Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 35
Dagatal
Vetrarmisseri 2003-2004 heitir nýtt
dagatal eftir Jörmund Inga Reykja-
víkurgoða. Það byggir á hinu forna
íslenska rími sem nær allt aftur á
landnámsöld. Dagatalið byggist á
þeirri hugmynd að mánuðir ársins
séu 12. Hver á 28 daga og viðbættri
jólahátíð ásamt sæluvikum á miðju
sumri, hvort um sig 14 dagar. Þannig
byrja allar vikur og mánuðir á Þórs-
degi og hið forna ár gengur upp með
364 dögum svo sem lengi hefur verið
talið.
„Dagatal það sem hér kemur fyrir
almenningssjónir er afrakstur
margra ára hugleiðinga um tímatal
og þá sérstaklega hið íslenska tíma-
tal,“ segir í kynningu. Sérstaða
þessa tímatals er að dagar ársins eru
reiknaðir 364, það er 52 vikur sléttar.
Kostirnir eru auðsæir, árið, misserin
og mánuðirnir byrja alltaf á sama
vikudegi og það sama er að segja um
flesta merkisdaga, en svo voru þeir
dagar kallaðir sem merktir voru með
sérstöku tákni á dagatöl þau sem
skorin voru í tré á Norðurlöndum og
í Lithaugalandi, a.m.k. síðan á 14-15
öld. Ókostirnir eru hins vegar þeir að
sólarárið er 365 dagar 5 klst., 48 mín.
og rétt rúmlega, 46 sek. Það er því
ljóst að einhverjar lagfæringar og
tilhliðranir verður að gera til að sól-
arárið gangi upp í nothæfu alman-
aki.“
Höfundur gefur út. jormundur-
@hotmail.com. Prentun: Prentgarð-
ur ehf.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 35
Ítölsk undirföt
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga frá kl. 11-15.
undirfataverslun
Síðumúla 3
Íslensku barnabókaverðlaunin hafa á
undanförnum árum opnað mörgum nýjum
höfundum leið út á rithöfundabrautina og
orðið til þess að auka úrval góðra bók-
mennta fyrir börn og unglinga.
Stjórn Verðlaunasjóðsins hvetur jafnt
þekkta sem óþekkta höfunda til þess að
taka þátt í samkeppninni um Íslensku
barnabókaverðlaunin.
Skila á útprentuðu handriti að sögunni
og skal það vera a.m.k. 50 blaðsíður að
lengd. Ekki er gert ráð fyrir að verðlauna-
sagan verði myndskreytt. Handrit á að
merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar
fylgi með í umslagi.
VERÐUR ÞÚ NÆSTI
VERÐLAUNAHAFI?
Ný samkeppni um Íslensku barnabókaverðlaunin!
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka efnir nú enn á ný til verðlauna-
samkeppni þar sem auglýst er eftir handritum að sögum fyrir börn og
unglinga. Dómnefnd velur besta handritið og verðlaunin nema 300.000
krónum auk venjulegra höfundarlauna fyrir bókina sem kemur út hjá Vöku-
Helgafelli haustið 2004. Skilafrestur handrita er til 1. febrúar 2004.
Utanáskriftin er:
Verðlaunasjóður
íslenskra barnabóka
Vaka-Helgafell
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
VAKA-HELGAFELL • Suðurlandsbraut 12 • 108 Reykjavík • Sími 522 2000
BÓKAÚTGÁFAN Stöng sendir
frá sér fyrir þessi jól m.a. ævisög-
ur, fræðibækur, handbækur og
spil.
Ævisögur
Gleymið að þið áttuð dóttur, er
skráð af Michael Tierney í þýð-
ingu Sigurðar Hróarssonar. Hér
segir af lífi Söndru Gregory sem
lifir í Bankok
lífi sem flesta
dreymir um. En
allt er í heim-
inum hverfult;
veikindi, at-
vinnuleysi og
óvænt stjórn-
arbylting breyta
drauminum fyr-
irvaralaust í
martröð. Í ævi-
minningunum lýsir Sandra at-
burðunum sem leiddu til hand-
töku hennar, hrollvekjandi
aðstæðunum í Lard Yao-
fangelsinu og þeirri tilfinningu að
vera dæmd til dauða.
Mín hlið, sjálfsævisaga Davids
Beckhams sem hann og Tom Watt
hafa skráð. Íslenska þýðingu
gerði Guðjón Guðmundsson. Bók-
in gefur lifandi og heiðarlega inn-
sýn í líf persónunnar að baki
knattspyrnumanninum, fjöl-
skyldumanninum og tískufyr-
irmyndinni. Beckham greinir m.a.
frá stormasömum samskiptum
sínum við Alex Ferguson og
Glenn Hoddle og dregur ekkert
undan í lýsingum sínum á ást-
arsambandi sínu og Kryddstúlk-
unnar Victoriu.
Fræði- og bækur
almenns eðlis
Útkallsbók: Árás á Goðafoss er
skráð af Óttari Sveinssyni. Um
hádegisbil 10. nóv. 1944 er Goða-
foss, eitt glæsilegasta skip Íslend-
inga, að koma heim í skipalest frá
New York. Tvegga stunda sigling
er til Reykjavíkur. Um borð eru
43 Íslendingar og 19 Bretar sem
bjargað hefur verið af logandi ol-
íuflutningaskipi, skömmu áður.
Skammt undan, í mynni Faxaflóa,
leynist þýskur kafbátur. Skyndi-
lega kveður við ógnar sprenging.
Tundurskeyti skellur á síðu Goða-
foss. Skipið sekkur skömmu síðar.
Handbækur
Sjómennska og siglingafræði –
Öryggishandbók sjómanna. Ít-
arlega er fjallað um allt sem við-
kemur siglingum minni báta og
skipa, skemmtibáta og seglskúta.
Handbókina prýðir fjöldi skýring-
armynda.
Byssur og skotfimi nefnist
handbók fyrir þá, sem vilja öðlast
færni í meðferð skotvopna, hvort
sem er til veiða eða íþróttaskot-
fimi. Bókin kom fyrst út árið 1969
en er nú aukin og endurbætt. Í
þessari útgáfu er að auki fjallað
um þróun og nýj-
ungar í byssu-
heiminum á und-
anförnum
áratugum.
Spil
Stöng gefur
einnig út fimm
spil, þar af þrjú í
Catan-flokki: Cat-
an-Landnemarnir.
Spilið hefur verið
valið spil ársins í
Þýskalandi og í
Bandaríkjunum.
Heimsmeist-
aramót er haldið
ár hvert í Þýska-
landi. Íslendingar
sendu í fyrsta
skipti keppendur
á þessu ári og
haldið verður
fyrsta Íslandsmót
í Catan í byrjun
næsta árs. Catan-
Sæfararnir er spil
fyrir 3–4 leik-
menn. Einungis er hægt að nota
spilið með grunnspilinu Catan-
Landnemarnir. Spilið gefur leik-
mönnum möguleika á að móta
Catan með eigin hugmyndum.
Catan – Stækkun 5–6 leikmenn.
Spilið verður að notast með
grunnspilinu Catan-Landnem-
arnir.
Carcassonne er fjölskylduspil
með einföldum og fljótlærðum
reglum. Spilið kom upphaflega út
í Þýskalandi 2001 og var þá valið
spil ársins þar í landi. Haldið
verður árlegt Íslandsmót í Car-
cassonne og sigurvegari þess mun
fara fyrir Íslands hönd á heims-
meistaramót, sem haldið er í
Þýskalandi.
Skákspilið Hrókurinn. Taflið er
fjórir leikir í einum pakka: Eitt
„skákspil“, tvö „tilbrigði“ við
venjulegt tafl og að auki hefð-
bundin skák.
Spil, ævisögur og
handbækur frá Stöng
Óttar Sveinsson
Hjónin Victoria og David Beckham með barn sitt.
ÆVINTÝRAHEIMURINN í
Galdrakarlinum í Oz er alltaf
heillandi með sinn sígilda boðskap
um að mestu skipti að trúa á sjálf-
an sig en treysta ekki á töfra-
lausnir. Leikfélagi Sauðárkróks
tekst ágætlega að koma boðskap
þessum til skila í sýningu sinni en
mikið hefur verið lagt í umgjörð-
ina svo seiða megi unga áhorfend-
ur inn í heiminn hennar Dóróteu,
stelpunnar sem berst með fellibyl
til ævintýralandsins og hefur með
sér hundinn sinn, hann Tótó. Það
er svo skemmtilegt við þetta verk
að ævintýrið gæti hæglega verið
draumur Dóróteu þar sem fólkið í
raunveruleikanum lifnar í ævin-
týrinu og sömu leikarar fara með
hlutverkin í báðum heimunum.
Rósa Guðný leikstjóri hefur
fengið góða hönnuði leikmyndar,
lýsingar og leikhljóða með sér til
að búa til ævintýraheiminn og
flott að sjá hvernig salurinn var
nýttur til að stækka leikrýmið.
Skiptingar voru líkar göldrum
þegar lýsing og leikhljóð var not-
að til að töfra fram nýtt umhverfi,
nýjan heim, sérstaklega þegar
húsið barst með vindinum og
skyndilega birtist fagur blóma-
heimur á sviðinu. Litla, upplýsta
húsið sem táknaði hið stóra var
mögnuð sýn. Smáatriði í leikmynd
skipta þó líka miklu til að allt komi
heim og saman en það var und-
arlega klúðurslegt að sjá teppin
sem táknuðu rúðurnar á bænum.
Það er ekki hægt að segja:
,,Glugginn er brotinn, og benda á
teppi sem er slétt sem fyrr. Það
var líka dapurlegt að það var eins
og ekki hefði unnist tími til þess að
ljúka við að vinna sýninguna; hik-
andi skiptingarnar í lokin voru
eins og úr öðru leikriti en því sem
virkaði svo vel í fyrri hlutanum.
Leikstjórinn hefur búið að
nokkrum efnilegum leikurum á
Króknum, sumum mjög ungum
sem eiga framtíðina fyrir sér í leik
og söng. Ein leikkona bar þó af
öðrum; Íris Baldvinsdóttir sem
lék Fröken Vestan og Vestan
nornina. Hún var stórkostleg sem
nornin, með gott vald á óhugnan-
legri röddinni og mátulega skelfi-
leg til að ungir áhorfendur skriðu
niður á gólf þegar hún birtist. Íris
tók til sín þá athygli sem henni
bar en það var varla hægt að segja
um aðra, nema Guðbrand Guð-
brandsson sem lék ljónið
skemmtilega. Gegnumgangandi
vantaði einhvern herslumun í að
leika fram og leika stórt en það er
grundvallaratriði þegar sérstak-
lega er leikið fyrir börn. Kannski
vantar þarna trú leikstjórans á að
fólkið hennar geti raunverulega
skapað leiklist en í viðtali í leik-
skránni kemur því miður fram at-
hyglisvert vantraust Rósu á
áhugaleikurum almennt. Til dæm-
is segir hún að ekki megi tala of
flókið mál við fólkið og til að geta
leikið í áhugaleikhúsi sé nóg að
geta hreyft sig, látið heyrast í sér
og hafa brennandi áhuga! Þarna
vantar þá jákvæðni sem sem þarf
til að skapa sanna leiklist, hvar
sem er, og er sem betur fer greini-
leg í samvinnu margra atvinnu-
leikstjóra við áhugahreyfinguna.
Þrátt fyrir hinn augljósa skort á
trausti milli leikara og leikstjóra í
sýningunni og þó að athygli
barnanna færi út og suður á köfl-
um lifðu þau sig inn í ævintýrið og
kölluðu fram í til að hjálpa
Dóróteu þegar þess þurfti. Það er
því víst að Leikfélagi Sauðárkróks
hefur tekist að skapa eftirminni-
lega stund í barnshugunum því
heildarmyndin blífur.
Fjúkandi hús
LEIKLIST
Leikfélag Sauðárkróks
Höfundur: L. Frank Baum; sönglög:
Harold Arlen; þýðandi; Hulda Valtýs-
dóttir; þýðendur ljóða; Kristján frá
Djúpalæk og Karl Ágúst Úlfsson; leik-
stjóri: Rósa Guðný Þórsdóttir; hönnun
leikmyndar: Örn Viðar Erlendsson;
hönnun lýsingar: Guðbrandur Ægir Ás-
björnsson; tónlist og leikhljóð: Rögn-
valdur Valbergsson. Bifröst, 9. nóv-
ember, 2003.
GALDRAKARLINN Í OZ
Hrund Ólafsdóttir
KRISTÍN Sigfríður Garðarsdóttir
hefur gengið til liðs við þá níu hönn-
uði sem reka verslunina Kirsuberja-
tréð á Vesturgötu 4. Verslunin
höndlar með hönnun s.s. skartgripi,
roðtöskur, fatnað ofl.
Kristín Sigfríður lauk námi við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
stundaði framhaldsnám við Dan-
marks Design skólann í Kaup-
mannahöfn. Hún hefur bæði haldið
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum hér heima og erlendis.
Undanfarið hefur Kristín verið að
vinna í leir, postulín og gler.
Nýr hönnuður
í Kirsu-
berjatrénu