Morgunblaðið - 15.11.2003, Page 81
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 81
MEÐ FYRSTU hljóm-
sveitum sem létu á sér
kræla í íslensku hiphopi
voru Skytturnar frá Ak-
ureyri. Þær voru frum-
kvöðlar í að senda frá sér
efni, gáfu út kynning-
ardiskinn SP nokkru áður
en Sesar A og Rottweiler-
hundarnir létu á sér
kræla. Síðan hefur verið
nokkur bið á að sveitin léti
almennilega til sín heyra,
liðsmenn komu í bæinn
öðru hvoru og sýndu að þeir voru í
fremstu röð en hurfu svo norður aft-
ur. Nú er fyrsta breiðskífan, Ill-
gresið, aftur á móti að detta inn,
berst til landsins nú um helgina og
kemur út eftir helgi.
Lifandi hljóðfæraleikur
Það hvað það tók Skytturnar
langan tíma að koma saman plötu
skrifast ekki á hugmyndaþurrð, það
var nóg til af lögum þegar upptökur
hófust fyrir ári. Vinna gekk enda vel
og platan var eiginlega tilbúin þegar
þeir félagar ákváðu að breyta plöt-
unni í grundvallaratriðum; taka
hana upp aftur með lifandi hljóð-
færaleik. „Við byrjuðum til gamans
á að taka eitt lag og breyta því, en
svo hljómaði það svo vel að við
ákváðum að taka þau öll upp aftur,“
segja þeir og bæta við að það hafi
eðlilega tekið sinn tíma.
Þeir segja að það hafi breytt gríð-
arlega miklu að nota lifandi hljóð-
færaleik, eiginlega breytt öllu. „Það
kom allt annað og skemmtilegra
sánd, þetta verður miklu meira en
venjulegar lúppur eins og menn eru
að nota í hiphopi, við fórum að
byggja brýr í lögunum og þróa þau
áfram. Við eigum örugglega ekki
eftir að fara aftur í sama farið, að
fara aftur í tölvurnar, það er mikið
sem okkur langar að prófa á þessu
sviði, við ætlum ekki að stoppa hér.“
Einmanalegt í hiphopi
á Akureyri
Textana vinna þeir Skyttufélagar
hver í sínu horninu en skipta lög-
unum reyndar nokkuð á milli sín, yf-
irleitt er bara einn rappari í lagi, á
plötunni eru fá lög þar sem þeir eru
tveir eða fleiri að rappa. Þeir félagar
voru búnir að koma sér upp hljóð-
veri heima og tóku plötuna upp þar
og útsettu í sameiningu. Þeir ætluðu
líka að gefa skífuna út sjálfir, nenntu
ekki að bíða eftir því að einhver út-
gáfan tæki við sér, en þá æxluðust
mál svo að Sonet og Birta tóku hönd-
um saman um að koma plötunni út.
Þeir Skyttufélagar segja að það sé
einmanalegt að vera í hiphopinu á
Akureyri, fáir í því og fáir að hlusta.
Það sé þó ekki bara af hinu illa, held-
ur getur það orðið til góðs. „Það
hvað það eru fáir í hiphopinu fyrir
norðan þýðir að við getum ekki
treyst á að aðrir eigi eftir að koma
hlutunum af stað, við lærðum að
treysta á okkur sjálfa, að drífa í hlut-
unum sjálfir.“
Norðlenska hiphopsveitin Skytturnar
Treystum á
okkur sjálfa
Dagsljós/Finnbogi
hefur getið af sér Illgresi
FYRSTA sólóplata Óskars Péturssonar,
sem þekktastur er fyrir söng sinn með
Álftagerðisbræðrum, hefur nú verið á
toppi Tónlistans í þrjár vikur og á hann
þar með langvinsælustu plötu landsins nú
um stundir. Platan heitir Aldrei einn á
ferð og þar syngur Óskar innlend sem er-
lend dægurlög; allt frá popplagi eftir Rich-
ard Marx til afrískrar vögguvísu. Platan
hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur og
ekkert lát virðist ætla að verða á þessu
góða gengi. Morgunblaðið sló á þráðinn til
Óskars í gær, og var hann þá í óðaönn að
undirbúa sig fyrir að syngja í jarðarför.
Ný plata frá bræðrunum?
„Já … eins og sagt er þá virðist ekki
vera nein sjáanleg skýring á þessu,“ segir
Óskar og hlær. „Nema það séu kyntöfrar!“
Óskar segist þó efast stórlega um að það
sé ástæðan. Og ekki er farin að dembast
yfir hann poppstjörnutilfinning heldur seg-
ist hann með báða fætur kirfilega á jörð-
inni.
„Þetta hefur auðvitað heldur betur farið
fram úr björtustu vonum engu að síður.“
Óskar kannast þó alveg við þessa rífandi
sölu en þrír hljómdiskar Álftagerð-
isbræðra hafa allir sem einn selst afar vel.
„Ég var frekar taugaóstyrkur þegar við
byrjuðum á plötunni og mér gekk hálfilla í
upphafi,“ segir Óskar einlæglega. „Mér
fannst eins og ég þyrfti að finna upp hjól-
ið. Sem betur fer hætti ég því og fór að
syngja frá hjartanu. Þá fór þetta að
ganga.“
Enginn bræðranna er lærður í söng en
Óskar segist þó hafa notið svolítillar til-
sagnar. Prófgráðurnar eru þó fáar segir
hann og brosir í gegnum símann.
„Það hef ég ekki hugmynd um,“ svarar
hann hins vegar þegar hann er inntur eftir
því hvort eitthvert framhald verði á sóló-
plötugerðinni.
„Það hefur ekkert verið um það rætt.
Eigum við ekki að klára þetta fyrst. Hins
vegar höfum við bræður verið að spjalla
um okkar mál og mér finnst eins og það
verði að gera eina plötu enn (hlær). Við
verðum að lufsast til að gefa frá okkur
efni. Er það ekki?“
Hluti af lífsmynstrinu
Óskar segir sönginn fínustu aukabúbót
en allir eru bræðurnir uppteknir við önnur
störf líka.
„Ég hef alltaf sagt að þetta sé dýrasta
nafnspjald sem hægt er að kaupa sér. Þú
getur haft það eftir mér að ef ég ætlaði
mér að verða ríkur þá myndi ég hætta að
syngja.“
En slíkt kemur að sjálfsögðu ekki til
greina.
„Ég væri löngu hættur ef þetta væri
ekki ástríða númer eitt. Þetta er mér jafn
eðlilegt og að anda og borða. Þetta hefur
alla tíð verið hluti af lífsmynstri mínu. Það
er nú ekkert flóknara en það.“
Óskar Pétursson á mest seldu plötu landsins um þessar mundir
„Jafn eðlilegt og að anda og borða“
Morgunblaðið/Kristján
Óskar Pétursson. Hann telur ólíklegt að kyn-
töfrar séu að selja plötuna sína.
Útgáfutónleikar vegna plötunnar verða í
Salnum í Kópavogi á sunnudagsvöldið kl.
20.00. Með Óskari spila þeir Karl Olgeirs-
son á píanó, Sigfús Örn Óttarsson á
trommur, Jón Rafnsson á kontrabassa og
Stefán Magnússon á gítar.
arnart@mbl.is