Morgunblaðið - 19.10.2003, Side 4

Morgunblaðið - 19.10.2003, Side 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Alltaf ód‡rast á netinu 83 flug á viku til 13 áfangastaða Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 22 35 0 1 0/ 20 03 RÁÐSTEFNA Ferðamálaráðs Ís- lands hefur samþykkt ályktun þar sem mótmælt er harðlega að stjórn- völd hafi ákveðið að hefja hvalveiðar hér við land án nokkurs samráðs við samtök innan ferðaþjónustunnar eða aðra hagsmunaaðila innan greinarinnar. Ráðstefna Ferðamálaráðs var haldin undir yfirskriftinni er: Mark- aðssetning Íslands – breyttar áherslur. Með yfirskriftinni er vísað til nýrrar leiðar sem farin var á þessu ári við nýtingu þess fjármagns sem stjórnvöld ákváðu að verja til mark- aðssóknar íslenskrar ferðaþjónustu. Í stuttu máli var ákveðið að nýta 202 milljónir af þeim 300, sem veittar voru af opinberri hálfu til markaðs- starfs á árinu 2003, til samstarfs- verkefna í almennri landkynningu á fjórum markaðssvæðum erlendis. Var fjármununum skipt með ákveðnum hætti á hverju markaðs- svæði og síðan auglýst eftir sam- starfsaðilum. Þannig gafst aðilum kostur á að sækja um samstarf við Ferðamálaráð gegn því að leggja fram a.m.k. jafn háa upphæð og framlag Ferðamálaráðs var til um- ræddra verkefna. Ráðstefnuna setti Einar K. Guð- finnsson, formaður Ferðamálaráðs. Hann minntist í upphafi Kristleifs Þorsteinssonar í Húsafelli er sat fjölmargar ráðstefnur Ferðamála- ráðs og var þar ætíð virkur þátttak- andi. Fundarmenn risu úr sætum og heiðruðu þannig minningu Krist- leifs. Einar K. Guðfinnsson sagði m.a. í ræðu sinni að hörkusam- keppni ríkti milli flugrekstraraðila. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði ekki áttannars kost en að hefja hval- veiðar í vísindaskyni. Hann sagði undirbúning að flokkun tjaldstæða vera á lokastigi og að gerð verði við- horfskönnun meðal ferðamanna í Leifsstöð og símakönnun á næsta ári. Aukin þörf fyrir upplýsingamiðstöðvar Ávörp fluttu Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, og Sigbjörn Gunnarsson, sveitarstjóri. Sturla sagði mjög aukna þörf vera fyrir öfl- ugar upplýsingamiðstöðvar vegna þess að ferðamáti fólks hefur beinst meira og meira með einkabíl. Hann fagnaði komu nýrrar ferju, Nor- rænu, og benti á að farþegar sem koma með henni dvelja yfirleitt lengur á landsbyggðinni en aðrir ferðamenn. Um farþegaskatt á flug- leiðum sagði hann Hagfræðistofnun vera að meta áhrif skattsins á fjölda ferðamanna en svo virtist sem skatt- urinn hefði þar verulega neikvæð áhrif. Hann kvaðst mundi beita sér fyrir lækkun skattsins. Lögð var fram á ráðstefnunni nýútkomin skýrsla: Íslensk ferðaþjónusta, framtíðarsýn. Sigbjörn Gunnarsson, sveitar- stjóri, sagði í ávarpi sínu að sam- göngurnar skiptu mestu máli fyrir ferðaþjónustu í dreifbýli. Ennfrem- ur að virkjanir væru gríðarlegur styrkur við ferðaþjónustuna og nefndi Kröfluvirkjun í því sambandi. Framsögu um þema ráðstefnunn- ar hafði Árni Harðarson, forstöðu- maður markaðssviðs Ferðamála- ráðs. Í pallborðsumræðum að lok- inni framsögu sátu fyrir svörum: Hannes Hilmarsson, svæðisstjóri Icelandair, Svanhildur Konráðsdótt- ir, framkvæmdastjóri Höfuðborgar- stofu, Gunnar Rafn Birgisson, fram- kvæmdastjóri Atlantik, Óli Jón Ólason, hótelstjóri Hótels Reyk- holts, Ingibjörg Pálmadóttir, eig- andi Hótels 101, og Magnús Odds- son, ferðamálastjóri. Lífleg og hreinskiptin skoðanaskipti ein- kenndu umræður og fyrirspurnir. Í lok fundar bar Ásbjörn Björg- vinsson, forstöðumaður Hvalamið- stöðvarinnar á Húsavík, fram eft- irfarandi tillögu: „Ferðamálaráð- stefnan 2003, haldin í Skjólbrekku við Mývatn 16.-17 október, mótmæl- ir því harðlega að stjórnvöld hafi ákveðið að hefja hvalveiðar hér við land án nokkurs samráðs við samtök innan ferðaþjónustunnar eða aðra hagsmunaaðila innan greinarinnar. Ráðstefnan minnir á fyrri áskoranir til stjórnvalda um að gerð verði ít- arleg og fagleg úttekt á áhrifum hvalveiða á ferðaþjónustuna og leggur áherslu á að þegar hafa kom- ið fram sterkar vísbendingar um skaðleg áhrif hvalveiða á ímynd landsins og þar með ferðaþjónustu á Íslandi. Ráðstefnan krefst þess að stjórnvöld hafi náið og opið samráð við samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálasamtök Íslands og Hvala- skoðunarsamtökin áður en ákvörð- un um framhald hvalveiða verður tekin.“ Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn einu. Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs, greiddi atkvæði gegn tillögunni. Um kvöldið var móttaka í boði samgönguráðherra og sameiginleg- ur kvöldverður á Hótel Gíg, Skútu- stöðum. Þar fór fram afhending um- hverfisverðlauna Ferðamálaráðs fyrir árið 2003 og féllu þau í hlut Bandalags íslenskra farfugla. Mark- ús Einarsson, framkvæmdastjóri samtakanna, tók við verðlaunum fyrir þeirra hönd. Á árlegri ráðstefnu Ferðamálaráðs var fjallað um markaðssetningu Íslands Ákvörðun um hvalveið- ar mótmælt harðlega Morgunblaðið/Birkir Fanndal Markús Einarsson frá Bandalagi ís- lenskra farfugla veitti umhverfis- verðlaunum Ferðamálaráðs við- töku fyrir árið 2003 fyrir hönd BÍF. Mývatnssveit. Morgunblaðið. REGLULEG laun verkafólks inn- an ASÍ hafa hækkað um rúm 27% á samningstímabilinu, eða frá fyrsta ársfjórðungi 2000 til annars ársfjórðungs þessa árs. Samnings- bundnar hækkanir á tímabilinu nema um 14% vegna almennra launa en lægstu laun hækkuðu um 30%. Þetta eru niðurstöður könnunar Stefáns Úlfarssonar frá hagdeild ASÍ á launaþróun á því kjarasamn- ingstímabili sem er að ljúka. Sam- kvæmt útreikningum Stefáns jókst kaupmáttur reglulegra launa verkafólks um 10% á umræddu tímabili. Tekur hann þá tillit til hækkunar neysluverðsvísitölunnar á sama tíma um tæp 16% og hækkun launavísitölunnar um rúm 26%. Eins og meðfylgjandi tafla ber með sér, þar sem breyting reglu- legra launa ASÍ-fólks á almennum markaði er sýnd í krónum talið, hafa flestar stéttir fengið svipaða launahækkun, eða um og yfir 30%, að því undanskildu að laun sér- fræðinga hafa nokkurn veginn fylgt þróun neysluverðsvísitölunn- ar. Vekur Stefán ennfremur athygli á því hve laun á opinberum vinnu- markaði hafa hækkað mun meira en á almennum markaði undanfar- in samningstímabil. Á tveimur síð- ustu tímabilum hafi laun almennra launþega átt að hækka um 20% að meðaltali á hvoru tímabili en um og yfir 30% hjá opinberum starfs- mönnum. Stefán segir að þótt laun hafi al- mennt hækkað meira en samið var um, búi enn of margir við bág kjör í þjóðfélaginu. Meðal launþega ASÍ sé einn af hverjum tíu með dag- vinnulaun innan við 100 þúsund krónur en þó enginn með minna en 90 þúsund krónur. Það er mat Stef- áns að flest markmið síðustu samn- inga hafi náðst, talsverðar hækk- anir hafi orðið á almennum og allra lægstu laununum, kaupmátturinn hafi verið varinn með tilliti til þró- unar verðlags, veikinda- og lífeyr- isréttindi verið aukin og framfarir orðið í starfsfræðslu. Í næstu samningum þurfi að huga enn bet- ur að lægstu laununum og jafna líf- eyrisréttindi milli ríkisstarfsmanna sem eru í stéttarfélögum tengdum ASÍ og þeirra sem eru í félögum opinberra starfsmanna. Launahækkun verka- fólks varð um 27,3%                                        ! "  #! !  $% &$ '  (!)$* + $), ! -  -% '.$  ,$* /00 /      1 1  00    0 2 3  32/ 13                                $  $  4, Síðustu samn- ingar skiluðu láglaunafólki um 30% hækkun Engra sér- stakra að- gerða þörf EKKI er ástæða til að telja sérstak- lega upp úr eldiskvíum á Austurlandi til að eyða hugsanlegri óvissu um hve margir laxar hafi sloppið úr þeim vegna þess að talning ofan í kvíarnar og upp úr þeim á sér þegar stað, að sögn Guðna Ágústssonar, landbún- aðarráðherra. Orri Vigfússon, formaður Vernd- arsjóðs villtra laxastofna, hefur sent landbúnaðarráðuneytinu bréf þar sem farið er fram á að eytt verði óvissu með talningu. Guðni Ágústs- son segir ljóst að allir fiskar sem fari ofan í kvíarnar séu taldir ofan í þær. Eins sé talinn allur fiskur sem komi upp úr þeim sem og fiskur sem drep- ist. Auk þess hafi verið komið upp myndavélum til að fylgjast með ástandi kvíanna og því sem gerist í þeim. „Þannig að reglurnar eru mjög strangar,“ segir Guðni og áréttar að eftirlitið sé í sama ferli og Orri óski eftir. ÁRSFUNDUR Al- þýðusambands Ís- lands (ASÍ) fer fram á Hótel Nordica 23. og 24. október næstkom- andi. Fram kom á miðstjórnarfundi ASÍ í vikunni að kosið yrði um embætti varafor- seta ASÍ en Hall- dór Björnsson, formaður Starfs- greinasambands- ins, gefur ekki kost á sér áfram. Kosið verður á milli Ingibjargar R. Guðmunds- dóttur, formanns Lands- sambands íslenskra versl- unarmanna (LÍV), og Kristjáns Gunnarssonar, varaformanns Starfsgreinasambandsins og formanns Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur. Hall- dór sagðist í samtali við Morg- unblaðið styðja Kristján heilshugar sem sinn eftirmann. Ingibjörg staðfesti í samtali við blaðið að hún hefði ákveðið að taka áskorun versl- unarmanna um að gefa kost á sér. Hún var áður einn vara- forseta ASÍ til átta ára áður en skipuriti sambandsins var breytt til núverandi horfs með einum varaforseta. Þá hefur hún verið formaður LÍV frá árinu 1989. Kristján sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þegar Morg- unblaðið ræddi við hann, þar sem hann sæti í kjörnefnd ASÍ og væri bundinn trúnaði. Það væri í verkahring kjörnefndar að leggja fram tillögu fyrir ársfundinn um kjör varafor- seta. Varaforseti ASÍ kosinn á ársfundi Ingibjörg R. Guðmundsdóttir Kristján Gunnarsson Kosið milli Ingi- bjargar og Kristjáns

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.