Morgunblaðið - 19.10.2003, Qupperneq 53
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 53
Netfang: auefni@mbl.is
SÖGN ehf., fyrirtæki
Baltasars Kormáks og Lilju
Pálmadóttur, og aðrir
aðstandendur sýningarinnar
ERLING, sem sýnd er í
Loftkastalanum, hafa
ákveðið að gefa eina sýningu
á verkinu til að styrkja List án
landamæra, listahátíð sem
haldin er í tilefni af Evrópuári
fatlaðra.
List án landamæra var sett
í febrúar síðastliðinn og hafa
nú rúmlega þrjátíu viðburðir
litið dagsins ljós í Reykjavík,
á Akureyri og á Sólheimum í
Grímsnesi. Stefnt er að því
að hátíðin nái hámarki með
átta daga listahátíð um
næstu mánaðamót.
Styrktar-
sýning á
Erling
Hafnfirðingurinn svo
sannarlega í gegn og átti
stóran þátt í að Íslendingar
hömpuðu
Evrópumeistaratitlinum.
Ásgeir varð markakóngur
mótsins og var valinn besta
vinstrihandarskyttan.
„Þetta er rosalega
spennandi og um leið alveg
ÁSGEIR Örn Hallgrímsson,
handknattleiksmaðurinn
stórefnilegi í
Íslandsmeistaraliði Hauka,
gengur í raðir spænska
stórliðsins Barcelona eftir
eitt og hálft ár. Valero
Rivera Lopéz þjálfari
Börsunga kom að máli við
Viggó Sigurðsson, þjálfara
Hauka, eftir Evrópuleikinn
við Hauka í Hafnarfirði um
sl. helgi og sagðist vilja fá
Ásgeir til liðs við Barcelona
árið 2005 og að félagið vildi
gera við hann þriggja ára
samning.
Ásgeir fetar þar með í
fótspor lærimeistara síns,
Viggós Sigurðssonar, en
Viggó lék í tvö ár með
Barcelona, 1979–1981, við
góðan orðstír. Ásgeir kemur
til með að leika með
Haukum á yfirstandandi
leiktíð og á næsta tímabili
en fyrir leiktíðina 2004–05
verður hann kominn í
herbúðir Barcelona, eins
frægasta og besta
handknattleiksliðs heims.
Áhugi Börsunga á Ásgeiri
Erni kviknaði þegar þeir
fylgdust með úrslitakeppni
Evrópumóts landsliða
skipuðu 18 ára og yngri í
Slóvakíu í ágúst en þar sló
ótrúlegt. Ég hélt í fyrstu að
það væri verið að gera at í
mér en þegar ég sá að Viggó
var fúlasta alvara þá áttaði
ég mig á því að þetta væri
satt. Það er nánast ævintýri
líkast að fá boð frá svona
stórliði og það má kannski
segja að ég byrji á öfugum
enda,“ sagði Ásgeir Örn í
samtali við Morgunblaðið.
Ásgeir Örn til Barcelona
Morgunblaðið/Sverrir
Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur hér snúið á Jarome Fernandez
í leik Hauka og Barcelona.
HÆSTIRÉTTUR skipaður sjö
dómurum kvað upp þann
samhljóða dóm á miðvikudag
að ekki hefði verið hægt að
skerða örorkulífeyri vegna
áranna 1999 og 2000 með
lögum, sem sett voru árið
2001, þar sem þau
kröfuréttindi nytu verndar
eignarréttarákvæðis
stjórnarskrárinnar og yrðu
ekki skert með afturvirkri og
íþyngjandi löggjöf.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði áður sýknað ríkið af
þessum kröfum.
„Þessi kröfuréttindi
örorkulífeyrisþega njóta
verndar eignarréttarákvæðis
72. gr. stjórnarskrárinnar og
verða ekki skert með
afturvirkri og íþyngjandi
löggjöf. Þótt ákvæði laga nr.
3/2001 um skerðingu
tekjutryggingar vegna tekna
maka séu bótaþegum
hagfelldari en eldri ákvæði
fela þau engu að síður í sér
lægri bætur en þeir áttu rétt
á samkvæmt meginreglunni
um óskertar bætur og geta í
því ljósi ekki verið ívilnandi,“
segir meðal annars í dómi
Hæstaréttar.
Garðar Sverrisson,
formaður Öryrkjabandalags
Íslands, kveðst vera
himinlifandi með dóminn og
segir að um stóra stund sé
að ræða í réttindabaráttu
öryrkja. Hann segir að sjö
hæstaréttardómarar hafi
verið allir á einu máli um að
stjórnvöld hafi með
lagasetningu sinni í janúar
2001 haft fé af öryrkjum með
ólögmætum hætti og þar
með brotið gegn stjórnarskrá
lýðveldisins.
„Ég tel að aðalatriðið í
niðurstöðu Hæstaréttar sé
það að það má ráða af dómi
hans að ekkert sé
stjórnskipulega við lögin frá
2001 að athuga frá þeim
tíma er þau tóku gildi,“ segir
Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra.
Ekki hægt að skerða
örorkulífeyri aftur í tímann
Morgunblaðið/Þorkell
Öryrkjar mótmæltu tekjutengingu örorkubóta í janúar 2001.
KÍNVERJAR skutu á loft
mönnuðu geimfari aðfaranótt
miðvikudagsins. Geimfarið
lenti heilu og höldnu tæpum
sólarhring síðar. Hafði því þá
verið flogið 14 sinnum í
kringum jörðina. Einn geimfari
var í farinu. Hann heitir Yang
Liwei og er 38 ára.
Þetta var fyrsta mannaða
geimferð Kínverja. Þeir eru
þriðja þjóðin sem sendir mann
út í geiminn. Áður hafa
einungis Bandaríkjamenn og
Rússar gert það, en Rússinn
Júrí Gagarín varð fyrstur
manna til að fara út í geiminn.
Það var fyrir 42 árum.
Mikill fögnuður braust út
meðal almennings þegar
geimfarinn var lentur, heill á
húfi. Nú segja kínversk
stjórnvöld, að þau vilji koma
sér upp geimstöð.
AP
Kínverska geimfaranum
fagnað við komuna til jarðar
aftur.
Kínverjar
senda mann
út í geiminn
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós tók
þátt í sýningu eins þekktasta
danshöfundar heims, Merce
Cunninghams, í New York á
þriðjudagskvöld. Þar spiluðu
þeir ásamt bresku
hljómsveitinni Radiohead og
gekk flutningurinn vel.
Bandarískir gagnrýnendur
lofuðu sýninguna og
frammistöðu Sigur Rósar.
Blaðamaður New York Post
sagði að tónlist þeirra hefði
verið hljómsterkari og meira
grípandi en tónlist
Radiohead.
Jón Þór Birgisson,
söngvari og gítarleikari Sigur
Rósar, segir flutninginn hafa
gengið vonum framar en
hljómsveitin spilaði meðal
annars á ballettskó og
spiladósir í sýningunni.
„Þetta gekk allt mjög vel og
okkur tókst að koma fólki til
að hlæja sem er ansi gott því
annars voru allir alvarlegir og
fínir með sig,“ sagði Jón Þór
eftir sýninguna.
Ljósmynd/Jack Vartoogian
Sigur Rós spilaði á
ballettskó í New York.
Sigur Rós í
ballettsýningu
í New York