Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
RITSTJÓRI Fréttablaðsins skrifar
forystugrein í blað sitt þann 13. nóv-
ember og fjallar nokkuð um kjör og
starfsöryggi blaðbera. Hann kemur
meðal annars inn á gjaldþrot DV og
þá stöðu blaðbera að þeir þurfi að
lýsa kröfum í þrotabú DV. Ekki ætla
ég að bera í bætifláka fyrir það en
skoðum málið aðeins nánar. Ritstjór-
inn rifjar upp og telur sér það til
ágætis að gert var upp við blaðbera
eldra Fréttablaðsins eftir að það fór í
þrot og telur það merki um góða við-
skiptahætti. Hann ætti í því sam-
bandi einnig að rifja upp hvernig
gekk hjá blaðberum að fá launin sín
greidd í fleiri mánuði áður en Frétta-
blaðið fór í þrot. Foreldrar þurftu að
harka í afgreiðslu blaðsins mánuðum
saman í þeirri von að geta kríað út
uppígreiðslur upp í ógreidd útburð-
argjöld. Síðustu mánuði á líftíma
þess blaðs var það sem greitt var út
til blaðbera greitt eftir póstnúmera-
röð þannig að þeir sem voru svo
óheppnir að búa í háu póstnúmeri
sátu á hakanum. Ég vil taka það
fram að ég bar ekki blaðið út á þeim
tíma en þetta hef ég beint eftir for-
eldrum barna sem báru blaðið út á
þeim tíma. Við gjaldþrot Frétta-
blaðsins gamla áttu margir blaðber-
ar inni hjá Fréttablaðinu nokkurra
mánaða ógreidd laun samkvæmt
fréttum í fjölmiðlum þess tíma. DV
greiddi þó blaðberum laun með skil-
um fram á síðasta mánuð og án þess
að foreldrar þyrftu að sitja langsetur
fyrir framan fjármálastjóra blaðsins
í þeirri von að hann fyndi einhverja
þúsundkalla inni á reikningnum. En
hvers vegna skyldi hið nýja Frétta-
blað hafa gert upp við blaðberana?
Einfaldlega vegna þess að ella hefðu
þeir ekki komið blaðinu út. Það hefði
enginn ráðið sig hjá hinu nýja blaði
ef þeir hefðu gengið frá löngum
skuldahala við þá blaðbera sem
höfðu starfað hjá Fréttablaðinu því
fyrra. Nú hefur sagan endurtekið sig
á vissan hátt. DV fór á hausinn og
skildi eftir skuldir hjá blaðberum.
Þrotabúið var keypt af Frétta-
blaðinu og nú skal það endurreist.
En er nú gert upp við blaðbera af
þeim sem starfa að endurreisninni?
Nei ekki aldeilis. Nú hafa kaupend-
urnir nefnilega yfir að ráða dreifing-
arkerfi í nafni Fréttablaðsins. Því
hafa þeir ákveðið einhliða að stinga
hinu nýja DV í töskur þeirra blað-
bera sem bera út DV og hafa einhliða
ákveðið greiðslu fyrir viðvikið. Síðan
segja þeir hinum sömu blaðberum að
lýsa kröfum í þrotabú DV. Þetta er
nú öll stórmennskan hjá þeim sem
eru að berja sér á brjóst í forystu-
grein blaðs síns og segjast vera betri
en aðrir menn. Vei þér farísear.
GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON,
Rauðagerði 36, Reykjavík.
Blaðberar og Fréttablaðið
Frá Gunnlaugi Júlíussyni
ÉG skrifa þessar línur af því ég er
búin að fá mig meira en fullsadda af
því að láta troða á mér.
Snemma á
þessu ári var ég
ráðin í starf þjón-
ustufulltrúa hjá
fyrirtæki í
Reykjavík sem
heitir Skúlason
ehf. eftir að hafa
svarað auglýs-
ingu sem birtist í
Fréttablaðinu.
Samskonar auglýsingu og nú er í
umferð, mjög grípandi hálfsíðu at-
vinnuauglýsing þar sem m.a. er lýst
eftir fólki með þá skemmtilegu eig-
inleika að finnast gaman að tala í
síma. Ég vann hjá fyrirtækinu í einn
og hálfan mánuð, eða þar til annað
atvinnutilboð bauðst sem ég var satt
að segja himinlifandi yfir, því ég ef-
aði stórlega frá byrjun að ég myndi
nokkru sinni fá launin mín hjá Skúla-
son efh. greidd án erfiðleika.
Kannski má segja ég þefi uppi fyr-
irtæki sem enda á hausnum því
tvisvar áður hefur það gerst að fyr-
irtæki sem ég var í vinnu hjá lagði
upp laupana og launin sem ég hafði
unnið mér inn hjá þeim fékk ég ekki
fyrr en tveimur árum seinna í gegn-
um Verslunarmannafélag Reykja-
víkur.
Ég þarf kannski ekki að taka það
fram að þau laun sem ég vann mér
inn hjá Skúlason efh. eru enn
ógreidd. Einnig má taka það fram að
þegar ég sótti um fæðingarorlof fyrir
þremur mánuðum lá við að ég fengi
þau ekki greidd vegna þess að engin
laun höfðu verið skráð á mig hjá
skattstjóra fyrir tímann sem ég vann
hjá Skúlason ehf. og það þurfti heil-
mikla vinnu til þess að fá það í gegn.
Ég fór einnig í fyrirtækið og bað um
skattkortið mitt þegar ég var komin í
nýtt starf en var sagt að það væri
glatað. Nokkrum mánuðum eftir að
ég hætti að vinna hjá þeim athugaði
ég stöðuna aftur og bað um að fyr-
irtækið borgaði mér sem fyrst þar
sem ég ætti von á barni. Ég var beð-
in um að bíða með að fara með málið í
VR og sagt að ég fengi líklega fyrr
launin mín ef ég biði! Ég bíð enn.
Á þeim stutta tíma sem ég vann
hjá Skúlason ehf. var starfsfólk að
koma og fara og það starfsfólk sem
hafði verið þar í einhvern tíma var
allt stressað yfir því að fá ekki út-
borgað á réttum tíma. Á meðan
Skúlason efh. skuldar líklega tugum
starfsmanna launin sín (því mér var
tjáð af yfirmanni Skúlason ehf. og
þjónustufulltrúa hjá VR að ég væri
ekki sú eina sem svona væri ástatt
um) halda forsvarsmenn fyrirtækis-
ins áfram að auglýsa grimmt í blöð-
um eftir nýju starfsfólki! Hvernig
væri að greiða þeim sem eiga inni
ógreidd laun fyrst?
Ég skil ekki hversu lengi þetta má
viðgangast. Margir fyrrverandi
starfsmenn bíða í röðum eftir
greiðslu frá VR, en til þess að Versl-
unarmannafélagið geti gripið inn í
verður fyrirtækið víst að fara í gjald-
þrot og svo virðist sem Skúlason efh.
ætli ekki að gefast upp. Áður en ein-
hver þarna úti svarar auglýsingunni
í von um vinnu myndi ég halda að at-
vinnuleysisbæturnar væru öruggari
og skynsamari kostur!
HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hringbraut 63, 107 Reykjavík.
Að gefnu tilefni
Frá Helgu Kristjánsdóttur