Morgunblaðið - 15.11.2003, Page 27

Morgunblaðið - 15.11.2003, Page 27
FEÐGARNIR Helgi og Friðþjófur settu upp stóra ljósmyndasýningu í félagsheimilinu á myndum Friðþjófs. Sýningu af lífi og starfi Gríms- eyinga fyrr og nú og myndum frá fallegum stöðum þessarar perlu sem Grímsey er við heimskautsbauginn. Helgi sagði að bókina hefði hann unnið með hjartanu og gert eins vel og hann gat. Efni bók- arinnar spannar tímabilið frá 1890 til þessa dags. Til dæmis má sjá myndir sem Fiske lét taka í Grímsey, frá árinu 1902 og eru þær ein- stakar heimildir um líf fólksins þá. Eftir stórskemmtilega og fróð- lega ræðu Helga Daníelssonar og er hann hafði afhent nokkrum að- ilum hátíðarútgáfu bókarinnar um Grímsey, íbúa hennar og sögu, tók við hefðbundin dagskrá Kvenfélagsins Baugs með ávarpi for- manns Fiske-nefndarinnar Áslaugar Helgu Alfreðsdóttur. Dónald Jó- hannesson skólastjóri tók síðan við. Að vísu hafði eitt og annað fallið úr dagská þessa stóra dags, þar sem flug hafði ekki tekist en Gríms- eyingar brostu breitt og héldu glaðir áfram að fagna stórum atburði. Skólabörnin sungu, léku og skemmtu gestum við góðar undirtektir. Veitingar voru í hæsta gæðaflokki, snæddar með heitu súkkulaði og þeyttum rjóma. Endað var eins og ævinlega á línugjöfum Baugs, en þá geta íbúar keypt sér svokallaðar línur af kvenfélaginu og síðan eru dregin út nöfn og mikill spenningur ríkir meðan þessu fer fram. Loks var stiginn dans, við undirleik og söng skólastjórans Dónalds, mæting var góð, mikið fjör og gaman til klukkan þrjú um nóttina. Það voru ánægðir Grímseyingar sem héldu út í heimskautsnóttina, með stórmerkilega bók undir hendi um sögu og líf Grímseyinga í meira en 100 ár. Morgunblaðið/Helga Mattína Mannlíf í Grímsey: Friðþjófur Helgason við nokkrar af ljósmyndum sínum á sýningunni í félagsheimilinu Múla í Grímsey. Ljósmyndasýning LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 27 Grímsey | Fiske-afmælið, þjóðhá- tíðardagur Grímseyinga er alltaf jafnmikill gleðidagur. Minnst er af- mælis velgjörðamannsins dr. Daní- els Willard Fiske og hefur það verið gert í tugi ára. Vitað er með vissu um Fiske-afmæli í Grímsey 1915. Forsagan er sú að dr. Daníel Will- ard Fiske, eldhuginn mikli, var að sigla á Grímseyjarsundi 1879 þegar hann sá glitta í litla eyju í norðri og spurði hvort þarna byggi einhver. Svarið var já, þarna býr dugn- aðarfólk og þar á meðal góðir og sterkir skákmenn. Samstundis kviknaði neisti áhuga og umhyggju í brjósti Fiske sem síðar varð að báli þegar hann arfleiddi Grímseyinga að mestu peningagjöf sem nokkur útlendingur hefur fært Íslendingum svo vitað sé, upphæðin var 12.000 dalir fyrir um 100 árum. Afmælishátíðin hófst með því að fjöldi Grímseyinga safnaðist saman á Fiske-pallinum til að tendra af- mælisljós, til minningar um kærasta vininn, dr. Fiske. Þaðan var haldið í Félagsheimilið Múla. Að þessu sinni ríkti óvenju mikil gleði á Fiske- afmæli því Helgi Daníelsson, fyrr- verandi rannsóknarlögreglumaður og frægur fótboltakappi af Skag- anum, var að ljúka við ritun stórrar bókar um Grímsey, íbúa og sögu. En Helgi á ættir sínar að rekja til Grímseyjar. Móðurafi hans var Helgi á Borgum og hjá honum og ömmu sinni dvaldi hann sem ungur drengur. Aðalhvatamaður og drif- fjöður að Grímseyjarbókinni, er Birna Óladóttir frá Sveinsstöðum, nú húsfreyja í Grindavík. Birna lagði fram fyrstu fjármunina til að vinna að því bókin færi af stað. Helgi vildi undirstrika mikilvægi þáttar Birnu í því, að bókin um Grímsey er komin út og orðin að veruleika. Fleiri hafa styrkt verkið, eins og Grímseyjarhreppur, Kíw- anisklúbburinn Grímur og Menn- ingarsjóður Íslandsbanka. Helgi sagði líka að ómetanlega hjálp, stuðning og upplýsingar, hefði frændi hans Haraldur Jóhannsson sem bjó í mörg ár á Borgum, veitt. Haraldur hefði unnið óhemjustarf við undibúning bókarinnar. Eins vildi Helgi nefna son sinn, Friðþjóf Helgason ljósmyndara sem hefur unnið við hlið föður síns við alla ljósmyndavinnu bókarinnar en í henni má finna hvorki meira né minna en 1.100 ljósmyndir frá eyj- unni. Helgi var með skemmtilega samlíkingu í frásögn sinni af bók- arrituninni. Hann líkti skrifunum við meðgöngu sem bæði hefði verið löng og oft ströng. Fyrir rest hefði hann svo verið genginn framyfir! En tvö ár eru síðan Helgi tók að sér gerð bókarinnar. Grímsey hefði ekki farið úr huga hans í þessi tvö ár. Á daginn hefði hann hugsað um bókina og síðan dreymt hana á nótt- unni. Helgi taldi því að eftir þessar löngu stundir við skriftir um Gríms- ey og Grímseyinga væri hann orð- inn Grímseyingur! Hugsaði um bókina á daginn og dreymdi hana um nætur Helgi Daníelsson gaf út bók um Grímsey á Fiske-degi Morgunblaðið/Helga Mattína Góðar gjafir: Helgi Daníelsson afhendir foreldrum yngsta Grímseyingsins, þeim Unni Ingólfsdóttur og Svafari Gylfasyni, mynd af dóttur þeirra, Sig- rúnu Eddu, en hana tók Friðþjófur, sonur Helga, af stúlkunni vikugamalli í byrjun júlí. Myndin er í bók Helga sem fjölskyldan fékk einnig að gjöf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.