Morgunblaðið - 15.11.2003, Qupperneq 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
KARLMAÐUR um sjötugt lést í umferð-
arslysi á Reykjanesbraut í gær, þegar ekið
var aftan á kyrrstæðan bíl hans úti í veg-
kanti. Slysið varð á Reykjanesbrautinni
milli Voga og Grindavíkurafleggjara og
voru tildrögin þau að ökumaður annarrar
bifreiðar á leið til Reykjavíkur ætlaði að
víkja út í kant til að greiða fyrir fram-
úrakstri, en lenti þá á kyrrstæðu bifreiðinni
með fyrrgreindum afleiðingum. Bifreiðin
sem ekið var á kastaðist út af veginum við
höggið. Í hvorugri bifreiðinni voru farþegar
með ökumönnunum en þeir voru báðir flutt-
ir á slysadeild þar sem annar þeirra var úr-
skurðaður látinn. Hinn mun ekki hafa slas-
ast alvarlega.
Lögreglunni í Keflavík barst tilkynning
um slysið kl. 14:41 og var Reykjanesbraut-
inni lokað í eina og hálfa klukkustund á
meðan björgunarlið vann á vettvangi.
Tækjabifreið slökkviliðs var kölluð á vett-
vang en ekki reyndist þörf á henni á slys-
stað, að sögn lögreglunnar.
Ekki er unnt að greina frá nafni hins
látna að svo stöddu.
Þetta er í annað skipti á stuttum tíma
sem banaslys verður á Reykjanesbrautinni
á þessum slóðum. Hinn 24. september lést
annar karlmaður á sjötugsaldri eftir árekst-
ur tveggja bifreiða á gatnamótum Grinda-
víkurafleggjara og Reykjanesbrautar.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Kyrrstæða bifreiðin kastaðist út fyrir veg
á Reykjanesbrautinni og lést ökumaður
hennar við áreksturinn.
Karlmaður
lést í um-
ferðarslysi
EIGENDUR jarðarinnar Stafafells í Lóni hafa
þegar ákveðið að höfða mál á hendur ríkinu til
að fá úrskurði óbyggðanefndar hnekkt frá því
í gær um að nyrðri hluti Lónsöræfa teljist
þjóðlenda, þ.m.t. Kollumúli og Víðidalur. Þá
telur lögmaður landeigenda Skálafells og Hof-
fells, Ragnar Aðalsteinsson, allar líkur á að
sínir umbjóðendur höfði mál vegna úrskurð-
arins.
Allur Vatnajökull, auk nokkurra fjalla, er
sömuleiðis þjóðlenda að mati óbyggðanefndar
sem úrskurðaði um fimm svæði í sveitarfé-
laginu Hornafirði, áður Austur-Skaftafells-
sýslu. Svæðin eru Öræfi, Suðursveit, Mýrar,
Nes og Lón. Flestir aðrir landeigendur una vel
við sitt og á máli sumra þeirra er fylgdust með
uppkvaðningu úrskurða á Höfn í gær, með að-
stoð fjarfundabúnaðar, töluðu um sigur fyrir
bændur.
Ólafur Björnsson, lögmaður landeigenda
Stafafells, sagði að á þeirri jörð væri komin
þjóðlenda sem hefði verið keypt af ríkinu árið
1913 með öllum gögnum og gæðum. Var jörð-
in keypt af langafa núverandi landeigenda
fyrir 8.500 krónur. Sagði Ólafur eigendur
vera með þinglýst landamerkjabréf í höndum
og taldi hann að úrskurður óbyggðanefndar
um þetta svæði gengi gegn nýjum dómi Hér-
aðsdóms Suðurlands um afrétti í uppsveitum
Árnessýslu, sem ríkið hefur áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Gunnlaugur Ólafsson, einn landeigenda
Stafafells, telur að nú séu í óvissu ýmis áform
sem hafa verið uppi um uppbyggingu ferða-
þjónustu í Lónsöræfum. Til hafi staðið að vígja
þar landsins mestu göngubrú næsta sumar en
nú viti menn ekki hvað gera skuli í framhald-
inu. Telur Gunnlaugur það með ólíkindum að
ríkið geti selt land og náð því aftur til baka
frítt tæpri öld síðar.
Óbyggðanefnd úrskurðar Vatnajökul og Lónsöræfi sem þjóðlendur
Morgunblaðið/Jim Smart
Lögmenn landeigenda skoða úrskurði óbyggðanefndar, fremstir á myndinni eru Sigurður Jónsson, Ólafur Björnsson og Ragnar Aðalsteinsson.
Eigendur íhuga málssókn
Vatnajökull/4
RANNSÓKN skattrannsókna-
stjóra ríkisins á meintum skatta-
lagabrotum Jóns Ólafssonar lauk
fyrir nokkru og er embætti ríkis-
skattstjóra nú með málið til með-
ferðar.
Ríkisskattstjóri mun ákvarða
endanlega skattgreiðslu Jóns og
einnig hvort málið verður hugsan-
lega sent í opinbera meðferð til
ríkislögreglustjóra eða hvort það
sæti sektarmeðferð hjá yfirskatta-
nefnd, eftir að viðkomandi hefur
verið gefinn kostur á að tjá sig um
málið. Við val á hvor leiðin verði
farin þarf að taka tillit til þess
hvert sé eðli brotsins og hvort við-
komandi hafi gerst sekur um lang-
varandi brotastarfsemi.
Málið er mikið að vöxtum og
ennþá liggja ekki fyrir staðfestar
tölur um það hversu miklu skatta-
yfirvöld telja að skotið hafi verið
undan skatti. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins munu þær
fjárhæðir vera talsvert lægri en
skilja mátti á frumskýrslu skatt-
rannsóknastjóra, þ.e. rúmir þrír
milljarðar króna, en gætu numið
allt að tveimur milljörðum króna.
Skattamál Jóns Ólafssonar
sent til ríkisskattstjóra
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á Málstofu um alþjóðlegar
fjárfestingar, sem haldin var í
Gerðarsafni í gær á vegum Lands-
banka Íslands, að allt benti til að
Landssími Íslands yrði seldur á
næstu mánuðum.
„Nú er hafinn undirbúningur að
því að selja Landssíma Íslands.
Markaðsaðstæður hafa breyst á
undanförnum misserum og því er
það mat ríkisstjórnarinnar að nú sé
lag til að færa þetta mikla fyrirtæki
úr höndum ríkisins og til einkaaðila.
Að ýmsu er að hyggja við sölu þessa
fyrirtækis og nauðsynlegt að vanda
mjög allan undirbúning. En allt
bendir til að af sölunni geti orðið á
næstu mánuðum og hefur þá verið
stigið mjög stórt skref í einkavæð-
ingarferlinu sem staðið hefur nú í
rúman áratug,“ sagði Davíð.
Þá vakti Davíð í ræðu sinni at-
hygli á nýlegum ummælum for-
manns Starfsgreinasambands Ís-
lands, Halldórs Björnssonar. „Ég
vil sérstaklega vekja athygli á um-
mælum formanns Starfsgreina-
sambandsins sem sagði nýverið að í
ljósi reynslu undanfarinna kjara-
samninga væri skynsamlegt að
semja til lengri tíma, því lengri
samningar gæfu launafólki færi á
að semja um meiri kaupmátt en
gerlegt er í styttri samningum.
Slíkir samningar væru líklegir til að
tryggja meiri stöðugleika. Ég tel að
þessi yfirlýsing gefi fyrirheit um að
þótt fast verði tekist á í kjarasamn-
ingum á næstu misserum muni sú
hugsun ráða för að markmiðið er
aukinn kaupmáttur, stöðugleiki og
öflugt íslenskt atvinnulíf.“
Líklegt að Síminn verði
seldur á næstu mánuðum
Allt bendir til/13
Davíð Oddsson á málstofu um fjárfestingar
TVEIMUR síðustu skákum skákeinvígis
Friðriks Ólafssonar og Bents Larsens lauk
með jafntefli í gærkvöldi. Friðrik hafði þó
nokkru betri stöðu og var peði yfir í báð-
um skákunum.
Hann sigraði því í einvíginu með fimm
vinningum á móti þremur. Sex skákum
lauk með jafntefli, Friðrik vann tvær og
Bent Larsen enga. Einvígið hófst síðastlið-
inn þriðjudag og því lauk í gærkvöldi en
tefldar hafa verið tvær skákir á kvöldi.
Friðrik og Bent mættust hér á landi árið
1956 í skákeinvígi um Norðurlandameist-
aratitilinn. Bent hafði betur í þeirri við-
ureign og varð því Norðurlandameistari
en það var Íslendingum þungbært að tapa
fyrir Dönum.
Morgunblaðið/Ómar
Tvö jafntefli
og öruggur
sigur Friðriks
FERGVENE Kariy lét æsku-
drauminn rætast á fertugsafmæl-
inu sínu þegar hann heimsótti
jafnöldru sína, Surtsey, í fyrsta
skipti. Fergvene, sem býr í París
og starfar þar í banka, segir að
alveg frá því að hann var lítill
drengur hafi hann dreymt um að
sjá þessa íslensku eyju sem mynd-
aðist sama dag og hann fæddist.
„Amma mín geymdi frétt úr
frönsku dagblaði þar sem stóð að
ný eyja hafi myndast við Ísland
og búið væri að skíra hana Surts-
ey. Ég var strax ákveðinn í að
heimsækja hana einhvern tím-
ann. Nú fannst mér kominn tími
til og ákvað að halda upp á af-
mælið mitt eins nálægt Surtsey
og mögulegt væri.“ Fergvene var
hissa á hversu stór eyjan var.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Lét æsku-
drauminn
rætast