Morgunblaðið - 19.10.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BUSH HEITIR AÐSTOÐ
George W. Bush, sem nú er á ferð
um Suðaustur-Asíu og Ástralíu, hét
því í gær, er hann ávarpaði filipps-
eyska þingið, að Bandaríkjamenn
myndu hjálpa Filippseyingum við að
koma lögum yfir uppreisnarmenn í
samtökunum Abu Sayyaf. Enn-
fremur lofði Bush aðstoð við að end-
urnýja filippeyska herinn. Þá sagði
hann, að Bandaríkjamenn myndu
leggja ríkjum í Suðaustur-Asíu lið
við að uppræta samtökin Jemaah
Islamiya, sem tengjast al-Qaeda.
10% verða fyrir einelti
Norræn könnun á einelti leiðir í
ljós að um 10% barna á Íslandi verða
fyrir einelti. Börn með einhvers kon-
ar þroskafrávik eru í mestri hættu á
að verða lögð í einelti en 27% barna
með slík vandamál eru lögð í einelti á
móti 14% annarra barna. Rann-
sóknin byggist á svörum frá um
10.000 norrænum börnum á aldr-
inum 2-17 ára.
Flaga skráð í Kauphöllinni
Fyrirtækið Medcare Flaga stefnir
að því að bjóða út nýtt hlutafé fyrir
lok næsta árs fyrir um 12-16 millj-
ónir Bandaríkjadala, jafnvirði um
900-1.300 milljónir króna. Í fram-
haldinu verður óskað eftir að fyr-
irtækið verði skráð í Kauphöll Ís-
lands.
Biðraðir út á götu
Dæmi eru um að biðraðir hafi
skapast úti á götu við heilsugæslu-
stöðvar á höfuðborgarsvæðinu
vegna inflúensunnar sem nú geisar.
Fjöldi fólks leitar til stöðvanna bæði
til að fá bólusetningu og til að fá
meðferð við veikindunum.
Músafaraldur
Músafaraldur er í byggðarlögum
á Vestfjörðum og hafa menn gripið
til þess ráðs að smíða sér öflugar
músagildrur. Jón Ragnarsson, vél-
stjóri í Súðavík, segir ketti ekkert
ráða við ástandið. „Nei, kettir hafa
svo mikið að éta og þeir ráða ekkert
við þetta, “ segir Jón þegar hann er
spurður um veiðihæfni katta á Vest-
fjörðum.
Morgunblaðið/Kristinn
Daglaunamenn á fjöllum
Ferðalög „Það er frábært að vera úti í tvo daga og fara ekki í hús allan þann tíma / 11
Eivör Pálsdóttir
Alltaf til í að prófa eitthvað nýtt
„Það er sama
hvað ég syng,
þegar ég syng
þá gef ég mig
alltaf alla.“
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
19. október 2003
Atvinna óskast
Karlmaður með tæknifræði- og rekstrarnám að
baki og með mikla reynslu af verkefnastjórnun
og rekstri óskar eftir starfi. Þarf ekki að vera
fullt starf og margt kemur til greina. Uppl. í
síma 892 0420.
Atvinna óskast
Ég er tvítug stúlka með stúdentspróf og er að
leita mér að fullu starfi. Ýmiss störf koma til
greina. Ég er samviskusöm, stundvís og reyk-
laus. Meiri upplýsingar í síma 895 7759, Gyða.
Lögfræðingur
með góða starfsaðstöðu og framhalds-
menntun getur bætt við sig framtíðar-
verkefnum. Fast hlutastarf f. félagasam-
tök, sjóði eða aðra kemur einnig vel til
greina, s.s. umsjón með eignum og/eða
rekstri. Öllum tilboðum vel tekið.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband á box@mbl.is sem
fyrst (merkt: „L — 14324").
Viðskipta-
Til sölu er hlutafélagið Sólhvörf ehf. Helsta eign
félagsins er garðyrkjubýlið Sólbyrgi sem staðsett
er á einum fegursta stað landsins, í Reykholtsdal,
Borgarfjarðarsveit. Gróðrarstöðin samanstendur af
rúmlega 5.000 fm af gróðurhúsum í góðu ástandi,
10,5 ha af rækt-
uðu landi með yfir
2 km af skjólbelt-
um, og hesthúsi.
Ennfremur fylgir
vandað íbúðarhús,
187 fm að stærð,
byggt árið 1984. Hitaveita er á staðnum og gefur
af sér 8 sek.lítra af heitu vatni.
Verðhugmynd er 12 - 15 milljónir kr. en áhvílandi
skuldir 43 milljónir. Sótt hefur verið um úreldingu
sem getur fært félaginu um 25 milljónir kr. Árleg
velta er um 16 milljónir kr. og fastafjármunir eru
metnir á rúmlega 51 milljón.
Aksturstími frá Sólbyrgi til Reykjavíkur er rúmlega
ein klukkustund. Þessar eignir gefa því væntan-
legum kaupendum tækifæri til að lifa og starfa í
einstæðri náttúrufegurð í hæfilegri fjarlægð frá
höfuðborginni.
Nánari upplýsingar veitir
Fasteignamiðstöðin í síma:
550 3000
í einstæðri náttúrufegurð
tækifæri
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
G
R
A
22
56
9
10
/2
00
3
Förðunarfræðingar
The Body Shop á Íslandi óskar eftir að ráða
tvo förðunarfræðinga í fullt starf, annan í versl-
un fyrirtækisins í Kringlunni, hinn í sams konar
verslun í Smáralind. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Við leggjum ríka áherslu á að starfsfólk hafi
þjónustulund, sé vel að sér um snyrtivörur og
hafi metnað til að kynna sér það sem The Body
Shop hefur fram að færa.
Áhugasamir vinsamlega skili ferilskrá fyrir 24.
október nk. í verslun:
The Body Shop
í Kringlunni eða Smáralind.
Smiðir
vanir kerfismótum óskast til starfa.
Upplýsingar í síma 567 1290.
Sunnudagur
19. október 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 9.279 Innlit 16.972 Flettingar 65.290 Heimild: Samræmd vefmæling
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 48/49
Listir 28/35 Dagbók 50/51
Af listum 28 Krossgáta 52
Forystugrein 32 Auðlesið 53
Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 54
Skoðun 36/37 Fólk 54/61
Þjónusta 43 Bíó 58/61
Minningar 44/47 Sjónvarp 52/62
Hugvekja 47 Veður 63
* * *
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra sagði á
fundi með sýslumönnum á Hótel Selfossi í gær að
hugmyndir um breytta skipan löggæslunnar og
stækkun lögregluumdæma ættu að leiða til fag-
lega betri úrlausnar mála, til hraðari afgreiðslu
mála, til minni útgjalda fyrir ríkissjóð og betri
þjónustu við almenning. Hann sagðist einnig
vera samþykkur því, að ekki eigi að skilja lög-
gæslu frá sýslumannsembættum, en hann teldi
hins vegar að ekki þurfi allir sýslumenn að vera
lögreglustjórar.
Ráðherrann sagðist hafa efnt til funda með
fulltrúum sýslumanna og lögreglumanna, ríkis-
lögreglustjóra, ríkissaksóknara o.fl. á undanförn-
um vikum um breytingar á umdæmaskipan við
löggæslu og innra starfs lögreglunnar.
Gengur ekki til viðræðna á þeirri
forsendu að fækka sýslumönnum
„Þar hef ég áréttað það sjónarmið, að ég gangi
ekki til viðræðna um málið eða framkvæmd
breytinga á þeirri forsendu, að fækka sýslu-
mönnum. Ég hef þennan fyrirvara um fjölda
sýslumanna með vísan til tveggja meginatriða. Í
fyrsta lagi skiptir miklu fyrir byggðir landsins,
að ekki sé sett sem markmið að draga þar úr
þeim styrk, sem felst í starfrækslu sýslumanns-
embættanna og þjónustunni á þeirra vegum. Í
öðru lagi þarf inntak í embættisfærslu sýslu-
manna ekki endilega að vera alls staðar hið
sama,“ sagði Björn.
Kvaðst Björn hafa í hyggju að skipa þriggja
manna verkefnisstjórn undir forystu Stefáns Ei-
ríkssonar, skrifstofustjóra á löggæslusviði dóms-
málaráðuneytisins, til að leiða þetta starf. Sagði
hann einnig að forystumenn Landssambands lög-
reglumanna hefðu lýst miklum áhuga á því, að
breytingar nái fram að ganga og eindregnum
stuðningi við, að lögregluumdæmi verði stækkuð.
Dómsmálaráðherra fjallaði um skipan löggæslunnar á fundi sýslumanna
Ekki þurfa allir sýslumenn
að vera lögreglustjórar
GÓÐ síldveiði er fyrir austan land og
vinnsla í fullum gangi. Í gær lönduðu í
Neskaupstað Björg Jónsdóttir tæpum 300
tonnum og Birtingur 370 tonnum.
Freysteinn Bjarnason, útgerðarstjóri
hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, sagði
að hin þokkalegasta síldveiði hefði verið
undanfarið. Það væri ekkert undirmál í
aflanum, en það vantaði í hann stóru síld-
ina.
Freysteinn sagði að síldin væri flökuð
og fryst og einnig væri byrjað að huga að
söltun.
Tvö skip hafa einnig landað á Fáskrúðs-
firði síðustu dagana. Júpiter kom með 370
tonn sem landað var í fyrradag og landað
var úr Víkingi 380 tonnum í gær. Síldin er
blönduð en fer þó að mestu í vinnslu hjá
Loðnuvinnslunni. Unnið er á vöktum, en síldin er flökuð og söltuð, auk þess
sem verið er að frysta og heilsalta í kydd.
Auk framangreindra staða er verið að landa afla á fleiri Austfjarða-
höfnum og einnig hefur verið siglt með síldarafla til Vestmannaeyja.
Góð síldveiði
fyrir austan land
Morgunblaðið/Albert Kemp
Stefnumót-
un aðalum-
ræðuefni á
kirkjuþingi
ÁRLEGT kirkjuþing þjóðkirkj-
unnar verður sett í dag, sunnu-
dag, og í framhaldi af því hefjast
þingstörf sem standa í 10 daga.
Meðal mála sem rædd verða
auk skýrslu kirkjuráðs og fjár-
mál eru stefnumótun kirkjunn-
ar, sameining nokkurra presta-
kalla, símenntun og fleira.
Unnið hefur verið að stefnu-
mótun þjóðkirkjunnar undan-
farin misseri og verður afrakst-
ur hennar lagður fram á
þinginu. Er þar lýst stefnu og
megináherslum sem leggja skal
árin 2004 til 2010. Í fyrsta hluta
skjalsins er lýst hlutverki þjóð-
kirkjunnar og stefnu, í öðrum
hlutanum er vikið að starfsem-
inni og helstu markmiðum og í
þeim þriðja eru sett fram atriði
er varða starfsskipulag.
Meðal verkefna varðandi
boðun kirkjunnar er að bæta
prédikun kirkjunnar, að hún
verði fjölbreyttari í formi og
auki umræður að lokinni messu,
að málfar hennar miðist jafnt
við karla og konur og að prestar
taki upp hópvinnu um prédikun
bæði sín á milli og við söfnuð-
inn.
Í helgihaldi er lagt til að söfn-
uðurinn fái aukna ábyrgð, að
fjölbreytni verði aukin í kirkju-
tónlist og samvinna sé aukin
milli safnaða og skóla.
Kirkjuþingið hefst með guðs-
þjónustu í Dómkirkjunni í
Reykjavík kl. 11 og biskup set-
ur síðan þingið kl. 14 og fara
þingstörfin fram í Grensás-
kirkju.
Mikil viðskipti og mikil hækk-
un á hlutabréfum deCODE
GENGI hlutabréfa í deCODE
hækkaði um 33,9% á föstudag og var
lokagengi þeirra 6,79. Hæst fór
gengi bréfanna í 7,25 innan dagsins,
en það hefur ekki verið hærra síðan í
febrúar 2002. Alls voru viðskipti með
um 6 milljónir bréfa, en þetta eru
mestu viðskipti með bréf í félaginu
frá því að fyrirtækið fór á markað.
Þetta þýðir að um 10% bréfa í félag-
inu skiptu um eigendur á þessum
eina degi.
Mikil breyting
Viðskipti hófust með bréf de-
CODE á bandaríska hlutabréfa-
markaðnum Nasdaq hinn 18. júlí ár-
ið 2000 og þá var lokagengi bréfanna
25,44. Hæst fór gengið í 28,75 hinn
11. september sama ár, en lækkaði
hratt eftir það. Frá miðju ári í fyrra
hefur gengið lengst af verið undir 5
og lægst fór það í 1,60 hinn 24. sept-
ember í fyrra.
ENDURNAR við Ráðhúsið í
Reykjavík láta haustlaufið ekki
trufla tilveru sína. Þær synda um
og leita sér að æti. Ef náttúran sjálf
sér þeim ekki fyrir nægu fæði eru
margir íbúar í höfuðborginni sem
eru tilbúnir að hjálpa til og gefa
þeim brauð. Það er því enginn
skortur á æti hjá öndunum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Endur á Tjörninni í leit að æti