Morgunblaðið - 15.11.2003, Side 36
ÚR VESTURHEIMI
36 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
A
drienne Clarkson, land-
stjóri í Kanada, tók í
gær á móti og verð-
launaði sex sögukenn-
ara, sem hlutu Land-
stjóraverðlaunin 2003 fyrir
framúrskarandi kennslu í kanadískri
sögu. Þar á meðal var Peter Bjorn-
son, frá Gimli, sem hefur kennt sögu í
9. til 12. bekk við framhaldsskólann í
Gimli, höfuðborg Nýja Íslands, und-
anfarin 13 ár, en hann hefur beitt
frekar óhefðbundnum aðferðum við
kennsluna og vakið mikla athygli. Það
vakti ekki síður athygli þegar hann
kom sem hvítur stormsveipur inn í
kosningabaráttuna í byrjun sumars
eftir að hafa verið útnefndur fulltrúi
Nýja lýðræðisflokksins, New Demo-
cratic Party, í Gimli í desember í
fyrra. Hann sigraði með miklum
glæsibrag í kosningunum í Gimli 3.
júní síðastliðinn og lagði þar með sitt
af mörkum í glæstum kosningasigri
flokksins í fylkinu.
Í góðum hópi
Gary Doer, formaður Nýja lýðræð-
isflokksins í Manitoba síðan 1988 og
forsætisráðherra í fylkinu síðan 1999,
lagði mikla áherslu á að vinna þing-
sætið í Gimli, sem sjálfstæðismenn
höfðu haft síðan 1988, bar greinilega
mikið traust til Peters Bjornsons og
sýndi það með eftirminnilegum hætti,
þegar hann gerði „íslenska víkinginn“
að menntamálaráðherra í vikunni
sem leið. Flokkurinn er með 34 þing-
menn og eftir nokkrar breytingar á
starfssviði ráðuneyta og uppstokkun
á ráðherrum eru 18 ráðherrar í rík-
isstjórninni og er menntamálaráðu-
neytið næst umfangsmest á eftir heil-
brigðisráðuneytinu.
Nokkrir Kanadamenn af íslensk-
um ættum hafa verið þingmenn á
Manitobaþingi, en Peter Bjornson er
sá eini úr þeim herbúðum á yfirstand-
andi þingi. Þekktustu ráðherrarnir af
íslenskum ættum til þessa hafa verið
Eric Stefanson, sem var iðnaðar-
viðskipta- og ferðamálaráðherra,
fjármálaráðherra og heilbigð-
ismálaráðherra á síðasta áratug ný-
liðinnar aldar, og dr. George John-
son, fylkisstjóri 1986 til 1993, sem var
m.a. heilbrigðismálaráðherra og
menntamálaráðherra á sjötta og sjö-
unda áratugnum. „Því verður ekki
neitað að það hefur mikið gengið á
hjá mér undanfarna daga,“ segir Pet-
er og brosir sínu blíðasta, en brosið
og almennilegheitin eru einkennandi
fyrir ráðherrann. „Ég hef alltaf verið
mikill talsmaður almenna skólakerf-
isins í Manitoba og nú fæ ég kjörið
tækifæri til að starfa í þágu þess og
vinna með öllum sem koma að því á
einn eða annan hátt. Hlutverk mitt er
að fá alla að borðinu í þeim tilgangi að
sameina kraftana til að börnin og
unglingarnir í Manitoba fái bestu,
mögulegu menntun. Það er gífurlega
mikill heiður að fá tækifæri til að
gegna þessu hlutverki, en mennta-
málin eru eitt af helstu málunum hjá
ríkisstjórninni á kjörtímabilinu.
Landstjóraverðlaunin fyrir starf mitt
að undanförnu, sögukennsluna, eru
mikil hvatning til að halda áfram á
sömu braut, fá fólk til að vinna saman
og búa til sigurlið, en um leið eru þau
endapunkturinn á ákveðnu ferli hjá
mér. 2. maí var tilkynnt um kosning-
arnar í byrjun júní og þar með urðu
kaflaskipti hjá mér. Ég einbeitti mér
að kennslunni í 13 ár, fyrst og fremst
sögukennslu, en síðan tóku fylk-
isstjórnmálin við og ekki hefur gefist
tími til að líta um öxl. Það er því mik-
ils virði að fá Landstjóraverðlaunin á
þessum tímamótum vegna þess að
þau eru til vitnis um gott starf.“
Reynslan kemur sér vel
Sögufélag Kanada, Canada’s Nat-
ional History Society, sér um sam-
keppni sögukennaranna. Að þessu
sinni voru 173 kennarar tilnefndir til
verðlaunanna en í september var til-
kynnt að 25 þeirra kæmu til greina
sem verðlaunahafar. Árið 2000 var
Peter Bjornson í 12 manna lokahópi,
en þá var aðeins einn verðlaunaður. Í
fyrra var fyrirkomulaginu breytt og
nú fór Peter alla leið. „Kennarar í fá-
mennum bæjum þurfa að taka sér
margt fyrir hendur og ég hef kennt
19 fög á ferlinum. Ég kenndi meðal
annars vélritun á fyrsta ári og hef
kennt íþróttir, en saga hefur alla tíð
verið mitt líf og yndi og ég hef getað
einbeitt mér að henni að mestu lengst
af. Það er mjög gaman að kenna sögu
því allir tengjast henni og allir hafa
sögu að segja. Í uppvexti mínum
kynntist ég því vel hvað foreldrar
mínir voru hreyknir af íslenska upp-
runa sínum og fyrsta sumarvinna mín
var í Gimlisafninu, þar sem áhersla er
lögð á varðveislu íslenskrar arfleifð-
ar. Sagan hefur alltaf heillað mig og
þegar ég byrjaði að kenna fannst mér
að nemendurnir ættu að hafa sama
áhuga á sögu og ég hef, en það var
ekki raunin. Ég varð því að vekja
áhuga þeirra og byrjaði á því að
tengja þá við nánasta umhverfi
þeirra, sögustaði og söfnin. Ég hvatti
þá til að segja þeirra eigin sögu og
margt merkilegt kom í ljós. Ein stúlk-
an var til dæmis af pólskum kon-
ungaættum. Langamma einnar stúlk-
unnar gleymdi sér við bænir í kirkju
og missti af skipinu sem hún ætlaði
með frá Englandi vestur um haf, en
skipið var Titanic. Og einn piltur
sagði okkur frá langalangafa sínum
sem starfaði sem fyrsti pósturinn í
Nýja Íslandi og gekk frá Winnipeg til
Heclueyjar vinnunnar vegna. Póst-
inum þótti ekki mikið um að ganga
nær 200 kílómetra aðra leiðina en ég
efast um að margir væru tilbúnir að
leggja slíkt á sig nú. Það sýnir hvað
tímarnir eru breyttir og nemendurnir
fá nýja sýn á söguna þegar þeir geta
sett hana í samhengi við eigið líf. Eitt
af verkefnum mínum er að fá unga
fólkið til að taka þátt í stjórnmála-
starfinu og þar nýtist reynsla mín úr
kennslunni, þar sem ég hef lagt
áherslu á þátttöku nemenda í skóla-
starfinu. Þátttaka fólks á aldrinum 18
til 24 ára í kosningum hefur verið
dræm í Manitoba og reyndar víða í
Norður-Ameríku en við viljum reyna
að breyta þessu.“
Þegar rætt er um stjórnmál kemst
Peter á flug. „Ég hef alltaf haft mik-
inn áhuga á stjórnmálum,“ segir hann
og vísar til þess að hann hafi meðal
annars verið forseti nemendafélags
kennaradeildar Manitobaháskóla, í
stjórn kennarafélagsins í Gimli og ná-
grenni (Evergreen Teachers’ Assoc-
iation) í sex ár og þar af formaður í
eitt ár og í bæjarstjórn Gimli kjör-
tímabilið 1998 til 2002. „Ég hef alltaf
verið þeirrar skoðunar að vilji maður
breytingar verði maður að axla
ábyrgðina og gefa kost á sér í við-
komandi nefndir og ráð. Ef þú hefðir
hins vegar spurt mig fyrir ári hvort
ég teldi möguleika á því að ég yrði
menntamálaráðherra í næstu rík-
isstjórn hefði ég hlegið að spurning-
unni.“
Fjölskyldan sterkur bakhjarl
Peter er kvæntur Joanne Bjornson
og eiga þau dótturina Iris, sem er 7
mánaða, og synina Dane, sem er 3
ára, og Kieran, sem er 5 ára. For-
eldrar hans eru Herdís Guðrún
(Hedy) og Donald Bjornson, sem búa
í Gimli og tala góða íslensku. For-
eldrar Donalds voru Árný Ragnhild-
ur Sigurðardóttir, sem var af Meið-
astaðaætt og fór ein síns liðs frá
Innra-Hólmi við Akranes vestur um
haf 1913, þá 21 árs gömul, og Guð-
mundur Björnson, sem fæddist í
Mountain í Norður-Dakóta 1888, en
foreldrar hans voru frá Marteins-
tungu í Þykkvabænum. Ólöf Ingi-
björg Lovísa Johnson, móðuramma
hans, fæddist í Bandaríkjunum 1917,
en var ættuð frá Fagranesi skammt
frá Húsavík. Jónas Hermundur Jóns-
son, móðurafi hans, fæddist í Nýja Ís-
landi 1901, en Herdís Jónasdóttir,
móðir hans, fæddist í Skagafirði 1880
og flutti til Kanada þremur árum síð-
ar. Guðmundur Jónsson, maður
hennar, var hins vegar fyrsta íslenska
barnið sem fæddist á Heclueyju.
Nýi ráðherrann segist vera maður
framkvæmda. Ekki sé nóg að tala um
hlutina heldur verði að fylgja orðum
eftir í verki. Það sé ekki alltaf auðvelt
en hann hafi notið stuðnings fjöl-
skyldunnar og vina við það sem hann
hafi tekist á við hverju sinni. „Robert
Arnason, skólastjóri minn við fram-
haldsskólann í Gimli undanfarin 13
ár, hefur verið frábær lærimeistari og
veitti mér ómetanlegan stuðning
meðan ég kenndi við skólann. Hann
tók mörgum hugmyndum mínum
fagnandi og stóð 100% við bakið á
mér.“
Það eru kennsluaðferðirnar sem
Peter á við með hugmyndum sínum.
Til dæmis reyndi hann að líkja eftir
viðfangsefninu hverju sinni með því
að láta nemendurna setja sig í spor
þeirra sem um var rætt. Þegar talað
var um að fólk þurfti að bera vatn
langar leiðir lét hann nemendur sína
gera slíkt hið sama til að þeir skyldu
betur erfiðleikana. Og þegar hann
ræddi um mannlífið fyrir 2.500 árum
gerði hann ráðstafanir í tíma; lét út-
búa leirmuni fyrir sig, mölbraut þá
síðan og gróf brotin á ákveðnum stöð-
um í garðinum heima hjá sér ásamt
örvaroddum og ýmsu öðru. Hann
fékk fornleifafræðinga til að útskýra
fræðin og síðan leituðu nemendurnir
af mununum og merktu þá eftir
kúnstarinnar reglum þegar þeim var
stillt upp sem kennslugögnum. „Með
þessum hætti komust krakkarnir í
snertingu við liðna tíð,“ segir Peter.
„Á einum stað benti uppgröfturinn til
þess að þar hefði dýrum verið slátrað,
á öðrum stað hafði verið leir-
munagerð, á þeim þriðja höfðu vopn-
in verið búin til og svo framvegis.“
Skífuþeytir í 13 ár
En hjólin byrjuðu að snúast hjá
Peter áður en hann skellti sér í
menntamálin og snerust vel þegar á
unglingsárunum. Þegar hann var 14
ára stofnaði hann eigið fyrirtæki og
byrjaði að starfa sem skífuþeytir á
böllum og í ýmsum samkvæmum.
Hann var til að mynda fyrsti skífu-
þeytirinn á Viking Inn, einum helsta
skemmtistaðnum í Gimli, en á há-
skólaárunum vann hann m.a. sem
þjónn, dyravörður og skífuþeytir á
stöðum í eigu Þráins Kristjánssonar í
Winnipeg. „Ég byrjaði með því að
kaupa græjur fyrir 700 dollara, þegar
ég var 14 ára, og næstu 13 árin var
nóg að gera í þessum bransa en á
tímabili var ég með sjö manns í vinnu,
fasta samninga og vann við þetta um
hverja helgi. Þegar ég byrjaði að
kenna fékk ég mér síðan aukavinnu í
matsalnum á Lakeview Resort, sem
þá var tiltölulega nýtt hótel í Gimli.
Það var gaman að þjóna fullorðnu
fólki um helgar eftir að hafa kennt
unglingum alla vikuna og ég er áfram
í þjónustuhlutverkinu en nú fyrir
alla.“
Peter Bjornson frá Gimli fékk kanadísku Landstjóraverðlaunin 2003 fyrir sögukennslu
Mikil
hvatning í
ráðherra-
starfinu
Peter Bjornson fékk í gær Landstjóraverð-
launin, æðstu viðurkenningu sem sögukennari
getur fengið í Kanada, og í liðinni viku tók hann
við sem menntamálaráðherra í Manitoba, en
hann var kjörinn á þing í sumarbyrjun. Eftir að
ráðherralistinn var kynntur settist Steinþór
Guðbjartsson niður með þessari ört rísandi
stjórnmálastjörnu, sem er af íslenskum upp-
runa í báðar ættir.
Peter Bjornson og Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, voru oft saman í
Gimli í kosningabaráttunni á liðnu vori enda allt kapp lagt á að vinna sætið.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Peter Bjornson tók á móti fyrrverandi nemendum sínum í 11. bekk framhaldsskólans í Gimli og Robert Jantz, arf-
taka sínum, í þinghúsi Manitoba í Winnipeg daginn áður en hann varð menntamálaráðherra fylkisins.
steg@mbl.is
’ Eitt af verk-efnum mínum er að
fá unga fólkið til að
taka þátt í stjórn-
málastarfinu. ‘