Morgunblaðið - 15.11.2003, Qupperneq 79

Morgunblaðið - 15.11.2003, Qupperneq 79
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 79 FORSVARSMENN enska knatt- spyrnusambandsins, FA, viður- kenna að leikmenn enska landsliðs- ins sem undirbúa sig fyrir vin- áttulandsleik gegn Dönum á sunnudag séu ekki sáttir við ákvörðun FA að vísa Alan Smith, framherja Leeds, úr landsliðs- hópnum. Smith var handtekinn sama dag og hann var valinn í liðið, en honum er gefið að sök að hafa kastað flösku í áhorfanda á leik Leeds og Manchester United í lok október. Leikmanninum var sleppt úr haldi eftir yfirheyrslu en honum var gert að reiða fram tryggingafé. Sven Göran Eriksson, landsliðs- þjálfari Englands, vildi hins vegar ekki senda Smith úr liðinu en stjórn FA var ekki sammála Svíanum. Mark Palios talsmaður FA segir að hann hafi ekki vitað að Nicky Butt leikmaður Manchester United hafi verið handtekinn fyrr á þessu ári vegna rannsóknar á líkamsárás- armáli. „Ef FA hefði vitað af því hefði Butt ekki verið valinn í lands- liðið á þeim tíma,“ segir Palios. James Beattie frá Southampton var valinn í stað Smith en í fyrra var hann dæmdur fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis. Enskir fjölmiðlar segja að það sé þungt hljóð í leikmannahópnum og líklegt að menn þar á bæ verði treg- ir í taumi er FA fer fram á að þeir sinni kynningarstörfum fyrir sam- starfsaðila FA þegar nær dregur Evrópukeppni landsliða í Portúgal. Kalt stríð í herbúðum enska landsliðsins  EF rýnt er í tölfræðina að loknum tveimur umferðum í bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik má sjá að leikmenn Keflavíkur standa sig vel á mörgum sviðum í vesturriðlinum. Í þeim riðli eru alls átta lið í tveimur riðlum.  MAGNÚS Gunnarsson hittir úr- flestum þriggja stiga skotum, 4,5 að meðaltali. Derrick Allen skorar mest, eða 27,5 stig í leik, og Nick Bradford er í öðru sæti ásamt Leg- name frá franska liðinu Toulon, en þeir skora báðir 22,5 stig að með- altali. Magnús er í 12. sæti með 18 stig að meðaltali en hann er í þriðja sæti í stoðsendingunum, með 6 að meðaltali.  ALLEN er í öðru sæti í fráköst- unum, með 10 að meðaltali, og Brad- ford fylgir þar á eftir í fjórða sæti með 9 fráköst.  HENNING Berg, varnarmaður skoska liðsins Glasgow Rangers og norska landsliðsins í knattspyrnu, hefur gefið forráðamönnum Lyn af- svar hvað varðar þjálfarastöðu hjá liðinu. Berg hefur verið í viðræðum við Lyn undanfarna daga en hann segir við norska fjölmiðla að málið hafi strandað á því að hann hafi ekki getað valið sjálfur aðstoðarmann á hliðarlínunni. Berg hafði hug á því að leika með liðinu en samningur hans við Rangers rennur út í lok leiktíðar.  FYRRVERANDI félagi Berg í norska landsliðinu, Kjetil Rekdal, hefur hins vegar í nógu að snúast við að bjarga Vålerenga frá því að falla í 1. deild. Rekdal hefur leikið með liði sínu í sumar auk þess að þjálfa liðið en fjárhagsstaða liðsins er afar slæm og segir framkvæmdastjóri þess að Rekdal hafi ekki þegið umsamin laun fyrir þjálfunina. Um er að ræða allt að 20 milljónir ísl. kr. á ári.  ANNIKA Sörenstam, kylfingur frá Svíþjóð, mun á ný etja kappi við karla á golfmóti sem fram fer í Singapúr um helgina. Sænska konan lék á PGA-mótaröðinni fyrr á þessu ári en komst ekki í gegnum niður- skurðinn en að þessu sinni leikur hún gegn Dananum Jesper Parnevik, Retief Goosen frá S-Afríku og Lam Chi Bing frá Asíu.  KEPPNISFYRIRKOMULAGIÐ í Singapúr verður með þeim hætti að leikið er um ákveðna peningaupp- hæð á hverri holu og sá sem leikur best fær upphæðina í sinn vasa. Ef leikurinn verður jafn færist upphæð- in á næstu holu og bætist þá enn meira fé í sarpinn.  SÖRENSTAM lætur ekki þar við sitja því 22.–23. nóv. leikur hún á sams konar móti í Kaliforníu í Bandaríkjunum en auk hennar mæta Phil Mickelson, Fred Couples og Mark O’Meara til leiks en þeir eru allir frá Bandaríkjunum. FÓLK Gestirnir frá Akureyri fóru ákostum í byrjun og skoruðu auðveld mörk en það virtist ekki gera þeim gott því eftir góða byrjun slökuðu þeir aðeins á í sókninni. Skyttan Arnór Atlason var drjúgur með opið skotleyfi enda skoraði hann 7 af níu fyrstu mörkum KA. Valsmenn þurftu að hafa mun meira fyrir sínum mörkum en það var aðeins í byrjun því vörn KA missti stundum taktinn svo að heimamenn gátu gengið í gegn enda ná þeir forystu um miðjan fyrri hálf- leik. Til marks um þessar sviptingar má benda á að liðin skora 19 mörk á fyrstu fimmtán mínútum – flestir hefðu búist við betri vörn hjá þessum tveimur efstu liðum í riðlinum. KA- menn fóru að spila varnarleikinn ut- ar og það tók nokkrar mínútur að skila sér en með fimm mörkum á móti einu náðu þeir 14:12 forystu. Í stað þess að ganga á lagið freistuðu þeir þess að halda sjó og það dugði ekki, sérstaklega ekki þegar Örvar Rúdólfsson lokaði marki Vals og staðan í hálfleik var aðeins 16:15 fyr- ir KA. Síðari hálfleikur var í járnum framan af. Valsmenn fóru utar í sinni vörn og það sló nokkuð á bitið í sókn KA en um miðjan síðari hálfleik gekk allt á afturfótunum og með fimm mörkum í röð komst KA í 25:22. Valsmenn hafa séð það svart- ara, tóku sig á og jafna, 26:26. Þegar rúm mínúta var eftir jafna Valsmenn aftur, 29:29. Jónatan Magnússon skorar fyrir KA þegar 40 sekúndur eru eftir en Heimir Árnason jafnar þegar tíu sekúndur eru eftir. KA- menn hófu leik en með því að brjóta á þeim ótt og títt náðu Valsmenn að koma í veg fyrir skot, ekki fyrr en úr aukaskoti rétt við miðju. „Ég er ekki sáttur, við þurftum tvö stig til að taka efsta sætið í riðl- inum og við fórum með það markmið í leikinn en jafntefli er betra en ekki neitt auk þess að þetta er erfiður úti- völlur,“ sagði skyttan Arnór eftir leikinn. „Við brenndum okkur á því síðast gegn Val, að þeir skora of mik- ið úr hraðaupphlaupum en við náð- um að stöðva það ágætlega í kvöld. Við ætluðum því að spila góða vörn en hún hefur ekki staðið sig í síðustu leikjum. Markvarslan var líka betri en í síðasta leik en það vantaði smá- vegis uppá að þetta hefðist. Það var slæmt þegar Jónatan fór útaf meidd- ur og líka að Þorvaldur Þorvaldsson er veikur heima. Ég held að við höf- um átt skilið að fá tvö stig því við börðumst svo vel og okkur langaði svo mikið í bæði stigin.“ Markús Máni Mikaelson dró vagninn fyrir Val fram eftir leik, Heimir náði upp góðu spili og Örvar í markinu átti góða spretti. „Við lögðum upp með að stöðva Arnór en það gekk engan veginn, hann virðist óstöðvandi en okkur tókst þó að halda aftur af öðrum, til dæmis Einari Loga og Andreus Stelmokas,“ sagði Heimir, sem átti góðan leik. „Við fengum á okkur al- ger heppnismörk en vissum eftir fyrri leikinn á Akureyri, þegar við vorum langt undir en skoruðum níu mörk í röð, að það var hægt að vinna forskot þeirra. Hér var leikinn mjög góður leikur og það var gríðarlega gott að fá þetta stig. Það er ekki síst mikilvægt þegar haft er í huga að innbyrðis viðureignir skipta máli.“ Arnór var illstöðvanlegur og góð byrjun Hafþórs Einarssonar í mark- inu kom sér vel. Jónatan Magnússon stjórnaði leik KA af krafti og ungur strákur, Árni Björn Þórarinsson, sýndi góða takta. Morgunblaðið/Þorkell Einbeittur, miða og skjóta niðri gæti leikmaður KA, Árni Björn Þórarinsson, verið að hugsa rétt áður en hann skoraði eitt af fjórum mörkum sínum gegn Val að Hlíðarenda í gær. Stigum skipt í hörku- leik að Hlíðarenda SITTHVORT stigið eftir 30:30 jafntefli var sanngjörn skipting að Hlíðarenda í gærkvöldi þegar KA sótti Val heim – Valsmenn voru sáttir en KA-menn flestir súrir yfir að fara ekki heim með bæði stig- in. Stigið fá leikmenn fyrir baráttu því þeir fá ekki stig fyrir varn- arleik. Í húfi var efsta sæti deildarinnar en eftir kvöldið halda Hlíð- arendapiltar því og eiga leik til góða en Grótta/KR er tveimur stigum á eftir hinum tveimur og á tvo leiki uppá að hlaupa. Stefán Stefánsson skrifar Við gáfum aðeins eftir í lokin ogmisstum einbeitinguna. Það er stutt í næsta leik við ÍR, sem er einn stærsti leikurinn í þessum riðli í vetur, og við verðum að gera betur þá. En við erum aftur komnir á sigurbrautina og höfum unnið þrjá leiki í röð, en erum sem stendur í 3. sæti með 12 stig, jafnmörg og HK.Við höfum 10 daga til að und- irbúa okkur, en leikurinn í krikanum verður að mínu mati úrslitaleikur um hvort við förum upp úr riðlinum,“ sagði Logi Geirsson, stórskytta FH, í leikslok. Hann sagði jafnframt að FH-ingar hefðu ætlað að spila fastari vörn til að byrja með og nýta hraðaupp- hlaupin betur en þeir gerðu. „Við ákváðum síðan í hálfleik að drífa muninn upp í 10 mörk og byrja að rúlla á liðinu. Það kom sér vel að það er mikil breidd hjá okkur og þá kom Brynjar sérstaklega sterkur inn í vörnina. Ég er hvað ánægðastur með hvað við gátum rúllað vel á hópnum.“ „Margir ljósir punktar“ „Þetta var ágætur leikur, en eins og við höfum farið yfir áður misstum við þetta frá okkur á síðustu 10 mín- útunum í fyrri hálfleik. Þetta er að gerast trekk í trekk hjá okkur. Það voru margir ljósir punktar í þessu hjá okkur, en við náðum t.d. að minnka muninn verulega í seinni hálfleik og komum okkur aftur inn í leikinn. En við töpuðum fyrir liði sem drekkti okkur í hraðaupphlaup- um og það er staðreynd að ekkert lið hefur unnið leik gegn FH síðan 1960 ef þeir komast í hraðaupphlaupin sín,“ sagði Sebastian Alexandersson, markvörður og þjálfari Selfoss. Hjá FH-ingum voru það aðallega Logi og fyrirliðinn Guðmundur sem fóru fyrir sínum mönnum. Elvar Guðmundsson varði vel. Hjá Selfossi spilaði Ramunas Kal- endaskas vel. Þá barðist Haraldur Þorvarðarson af alefli og gaman var að sjá til Arnars Gunnarssonar. FH drekkti Selfossi í hraðaupp- hlaupum FH vann fimm marka sigur á Selfossi í suðurriðli RE/MAX- deildarinnar í handknattleik í gærkvöldi, 27:32. FH-ingar náðu mest 10 marka forskoti í seinni hálfleik en Selfyssingar gáfust þó ekki upp, heldur spiluðu sig aftur inn í leikinn og á tímabili hljóp nokkur spenna aftur í hann. Það voru hins veg- ar þeir Logi Geirsson og Guð- mundur Pedersen sem héldu sínum mönnum á floti í sókn- inni, skoruðu alls 18 af 32 mörk- um liðsins. Í hálfleik var staðan 12:18. Helgi Valberg skrifar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.