Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 73
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 73
GÓÐIR Íslendingar, þá er fyrstu
„Iceland Model United Nations“
ráðstefnunni lokið. Okkur langar til
að deila með ykkur þessari bráð-
skemmtilegu reynslu og jafnframt
gefa frekari innsýn í fyrirbærið, sem
er komið hingað til að vera.
Hvað er MUN?
Í stuttu máli sagt er markmiðið
með ráðstefnum eins og þessari, en
400 slíkar eru haldnar árlega um
heiminn; að gefa ungu fólki innsýn í
störf Sameinuðu þjóðanna. Þátttak-
endur bregða sér í gervi sendiherra
aðildarþjóðanna og takast á hendur
samningaviðræður um lausnir á
ýmsum aðkallandi vandamálum al-
þjóðasamfélagsins.
Samhliða auknum áhuga í sam-
félaginu á starfi Sameinuðu þjóð-
anna hafa nokkrir íslenskir nemend-
ur tekið þátt í erlendum ráðstefnum;
t.d. í London, Osló, Stokkhólmi,
Boston og New York. Þegar þessi
reynsla var komin til kviknaði svo
draumurinn um að koma á fót ís-
lenskri útgáfu af ráðstefnunni.
Þessari hugmynd fylgdi að sjálf-
sögðu gífurlegur undirbúningur og
þá ekki síst við að kynna öllum að-
ilum hvað bjó að baki. Með eldmóð
og áhuga að vopni var þó gengið í
málið og formlegur undirbúningur
hófst strax um síðustu áramót – en
óformlegur miklu fyrr. Samhliða al-
hliða undirbúningi brugðu fjögur úr
stjórninni sér til New York og sátu
þar námskeið um hvernig standa
skuli að MUN-ráðstefnum. Í New
York hittu þau m.a. fastanefnd Ís-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum og
hefur síðan verið góð samvinna þar á
milli. Fleiri aðilar hafa stutt dyggi-
lega við framtakið og er vonandi að
áframhaldandi gott samstarf verði
við utanríkisráðuneytið, forseta Ís-
lands, Félag Sameinuðu þjóðanna á
Íslandi og Flugleiðir.
Um IceMUN-ráðstefnuna 2003
IceMUN 2003 stóð yfir dagana
22.–26. október og var viðfangsefnið
ástand mála í Írak. Að lokinni stuttri
setningarathöfn fyrsta daginn tóku
við fyrirlestrar sérfræðinga daginn
eftir. Tveir erlendir fyrirlesarar
komu sérstaklega hingað til lands til
að fræða um sérsvið sín, annar frá
stjórn friðargæslu Sameinuðu þjóð-
anna og hinn frá Save the Children
samtökunum sem starfa í Írak og
víðar. Veittu þeir góða innsýn í stöð-
una ásamt valinkunnum Íslending-
um sem þekkja starf Sameinuðu
þjóðanna, friðargæslu og uppbygg-
ingu stríðshrjáðra landa af eigin
raun.
Frá föstudegi til sunnudags stóð
svo yfir neyðarfundur í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. Reyndar var
unnið með dagsetningarnar 26. og
27. nóvember – þegar ramadan mán-
uði lýkur í Írak. Aðstandendur ráð-
stefnunnar lögðu fyrir ráðið krísu
sem skapast hafði í landinu milli
írakskra uppreisnarmanna og her-
námsliðsins undir stjórn Banda-
ríkjamanna. Í kjölfar óeirða og
dauðsfalla var sett á útgöngubann á
þeim degi sem er múslimum álíka
mikilvægur og kristnum mönnum
eru jólin. Fastafulltrúi Íraks vildi
banninu tafarlaust aflétt þar sem
slíkt myndi leiða
til fjöldaupp-
reisna í land-
inu …
Þessar að-
stæður tókust
meðlimir ráðsins
á hendur að
leysa. Samþykkt-
ar voru tvær
ályktanir og náð-
ist sú seinni ekki
í gegn fyrr en á
allra síðustu
metrunum. Full-
trúa landa á borð
við Frakkland og
Bandaríkin
greindi að sjálf-
sögðu afar mikið á um málefnið og
því var útlit fyrir að ekki næðist sam-
komulag. Það tókst þó að lokum þó
að ekki kæmu allir öllu því að sem
þeir vildu – en um það snúast mála-
miðlanir.
Fyrir utan öfluga akademíska
starfsemi var félagslegu hliðinni
ekki síður sinnt. Þátttakendur og að-
standendur frá Íslandi, Noregi, Sví-
þjóð, Frakklandi, Ítalíu, Bandaríkj-
unum og Mexíkó fengu gott færi á að
kynnast innbyrðis. Til að mynda var
boðið upp á móttökur hjá forseta Ís-
lands á degi Sameinuðu þjóðanna,
svo og hjá utanríkisráðuneytinu.
Einnig var þátttakendum boðið í
Bláa lónið og allir fóru saman út á líf-
ið.
Horft til framtíðar
Það er von okkar að ráðstefnan
IceMUN 2003 hafi veitt „sendiherr-
unum“ nokkra innsýn og skilning á
ákvörðunarferli Öryggisráðins og
Sameinuðu þjóðanna. Ekki síður
mikilvægt er að fá ferska hugsun og
ungt blóð inn í stjórnmálaumræð-
una. Nú þegar Íslendingar eru að
hefja kosningabaráttu um sæti í Ör-
yggisráðinu 2009 er æskilegt að
samfélagið öðlist frekari skilning á
starfseminni. Þar getur IceMUN
komið sterkt inn. Í framtíðinni mætti
einnig hugsa sér frekari efnisleg
tengsl við sérstöðu og verkefni Ís-
lands á alþjóðvettvangi; s.s. í
tengslum við hlutverk smáríkja inn-
an SÞ, jafnréttismál, friðargæslu og
umhverfismál svo eitthvað sé nefnt.
Nú þegar hefur verið undirritaður
sáttmáli um samstarf við Noreg á
þessu sviði en stefnt er á að Norð-
urlöndin eigi með sér samtök um
sameiginlega þátttöku á alþjóðavett-
vangi. Einnig er það einlægur vilji
okkar að hægt verði að fá nemendur
allra íslensku háskólanna til sam-
starfs og þátttöku á næsta ári. Nú
þegar grunnurinn hefur verið lagður
eru miklir möguleikar á að efla starf-
ið og boða til enn stærri ráðstefnu á
næsta ári. Undirbúningur er þegar
hafinn og eru áhugasamir hvattir til
að hafa samband. Einnig viljum við
benda á heimasíðu ráðstefnunnar,
www.icemun.hi.is.
ANNA PÁLA SVERRISDÓTTIR,
nemi í lögfræði,
ERLA TRYGGVADÓTTIR,
nemi í stjórnmálafræði.
Að lokinni fyrstu íslensku
„Model UN“ ráðstefnunni
Frá Önnu Pálu Sverrisdóttur og
Erlu Tryggvadóttur
Á morgun,
16. nóvem-
ber, er eitt ár lið-
ið frá því að Regn-
bogabörn fjölda-
samtök um einelti
voru stofnuð. Af þessu tilefni bjóðum við gestum og gangandi að
kynna sér starfið og skoða þjónustumiðstöðina okkar, Gamla bóka-
safnið, í Mjósundi 10, Hafnarfirði, 2. hæð. Við opnum húsið kl.
14:00 og bjóðum upp á kaffi og með því, grillaðar Goðapylsur og
gos frá Vífilfelli. Húsið verður opið til kl. 18:00. Við vonum að þú sjá-
ir þér fært að mæta og halda upp á daginn með okkur.
Á neðri hæðinni verður kaffi- og menningarhús ungs fólks í
Hafnarfirði opið. Tilvalið að skoða starfsemina þar í leiðinni.
Boðið verður upp á tónlistaratriði, Tryggvi trúbador í Hafnarfirði og
dansverkið „Geturðu leikið” eftir Láru Stefánsdóttur. Dansinn
hefst kl. 17:00. Verkið er byggt á sögunni um ljóta andarungann
og flutt af dönsurunum, Tönju, Sögu, Hjördísi og Maríu.
Opið hús!
Allir velkomnir