Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 39

Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 39
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 39 ½ dl portvín eða madeira 1 tsk. salt Pipar 1 tsk. merian Svínalifur hreinsuð og skorin í bita ásamt beikoni og hakkað eða sett í matvinnsluvél. Saxið helm- ingnum af sveppunum og blandið saman við lifrina. Blandið þá öðru sem á að fara í kæfuna sama við. Smyrjið mót að innan með smjöri, skerið afganginn af sveppunum í tvennt. Setjið helminginn af lifrarblönd- unni í mótið og síðan sveppina og svo afganginn af lifrarblöndunni. Pakkað vel inn og setjið í frost. Setjið frosið inn í kaldan ofn og bakið við 170 gráður í 1 klukku- stund og 15 mínútur. Berið fram heitt eða kalt með sýrðum rauðrófum, agúrkum og góðu brauði. Svínasulta Svínaskankar settir í pott ásamt lauk, gulrót, 2–3 lárvið- arlaufum, piparkornum og nokkrum negulnögl- um, vatn sett í þannig að varla fljóti yfir. Setjið salt út í þegar suðan kemur upp og smakkið. Látið sjóða í 2–21⁄2 klukkustund en takið þá skankana upp úr og hreins- ið kjötið af beinunum og setjið í mót. Það má líka saxa kjötið. Heitu soði hellt yfir og sett inn í ísskáp og fryst daginn eftir. Hátíðarterta Uppskriftin að hátíðartertu er kom- in frá móður Margrétar, Ester Ein- arsdóttur. 4 stífþeyttar eggjahvítur 200 g sykur 200 g malaðar möndlur Sykri og möndlum blandað var- lega út í stífþeyttar eggjahvíturnar með sleikju. Sett í smelluform með bökunarpappír í og bakað við 160– 170 gráður í um 15–20 mínútur. At- huga að ekki á að smyrja form eða bökunarpappír. Reyndar bendir Margrét einnig á að smjörpappír og bökunarpappír sé ekki það sama. Búðingur á tertu: 6 blöð matarlím lögð í bleyti í kalt vatn 1 tsk. vanilludropar 50 g saxað súkkulaði 2 ananashringir saxaðir 3 egg 70 g sykur 3 dl þeyttur rjómi Egg og sykur þeytt saman í létta froðu og matarlímið brætt í vatns- baði. Það er síðan kælt með 2 mat- skeiðum af köldu vatni og teskeið af vanilludropum og því blandað sam- an við eggjahræruna. Þegar eggin fara að taka sig er rjómanum bland- að í ásamt súkkulaði og ananas. Kakan er sett á fat og hringurinn af smelluformi er settur í kringum kökuna á fatinu. búðingnum er hellt yfir botninn og sléttað. Sett í kæli- skáp eða fryst. Þegar kakan er tekin úr frysti eða kæli er súkkulaðið brætt og smá- vegis af þeyttum rjóma blandað samanvið og því er síðan smurt yfir kökuna og skreytt með rjóma. Randalín með kókosmjöli Þessi uppskrift segir Margrét að sé fengin úr uppskriftabæklingi frá Osta- og smjörsölunni 900 g hveiti 375 g kókosmjöl 450 g sykur 3 tsk. hjartarsalt 600 g smjör 4 egg 1 tsk vanilludropar sveskjusulta Smjör og hveiti mulið saman, þurrefnum bætt í og vætt í með eggjum og vaniludropum. Hnoðað vel. Deiginu skipt í fernt. Fletjið hvern hluta út á plötu með bök- unarpappír. Bakið við 200–225 gráð- ur í um 12 mínútur. Kælið. Setjið einn botn á bökunarplötu með smjörpappírinn upp. Takið pappír- inn af, smyrjið sultu á botninn og leggið næsta botn yfir með papp- írinn upp. Setjið sultu á milli allra botnanna, takið pappírinn af síðasta botninum og leggið hann ofan á efsta sultulagið. Farið varlega með efsta lagið svo það það brotni ekki. Botnarnir verða mjög brothættir þegar búið er að taka pappírinn af. Setjið smjörpappír yfir kökuna, bökunarpappír þar ofan á og farg yfir. Látið standa til næsta dags. Skerið kökuna í 4–8 bita, setjið í plastpoka, lokið og geymið á köldum stað eða frystið. Kakan batnar við geymslu. Er fyrst orðin góð eftir 2–3 vikur. Brún lagkaka Þessi lagkökuuppskrift er einnig fengin úr bæklingi Osta- og smjör- sölunnar 400 g smjör 300 g sykur 3 egg 500 g síróp 2 tsk. negull 2 tsk. kanill 1 tsk. engifer 2 tsk. kakó 3 tsk. hjartarsalt 1 kg hveiti 3–5 dl mjólk Hrærið saman smjöri og sykri þar til hræran verður létt og ljós. Bætið eggjum í einu og einu í senn og hrærið vel á milli. Hrærið sír- ópinu saman við. Sigtið öll þurrefni saman og blandið í hræruna til skiptis við mjólkina. Skiptið deiginu á fjórar bökunarplötur klæddar smjörpappír eða bökunarpappír og breiðið úr því. Bakið í 10–12 mín- útur neðarlega í ofni við 200–225 gráða hita. Kælið. Smjörkrem: 250 g mjúkt smjör 4 eggjarauður 150 g flórsykur Hrærið smjör þar til það verður létt og loftkennt eða í um 10 mín- útur. Bætið eggjarauðum í, einni í einu og hrærið vel á milli. Bætið sykrinum í. Hrærið í um 5 mínútur. Leggið einn botninn á bökunar- plötu með pappírinn upp. Takið pappírinn af og smyrjið smjörkremi yfir, leggið næsta botn ofan á með pappírinn upp, takið pappírinn af og smyrjið sultu á botninn. Takið næsta botn og smyrjið með smjör- kremi og takið síðan pappírinn af síðasta botninum og leggið hann yf- ir smjörkremið. Farið varlega með botninn svo hann brotni ekki. Setjið smjörpappír yfir kökunar og svo bökunarplötu. Setjið farg ofan á plötuna og látið bíða til næst dags. Skerið kökuna í 4–8 jafna bita og setjið í plastpoka og lokið vel. Geymið á köldum stað eða frystið. Kakan verður betri við geymslu og verður fyrst góð eftir 2–3 vikur. N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 0 8 5 1 6 Tölum saman fia› er ód‡rara en flú heldur! flegar flú hringir úr heimilissímanum. 15 mínútna símtal innanlands á kvöldin og um helgar kostar innan vi› 20 krónur 15 20/ kr.mín - á kvöldin og um helgar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.