Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 74
DAGBÓK 74 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Vigri kemur í dag, Helga María fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Norsund kemur í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opið virka daga frá kl. 9–16. Félag aldraðra í Mos- fellsbæ, gönguhóp- urinn leggur af stað kl. 11. Heitt á könnunni þegar komið er til baka um kl. 12. Skrifstofan í Hlégarði er opin á þriðjudögum kl. 10–12. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Fjölbreytt vetrardagskrá hvern virkan dag frá kl. 9– 16.30. S. 575 7720. Vesturgata 7. Mánu- daginn 17. nóvember kl.13–16 verður bein- þéttnimæling á vegum Lyfju, upplýsingar og skráning í síma 562 7077. Ganga hefst miðvikudaginn 19. nóv- ember kl.10.30–11.30, mæting í setustofu, kaffi á könnunni. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Breiðfirðingafélagið. Félagsvist í Breiðfirð- ingabúð, Faxafeni 14, á morgun, sunnudag, kl. 14. Kaffiveitingar. Þriðji dagur í fjögurra daga keppni. Barðstrendinga- félagið, félagsvist og dans í Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 20.30. Félag austfirskra kvenna, basar og vöfflukaffi í dag kl. 14. í félagsheimili Grens- áskirkju. Heilsuhringurinn, 25 ára afmælisfundur verður haldinn í Nor- ræna húsinu á morgun, sunnudaginn 16. nóv- ember, kl. 14. Fræðslu- erindi halda: Hall- grímur Magnússon læknir og Sólveig á Grænum kosti. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, fundir spilafíkla, Höf- uðborgarsvæðið: Þriðjudagur kl. 18.15 – Seltjarnarneskirkja, Valhúsahæð, Seltjarn- arnes. Miðvikudagur kl. 18 – Digranesvegur 12, Kópavogur. Fimmtudagur kl. 20.30 – Síðumúla 3–5, Göngu- deild SÁÁ, Reykjavík. Föstudagur kl. 20 – Víðistaðakirkja, Hafn- arfjörður. Laug- ardagur kl.10.30 – Kirkja Óháða safnaðar- ins, v/ Háteigsveg, Reykjavík. Austurland: Fimmtudagur kl. 17 – Egilsstaðakirkja, Eg- ilsstöðum. Neyðarsími GA er opinn allan sól- arhringinn. Hjálp fyrir spilafíkla. Neyðarsími: 698 3888. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átröskun / matarfíkn / ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Blóðbankabílinn. Ferðir Blóðbankabíls- ins: sjá www.blodbank- inn.is Fífan, Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar al- mennu göngufólki og gönguhópum frá kl.10– 11.30 alla virka daga. Minningarkort Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552- 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skóg- um fást á eftirtöldum stöðum: Í Byggðasafn- inu hjá Þórði Tóm- assyni, s. 487-8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487-1299, í Reykjavík hjá Frímerkjahúsinu, Laufásvegi 2, s. 551- 1814 og hjá Jóni Að- alsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557- 4977. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stang- arhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysa- varnafelagid@lands- bjorg.is Í dag er laugardagur 15. nóv- ember, 319. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Ég mun leita að hinu týnda og sækja hið hrakta, binda um hið limlesta og koma þrótti í hið veika, en varðveita hið feita og sterka. Ég mun halda þeim til haga, eins og vera ber. (Esk. 34, 16.) Víkverji skrifar... Þegar flytja skal æsilega frétt erauðveldast af öllu að snúa út úr staðreyndum og búa bara til skúbbið. En auðvitað gerir góður blaðamaður ekki slíkt. Hann lætur ekki freistast – sama hversu freisting er mikil. Þrýst- ingurinn um að framleiða skúbb á færibandi. x x x Víkverji rak augun í forsíðu nýjastaSéð og heyrt. Þar stendur að bandaríska leikkonan Gwyneth Palt- row hafi orðið þunglynd af íslenskri tónlist – vitanlega með tilheyrandi upphrópunarmerki. Talandi um út- úrsnúning! Staðreynd málsins, upprunalegu heimildir fréttarinnar, er nefnilega allt annars eðlis eins og sjá má í hér- lendum dagblöðum sem greindu frá sömu yfirlýsingu leikkonunnar fyrir góðri viku. Hún sagðist nefnilega hvergi verða þunglynd af íslenskri tónlist. Í umræddu viðtali er hún að ræða um sitt síðasta hlutverk sem skáldkonan Silvia Plath. Til þess að ná tengslum við þessa tilfinn- inganæmu konu segist hún hafa lítið þurft að leggja sig fram því sjálf hafi hún gengið í gegnum tilfinninga- þrungna lífsreynslu nýlega er hún missti föður sinn. En til þess að kom- ast í enn betri skilning um líðan Plath þá hafi hún einnig leitað á náðir „þunglyndislegrar íslenskrar tónlist- ar“. Hvergi segist hún beinlínis hafa orðið þunglynd af því að hlusta á ís- lenska tónlist. Það má svo sem skilja þessi ummæli hennar á nokkra vegu. En Víkverji fær samt ekki skilið hvers vegna Íslendingar kjósa að skilja þau á versta veg; að íslensk tón- list geri fólk þunglynt? Bara fyrir eitt lítið skúbb. Eina fyrirsögn. Má ekki líka skilja ummælin þannig, og er það ekki nærri lagi, að þunglyndisleg ís- lensk tónlist sé svo áhrifarík að hún hjálpi listamanni að komast í betri snertingu við tilfinningaþrungið hlut- verk? Að íslensk tónlist veiti heims- frægri kvikmyndastjörnu innblástur? x x x Á svo ekki líka að snúa út úr því aðskærustu poppstjörnur heims, Christina Aguilera og Britney Spears, keppast nú við að lýsa aðdáun sinni á Björk Guðmundsdóttur og hafa nánast hrópað í kór hversu mjög hún hefur haft áhrif á þær sem söng- kona, listamaður og ekki hvað síst stjarna sem neitar að fylgja markaðs- straumum heldur hefur kosið að fara sínar eigin leiðir og búa til sína eigin strauma, bæði í tónlistarsköpun og stíl. Auðvitað er þetta ekkert annað en þroskamerki hjá þessum ungu stjörn- um. Þær eru að átta sig á því hvað máli skiptir í þessum bransa. Og guði sé lof ef þær og aðrar poppstjörnur sýna þessa aðdáun sína á Björk í verki með því að taka sér hana til fyr- irmyndar. Fyrir utan það að Björk mun vafalítið eignast fjölda nýrra aðdáenda eftir slík ummæli því aðdá- endur Britney og Christinu eiga vafa- lítið eftir að kynna sér hver þessi mikli áhrifavaldur þeirra er. Reuters Krossgáta LÁRÉTT 1 yfirbragð, 4 misseri, 7 flík, 8 ber ábyrgð á, 9 elska, 11 hóta, 13 bein, 14 hetja, 15 lappa upp á, 17 týna, 20 skar, 22 opnar vatni leið, 23 sjúkt, 24 landspildu, 25 líffærin. LÓÐRÉTT 1 rúmsjó, 2 tuskan, 3 frumstætt ljósfæri, 4 himna, 5 krama, 6 bölva, 10 sárkaldur, 12 keyra, 13 skynsemi, 15 hrana- leg, 16 heimskingi, 18 svarar, 19 ójafnan, 20 lof, 21 ógæfa. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 stagbætir, 8 stýra, 9 teigs, 10 fáa, 11 meina, 13 renna, 15 hress, 18 snæða, 21 kát, 22 kalla, 23 alinn, 24 einfaldur. Lóðrétt: 2 trýni, 3 grafa, 4 æstar, 5 iðinn, 6 ósum, 7 aska, 12 nes, 14 ern, 15 haki, 16 efldi, 17 skarf, 18 stagl, 19 ætinu, 20 Anna.     Ögmundur Jónassonsegir, á ogmundur.is, að landsfundur VG hafi verið góður fyrir flokk- inn. Hann segir m.a.: „Katr- ín Jakobsdóttir var kosin varaformaður og Drífa Snædal ritari. Báðar hafa þær getið sér mjög gott orð og látið að sér kveða í pólitíkinni. Ekki leikur nokkur vafi á því að við eigum eftir að heyra mik- ið frá þeim á komandi ár- um.     Kosið var um varafor-mennskuna og var Steingrímur Ólafsson, fyrrverandi formaður VG í Reykjavík, í kjöri. Nær væri að segja að hann hafi verið boðinn fram en að hann hafi boðið sig fram því margir vildu gjarnan sjá hann komast til frek- ari áhrifa innan VG enda kraftmikill og glöggur. Framboð Steingríms kom seint fram en almennt held ég að fólki hafi þótt ágætt að fá kosningar um embætti í flokknum. Hygg ég að allir hafi stað- ið upp ósárir.     Talsvert var um kosn-ingar í stjórn VG og komust færri að en vildu. Uppstillingarnefnd var hins vegar með afgerandi vísbendingar sem urðu að endanlegri niðurstöðu. Á undanförnum árum hefur talsvert verið rætt um fyrirkomulag við kosn- ingar í félagasamtökum og er ég í hópi þeirra sem hafa vaxandi efasemdir um uppstillingarnefnd- arformið og gerist æ hlynntari opnum kosn- ingum. Sá sem býður sig fram í stjórnir og ráð án þess að vera tilnefndur af uppstillingarnefnd á yf- irleitt litla möguleika á kosningu. Sú spurning vaknar hvort þetta sé nægilega lýðræðislegt form.“     Ögmundur segir miklaeftirsjá vera í Svan- hildi Kaaber, sem hætti sem varaformaður. „Hún tók þátt í stofnun flokks- ins og var reyndar með í öllum aðdragandanum. VG á sér margar rætur. Ein heitir Stefna, félag vinstri manna, sem stofn- að var á fyrri hluta ársins 1998 með það fyrir aug- um að búa í haginn fyrir kröftuga baráttu vinstri manna. Niðurstaðan varð Vinstrihreyfingin – grænt framboð þar sem fólk úr ýmsum áttum, þar á með- al úr Stefnu, tók höndum saman. Svanhildur Kaab- er var ein aðaladriffjöð- urin í þessu starfi.     Þetta eru ekki pólitískminningarorð heldur þakkarorð fyrir frábært starf hennar á vettvangi VG sem varaformaður flokksins á fyrstu mót- unarárum hans. Eftir þennan landsfund og þær líflegu og skemmtilegu umræður sem þar fóru fram, velkist ég ekki í nokkrum vafa um að Vinstrihreyfingin – grænt framboð á bjarta fram- tíð.“ STAKSTEINAR Landsfundur VG ÉG las í dagblaði um dag- inn, að móðir kvartaði yfir því, að kennari sonar henn- ar kenndi börnunum að fara gætilega með vatnið. Sagði hún, að betra væri, að kenna eitthvað þarflegra þar sem nóg væri af vatni hér á landi. Þetta er hugsunarháttur, sem mér finnst afar hættu- legur, þar sem vatn er mik- ilvægasta auðlind jarðar. Þó að nóg sé af vatni hér er það ákaflega víða af skorn- um skammti og skilur oft á milli lífs og dauða og veitir ekki af að kenna uppvax- andi kynslóð aðgæslu við umgang um vatn. Þeir kennarar, sem kenna börnum að hugsa ekki um vatn sem ótak- markaða auðlind, eiga heið- ur skilinn og eru þeir von- andi margir. Gísli Júlíusson, fyrrverandi varafor- maður Landverndar. Lélegt hjá DV ÉG ER blaðberi hjá DV úti á landi – eða ætti ég að segja fyrrverandi blaðberi. Ég hef mikið út á það að setja hversu léleg vinnu- brögð hafa verið í kring um allt þetta gjaldþrot hjá DV. Ég fékk ekkert að vita um þetta gjaldþrot. Ég vissi ekkert hvort það kæmi blað daginn eftir eða hvort ég fengi borgað eða hvort ég myndi halda vinnunni. Það kom ekki einu sinni lítill miði með blöðunum sem á stóð: Það koma ekki blöð á morgun. Það kom ekkert. Við fengum bara að vita það í fréttunum að það kæmu ekki blöð aftur. Ég veit ekki einu sinni hvort það kemur DV út hérna í bænum aftur eða ekki. Mér finnst þetta vera ömurlega léleg vinnubrögð og svo verðum við, 12-16 ára krakkar að hringja í einhver félög í Reykjavík til þess að fá okkar laun. Dagblaðið lét okkur bera út Magasín í hvert hús og við erum að fá vöðvabólgu í axlirnar af því það eru ekki til neinar almennilegar töskur né vagnar. Svo geta þeir ekkert borgað okkur fyrir öll þessi blöð sem við bárum út. Ég bar út Magasín í 217 hús í október og ég fæ lík- lega ekki borgað fyrir það fyrr en eftir vikur eða mán- uði. Eða það heyrir maður í fréttunum. Það er ekki einu sinni víst að ég fái þetta borgað. Ég veit ekki hvaða upp- lýsingum var dreift til blað- bera á höfuðborgarsvæð- inu, en ég býst við að þeir hafi fengið að vita meira um málið heldur en við á lands- byggðinni. Það tel ég vera mismunun. Kveðja. Ósáttur blaðberi á landsbyggðinni. Dýrahald Snúlli Snúður er týndur HANN er 7 mánaða fress, inniköttur, geltur, hvítur og svartur. Hann er með svarta og bláa ól og er eyrnamerktur. Hann týndist í Bryggju- hverfi við Grafarvog að- faranótt mánudags. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 861- 9668. Fundarlaun. Kettlingar fást gefins KASSAVANIR kettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 557 1559 og 663 5906. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Vatn Morgunblaðið/RAX 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.