Morgunblaðið - 15.11.2003, Side 43
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 43
öðru en að landsmenn eigi eftir að
taka vel á móti jólasveinunum þrett-
án, Grýlu, Leppalúða og jólakett-
inum, og raunar trúi ég því að þessi
skemmtilega útfærsla Brians á jóla-
sveinafjölskyldunni eigi eftir að
skipa fastan sess í íslenskri þjóð-
arsál þegar fram líða stundir,“ sagði
Þórhallur Birgisson, en stytturnar
eru nú þegar komnar í sölu í versl-
unum víða um land.
Forystusauðurinn: Stekkjastaur
kom fyrstur, stinnur eins og tré.
Foreldrarnir: Grýla var þeirra
móðir og gaf þeim tröllamjólk, en
pabbinn Leppalúði, – það var
leiðindafólk.
svg@mbl.is
KARLAR hafa löngum ýjað að
því að tiltekið æði renni á konur
þegar þær eru í búðum. Kaupæði
segja þeir og að því er fram kem-
ur á vefsíðu Evening Standard
virðast þeir hafa eitthvað til síns
máls. Rafmögnuð virkni í þeim
hluta heilans sem vitsmunalegar
hugsanir eiga upptök sín í minnk-
ar, að sögn rannsakenda fyrir-
bærisins, niður úr öllu valdi hjá
konum í búðarápi.
Dr. Michael Deppe, mannfræð-
ingur við Kassel-háskólann í
Þýskalandi, sem fór fyrir rann-
sókninni, segir að kaupæði
kvenna eigi rætur að rekja til
veiði- og safnaraeðlishvatar for-
feðranna. Og skírskotar hann
væntanlega til síðarnefndu hvat-
arinnar og formæðranna í þessu
samhengi. Hann bendir á að fyrir
sex milljónum ára hafi mann-
kynið ekki þurft að vera ýkja
gáfað til þess að afla sér lífsvið-
urværis því ósjálfráð viðbrögð
hafi vegið þyngra en skynsemin.
Deppe fullyrðir að konur eigi í
mesta basli með að útskýra fyrir
sjálfum sér og öðrum hvernig í
ósköpunum standi á að þær séu
kannski að horfa í búðarglugga
og áður en þær fái rönd við reist
séu þær komnar á bólakaf í inn-
kaup.
En áður en karlarnir verða
drýldnir yfir að hafa fyrir margt
löngu komist að sömu niðurstöðu
og mannfræðingurinn og hans
lið, er vert að geta að upp úr
dúrnum hefur komið að ekki
ósvipað æði rennur á margan
karlinn. Til dæmis þegar hann
stendur frammi fyrir alls konar
tækjabúnaði, hraðskreiðum bílum
og tölvuleikjum.
KAUPÆÐI
Ósjálfráð
viðbrögð