Morgunblaðið - 21.11.2003, Síða 51
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 51
FÓLK
„ÉG er ánægður með leikinn,
liðið lék vel og þetta var bar-
áttuleikur og það hentar mér
ágætlega,“ sagði Gylfi Ein-
arsson sem stóð sig vel á
miðjunni. Hann sagði gaman
að vera kominn í landsliðið á
nýjan leik.
„Við verðum að átta okkur
á því að við vorum að spila
við mjög sterkt lið og send-
ingar okkar voru ekki alltaf
alveg nógu nákvæmar, en við
lærum á þessu. Maður er
auðvitað aldrei fyllilega
ánægður því það er alltaf
hægt að bæta sig.
Ég held að við höfum sýnt
að við eigum stóran hóp
frambærilegra spilara og í
rauninni eigum við Íslend-
ingar fáránlega marga at-
vinnumenn í fótbolta, sé mið-
að við höfðatölu. Við áttum
fínan leik og fengum fleiri
hættuleg færi en þeir og það
er ekki á hverjum degi sem
við sjáum Helga misnota þrjú
færi, ætli keppnin á milli
ungra og eldri leikmnanna á
æfingunum hafi ekki farið
með hann,“ segir Gylfi og
vitnar þar til þess að yngri
leikmenn liðsins höfðu betur í
einvíginu við þá eldri á æf-
ingunum.
„Aldrei
fyllilega
ánægður“
ÞRÁTT fyrir að „aðeins“ um
17.000 áhorfendur væru á vellinum
í San Francisco er Ísland og
Mexíkó áttust við – hann tekur ríf-
lega 40.000 manns – var mikil
stemmning enda kunna Mexíkanar,
sem eru fjölmennir í Kaliforníu, að
skemmta sér við að horfa á fót-
bolta.
LÚÐRABLÁSTUR var nærri því
óbærilegur á stundum og litadýrðin
mikil. Þó svo völlurinn hafi verið
tæplega hálfur virkaði það ekki
þannig því efstu sætin í stúkunni
voru tóm, en þau eru lengst uppi í
rjáfri þannig að hann var þétt set-
inn bekkurinn niðri við völlinn og
næsta hæð þar fyrir ofan.
ÞRÍR leikmenn fengu nýliða-
merki KSÍ í búningsherberginu að
leik loknum. Kristján Örn Sigurðs-
son var í byrjunarliðinu og lék allan
tímann, en þetta var hans fyrsti
landsleikur. Þeir Ólafur Ingi Skúla-
son og Björgólfur Takefusa komu
inn á og fengu aðeins að reyna sig
og fengu einnig nýliðamerkið.
BÚNINGSHERBERGIN voru
ekki af verri endanum. Stórir og
miklir skápar og margir enda
hafnaboltalið aðeins fjölmennara en
fótboltalið. Sófar á víð og dreif um
búningsherbergið, kaffivél og tevél
auk kælis með drykkjarföngum.
Inn af herberginu eru nokkur minni
herbergi, fyrir þjálfara og aðstoð-
armenn – eitt herbergi á mann og
auk þess aðstaða í sérstöku her-
bergi fyrir lækni og nuddara. Sann-
arlega glæsilegur aðbúnaður.
MEXÍKANAR létu bíða nokkuð
eftir sér þegar síðari hálfleikur átti
að hefjast því dómarinn og hans að-
stoðarmenn voru búnir að vera á
vellinum í einar sjö mínútur og ís-
lenska liðið í fimm mínútur áður en
„heimamenn“ mættu á svæðið.
JORGE Campos, hinn litskrúðugi
markvörður mexíkanska landsliðs-
ins kom inn á í síðari hálfleik í
treyju númer eitt. Hann fór þó ekki
í markið heldur í fremstu víglínu,
en hann er, auk þess að vera slyng-
ur markvöður, ágætis útileikmaður.
Þetta var kveðjuleikur hans með
landsliðinu og í fyrsta sinn sem
hann stendur ekki á milli stanganna
í marki Mexíkana. Hann náði ekki
að setja mark sitt á leikinn, enda í
strangri gæslu vel skipulagðrar
varnar Íslands.
BLAÐAMENN frá Mexíkó, sem
fylgdust með leiknum, sögðu að
styrkleikalisti FIFA gæfi ekki rétta
mynd af stöðu mexíkanska liðsins,
en það er í fimmta sæti listans. Þeir
sögðu að Mexíkó spilaði svo marga
leiki við sér slakari þjóðir og fengi
alltaf einhver stig og það væri eðli-
legra að liðið væri í kringum um 15.
sætið. Einn orðaði það svo að ef
Mexíkó yrði flutt til Evrópu yrði
knattspyrnulið þess í 130. sæti!
Fulldjúpt í árinni tekið.
Helgi sagðist helst hafa viljað sjáskot sitt inni í fyrri hálfeik,
þegar hann og Veigar Páll komust
tveir á móti einum,
en það fór rétt
framhjá vinklinum.
„Veigar Páll segist
hafa kallað á bolt-
ann, en hávaðinn var svo mikill að
maður heyrði auðvitað ekki neitt.
Ég ákvað um leið og ég fékk boltann
að fara einn á móti einum á varn-
armanninni og gerði það. Ég heyrði
í hálfleik að hann hefði verið í fínu
færi, en því miður sá ég það ekki og
heyrði ekki í honum.
Þegar ég náði boltanum af mark-
verðinum þurfti ég að teygja mig of
mikið í boltann og hitti hann ekki
nógu vel. Færið var reyndar dálítið
þröngt, en á góðum degi átti þessi
bolti líka að vera inni,“ sagði Helgi.
Hann sagðist ekki hafa vitað við
hverju mátti búast af Mexíkönum.
„Maður vissi ekki mikið um þá ann-
að en að þeir væru flinkir fótbolta-
menn, teknískir og fljótir. En ég
held að við höfum sýnt í dag að þó
svo þeir séu talsvert fyrir ofan okk-
ur á FIFA-listanum þá séum við
ekkert verri fótboltamenn en þeir
og við vorum óheppnir að vinna
ekki,“ sagði Helgi.
Taugaveiklaður í byrjun
„Þetta var rosalega gaman. Mér
fannst ég ekkert stressaður fyrir
leikinn, en svo virtist ég nokkuð
taugaveiklaður í byrjun leiks,“ sagði
nýliðinn Kristján Örn Sigurðsson
um fyrsta landsleikinn sinn. „Það
má kannski segja að liðið hafi allt
verið frekar á taugum fyrstu mín-
úturnar en svo lagaðist þetta. Ég
var alveg hræðilegur fyrstu mínút-
urnar enda mikil viðbrigði að spila
svona leik, sérstaklega vegna þess
að það er langt síðan maður hefur
spilað,“ sagði Kristján.
Hann sagðist ekki hafa vitað út í
hvað hann væri að fara, þekkt lítið
til Mexíkana. „Það var virkilega
gaman að taka þátt í þessu og mér
fannst vörnin virka vel hjá okkur
þrátt fyrir að við værum að spila
saman í fyrsta skiptið. Það var mjög
gaman að vera í byrjunarliðinu.
Þetta er í þriðja sinn sem ég er með
í landsliðshópnum og það er óneit-
anlega miklu skemmtilegra að fá að
spila en að sitja á bekknum,“ sagði
Kristján Örn.
Ljósmynd/Scot Tucker
Helgi Sigurðsson hefur hér betur í baráttu við Octavio Valdez, Mexíkó, og skallar knöttinn.
Helgi Sigurðsson fékk þrjú gullin tækifæri til að skora mark gegn Mexíkó
Heppnin ekki með
mér að þessu sinni
„ÞAÐ var náttúrlega ferlega svekkjandi að ná ekki að skora úr þeim
marktækifærum sem ég fékk. Ég er þó mjög ánægður með leikinn –
það er frábært að ná að skapa sér þetta mörg færi á móti einu af
bestu liðum heims. Því miður féll þetta ekki fyrir mig í dag – heppn-
in var ekki með mér að þessu sinni,“ sagði Helgi Sigurðsson, lands-
liðsmiðherji.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD ÍR
sagði í gærkvöld upp leikmanna-
samningi við Reggie Jessie, sem
leikið hefur með meistaraflokki
liðsins það sem af er leiktíðar. Á
heimasíðu félagsins segir að stjórn
félagsins og leikmenn hefðu verið
á þeirri skoðun að leikmaðurinn
hafi ekki verið rétti leikmaðurinn
fyrir liðið, ætli það sér að ná betri
árangri.
ÍR er sem stendur í neðsta sæti
Intersportdeildarinnar með 2 stig
að loknum 7 umferðum en ÍR hef-
ur aðeins lagt Keflavík á heima-
velli sínum til þessa. Reggie Jessie
skoraði 21,7 stig að meðaltali fyrir
ÍR í 7 leikjum, tók tæp 10 fráköst í
leik og gaf 3,7 stoðsendingar að
meðaltali. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er líklegt að bak-
vörðurinn Eugene Christopher
komi til ÍR-inga á ný en hann lék
með liðinu á sl. leiktíð og skoraði
um 21 stig að meðaltali í þeim 20
leikjum sem hann lék í deildinni.
ÍR-ingar vonast til þess að nýr
leikmaður verði í leikmannahópn-
um sem fer til Ísafjarðar á
fimmtudag í næstu viku þar sem
leikið verður gegn KFÍ.
Jessie er þriðji leikmaðurinn á
yfirstandandi keppnistímabili sem
fer frá liði sínu. Kyrem Massey fór
frá Breiðablik eftir 2 leiki og Carl-
ton Brown var sagt upp störfum
eftir aðeins einn deildarleik með
liði Tindastóls.
ÍR-ingar riftu samningi
sínum við Reggie Jessie