Morgunblaðið - 15.11.2003, Qupperneq 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
– traustur samstarfsa›ili í fjármögnun
Sér›u atvinnutæki›
sem flig langar í?
Getur flú n‡tt
skattfrádrátt
me› flví a› f
járfesta
í atvinnutæk
jum
fyrir áramót?
Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun
getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar
ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar
á skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir.
Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á
www.glitnir.is og fá›u a›sto› vi› a› velja flá
fjármögnunarlei› sem hentar best.
Tala›u vi› sérfræ›ing!
Glitnir – traustur samstarfsa›ili
í fjármögnun atvinnutækja.
Laugardalur | Þróttarar standa
þessa dagana fyrir fjáröflunarstarf-
semi með nýstárlegum hætti í hverfi
sínu, en þeir biðja íbúa um að leggja
þeim til litla upphæð mánaðarlega
til að koma fjármálum félagsins á
beinu brautina. Þróttarar verða
áberandi í hverfinu í dag þegar þeir
ganga í hús og verslanir á svæðinu
og kynna átakið almenningi.
„Við erum að segja fólki hvað við
erum að gera og spyrja fólk hvort
það sé ekki tilbúið að hjálpa okkur
við þetta,“ segir Kristinn Einarsson,
formaður Þróttar. „Það sem við er-
um fyrst og fremst að reyna að gera
er að borga það sem við skuldum.“
Kristinn segir flutninginn í Laug-
ardalinn hafa verið dýran, og félagið
hafi misst tekjur við að falla um
deild í meistaraflokki karla í sumar.
„Við erum að gera mjög góða hluti í
þessu hverfi þar sem iðkendafjöld-
inn hjá okkur hefur vaxið út tæplega
200 í rúmlega 500. Það er sprenging
á um tveimur árum. Við þökkum það
góðu og markvissu foreldra- og ung-
lingastarfi. Þetta allt saman ýtir
undir það að við gerum enn betur,“
segir Kristinn.
„Það hefur mikið verið að gerast
hjá Þrótti að undanförnu, mikil
virkni, gott foreldrastarf í gangi og
félagsstarfið í blóma. Við höfum
horft til þess að það þurfi að skila því
enn víðar út í hverfið,“ segir Guð-
mundur Vignir Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Þróttar.
Guðmundur segir að nú eigi að
skipta um gír og hugsa til nýrra að-
ferða til að víkka starfsemina út, en
slíkt kosti alltaf peninga. „Við höfum
sagt að við eigum ekki að sitja og
bíða eftir því að eitthvað gerist held-
ur eigum við að höfða til hverfisins,
tala tæpitungulaust um peningahlið-
ina, sem er mjög erfið, og biðja um
stuðning svo við getum haldið dampi
og mætt þessum vandamálum.“
Ekkert nýtt undir sólinni
Þetta er átak Þróttar í hverfinu
sem hefur þann tilgang að kynna
Þrótt fyrir íbúum hverfisins, þjón-
ustu Þróttar og út á hvað fé-
lagsreksturinn gengur, segir Hauk-
ur Magnússon, Kötter nr. 1 eins og
hann kallar sig, en Köttararnir eru
hópur stuðningsmanna Þróttar. Íbú-
arnir eru einfaldlega spurðir hvort
þeir geti hjálpað félaginu, í bréfi
sem borið er út í öll hús í hverfinu.
Haukur segir þessa leið nýstár-
lega, en þó sé ekkert nýtt undir sól-
inni, því sama aðferð var höfð hjá
Þrótti í nóvember 1975 þegar Magn-
ús, faðir Hauks var formaður félags-
ins. Þá var íbúum hverfisins sent
bréf og svo hringt í þá í kjölfar þess
og þeir beðnir um að gefa einhverja
ákveðna upphæð mánaðarlega.
„Við erum að fara sömu leið, að
óska eftir einhvers konar styrk sem
fólki munar kannski ekki um, en
kemur sér gríðarvel fyrir okkur, og
út á það gengur átakið,“ segir Hauk-
ur. Hann segir að sú hugsun virðist
algeng að rekstur íþróttafélaga sé
sjálfbær og menn þurfi lítið að hafa
fyrir þessu. „Það er ekki rétt. Borg-
in styrkir þetta upp ákveðnu marki,
en svo er ætlast til þess að menn
bjargi sér sjálfir og þetta er einmitt
liður í því.“
Aðferð sem hentar fólki vel
Kristinn segir þetta form, að
leggja til litla upphæð einu sinni í
mánuði, henta mörgum vel. „Fólkið
finnur ekki jafnmikið fyrir því ef um
er að ræða svona lága upphæð mán-
aðarlega.“ Miðað er við 500 kr. á
mánuði í þessu átaki, en hægt er að
gefa hærri eða lægri upphæð eftir
aðstæðum.
Hverfinu er skipt í þrennt og fá
íbúar í hverjum hluta sent bréf og
svo símtal í kjölfarið þar sem þeim
er boðið að styrkja félagið mán-
aðarlega um litla upphæð í eitt ár.
Átakið er komið í gang og verður í
gangi næstu vikurnar. „Söfnunin fer
vægast sagt prýðilega vel af stað.
Við erum búnir að hringja út í tvö
góð kvöld og alveg óhætt að segja að
viðtökurnar séu fínar,“ segir Hauk-
ur.
„Við höfum í þessu átaki, bæði í
gamni og alvöru, kallað þetta Þrótt-
arbæinn. Við teljum að þar búi
30.000 manns og köllum þetta næst-
stærsta bæinn á Íslandi. Bæjarfélag
af þeirri stærðargráðu á að eiga öfl-
ugt íþróttafélag og allt sem því
fylgir,“ segir Haukur og bendir á að
íþróttafélög verða að hugsa um hvað
þau geti gert fyrir fólk og fyrirtæki í
hverfinu.
Morgunblaðið/Ásdís
Átak: Kristinn Einarsson, formaður Þróttar (t.v.), og Haukur Magnússon, Kötter nr. 1.
Þróttarar leita eftir
stuðningi í hverfinu
Fjöldi iðkenda
meira en tvöfald-
ast á tveimur
árum
Garðabær | Fulltrúar bæjar-
stjórnar Garðabæjar og fyrirtæk-
isins Hugvits hf. undirrituðu á dög-
unum nýjan samning um „Minn
Garðabæ“, verkefni á sviði rafrænn-
ar stjórnsýslu og íbúalýðræðis.
Verkefnið „Minn Garðabær“ snýst
m.a. um að setja upp gagnagrunn-
stengdan þjónustuvef fyrir Garða-
bæ. Á vefnum mun íbúum bæjarins
gefast kostur á að sækja ýmsar per-
sónubundnar upplýsingar og þjón-
ustu. Hver íbúi getur
skráð sig inn á vefinn og
um leið merkt við þá
málaflokka sem hann hef-
ur sérstakan áhuga á.
Íbúinn fær í framhaldinu
lykilorð sem hann notar
til að nálgast sína per-
sónulegu síðu á vef Garða-
bæjar þar sem hann getur
til dæmis nálgast upplýs-
ingar frá leikskóla eða skóla barna
hans, upplýsingar um framkvæmdir
í hverfinu sem hann býr í, upplýs-
ingar um skipulagsmál almennt
o.s.frv., allt eftir því hvernig hann
skilgreindi áhugasvið sitt þegar
hann skráði sig inn. Á sinni síðu
getur íbúinn líka nálgast upplýs-
ingar um stöðu viðskipta sinna við
bæinn. Hann getur t.d. séð hvað
hann skuldar í leikskólagjöld eða
fasteignagjöld, svo dæmi séu tekin.
Að sögn bæjaryfirvalda í Garða-
bæ eykur verkefnið möguleika til
aukins íbúalýðræðis og samráðs við
íbúa. Hægt verður að leggja kann-
anir fyrir íbúa á einfaldan hátt, ým-
ist fyrir alla sem skráðir eru eða að-
eins til þeirra sem hafa skráð sig
sem áhugamenn um tiltekin mál-
efni. Þar sem íbúar eru auðkenndir
er hægt að tryggja að hver svari að-
eins einu sinni og aðeins þeir sem
eru íbúar í Garðabæ. Bæjaryfirvöld
segja mikinn áhuga á því að nýta
þennan möguleika til að auka þátt-
töku íbúa við ákvarðanatöku.
„Heimabanki“
sveitarfélagsins
Ásdís Halla Bragadóttir, bæj-
arstjóri Garðabæjar, segist afar
ánægð með þá stefnu sem verkefnið
hefur tekið. Hún telur það munu
valda mikilli breytingu á þjónustu
við bæjarbúa í gegnum vefinn, sem
hefur hingað til verið miðaður við
fjöldann eins og aðrir opinberir vef-
ir. „Við höfum birt í gegnum vefinn
okkar fréttir, fundargerðir og ýmiss
konar upplýsingar. Síðastliðið eitt
og hálft ár höfum við hins vegar
verið að taka við meira af upplýs-
ingum frá bæjarbúum í gegnum
vefinn, til dæmis í gegnum rafræn
eyðublöð.“
Ásdís Halla segir vefinn hafa
þróast undanfarna mánuði í þá átt
að verða gagnvirkari upplýs-
ingaveita og nú sé svo komið að yfir
þriðjungur heimila í Garðabæ sé
áskrifendur að fréttum í gegnum
hann.
„ Mér finnst ágætt að líkja þessu
við heimabanka,“ segir Ásdís Halla,
sem segist sjá vefinn fyrir sér sem
nokkurs konar heimabanka
íbúanna gagnvart sveitarfé-
laginu, persónubundnar
upplýsingar sem allir geta
nálgast. „Það sem er líka
töluverður ávinningur í
þessu nýja fyrirkomulagi
verður að einstaklingar
geta farið inn á þennan
nýja vef og fylgst með mál-
um sem þeir eiga inni hjá
bæjarfélaginu og hafa ekki fengið
svör við. Þar geta íbúar séð hvar
málið er statt, hvort það er til um-
sagnar inni í einhverri nefnd og svo
framvegis.
Við höfum verið að byggja upp
okkar rafrænu stjórnsýslu og þróa
hana vandlega skref fyrir skref. Ég
lít á þennan nýja vef sem mikla
framför í þjónustu við bæjarbúa og
einnig sem tæki til öflugra íbúa-
lýðræðis en áður hefur þekkst hjá
íslenskum sveitarfélögum, vegna
þess að í gegnum þennan vef getum
við með mjög markvissum og
ábyrgum hætti leitað í miklu ríkara
mæli en áður eftir viðhorfum og
skoðunum íbúa til tiltekinna mála-
flokka eða bæjarmálanna almennt,“
segir Ásdís Halla.
Möguleiki á útflutningi
þekkingar
Verkefnið er nú í þróun og tíma-
áætlun gerir ráð fyrir að vefurinn
verði kominn að fullu í notkun á
næsta ári, en viðbætur koma í
áföngum.
„Markmið okkar er að ef verk-
efnið heppnast vel vonum við að við
getum aðstoðað önnur sveitarfélög
við að byggja upp sína vefi með
sambærilegum hætti. Ef samstarf
okkar við Hugvit heppnast vel er
mikill áhugi á því að nota þessa
hugmynd til markaðssetningar í
öðrum löndum.
Við höfum óskað eftir stuðningi
frá félagsmálaráðuneytinu og Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga til að
þróa þetta áfram og kynna þetta
fyrir öðrum sveitarfélögum og við
vonumst til að fá jákvæð viðbrögð
við því,“ segir Ásdís Halla að lokum.
Gagnagrunnstengdur þjónustu-
vefur í þróun fyrir Garðabæ
Tímamót í
íbúalýðræði