Morgunblaðið - 26.09.2003, Síða 56

Morgunblaðið - 26.09.2003, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. vi›bit me› ólífuolíu N‡tt og brag›gott íslenskt vi›bit – í anda Mi›jar›arhafsins www.lettoglaggott.is Næring ekki refsing FÁLKINN sem undanfarinn mánuð hefur dvalið á byggðasafninu á Höfn fer á næstu dögum í Húsdýragarðinn í Reykjavík þar sem hann fær lögheimili. Fálkinn var skaddaður á væng og gat ekki flogið þeg- ar hann fannst og var settur í hjallinn við Gömlubúð þar sem hann hefur dvalið í góðu yfirlæti síðan. Það voru Þorbjörg og Fjölnir á Hala sem fundu fálkann en Hálf- dan á Kvískerjum handsamaði hann. Fálk- inn gæðir sér á ýmsu góðgæti og smáfugla gleypir hann í einum bita. Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson Fálkinn fær lögheimili Hornafirði. Morgunblaðið. STARFSMENN á bráðadeildum Landspítala – háskólasjúkrahúss, einkum á slysa- og geð- deild, hafa í auknum mæli nýtt sér af öryggis- ástæðum þann möguleika að bera auðkenn- iskort í vinnunni þar sem einungis sést skírnarnafn viðkomandi. Almennt eru starfs- menn með kort sem sýna fullt nafn og mynd og sumir hafa einnig gripið til þess ráðs að líma yfir eftirnafn sitt. Ástæða þessara ráðstafana er að dæmi eru um hótanir í garð starfsfólks utan vinnutíma og fyrirsát frá sjúklingum sem það hefur meðhöndlað á spítalanum. Guðbjörg Pálsdóttir, deildarstjóri á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi, segir að á sínum tíma hafi starfsfólk deildarinnar fengið undanþágu fyrir því að hafa aðeins skírnarnöfn á kortunum. Nú sé boðið upp á þetta mark- visst. „Það eru nokkur dæmi um það á deildinni að þegar fólk hefur verið merkt með fullu nafni þá hefur það verið elt uppi heima fyrir. Fólk hefur þá verið að fá hringingar og verið setið fyrir því heima. Það sem starfsmennirnir gera í sinni vinnu á ekki að þurfa að hafa áhrif á einkalíf þeirra,“ segir Guðbjörg. Jón Baldursson, yfirlæknir á slysa- og bráðadeild, segir að ekki síst um helgar, þegar allt vilji fara á annan endann í borginni, sé full ástæða fyrir starfsfólk deildarinnar til að fara með gát. Öryggisráðstafanir hafi verið hertar á seinni árum og nú sé lögreglumaður til staðar í húsinu á vissum tímum. Því miður hafi það reynst nauðsynlegt þó að yfirleitt séu hlutirnir í lagi. „Eitthvað meira en lítið að“ „Ég held að það sé ekki algengt að starfsfólk fái hótanir utan vinnutíma en menn eru stund- um með dólgshátt á deildinni. Sumir hafa kosið að haga sér svona þó að þeir séu komnir á sjúkrahús og hugsanlega er fólk farið að taka þessar hótanir alvarlegar en áður. Heilbrigð- isstarfsfólk velur sér þennan starfsvettvang yf- irleitt sökum manngæsku og á ekkert von á svona framkomu í sinn garð. Það er í raun fer- legt að svona mál þurfi að koma upp og segir okkur að eitthvað meira en lítið er að í þjóð- félaginu. Við fárumst stundum yfir því að skot- ið sé á sjúkrabíla í öðrum löndum en hér er líka til fólk sem er ekkert skárra og myndi skjóta á sjúkrabíla ef það hefði byssurnar til þess,“ seg- ir Jón, sem eitt sinn varð sjálfur fyrir því að vera hótað utan vinnustaðar. Eftir það segist hann hafa gripið til ákveðinna öryggisráðstaf- ana. Spurð um hvað betur megi fara í öryggis- málum segir Guðbjörg að ávallt megi gera bet- ur. Skortur hafi verið á öryggishnöppum fyrir starfsfólkið, en það sé í vinnslu innan spítalans. Öryggis- og starfsreglur séu einnig til endur- skoðunar hverju sinni og tími sé kominn á námskeið að nýju í sjálfsvörn fyrir starfsmenn. Sömuleiðis þurfi að læra að bregðast við and- legum ógnunum, sem séu jafnvel algengari en hótanir um líkamsmeiðingar. Guðbjörg segir að ekki megi heldur gleyma aðbúnaði sjúk- linga, annarra en þeirra sem séu til vandræða. Tryggja þurfi öryggi þeirra og aðstandenda sem þeim fylgja. Fleiri starfsmenn slysa- og geðdeilda LSH fela eftirnöfn sín fyrir sjúklingum Dæmi um hótanir og fyrirsát utan vinnutíma „FÓLK reis úr sætum og hyllti listamanninn unga sem er þegar orðinn einn af okkar bestu píanó- leikurum,“ sagði Jón Ásgeirsson, tónlistargagnrýnandi Morgun- blaðsins, eftir einleik Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara á tónleikum með Sinfóníu- hljómsveitinni í Háskólabíói í gær. „Hann sló í gegn,“ sagði Jón. Víkingur lék píanókonserta eft- ir Jón Nordal og Prokofjev. Hann bað sérstaklega um að fá að leika tvo konserta en ekki einn, þar sem hann sagði konsert Jóns stuttan „en þó spriklandi af æsku- fjöri út í gegn“. Víkingur hefur stundað nám í píanóleik frá því hann var fimm ára gamall. Hann er nú nítján ára. Morgunblaðið/Kristinn Víkingur sló í gegn með Sinfóníunni SEX þúsund börn eiga heimasíðu á Barnalandi.is en vefurinn verður þriggja ára í nóvember. Hugmyndin að vefnum kviknaði hjá þeim Sigríði Guðmundsdóttur og Þóri Sigurðssyni þegar sonur þeirra veikt- ist og þau reyndu að viða að sér upp- lýsingum um veikindin en varð lítið ágengt. „Við komumst að því að það var erf- itt að nálgast upplýsingar um ýmislegt varðandi börn, ekki bara veikindi held- ur hvað sem nöfnum tjáir að nefna,“ segir Sigríður. Gífurlegar vinsældir Barnalands.is  Sex þúsund/22 ANNA Th. Rögnvaldsdóttir og Ólafur Rögnvaldsson hefja upptökur á nýrri ís- lenskri sakamálamynd fyrir sjónvarp í nóv- ember. Verður hún í þremur hlutum. Myndin, sem nefnist Allir litir hafsins eru kaldir, er gerð í samstarfi við Sjónvarpið og erlendar stöðvar. Kostnaður er hátt í 150 milljónir og er þetta með viðamestu verk- efnum sem Sjónvarpið hefur ráðist í lengi. Anna skrifaði handritið og leikstýrir en Ólafur bróðir hennar framleiðir og stýrir upptökum. Ný íslensk sakamála- mynd í bígerð  Allir litir/47 TILRAUNIR til að flytja lambakjöt frá Íslandi beint til Færeyja hafa aft- ur siglt í strand og eru horfur á að allt kjöt sem selja á til Færeyja verði fyrst flutt til Danmerkur þar sem fram fer heilbrigðisskoðun. Farga þurfti nokkrum tonnum af kjöti sem flutt var til Færeyja fyrir skömmu vegna þess að það uppfyllti ekki kröfur um kælingu. Eftir að Fær- eyingar tóku upp heilbrigðisreglur ESB varð um tíma að flytja lamba- kjöt í gegnum Danmörku þar sem engin skoðunarstöð var í Færeyjum. Samkomulag náðist um að skoðunar- stöð í Kollafirði í Færeyjum tæki að sér að heilbrigðisskoðun. Kjötið var sett í land í Þórshöfn og flutt 15 km leið til Kollafjarðar. Embættismenn ESB gerðu athugasemdir og töldu að flytja ætti kjötið beint þangað. Létu þeir ekki segjast þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld bentu á dæmi um að kjöt væri flutt 50 km leið í Evrópu til að koma því á skoðunarstöð. Lambakjöt til Færeyja flutt í gegnum Danmörku?  Kjöti fargað/10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.