Morgunblaðið - 21.10.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 15
Falleg 81,8 m² hæð ásamt 28,6m² bíl-
skúr. Íbúðin er á 1. hæð í fallegu þríbýli
með stórum garði og gróðri í kring. Íbúð-
in getur annars vegar verið með tveimur
svefnherbegjum og einni stofu eða með
tveimur samliggjandi stofum og einni
svefnherbergi. Sjón er sögu ríkari.
Uppl. gefa sölumenn XHÚSA.
BARÐAVOGUR - HÆÐ + BÍLSKÚR
HIÐ værukæra og stöðuga þjóð-
stjórnarkerfi svissneskra stjórn-
mála varð fyrir nýju áfalli í þing-
kosningunum á sunnudag, er
hægripopúlistaflokkurinn SVP fór
með afgerandi sigur af hólmi og
hlaut mest fylgi allra flokka, yfir
27% atkvæða.
Þessi kosningasigur var nýjasta
höggið sem milljarðamæringurinn
Christoph Blocher fær reitt kerfinu,
sem hann segir staðnað og úr takti
við almenning. Stjórnmálaskýr-
endur svissneskra fjölmiðla segja
úrslitin jafnast á við jarðskjálfta eða
hamfaraflóðbylgju.
Þótt Blocher hafi aldrei verið
formlegur flokksleiðtogi SVP er
engum blöðum um það að fletta að
það er hann sem á síðustu árum hef-
ur átt manna mestan þátt í að rífa
upp fylgi þessa gamla flokks, sem
lengst af var hefðbundinn dreif-
býlis-íhaldsflokkur með 10–11%
fylgi á landsvísu og ánægður með
það hlutskipti að vera minnsti flokk-
urinn í þjóðstjórninni, með einn full-
trúa af sjö.
„Velgengni okkar er skýrt merki
um að fólkið vill annars konar
stjórnmál,“ sagði Blocher í Neue
Zürcher Zeitung í gær, eftir að úr-
slitin lágu fyrir. Með Blocher
fremstan í flokki hefur SVP bætt
mun meira ögrandi stefnumálum á
stefnuskrána, svo sem um að standa
vörð um hlutleysi Sviss með því m.a.
að reyna að halda landinu utan við
bæði Sameinuðu þjóðirnar og Evr-
ópusambandið. Önnur hlið á ein-
angrunarsinnaðri stefnuskránni er
viðleitni til að halda óvelkomnum út-
lendingum fjarri. Og – sígilt fyrir
popúlistaflokk – að halda skatt-
heimtu í lágmarki. Með þessum
hægripopúlísku áherzlum hefur
SVP tekizt að höggva stórt skarð í
fylgisraðir borgaralegu flokkanna,
frjálslyndra demókrata (FDP) og
kristilegra demókrata (CVP).
Blocher, sem er 63 ára, var fyrst
kjörinn á svissneska sambandsþing-
ið í Bern árið 1979, en hann varð
ekki landskunnur fyrir stjórn-
málaafskipti sín fyrr en hann varð
aðaltalsmaður og stærsti fjárhags-
legi bakhjarl Samtaka fyrir sjálf-
stæðu og hlutlausu Sviss, AUNS,
sem barðist gegn aðild landsins að
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið (EES) á sínum tíma, en
hún var felld í þjóðaratkvæða-
greiðslu í desember 1992. Samtökin
börðust einnig gegn því að Sviss-
lendingar yrðu fullgildir aðilar að
Sameinuðu þjóðunum og höfðu er-
indi sem erfiði er tillaga þar að lút-
andi var felld í þjóðaratkvæða-
greiðslu árið 1986. Þeirri ákvörðun
tókst ríkisstjórninni ekki að fá snúið
við fyrr en á síðasta ári.
Sérstaklega frá því í EES-
slagnum hefur SVP og Blocher
margendurtekið tekizt að setja
mark sitt á pólitíska umræðu í land-
inu. Hann hefur margoft nýtt sér
það hve auðvelt er að knýja fram
þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin
mál, í því skyni að skáka stjórn-
arstefnunni í ýmsum málum, svo
sem að því er varðar samninga við
ESB eða reglur um hælisleitendur.
Krefjast ráðherraembættis
fyrir Blocher
Nú krefst SVP þess að flokkurinn
fái tvö af hinum sjö ráðherrasætum
í fjögurra flokka þjóðstjórninni, sem
mynduð hefur með sama hætti allt
frá því árið 1959. Og flokkurinn hef-
ur tilnefnt Blocher sem ráðherra-
efni er skipað verður á ný í stjórnina
í desember. Tilnefningu Blochers
var mjög illa tekið af forystumönn-
um hinna flokkanna, enda er hefðin
sú að í stjórnina veljist menn sem
leggi sig fram um að sætta ólík sjón-
armið. Hafa talsmenn SVP látið í
það skína að fái þeir ekki sitt fram
kunni þeir að velja að draga sig út
úr stjórninni og nýta sér þingstyrk-
inn til virkrar stjórnarandstöðu.
„Við erum ekki vön þessum tóni
og teljum að þingið muni ekki sitja
og standa að vild SVP,“ sagði
Christiane Langenberger, formaður
FDP. Og Christiane Brunner, for-
maður jafnaðarmannaflokksins SP,
sakaði SVP um að reyna að beita
kúgunaraðferðum til að koma
Blocher í ráðherrastól.
Blocher gefur kerfinu
í Sviss nýtt kjaftshögg
Genf. AFP.
’ Velgengni okkarer skýrt merki um
að fólkið vill annars
konar stjórnmál. ‘
AP
Milljarðamæringurinn og stjórnmálaleiðtoginn Christoph Blocher (t.v.) á
blaðamannafundi forystumanna svissneska Þjóðarflokksins, SVP, í gær.
ELLEFU menn fórust þegar
danskt olíuskip sökk í Atlants-
hafið undan ströndum Nígeríu á
sunnudag. Danska sjónvarpið
segir skipið, sem bar heitið
Stevns Power, hafa farið í hafið
um 90 km undan hafnarborg-
inni Port Harcourt en um borð
voru sex menn frá Filippseyj-
um, þrír Danir og tveir Kongó-
búar.
„Ég skil ekki hvers vegna
engum skipverjanna tókst að
bjarga sér af skipinu,“ sagði
Niels Højlund, eigandi útgerð-
arfyrirtækisins Nordane Shipp-
ing. Højlund sagði að áhöfn
annars dansks skips, Maersk
Terrier, hefði séð þegar hinn
„undarlegi og óskiljanlegi“ at-
burður átti sér stað. Engar upp-
lýsingar væru fyrirliggjandi um
það hvers vegna skipið sökk.
Veður var gott undan strönd
Nígeríu þegar Stevns Power
sökk. Höfðu skipverjar verið að
kasta út akkeri við hlið stærra
olíuskips þegar Stevns Power
fór skyndilega á hvolf og sökk í
hafið.
Ellefu fór-
ust með
dönsku
olíuskipi
Lagos. AFP.
YFIR helmingur Breta er andfúlli en
gæludýr þeirra, samkvæmt nið-
urstöðum nýrrar rannsóknar. Sér-
staklega reyndist andremma út-
breidd meðal brezku kvenþjóðar-
innar; þrjár af hverjum fimm konum
komu illa út úr andremmuprófinu
sem lagt var fyrir þátttakendur í
rannsókninni.
„Sumir hálsar kunna að vera skít-
ugri en kattasandur,“ segir í til-
kynningu brezka tannlæknisins
Brian Grieveson, sem gefin var út
ásamt niðurstöðum rannsóknar sem
unnin var á vegum tannkremsfram-
leiðanda og greint er frá í svissneska
blaðinu Tages-Anzeiger. 1000
manns tóku þátt í rannsókninni.
Samkvæmt niðurstöðunum hafa
Skotar hreinni munnhol en Englend-
ingar. Aðeins 10% þeirra Skota sem
þátt tóku féllu á andremmuprófinu.
Aftur á móti féllu 27% Lundúnabúa
á því. Að meðaltali yfir allt Bretland
má samkvæmt niðurstöðunum segja
að 52% íbúa landsins sé andfúlli en
heimilishundar og -kettir flestir eru.
Að sögn Grieveson tannlæknis
nægir ekki að bursta tennurnar.
Bretar séu „meðal síðustu þjóða,
sem gerir sér grein fyrir nauðsyn
þess að hreinsa líka tunguna í sér“.
Ritarar voru sú starfsstétt sem
kom einna bezt út úr rannsókninni,
en afgreiðslufólk verst. Frá aðstand-
endum rannsóknarinnar fékk það
viðvörunina: „Þið gætuð fælt frá
ykkur viðskiptavinina.“
Andfúlli en gæludýrin