Morgunblaðið - 15.11.2003, Side 71
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 71
Loksins er komin út bók sem lýsir á einfaldan og aðgengilegan hátt helstu leiðum við val á
hlutabréfum. Í bókinni er dregið saman hvernig hinn almenni fjárfestir getur nýtt sér þessar
leiðir við ávöxtun fjármuna. Ritstjóri bókarinnar er Sigurður B. Stefánsson framkvæmdastjóri
Eignastýringar Íslandsbanka. Þetta er bók fyrir alla þá sem hafa áhuga á að fræðast um uppbyggingu
eigna með hlutabréfum.
Bókin er til sölu í bókabúðum Pennans-Eymundsson, hjá Máli og menningu og hjá Bóksölu
stúdenta. Einnig fæst bókin í útibúum Íslandsbanka um allt land og hjá Íslandsbanka- Eignastýringu,
Kirkjusandi. Hægt er að panta bókina hjá þjónustuveri Íslandsbanka í síma 440 4000.
Hvernig nærðu góðri
ávöxtun á skynsamlegan hátt?
Hefur þú átt hlutabréf?
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
0
8
3
#28 DETTIFOSS
ICELAND REVIEW
ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517
askrift@icelandreview.com
HVERS VEGNA ÍSLAND?
40 ÁSTÆ‹UR
Í DESEMBER verður Alviðru-
dagskrá sem ber yfirskriftina
„Bráðum koma jólin“ Dagskráin
verður með þjóðlegu ívafi er stefnt
að því að söngur, leikir og gleði
muni ráða ríkjum í Alviðru á jóla-
föstu.
Dagskráin er einkum ætluð börn-
um á yngsta stigi og miðstigi
grunnskóla. Nýlokið er haust-
dagskrá Alviðru, „Náttúran í haust-
skrúða“, en dagskráin stóð frá 25.
ágúst til 31. október. Grunn-
skólabörn víðsvegar af landinu
hafa heimsótt Alviðru í ár. Fróð-
leikur, skemmtun og útivist eru
einskonar einkunnarorð Alviðru,
segir í fréttatilkynningu.
Jóla-
dagskrá
í Alviðru
Smíðaði og skar út í
kápu bókarinnar
Listakonan Sigga á Grund smíðaði
bókarkápu úr tré frá grunni utan um
sögu Litla-Hvammsskóla í Mýrdal og
skar fagurlega út í hana. Bókin var
færð Byggðasafninu á Skógum ný-
verið í tilefni 100 ára afmælis skólans.
Rangt var farið með þetta í blaðinu í
vikunni og beðist er velvirðingar á
því. Það var Sigþór Sigurðsson frá
Litla-Hvammi sem átti mestan þátt í
að safna upplýsingum í bókina.
Rangt nafn
Í blaðinu í gær var rangt nafn höf-
undar við gagnrýni blaðsins um leik-
sýningu Verslunarskóla Íslands. Rétt
nafn hans er Hrund Ólafsdóttir. Beð-
ist er velvirðingar á þessu.
Ekki dansveisla á Metz
Í Fólkinu í gær var ranglega sagt
að í kvöld væri dansveisla Félags
samkynhneigðra stúdenta og Sam-
takanna 78 á skemmtistaðnum Metz.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að árekstri á gatnamótum
Hringbrautar og Njarðargötu 13.
nóvember kl. 23:40. Þar rákust sam-
an tvær fólksbifreiðir, Chrysler
Neon og Hyundai Pony. Þeir sem
kynnu að hafa orðið vitni að árekstr-
inum eru beðnir um að hafa samband
við lögregluna.
Lýst eftir
vitnum
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦