Morgunblaðið - 15.11.2003, Qupperneq 59
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 59
✝ Ólafur Svein-björnsson fæddist
á Snæfelli í Vest-
mannaeyjum 5. júlí
1938. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 9. nóvem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Sveinbjörn Guðlaugs-
son, f. 4. febrúar
1914, d. 6. maí 1994,
og Ólöf Oddný Ólafs-
dóttir, f. 29. septem-
ber 1914, d. 16. jan-
úar 1986. Systkin
Ólafs eru: Halla, f. 16.
janúar 1936, d. 2. desember 1943,
Huginn, f. 16. október 1941, Val-
geir, f. 16. október 1941, og Halla,
f. 2. nóvember 1946.
Eftirlifandi eiginkona Ólafs er
Kristín Georgsdóttir þjónustu-
stjóri VÍS í Vestmannaeyjum, f. að
Reykjum í Vestmannaeyjum 14.
nóvember 1939. Foreldrar hennar
eru Georg Skæringsson, f. 30.
ágúst 1915, d. 16. mars 1988, og
Sigurbára Sigurðardóttir, f. 31.
júlí 1921. Börn Ólafs og Kristínar
eru: Georg Óskar, f. 12. janúar
1957, maki Hera Dís Karlsdóttir, f.
25. júlí 1961, Oddný
Bára, f. 23. október
1960, maki Gunnar
Kristjánsson, f. 27.
maí 1960, Vignir, f.
14. júní 1964, maki
Ásgerður Hrönn
Sveinsdóttir, f. 23.
maí 1968, og Þórir, f.
21. júní 1966, maki
Guðmunda Jóna
Hlífarsdóttir, f. 26.
desember 1967.
Barnabörnin eru 14.
Ólafur lauk gagn-
fræðaprófi 1954,
hlaut vélstjórnar-
réttindi 1956 og var til sjós til árs-
ins 1963. Þá nam hann múrverk
hjá Hjörleifi Guðnasyni, hlaut
sveinsréttindi 1966 og seinna
meistararéttindi og starfaði við
fagið til ársins 2001. Hann var
einn af stofnendum Kiwanis-
klúbbsins Helgafells í Vestmanna-
eyjum, var í kirkjukór Landa-
kirkju um árabil og var félagi í
Harmonikkufélagi Vestmanna-
eyja.
Útför Ólafs fer fram frá Landa-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Svo þögul og döpur er þessi nótt
enginn blær sem þýtur
og strýkur um sefið
engir fuglar sem kvaka
meðan klukkublóm sofa.
Enginn árniður heyrist
ekkert rísl í læknum
enginn hófadynur
enginn gestur sem kemur
enginn vinur sem ríður í hlað.
Svo löng og þögul er þessi nótt
þeim sem vakir og bíður.
(Sigríður Einars frá Munaðarnesi.)
Kveðja
eiginkona, börn, tengdabörn
og barnabörn.
Mig langar að minnast föður míns
sem lést langt um aldur fram, með
nokkrum fátæklegum orðum. Hann
veitti mér innblástur á svo mörgum
sviðum því hæfileikaríkari menn
eru vandfundnir. Hann var listfeng-
ur mjög bæði í tónlist og myndlist
og hafði mikil áhrif á mig í þeim
efnum. Það var alltaf stutt í grínið
hjá pabba og hann átti auðvelt með
að létta lund allra í kringum sig sem
sást best í baráttu hans við sjúk-
dóminn sem á endanum dró hann til
dauða. Ég kveð hann með söknuð í
hjarta, takk fyrir allt og allt.
Hvíl í friði.
Vignir.
Ég minnist pabba míns Ólafs
Sveinbjörnssonar með gleði og
hlýju, allt sem hann gerði með mér
og fyrir mig gefur mér sálarró núna
þegar ég minnist hans í sorginni.
Hann fór allt of fljótt frá okkur og
ég vona að eitthvað gott taki við
honum þar sem hann horfir til okk-
ar allra.
Sofðu vinur minn, sofðu rótt,
yfir þig hylur eilífðar nótt,
þegar þú vaknar, þá taka við þér,
englarnir, sem fylgt hafa mér.
(Höf. ók.)
Kveðja með söknuði,
Þórir Ólafsson.
Það er skammt stórra högga á
milli. Vinur minn Ólafur Svein-
björnsson fellur frá, í baráttu við ill-
vígan sjúkdóm, tæpum tveim mán-
uðum eftir að sameiginlegur vinur
okkar, Addi Bald, kvaddi þessa
jarðvist. Minningarnar tengdar
þessum tveim vinum eru ljúfar og
gleymast seint.
Óli, sem nú er kvaddur, var ein-
stakt ljúfmenni og gleðigjafi.
Glettni hans og hnyttin tilsvör
komu fólki í gott skap. Fólk laðaðist
að honum og eignaðist hann marga
vini og kunningja bæði innanlands
sem utan.
Hann var listamaður af Guðs náð.
Sá er þetta ritar minnist þess að
strax á unga aldri var hann flinkur
teiknari. Nú fyrir nokkrum árum
sótti hann námskeið í listmálun og
það var auðséð á myndum hans að
hann hafði nýtt þau námskeið vel.
Að mínu mati voru myndir hans frá-
bærar, hreint augnayndi, og ég var
ekki einn um þá skoðun. Leiðbein-
andi hans á þessum námskeiðum,
Steinunn Einarsdóttir, sagði hann
mikinn listamann. Hann tók þátt í
nemendasýningum á verkum sínum
og fékk góðar viðtökur. Prýða mál-
verk eftir hann nú mörg heimili.
Hann var tónelskur eða músíkalsk-
ur, eins og það heitir á fagmáli, hóf
snemma að spila á harmonikku og
nú seinni árin með félagi harmon-
ikkuleikara í Eyjum. Hann söng
með Kirkjukór Landakirkju um
árabil og fór m.a. með kórnum á
kóramót erlendis.
Sennilega hefur músíkin verið í
genunum. Faðir hans, Sveinbjörn
Guðlaugsson, var söngelskur og
söng m.a. í Karlakór Vestmanna-
eyja, í kvartettum og var einsöngv-
ari, þá spilaði hann einnig á harm-
onikku. Bræður Óla, tvíburarnir
Huginn og Valgeir, léku með hljóm-
sveitum á yngri árum og síðast og
ekki síst tveir synir hans, Georg og
Vignir, spila með og eru meðal
stofnenda Papanna, einnar vinsæl-
ustu hljómsveitar landsins í dag.
Ég minnist þess að seint á fallegu
sumarkvöldi fyrir um 50 árum
gengum við félagarnir Óli, Addi
Bald, Matti Guðjóns og ég austur
eftir Vestmannabrautinni. Þegar við
vorum rétt komnir inn á götuna, á
móts við Hótel HB, hófu þeir Óli og
Addi upp raust sína og sungu fjör-
ugan dúett fullum hálsi. Við, þessir
laglausu, fylgdum þeim eftir og
höfðum gaman af. Ekki man ég
hvert lagið var en því lauk á móts
við Vöruhúsið, svo það hefur verið
nokkuð langt. Þetta er líklega í
fyrsta sinn sem þeir félagar sungu
„opinberlega“ og það fyrir okkur
Matta og íbúa vestanverðrar Vest-
mannabrautar, það er að segja þá
sem ekki voru farnir í háttinn. Ef til
vill var þetta, ómeðvitað, upphafið
að kvartettinum „Sixpensurunum“,
er urðu betur þekktir sem „Brælu-
bellirnir“ í seinni tíð og nutu mikilla
vinsælda í Eyjum.
Óli kvæntist Kristínu Georgsdótt-
ur, mikilli indælis- og ágætiskonu,
sem stóð eins og klettur við hlið eig-
inmans síns í veikindum hans. Þau
Óli og Stína hófu búskap í kjall-
aranum á Vegbergi, Skólavegi 32,
en í því húsi átti ég mín fyrstu ævi-
ár. Fyrsta heimili þeirra var ekki
stórt að flatarmáli en þar var nóg
hjartarými. Fjölskyldan stækkaði
og Óli reisti þeim nýtt hús á Ill-
ugagötu 73. Allt gekk þeim í haginn
og þau geisluðu af gleði og ham-
ingju. Ég hef ekki betur séð en að
það hafi fylgt þeim alla tíð. Vinir og
kunningjar voru tíðir gestir á heim-
ili þeirra og alltaf tekið með sömu
glaðværðinni. Skoski rithöfundur-
inn James M. Barrie sagði: „Þeir
sem flytja sólskinið til annarra kom-
ast ekki hjá því að það skíni á þá
sjálfa.“ Þetta spakmæli á við um
þau Óla og Stínu.
Um leið og við hjónin kveðjum
kæran og tryggan vin þökkum við
honum allar þær gleði- og ánægju-
stundir, sem hann veitti okkur með
nærveru sinni. Á hindi er máltæki
sem segir: „Í hvert sinn sem við
missum vin deyjum við lítið eitt.“
Það er stór sannleikur. Guð blessi
minninguna um góðan dreng.
Stínu, börnunum og öðrum að-
standendum sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Emma og Sævar.
Þegar fregnin um að vinur okkar
og félagi í Kiwanishreyfingunni í
Vestmannaeyjum, Ólafur Svein-
björnsson væri fallinn frá, var eins
og skuggi færðist yfir. Á skömmum
tíma fellur enn einn af okkar fé-
lögum í valinn, langt um aldur fram.
Ólafur Sveinbjörnsson, eða Óli Svei
eins og hann var kallaður, var einn
af stofnfélögum Kiwanisklúbbsins
Helgafells, árið 1967. Óli sinnti
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
klúbbinn, meðal annars var hann í
stjórn árin 1972 til 1974, 1983-1984
og 1990-1991. Í Óla áttum við í
Helgafelli góðan félaga og vin, sem
lagði klúbbnum og Kiwanishreyf-
ingunni lið sitt með fórnfúsu starfi,
en starfið snérist bæði um alvöru og
gleði. Eins og í svo mörgu er mað-
urinn ekki einn og þau hjónin Óli og
Stína lögðu Kiwanisstarfinu mikið,
hún meðal annars með eiginkonum
okkar félaga, Sinawik konum.
Margar eru minningarnar um góð-
an félaga og allar góðar, enda var
Óli alltaf léttur og glaður og tilbú-
inn til að sjá broslegu hliðarnar á
hlutunum. Á seinni árum fengum
við félagarnir sem og aðrir bæj-
arbúar að njóta framtaks Óla og fé-
laga, þegar þeir stofnuðu söngkvar-
tettinn Brælubelli, en það var
lýsandi dæmi um gleðina sem fylgdi
honum. Þrátt fyrir vitneskju um
erfið veikindi Óla, sem hann átti við
að stríða í nokkurn tíma, lifði alltaf
sú von að hann myndi hafa betur í
þeirri baráttu. Óli var nefnilega
þannig að hann gerði lítið úr veik-
indum sínum, hafði alltaf einhverja
ljósa punkta fram að færa, ef talið
barst að heilsunni og þá voru þeir
oftar en ekki á léttu nótunum. Það
var Óla líkt. Við félagarnir í Helga-
felli höfum misst góðan félaga og
vin, það hefur samfélagið okkar
einnig. Missirinn er þó mestur hjá
hans nánasta fólki. Við kveðjum
góðan dreng og biðjum algóðan Guð
að blessa minningu hans. Við send-
um eiginkonu hans, Kristínu
Georgsdóttur, börnum og öðrum
ástvinum, okkar innilegustu samúð-
arkveðjur. Hafðu þakkir fyrir sam-
ferðina kæri vinur.
Helgafellsfélagar.
Þó að fornu björgin bresti,
bili himinn og þorni upp mar,
allar sortni sólirnar,
aldrei deyr, þótt allt upp þrotni,
endurminning þess, sem var.
(Grímur Thomsen.)
Fallinn er frá langt um aldur
fram Ólafur Sveinbjörnson. Hann
og pabbi voru bestu vinir í rúmlega
hálfa öld svo hann hefur ætíð verið
hluti af lífi okkar allra og fyrir það
erum við þakklát. Aðeins eru tæpir
2 mánuðir síðan pabbi dó svo enn
ætla þeir vinirnir að vera samferða.
Óla var margt til lista lagt. Hann
var frábær tónlistarmaður og spil-
aði á hin ýmsu hljóðfæri þó harm-
onikkan hafi jafnan verið í forsæti
hjá honum. Hann samdi lög og var
góður söngmaður og naut þess að
vera meðlimur söng- og gleðisveit-
arinnar Brælubellirnir. Einnig var
hann hæfileikaríkur myndlistar-
maður en þeirri list sinnti hann allt
of lítið. Helst munum við þó minn-
ast Óla fyrir einstaka kímnigáfu
sem var hans aðalsmerki. Það var
tilhlökkunarefni hjá okkur öllum ef
von var á Óla og Stínu í heimsókn
því þá fóru þeir félagarnir gjarnan á
flug í sögum sem voru engu öðru
líkar. Við krakkarnir hlustuðum
bergnumin á þessa snillinga, þar
var aldrei neitt kynslóðabil.
Við kveðjum Óla með söknuði og
biðjum Guð að styrkja Stínu og fjöl-
skyldu á þessum erfiðu tímum.
Lind, Unnur, Elfa,
Guðmundur, Sigrún, Eygló,
Elísa og Baldvin Elíasarbörn.
Það var mikið peyjasamfélag við
Hvítingatraðið og ofanverðan
Skólaveg þegar Ólafur Sveinbjörns-
son var að alast upp, en hann fædd-
ist í NA-herbergi Snæfells sem varð
síðar Hvítingavegur 8. Þarna voru
Steingrímsstrákarnir, börnin frá
Varmadal, Þrúðvangi og Vegbergi.
Allir léku sér saman frá morgni til
kvölds. Allt gekk stórslysalaust þar
til. Óli var 10 ára. Þá voru þeir Atli í
Varmadal og Óli að fikta með dína-
mitshvellhettur og sprenging varð.
Atli slapp ómeiddur, en Óli missti
þrjá fingur vinstri handar. Þetta var
mikið áfall fyrir ungan dreng. Þá
þegar hafði Óli skorið sundur afl-
taugar tveggja fingra hægri handar.
Þetta átti eftir að baga Óla við drag-
spilið síðar á lífsleiðinni. Óli var
nokkrar vikur á sjúkrahúsi eftir
slysið og annað eins heima við. Nán-
ir æskuvinir Óla voru Svavar Stein-
gríms., Haukur Þorgils., Sævar Jó-
hannesson, Gulli Axels. og Addi
Bald, eftir að Óli flutti á Fífilgötuna.
Stutt var á milli Hauks á Grund og
Óla á Fífilgötunni, enda spiluðu þeir
oft saman, Haukur á orgel, en Óli á
sög. Þá átti Óli ekkert hljóðfæri.
Aðalsteinn í Brynjólfsbúð spilaði
með Óla í Gaggabandinu.
Ungir menn voru fljótir til hér
áður fyrr. Þeir stofnuðu fjölskyldur,
fóru til sjós og byrjuðu að byggja,
rígmontnir og hringtrúlofaðir 15
eða 16 ára.
Árin hans Óla á sjónum urðu 12.
Lengi með Ella í Varmadal á Sjö-
stjörnunni við ýmsar veiðar. Þegar
Óli hætti til sjós lærði hann múr-
verk hjá Hjölla múrara og vann við
það meðan heilsan leyfði.
Þó að ég hafi alltaf vitað af Óla
Svei eins og hann kallaði sig oft,
kynntist ég honum ekki fyrr en
Harmonikufélagið var stofnað. Óli
var einn stofnenda. Það verður að
segja þá sögu eins og er að þetta
var heldur sundurleitur hópur sem
streðaði hver í sína átt. Það kom,
snemma fram að Óskar heitinn ljós-
myndari og Óli áttu auðvelt með að
vinna saman enda báðir bráð-mús-
ikkalskir og smekkmenn á tónlist.
Þeir vildu spila lögin rétt og gáfu
sér tíma til að finna réttu hljómana.
Óli sagði stundum, ef þennan hljóm
vantaði, sem hann tiltók þá væri
þetta handónýtt. Ég geri ráð fyrir
að þeir Óli og Óskar hafi dregið sig í
hlé m. a. vegna þess að þeim líkaði
ekki hve æfingarnar skiluðu litlu.
Óli og Óskar voru saman í kirkju-
kórnum í ein 20 ár. Óla fannst gam-
an að takast á við krefjandi verk,
eða messurnar hans Guðmundar
eins og hann orðaði það.
Í Kíwanisfélaginu er oft notast
við heimatilbúin skemmtiatriði þeg-
ar við á. Brælubellirnir eða Sixpens-
ararnir var söngkvartett. Nafnið
var tilkomið vegna þess að þeir gátu
aðeins æft í brælum eða í landleg-
um.
Í hópnum voru: Hörður Jónsson,
Elías Baldvinsson, Ólafur Svein-
björnsson sem allir eru látnir og
Bergvin Oddsson, auk undirleikara
Ólafi M. Aðalsteinssyni. Óvænt og
skyndilega kom sú hugmynd upp að
hljóðrita nokkur lög með flokknum
og var vægast sagt lítil von til þess
að það myndi takast að koma þess-
um stórveldum saman sem mynd-
uðu söngflokkinn, en með diplómat-
ískum hæfileikum Adda Bald tókst
að fá grænt ljós hjá öllum. Eftir há-
degi föstudaginn langa, árið 2001
var farið að hljóðrita í Kíwanishús-
inu. Menn voru óvanir og kunnu því
heldur illa að vera algjörlega þurr-
brjósta við sönginn, en svo vel vildi
til að menn fundu einhverjar
dreggjar þarna í húsinu. Eftir að
hafa fengið í fingurbjörg af hjarta-
styrkjandi gekk allt betur. Ekki
veitti nú af.
Margir eru músikkalskir í ætt
Óla. Sveinbjörn Guðlaugsson faðir
Óla lék á harmoniku fyrir dansi áð-
ur fyrr. Hann var auk þess ágætur
tenór. Það eru til hljóðritanir frá
1950 í útvarpinu með söng hans við
orgelundirleik Ragnars Jónassonar.
Bróðir Óla, Huginn, spilar á saxafón
og klarinett og Valgeir á gítar. Son-
ur Hugins, Birkir, sem lést ungur,
spilaði á saxafón. Edvard Fredrik-
sen kennari og hljómsveitarstjóri
hjá FÍH er frændi Óla. Ingibjörg
Stefánsdóttir og Óli eru skyld í ann-
an og þriðja lið. Þessi upptalning er
ekki tæmandi en ég ætla að ljúka
henni með því að geta þess að Pap-
arnir Vignir og Georg eru synir Óla
og Kristínar Georgsdóttur eigin-
konu Óla.
Á sínum yngri árum undi Óli sér
vel við að teikna myndir, en 1998 fór
Óli að læra að hjá Steinunni Ein-
arsdóttur að fara með liti. Myndir
Óla bera honum vitni um listræna
hæfileika og fágaðan smekk.
Þeir Addi Bald og Óli töldu kjark
í hvor annan ef eitthvað bjátað á.
Það hefur ekki verið vanþörf á slíku
að undanförnu. Þeir hafa báðir
gengið í gegnum erfið og langvar-
andi veikindi síðustu árin, sem nú
hafa lagt þá báða að velli.
Það kom reyndar á óvart hve
brátt varð um Adda Bald. Talið var
að hann væri að ná sér á strik eftir
sín veikindi.
Kristín Georgsdóttir og aðrir að
standendur. Ég votta ykkur samúð
mína.
Bjarni Jónasson.
ÓLAFUR
SVEINBJÖRNSSON
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít