Morgunblaðið - 15.11.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 310. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Vék aldrei úr
huganum
Grímseyjarbókin fylgdi Helga
Dan daga og nætur | Landið 27
Ólafur ritar um Jón biskup Arason
og syni hans | Lesbók 4
Hin sígilda
randalín
Margir eru byrjaðir á jólabakstri
og matarstússi |Daglegt líf 38
Öxin og
jörðin
BANDARÍKJASTJÓRN mun sennilega
tilkynna um fyrstu lotu breytinga á stað-
setningu og skipan bandaríska heraflans í
Asíu strax í næsta mán-
uði. Frá þessu greindi
Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, í gær
en hann var þá staddur
í bækistöðvum banda-
ríska flughersins á eyj-
unni Guam í Kyrrahafi.
Guam var fyrsti við-
komustaðurinn í sex
daga löngu ferðalagi Rumsfelds til Asíu en
hann hyggst ræða við bandamenn Banda-
ríkjanna um fyrirhugaðar breytingar á
skipan og staðsetningu bandaríska herafl-
ans erlendis. Þetta er fyrsta ferð Rums-
felds til bandalagsríkja Bandaríkjamanna
í Asíu síðan hann varð varnarmálaráð-
herra í janúar 2001.
Tekur 2–8 ár í framkvæmd
Rumsfeld sagði að það myndi taka tvö til
átta ár að hrinda í framkvæmd öllum fyr-
irhuguðum breytingum á staðsetningu og
skipan bandaríska heraflans erlendis.
Hann nefndi þó enga tiltekna þætti sér-
staklega. „Það eru ýmsar hugmyndir
uppi,“ sagði hann en m.a. eru í gangi við-
ræður við Suður-Kóreu um fækkun í
bandaríska herliðinu en þar eru um 37
þúsund hermenn. Bandarísk stjórnvöld
hafa tilkynnt íslenskum ráðamönnum að
breytingar á umfangi starfsemi varnar-
liðsins í Keflavík verði skoðaðar í sam-
hengi við þá heildarendurskoðun á herafla
Bandaríkjanna sem nú á sér stað.
Skipan herafla
Bandaríkjanna í Asíu
Tíðinda að
vænta í
desember
Donald Rumsfeld
Andersen-flugherstöðinni í Guam. AP. FJÓRIR fyrrverandi yfirmenn
Shin Beth, ísraelsku öryggislög-
reglunnar, hvöttu í gær til, að
bundinn yrði
endi á hernám
Ísraela á Vest-
urbakkanum og
Gaza. Er þetta
aðeins síðasta
dæmið um vax-
andi óánægju í
Ísrael með
harðlínustefnu
stjórnvalda gagnvart Palestínu-
mönnum.
Áskorun öryggisþjónustuforingj-
anna kemur fram í viðtali við þá í
Yediot Aharonot, útbreiddasta
dagblaðinu í Ísrael. Þar varar Avr-
aham Shalom, sem var yfirmaður
Shin Beth 1980 til 1986, við yfirvof-
andi „ógæfu“ ef „við viðurkennum
ekki í eitt skipti fyrir öll, að það er
annað fólk, sem þjáist vegna
skammarlegrar framkomu okkar“.
Yaacov Peri, yfirmaður Shin Beth
1988 til 1995, sagði, að Ísraelar
sykkju dýpra og dýpra ofan í blóð-
ugt fen og væru farnir að gjalda
þess dýru verði „efnahagslega og á
alþjóðavettvangi“.
Ógnar tilveru Ísraels
Ísraelski fréttaskýrandinn Jos-
eph Alpher sagði í gær, að þessi af-
staða sýndi, að æ fleiri Ísraelar,
sérstaklega meðal efri stéttanna,
áttuðu sig á, að áframhaldandi her-
seta og landtaka væri farin að ógna
tilveru Ísraels sem gyðinglegs og
lýðræðislegs ríkis. Átti hann þá
meðal annars við þær áhyggjur, að
afleiðingin af því að ásælast Palest-
ínu yrði sú, að gyðingar yrðu að
minnihluta í eigin landi.
Í september sl. lýstu 27 ísr-
aelskir flugmenn og flugkennarar
yfir, að þeir vildu ekki lengur
„hlýða ólöglegum og ósiðlegum
fyrirskipunum“ og neituðu „að
taka þátt í loftárásum á óbreytta
borgara“. Fyrir skömmu for-
dæmdi síðan Moshe Yaalon, yfir-
maður ísraelska herráðsins, stefnu
Ariels Sharons forsætisráðherra
og hörkuna gagnvart Palestínu-
mönnum og sagði, að hún gæti
leitt til enn meiri hörmunga og
blóðbaðs.
Harðlega gagnrýndir
Nokkrir kunnir Ísraelar og Pal-
estínumenn hafa beitt sér fyrir
svokölluðu Genfarfrumkvæði, frið-
aráætlun, sem Sharon hefur jafnað
við landráð, en meðal þeirra, sem
það styðja, er Ami Ayalon, yfir-
maður Shin Beth frá 1996 til 2000.
Hann var einn öryggislögreglufor-
ingjanna, sem stóðu að áskorun-
inni, en sá fjórði er Carmi Gilon.
Haft var eftir ónefndum emb-
ættismanni, að mat öryggislög-
regluforingjanna á ástandinu væri
rangt og Ezer Weizman, fyrrver-
andi forseti Ísraels, sakaði þá um
að leiða hörmungar yfir þjóðina.
Áskorun fyrrverandi yfirmanna ísraelsku öryggislögreglunnar
Vilja hætta hernámi
Vesturbakkans og Gaza
Jerúsalem. AFP.
LAUNÞEGAR geta valið sér með hvaða
hætti þeir taka kjarabætur sínar hverju
sinni ef hugmyndir Gunnars Páls Pálsson-
ar, formanns Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, verða að veruleika.
Á fundi Landssambands íslenskra versl-
unarmanna í gær lagði hann fram hug-
myndir þess efnis að launþegar geti valið
um laun, orlof eða lífeyri þegar kjarabætur
eru annars vegar. „Kjarabarátta á næstu
árum mun mótast meira en áður af hags-
munum og þörfum einstaklingsins. Af
þeim sökum þarf að taka aukið tillit til
þátta eins og fjölskyldu, menntunar, hæfni,
ábyrgðar og aldurs,“ sagði Gunnar Páll.
Að hans sögn getur valfrjáls sparnaður
átt erindi við launþega þar sem þeir gætu
lagt meira fé í viðbótarsparnað og notað
hann t.d. í að kosta námsleyfi eða taka út
aukið orlof.
Hugmyndir formanns VR
Launþegar
geti valið
laun, orlof
eða lífeyri
Árangur/12
SEINT í gærkvöldi voru á
lokastigi í London samningar
milli nýrra fjárfesta og Jóns
Ólafssonar, aðaleiganda
Norðurljósa, um sölu hans á
öllum hlut hans í Norðurljós-
um og öllum öðrum umsvifum
hans á Íslandi.
Fram hefur komið að fjórir
fjárfestahópar munu standa
að kaupunum, Kaupþing-
Búnaðarbanki, aðilar tengdir Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni hjá Baugi, S-hópnum og Kára Stef-
ánssyni.
„Ég verð með þessum samningi, ef af verður,
hættur allri starfsemi á Íslandi,“ sagði Jón
Ólafsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi,
en benti jafnframt á að hann hefði fyrir all-
nokkru fært allt eignarhald félaga sinna til út-
landa, sem væri m.a kjarninn í þrætum hans
við íslensk skattayfirvöld, sem hafa sakað hann
um stórfelldan undandrátt frá skatti. Rann-
sókn skattrannsóknarstjóra hefur nú verið
send ríkisskattstjóra til frekari ákvörðunar, en
Jón Ólafsson kveðst munu halda uppi fullum
vörnum í öllu því máli.
Jón segir að Norðurljósum hafi gengið vel
undanfarin ár og fyrirtækinu sé vel stjórnað að
hans mati. Skuldirnar séu hins vegar of háar
og við þá stöðu verði ekki lifað lengur. Með
þeim viðskiptum sem hann sé í með félagið nú
verði vandamál þess leyst og hagur starfs-
manna þess tryggður.
Selur allar eignir á Íslandi
Kaupþing-Búnaðarbanki mun jafnframt
kaupa allar eignir Jóns Ólafssonar á Íslandi.
Meðal eigna Jóns sem hann nú selur, auk
meirihlutaeignar í Norðurljósum, eru húseign-
ir, tölvufyrirtækið Inn og 140 einbýlishúsalóðir
á Arnarnesi.
Samþykkt var á hluthafafundi Norðurljósa í
gær að færa hlutafé félagsins úr 1.700 millj-
ónum í 300 og auka það á ný um allt að 2.000
milljónir. Ný stjórn verður kjörin á næsta hlut-
hafafundi, sem væntanlega verður á mánudag-
inn.
Samningar um kaup á
Norðurljósum á lokastigi
Jón Ólafsson hættur öll-
um umsvifum á Íslandi
Jón Ólafsson
UNGAR palestínskar stúlkur biðjast fyrir við Klett-
hvolfsmoskuna á Musterishæð í Jerúsalem í gær.
Þar komu um þrjú þúsund meðlimir hinna herskáu
Hamas-samtaka saman til föstudagsbæna.
AP
Föstudagsbænir í Jerúsalem
♦ ♦ ♦