Morgunblaðið - 19.10.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 19.10.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Alltaf ód‡rast á netinu Breytanlegur farseðill! Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 22 35 0 1 0/ 20 03 H ótelbransinn snýst um ókunnuga,“ segir í klúrri fegurð leikstjórans Stephens Frears á kvikmyndahátíð. Ein- hvern veginn eru hótel eins nálægt því og hugsast getur að ókunnugir búi saman á heimili. Þarna gistir fólk frá öllum heimshornum í sama húsi, snæðir í sama salnum, drekkur á sama barnum, en heldur sig að mestu fyrir sig, – og sína ef það ferðast í hópum. Það hlýtur að teljast merkilegt að annað fólk, sem ekki er á ferðalögum, kýs að heimsækja þetta heimili ókunnugra og hreiðra um sig í betri stof- unni. Á hótelbarnum eru herbergisveggir í reitaskiptu gólfteppinu. Þar renna saman ólíkir mannlífsstraumar, sem eiga upptök sín í öllum heims- hornum. – Við erum ekkert að ryðjast inn, spyr kona með grænan trefil afsakandi. – Nei, nei, svarar barþjónninn hughreystandi. Fleiri hótelgestir en hún eru ekki með aðsetur á hót- elinu, þar á meðal valinkunnur sjónvarpsmaður sem rifj- ar upp að hótelið var hola þegar hann var í Melaskóla. – Það safnaðist vatn í holuna og við sigldum um það á fleka, segir hann og vantar bara að hann kveiki sér í pípu eins og Stikils- berja-Finnur. Hann lætur sér nægja tvöfaldan espresso. Liturinn samur og á slæðu konunnar sem leggur svarta tösku á barborðið og reisir með því vegg á milli sín og næsta manns. Hann skrifar og svarti liturinn lekur á blaðið eins og kaffi á hvítan dúk. Hún spyr barþjóninn: – Er aldrei músík hérna? – Nei, svarar hann. Hún snýr sér að ókunnugum manni við borðið: – Nú eru engir staðir lengur, segir hún. – Ekkert hægt að fara, tekur hann undir. – Vantar huggulegheit, segir hún. Svo sest hún með vinkonu sinni í rauðu stólana á Mímisbar, sem svipar til bíóstólanna í Regnboganum. Það vantar hjartað í eina sögupersónuna. Þeir sem eiga leið um hótel Frears eiga samt „ekki að skipta sér af því hverjir koma eða fara“. Hjartanu er sturtað niður í klósettið. Samskiptin á því heimili ókunnugra hjartalaus. Ókunnugt fólk ráfar um bæinn. Ungur maður verður næstum fyrir kyrrstæðum bíl á Hverfisgötu. Það hringir kona í útvarpið og biður um óskalag. – Ég man ekki hvað það heitir eða hver syngur það … Það heitir … Ooooohhh! Leigubílstjórar vinna við að aka ókunnugu fólki. Flestir segja að það tali mest um veðrið. – Ef íslenska landsliðinu gengur vel er talað um það líka. Stundum finnur maður að leigubílstjórinn bíður í ofvæni með orðin í hálsinum eftir að byrja samræðurnar, en aðrir láta sér nægja að hósta upp einsatkvæðisorðum. Eflaust er misjafnt hvort þeir stytta sér stundir við að hlusta á samræður farþeganna, en margir lýsa því að þeir heyri ótrúlega hluti, – í líkingu við klúra fegurð Frears. Einn trúir blaðamanni fyrir því að hann hafi tekið upptökutæki með sér í vinnuna í nokkra daga og tekið upp samræður farþega. Það sé hin besta skemmtun að hlusta á samtölin. – Fáum við ábót? spyrja konurnar barþjóninn. Eldri karl hefur snúið stólnum frá gestum betri stofunnar og horfir einrænu augnaráði fram á barborðið. Annar hefur rænu á því að standa upp og stíga á bakvið súlu í anddyrinu áður en hann ælir. Svo heldur hann upp á herbergi. Það er stöðug umferð og nokkrir gestir ganga í æluna – einum skrikar næstum fótur í iðrum ókunnugs manns. Það er misjafnt hvort fólk leggur sig eftir því að ræða við barþjóninn. – Þá spyr það hvaðan ég sé og svoleiðis, segir hann og brosir. – Engar játningar, spyr blaðamaður? – Nei, svarar hann, þurrkar af barborðinu með velktri tusku og sinnir síðan viðskiptavinum. Blaðamaður skrifar. Þar til blekið er búið í penn- anum á barnum. Og barþjónninn spyr: – Heyrðu, get ég fengið lánaðan pennann þinn? … Morgunblaðið/Kristinn Í heimsókn hjá ókunnugum SKISSA Pétur Blöndal rýndi í lífið hjá ókunnugum Á ANNAÐ hundrað barna mætir nú reglulega í skákskóla í Saraj- evo sem styrktur er af utanrík- isráðuneyti Íslands. Skólinn er samstarfsverkefni skákfélagsins Bosnia Sarajevo, Hróksins og Bosníunefndar utanríkisráðuneyt- isins. Skólinn fór af stað fyrir tveimur vikum en hugmyndin að honum kviknaði í mars sl. yfir kaffibolla hjá Hrafni Jökulssyni, forseta Hróksins, og Ivan Sokolov, einum besta skákmanni Sarajevo. Hrafn og Ivan sneru sér til Bosníu- nefndar utanríkisráðuneytisins sem ákvað að styrkja verkefnið en Egill Heiðar Gíslason, formaður nefndarinnar, segir að áætlað sé að veita um 2,2 milljónir til að halda úti skákkennslu í Sarajevo í vetur. Heilmikill skákáhugi Að sögn Egils var nefndin sett á laggirnar til að aðstoða við upp- byggingu í Bosníu eftir stríðið. Hún hefur meðal annars unnið í samstarfi við Össur hf. við að að- stoða fólk sem hefur misst útlimi af völdum jarðsprengna. Egill bendir á að samþykkt hafi verið að aðstoða við að ýta skákskólanum úr vör en að skákfélagið í Saraj- evo telji sig svo geta haldið starf- inu áfram. „Meiningin er að við hjálpum þeim með þetta í vetur. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um framhaldið enda nátt- úrlega takmarkað fjármagn sem við höfum,“ segir Egill. Ivan Sokolov sér um skólann en hann hefur ráðið hæfustu skák- kennara í Sarajevo til starfa. Kennararnir heimsækja alla skóla í Sarajevo en í borginni búa um 300.000 manns. Áhugasamir nem- endur geta svo sótt skákskólann en þetta er börnunum að kostn- aðarlausu. Á milli 120 og 130 börn hafa nú þegar skráð sig til leiks en Sokolov segir vonir standa til að börnin verði um 200 þegar fram í sækir. „Þetta gengur vonum fram- ar. Það er heilmikill áhugi fyrir skák svo ég er mjög bjartsýnn á þetta. Við höfum fengið góð við- brögð frá börnunum, foreldrum og fjölmiðlum,“ segir hann. Það á að taka hugmyndum fagnandi Að sögn Hrafns Jökulssonar hef- ur andrúmsloftið í Sarajevo verið þrúgað af stríðshörmungum og borgin hefur ekki enn náð sér á strik. „Í Sarajevo var ekki boðið upp á skákkennslu og í raun ekki til nokkurt skipulagt tómstunda- starf. Það vantar þar svolítið af gleði og það var það sem við vild- um veita þarna inn með því að setja á laggirnar skákskóla.“ Hrafn bendir á að hugmyndin hefði aldrei orðið að veruleika ef undirtektir utanríkisráðuneytisins hefðu ekki verið svona góðar. „Við gátum hafist handa nánast um- svifalaust. Við erum í raun að búa til nýja tegund af þróunarhjálp. Við erum að senda eitthvað sem er uppspretta gleði fyrir krakkana og það er ekkert dýrmætara fyrir þjóð en glöð ungmenni. Þetta er vonandi upphafið að einhverju ennþá fallegra og skemmtilegra,“ segir Hrafn og bætir við að þetta sýni að það eigi alltaf að taka öll- um hugmyndum fagnandi. Séu þær líklegar til að leiða til góðs eigi að hjálpa þeim að taka flugið. Í lok nóvember stendur Hrók- urinn fyrir barnaskákmóti í Saraj- evo og má búast við að þá komi í ljós hversu vel útbreiðsla skáklist- arinnar hefur gengið þar í borg. Utanríkisráðuneytið og Hrókurinn styðja skákkennslu í Sarajevo Fjöldi barna hefur skráð sig til leiks Ljósmynd/Egill Heiðar Gíslason Mörg börn eru í skákskólanum í Sarajevo, en hann er styrktur af Bosníu- nefnd utanríkisráðuneytisins. Mikill áhugi er á skák í Bosníu. HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands hefur dæmt aldraðan bónda í Borg- arbyggð í 150 þúsund króna sekt fyrir brot á dýraverndunarlögum og fleira með því að hafa veturinn 2001 til 2002 vanrækt aðbúnað, um- hirðu og fóðrun á 74 ám með þeim afleiðingum að lóga þurfti níu ám og einum hrúti. Ákærði var hins vegar sýknaður af kröfu ákæru- valds um sviptingu leyfis til að halda eða eiga búfé. Sannað þótti að tíu sauðkindur úr hjörð ákærða voru afar illa á sig komnar í mars 2002 og þurfti að lóga þeim strax. Einnig var sannað að 64 aðrar kindur hans voru illa á sig komnar. Dómurinn tók tillit til þess að ákærði hefur aldrei hlotið refsingu. Einnig var það virt hon- um til linunar refsingar að hann hefur lengi verið undir eftirliti þar til bærra yfirvalda, án þess að þau hafi gert gangskör að því að hann yrði saksóttur fyrir alvarlega van- rækslu í umhirðu og fóðrun fjár síns. Málið dæmdu Finnur Torfi Hjör- leifsson, héraðsdómari og dómsfor- maður, og meðdómendurnir Jakob- ína Sigvaldadóttir dýralæknir og Sveinn Hallgrímsson dr. scient, lektor. Verjandi ákærða var Jón Haukur Hauksson hdl. Málið sótti Hjördís Stefánsdóttir, fulltrúi sýslumannsins í Borgarnesi. Sektaður fyrir vanfóðrun ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra sagði á Alþingi að hann hefði ekki í hyggju að gera tillögur um grundvallarbreytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Hann minnti á að nefnd væri nú að fara yf- ir reglur um fæðingarorlofssjóð og sagði að hún þyrfti m.a. að ræða áhrif þess að lækka að einhverju leyti það hlutfall af heildarlaunum sem greiðsla í orlofi byggðist á. Nefndin á að skila tillögum sínum fyrir áramót. Ráðherra lét þessi ummæli falla í svari við fyrirspurn Þórunnar Svein- bjarnardóttur, þingmanns Samfylk- ingarinnar, um fæðingarorlofssjóð. Þingmaðurinn minnti á að um mitt sumar hefðu borist fregnir af því að mjög hefði gengið á fé sjóðsins og að óbreyttu gæti eigið fé sjóðsins orðið uppurið um mitt ár 2005. Spurði hún ráðherra að því hvernig hann hygð- ist bregðast við fjárþurrð sjóðsins. Aukin tekjuöflun skoðuð Ráðherra sagði að hann hefði strax í sumar sett saman nefnd sem ætti m.a. að setja fram hugmyndir um leiðir til að styrkja fjárhagslega stöðu sjóðsins. Hann gerði nánar grein fyrir hlutverki nefndarinnar og sagði síðan: „Til dæmis þarf að skoða hvort og hvernig hægt er að breikka tekjustofn sjóðsins. Við þurfum að skoða hvort og þá hvern- ig hægt er að draga úr útgjöldum sjóðsins án þess að gengið sé of langt í þeim efnum. T.d. þarf að ræða áhrif þess að lækka að ein- hverju leyti það hlutfall af heildar- launum sem greiðsla í orlofi byggist á. Slíka kosti verður að skoða sem og aðra og meta áhrif einstakra breytinga.“ Ráðherra sagði að hópurinn ætti að skila tillögum og greinargerð til félagsmálaráðherra fyrir áramót. „Í framhaldi af því munum við meta í samráði við aðila vinnumarkaðarins til hvaða úrræða verður gripið.“ Félagsmálaráðherra skoðar fæðingarorlofssjóð Ekki grundvallarbreytingar á lögum um fæðingarorlof

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.