Morgunblaðið - 19.10.2003, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 19.10.2003, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 59 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Munið afs láttarkort in á kv ikmyndahát íð Sýnd kl. 2, 4 og 6. 4 myndin frá Quentin Tarantino BLÓÐBAÐIÐ ER BYRJAÐ SV MBL Tvímælalaust ein albesta mynd ársins sem slegið hefur rækilega í gegn í Bandaríkjunum Stórmynd sem engin má missa af. 3D gleraugu fylgja hverjum miða l l j j i YFIR 15 000 GESTIR I I Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. B.i. 16. Topp myndin í USA BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN! FRUMSÝNING Sýnd kl. 8.  HP Kvikmyndir.com Sýnd kl. 10.20Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 5.25. Sýnd kl. 2 og 10.  HK. DV MBL SG DV MBL Sýnd kl. 8. ELEPHANT Sýnd kl. 4 Sýnd kl. 3.40.Sýnd kl. 2. Sýnd kl. 8. Stuttmyndin Síðasta Kynslóðin sýnd á undan myndinni HK DV www.laugarasbio.is Kl. 2 og 4. Með ísl. tali - Tilboð 400 kr. 4 myndin frá Quentin Tarantino BLÓÐBAÐIÐ ER BYRJAÐ Sýnd kl. 2, 4 og 6. Með ísl. tali SV MBL POWE RSÝnI NG kl. 10 .30. Á STÆ RSTA THX tJALD I LAND SINS Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er að lenda í sínu erfiðasta máli. Mögnuð spennumynd! Sýnd kl. 8 og 10.30. Sýnd kl. 8 og 10.30. 3D gleraugu fylgja hverjum miða l l j j i YFIR 15 000 GESTIR Topp myndin í USA Miðaverðkr. 500 BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN! TOPP MYNDINÁ ÍSLANDI! FRUMSÝNING FRUMSÝNING  HP Kvikmyndir.com Sýnd kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 5.40, 8 og Powersýning 10.30. B.i. 16 ára. ÞEIR sem muna kalda stríðið og enn fremur styrjöldina í Víetnam, gleyma ekki andlitinu á Robert McNamara. Svo samofið sem það var þessum dapurlegu átökum. Hann var andlit þess og persónugervingur og í hugum margra höfund- ur Víetnam-stríðsins og ábyrgðarmaður. Í heim- ildarmyndinni Stríðsþoku ræðir hann við heim- ildarmyndagerðarmanninn Errol Morris um líf sitt og störf, sem einkum tengjast þremur stríð- um. Kvikmyndagerðin er einföld, vélinni er mest- megnis beint að andliti þessa sögufræga ráð- herra, sem lætur dæluna ganga, með innskotum í fréttamyndir frá tímum frásagnarinnar. Andlit hans hefur vitaskuld breyst á þeim þrem til fjórum áratugum sem liðin eru síðan hann var í sviðsljósinu. Dökka, þykka, afturkembda hárið er mestmegnis á braut, sömuleiðis þóttinn, en gler- augun á sínum stað og augun gneista sem fyrr af þrótti og gáfum – þótt aldurinn nálgist nírætt. Í 11 köflum og eftirmála rekur hann heimssögu- legan og glæsilegan ferilinn. Allt frá því hann ólst upp í fátækt, samdi um fæðingarkostnað fyrsta barnsins með 10 mánaða afborgunarskilmálum og barðist í bökkum við að fjármagna háskóla- námið. Síðan kom blessað síðara stríðið og hjólin fóru að snúast á framabraut McNamara. Hann segir frá fimm vikna ferli sem æðsti maður Ford- verksmiðjanna, sem lauk í skyndi er hann fékk boð um viðtal við John F. Kennedy. Undir niðri virðist þessi margstimplaði hrokagikkur nokkuð bljúgur, jafnvel viðkvæmur og af og til slær hann á léttari nótur. Hann taldi sig ekki hafa bakgrunn til að fara með varnarmálaráðuneyti stjórnarinn- ar, en gafst upp er JFK tjáði honum að sjálfur hefði hann ekki gengið í skóla fyrir forseta. Frásögn McNamara er bæði stórfróðleg og forvitnileg. Ekki síst er hann talar um október- dagana ’62, þegar heimurinn riðaði á barmi kjarn- orkustyrjaldar vegna eldflauga Sovétsins á Kúbu. „Það munaði ekki nema hársbreidd,“ segir McNamara, „að allt færi í bál og brand.“ Þakkar það fyrst og fremst kjarki þáverandi sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, sem vogaði sér að segja við Kennedy að hann hefði á röngu að standa. Ekki væri útilokað að fá Krúsjov til að bakka: Gefa honum tækifæri á að láta það líta út eins og hetjudáð þjóðhöfðingja sem bjargaði Kúbu frá gjöreyðingu. Kúbudeilunni lauk og kalda stríðið var í algleymingi. Áfram fetar sig varnarmálaráðherrann fyrr- verandi um myrka stigu Víetnam og álítur að stríðinu hefði lokið mun fyrr ef Kennedy hefði enst aldur. Um líðan sína á meðan mótmælin voru hvað mest gegn stríðsrekstrinum, vill hann ekki tjá sig, en það er greinilegt að tíminn hefur verið honum og fjölskyldunni erfiður. Stríðsþoka er að því er virðist opinská og heið- arleg heimild um umdeild störf umdeilds manns á örlagatímum, sem segir ábyrgð verka sinna alfar- ið á herðum forsetanna sem hann þjónaði skilyrð- islaust. Lýkur hann máli sínu með þeim gamla sannleika að aldrei skyldi neinn segja aldrei – síst þegar stríð er annars vegar. Það hafi sannast best á Wilson forseta og sagan endurtaki sig í þessum efnum á meðan heimska manna og illska er skyn- seminni yfirsterkari. Andlit stríða KVIKMYNDIR Regnboginn, Kvikmyndahátíð Eddu Heimildarmynd. Leikstjórn og handrit: Errol Morris. Kvikmyndatökustjóri: Peter Donahue. Tónlist: Philip Glass. 95 mínútur. Sony Pictures Class- ic. Bandaríkin 2003. Stríðsþoka (Fog of War: Eleven Lessons from the Life of Robert S. McNamara, The)  „Það munaði ekki nema hársbreidd að allt færi í bál og brand,“ segir Robert S. McNamara um Kúbudeiluna í Stríðsþoku. Sæbjörn Valdimarsson S igmundur Ernir Rúnarsson erkominn aftur í sjónvarpið eftirnokkurt hlé. Þar stjórnar hannnú þættinum Maður á mann sem sýndur er á sunnudagskvöldum á Skjá einum. Hvernig hefurðu það? Ljómandi gott, þakka þér fyrir. Hvað ertu með í vösunum? Tvö tí – og eitthvað af drasli upp úr gólf- inu eftir krakkana. Uppvaskið eða skræla kartöflur? Hvort tveggja, ég er alelda í þessum efn- um. Hefurðu tárast í bíói? Já, annað væri það nú! Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á? Það voru skólatónleikar með Hljómsveit Ingimars Eydals. Frá því hefur Eydalinn ekki liðið mér úr minni. Ef þú værir ekki fjölmiðlamaður/ rithöfundur, hvað vildirðu þá vera? Skógarbóndi frammi í Eyjafirði. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Það fer ekkert fólk í taugarnar á mér. Hver er þinn helsti veikleiki? Tölvur og ég hafa ekki enn náð sambandi. Ég er enn á fjað- urpennastiginu. Finndu fimm orð sem lýsa per- sónuleika þínum vel. Tilfinningaríkur, vinnusamur, op- inn, léttur og umburð- arlyndur. Bítlarnir eða Stones? Bítlarnir eru besta bít allra tíma. Humar eða ham- borgari? Humar að hætti Ellu. Hver var síð- asta bók sem þú last? Ljóðasafn Sigfúsar Daða og er rétt að klára bernskusögu Þráins Bertels sem er dásamlega manneskjuleg bók. Hvaða lag spilarðu áður en þú ferð út á laugardagskvöldi? London Calling með Clash. Hvaða plötu keyptirðu síðast? Bubba, Þúsund kossa nótt – algert hun- ang. Hver er unaðslegasti ilmur sem þú hef- ur fundið? Af konu minni, hvar sem hún er. Hvert er þitt mesta prakkarastrik? Þegar ég bísaði nokkrum brún- um fimmþúsund köllum úr launaumslagi vinar míns á sanddæluárunum í Eyja- firði – og lét hann hafa peninginn fyrir að synda í land. Hann rétt hafði það. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Ætli það sé ekki slöngukjöt í New Orleans. Svo er ég í afbragðsgóðum matarklúbbi sem heitir Bragðarefir – og þar eiga menn til að fara offari í matargerð. Trúirðu á líf eftir dauðann? Nei, en það er sjálfsagt mál að aðrir geri það. Enn á fjaður- pennastiginu Sigmundur Ernir Rúnarsson SOS SPURT & SVARAÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.