Morgunblaðið - 15.11.2003, Qupperneq 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 49
Í LÝÐRÆÐISRÍKJUM gegna
frjáls félagasamtök sífellt mikilvæg-
ara hlutverki. Á þetta ekki sízt við á
sviði umhverfismála.
Þau veita stjórnvöld-
um og atvinnurek-
endum mikilvægt
aðhald og sinna bæði
fræðslu- og eftirlits-
hlutverki. Einkenni
frjálsra fé-
lagasamtaka er að þau eru óháð rík-
isvaldinu, hafa sjálfstæðan fjárhag,
eru rekin án gróðasjónarmiða og
hafa fagleg vinnubrögð að leið-
arljósi. Fleiri og fleiri viðurkenna
nauðsyn þess að virkja mannauð og
þekkingu frjálsra félagasamtaka.
Til allrar hamingju hafa stjórn-
völd í ríkjum heims viðurkennt að
sérstaklega mikilvægt sé að hafa al-
menning og frjáls félagasamtök með
í ráðum í umhverfismálum. Á ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um um-
hverfismál, sem haldin var í Ríó
1992, var í samningi um svokallaða
Dagskrá 21 fjallað um nauðsyn þess
að styrkja stöðu frjálsra fé-
lagasamtaka og mikilvægt hlutverk
þeirra í umfjöllun um sjálfbæra þró-
un var áréttað.
Á fjórða ráðherrafundi umhverf-
isráðherra um umhverfismál í Evr-
ópu sem haldinn var í Árósum í Dan-
mörku 23.-25. júní 1998 var gengið
skrefi lengra og undirritaður al-
þjóðasamningur, svokallaður Ár-
ósasamningur, um aðgang að upp-
lýsingum, þátttöku almennings í
ákvarðanatöku og aðgang að rétt-
látri málsmeðferð í umhverf-
ismálum. Samningurinn felur í sér
viðurkenningu á réttindum borg-
aranna að því er varðar umhverf-
ismál og er, eins og fram kom í yf-
irlýsingu umhverfisráðherranna,
mikilsvert framfaraskref bæði fyrir
umhverfið og lýðræðið. Með samn-
ingnum er staðfest mikilvægi þess
að einstaklingar og frjáls fé-
lagasamtök taki þátt í mótun um-
hverfisreglna og viðurkennt að
stjórnvöldum beri að hafa eðlilegt
samráð við almenning við mótun
umhverfisstefnu. Reyndar er löngu
tímabært að íslenzk stjórnvöld stað-
festi Árósasamninginn, eins og ég
vakið athygli á í umræðum á Alþingi.
Landvernd eru frjáls fé-
lagasamtök sem hafa starfað að
verndun gróðurs, náttúru og um-
hverfis frá árinu 1969. Undanfarin
ár hefur starfsemin verið fjölþætt
þótt við verulega fjárhagslega erf-
iðleika hafi verið að etja. Þar munar
um nokkra öfluga aðila sem áður
lögðu samtökunum lið en sagt hafa
skilið við þau, einkum vegna ágrein-
ings um virkjanaframkvæmdir á há-
lendinu.
Eitt af verkefnum Landverndar
er að veita stjórnvöldum og fyr-
irtækjum nauðsynlegt aðhald með
umræðum, fræðslu og faglegri um-
fjöllun um umhverfismál til þess að
sem flestum stoðum sé rennt undir
þær ákvarðanir sem teknar eru. Al-
menningur á rétt á því að allar upp-
lýsingar komi fram, aðeins þannig
má fá nauðsynlega yfirsýn.
Nýleg skoðanakönnun sem Land-
vernd lét gera bendir til þess að
þjóðin telji starfsemi samtakanna
mikilvæga. Það er gleðiefni. Til þess
að standa betur að vígi fjárhagslega
þarf Landvernd hins vegar á víð-
tækum stuðningi að halda og hvet ég
þig, lesandi góður, til að bregðast vel
við því kalli.
Eðlilegt samráð við
almenning
Eftir Katrínu Fjeldsted
Höfundur er læknir og
stjórnarmaður í Landvernd.
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.