Solskjær er frá keppni, vill Samb
kanna hug Carew, en hefur ekki
fengið svar. Norska knattspyrnu-
sambandið hefur sent leikmanninum
bréf, þar sem hann er boðaður í
landsleikinn gegn Lúxemborg.
UMBOÐSMAÐUR Carew sagði í
gær, að leikmaðurinn hefði alltaf
metnað til að leika fyrir Noreg.
FÓLK
HANDKNATTLEIKUR
Íslandsmót karla, RE/MAX-deildin, norð-
urriðill:
Akureyri: Þór - Grótta/KR...................19.15
Varmá: Afturelding - KA......................19.15
Hlíðarendi: Valur - Víkingur .....................20
Í KVÖLD
HANDKNATTLEIKUR
HK – Haukar 27:25
Digranes, Kópavogi, Íslandsmót karla, RE/
MAX-deildin, suðurriðill, fimmtudaginn 25.
september 2003.
Gangur leiksins: 0:1, 4:1, 6:2, 8:5, 11:5, 11:7,
13:7, 14:8, 15:12, 20:13, 21:17, 24:18, 24:21,
26:21, 26:23, 27:23, 27:25.
Mörk HK: Brynjar Valsteinsson 7, Alex-
ander Arnarson 5, Augustas Strazdas 4,
Haukur Sigurvinsson 4/4, Atli Þór Sam-
úelsson 3, Andrius Rackauskas 2, Samúel
Árnason 2.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 26/4
(þar af fóru 8/1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 18 mínútur. Þar af fengu Jón
Bersi Ellingsen og Augustas Strazdas
rautt spjald fyrir þrjár brottvísanir.
Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hallgrímsson 8,
Jón Karl Björnsson 5/5, Þorkell Magnús-
son 3, Matthías Árni Ingimarsson 3, Dalius
Rasikevicius 3, Andri Stefan 2, Halldór
Ingólfsson 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 18/1
(þar af fóru 6 aftur til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Hlynur Leifsson og Anton Gylfi
Pálsson voru góðir.
Áhorfendur: Um 320.
Staðan í suðurriðli:
FH 3 3 0 0 92:67 6
ÍR 3 3 0 0 88:73 6
HK 3 2 0 1 75:75 4
Haukar 2 1 0 1 54:50 2
Breiðablik 3 1 0 2 73:82 2
ÍBV 2 0 1 1 56:60 1
Stjarnan 3 0 1 2 74:85 1
Selfoss 3 0 0 3 69:89 0
Opna skandinavíska mótið
Mótið fór fram í Danmörku. Leikur um
bronsverðlaun:
Noregur – Króatía.................................27:25
Leikið um gull:
Danmörk – Svíþjóð................................30:29
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarinn
1. umferð, fyrri leikir:
Kamen (Kró) – Schalke ............................0:0
Hamburger SV – Dnipro (Úkr) ...............2:1
Wisla Krakow (Pól) – Nijmegen (Hol) ....2:1
Feyenoord – Kärnten ...............................2:1
Bordeaux – Petrzalka (Slóvakíu).............2:1
Hapoel Ramat Gan – Levski Sofia.......... 0:1
CSKA Sofia – Torpedo Moskva .............. 1:1
Panionios – Nordsjælland ....................... 2:1
Sartid (Serbíu) – Slavia Prag .................. 1:2
Maccabi Haifa – Publikum (Slóven) ....... 2:1
Dinamo Zagreb – MTK Búdapest .......... 3:1
Hertha Berlín – Groclin (Pól).................. 0:0
Bröndby – Viktoria Zizkov (Tékk).......... 1:0
Cementarnica (Mak) – Lens ................... 0:1
Metalurg (Úkr) – Parma ......................... 1:1
MyPa (Finn) – Sochaux ........................... 0:1
Spartak Moskva – Esbjerg ..................... 2:0
Salzburg – Udinese .................................. 0:1
Vålerenga – Grazer AK ........................... 0:0
Varteks (Kró) – Debrecen (Ung) ............ 1:3
Utrecht – Zilina (Slóvakíu)...................... 2:0
Zimbru (Mold) – Aris Saloniki ................ 1:1
Apoel (Kýpur) – Mallorca........................ 1:2
Dinamo Búkarest – Shakhtar (Úkr)....... 2:0
Gaziantepspor (Tyr) – H.Tel-Aviv.......... 1:0
Malatyaspor (Tyr) – Basel ...................... 0:2
Grasshoppers – Hajduk Split.................. 1:1
Dundee – Perugia..................................... 1:2
OB – Rauða stjarnan................................ 2:2
Ferencvaros – FC Köbenhavn................ 1:1
Auxerre – Neuchatel Xamax................... 1:0
Hearts – Zeljeznicar ................................ 2:0
Sporting Lissabon – Malmö .................... 2:0
Villarreal – Trabzonspor ......................... 0:0
Svíþjóð
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Halmstad – Elfsborg ................................0:4
HM kvenna
Leikið í Bandaríkjunum:
B-riðill:
Svíþjóð – Norður-Kórea ..........................1:0
Victoria Svensson 8.
Staðan:
Svíþjóð 2 1 0 1 2:3 3
Norður-Kórea 2 1 0 1 3:2 3
Bandaríkin 1 1 0 0 3:1 3
Nígería 1 0 0 1 0:3 0
B-riðill:
Frakkland – Suður-Kórea ...................... 1:0
Marinette Pichon 84.
Staðan:
Brasilía 2 2 0 0 7:1 6
Frakkland 2 1 0 1 1:2 3
Noregur 2 1 0 1 3:4 3
Suður-Kórea 2 0 0 2 0:4 0
C-riðill:
Þýskaland – Japan................................... 3:0
Birgit Prinz 36., 66., Sandra Minnert 23.
Kanada – Argentína................................ 3:0
Christine Latham 79., 82., Charmaine Hoo-
per 19.
Staðan:
Þýskaland 2 2 0 0 7:1 6
Japan 2 1 0 1 6:3 3
Kanada 2 1 0 1 4:4 3
Argentína 2 0 0 2 0:9 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Reykjavíkurmót karla
ÍS – Ármann/Þróttur ............................66:75
Valur – Fjölnir .....................................78:105
Staðan:
ÍR 4 4 0 406:324 8
KR 3 3 0 303:197 6
Fjölnir 5 3 2 476:439 6
Ármann/Þróttur 4 2 2 319:313 2
ÍS 5 1 4 333:401 2
Valur 5 0 5 361:521 0