Morgunblaðið - 20.01.2004, Side 1
Þrem bjargað úr flak-
inu seint í gærkvöldi
AÐ minnsta kosti tveir létust og
16 var enn saknað í gærkvöldi eft-
ir að norska flutningaskipinu
Rocknes hvolfdi í blíðskaparveðri
skammt frá Björgvin síðdegis í
gær. Ellefu manns hafði verið
bjargað, þar af þrem sem náðust
út úr skipsflakinu um kl 22.15 í
gærkvöldi, að því er fram kom á
fréttavef Bergens Tidende.
Björgunarmenn höfðu skorið
gat á botn skipsins og heyrt köll
inni í flakinu. Aðstæður voru erf-
iðar því skipið var óstöðugt, ísing
hlóðst á það og það var tekið að
sökkva að hluta. Fleiri voru taldir
vera á lífi í flakinu.
Óljóst var í gærkvöldi hver or-
sök slyssins var. Neyðarkall barst
frá skipinu um klukkan 15.30 í
gær að íslenskum tíma, en VG
hafði eftir sjónarvottum að því
hefði hvolft á fáeinum sekúndum.
„Það var óhugnanlegt hvað þetta
gerðist hratt,“ hefur blaðið eftir
Rolf Kjærgård, sem sá út um
stofugluggann hjá sér er slysið
varð, aðeins um 200 metra frá
Björey.
Annar sjónarvottur tjáði Berg-
ens Tidende að hann hafði séð
menn stökkva frá borði áður en
skipinu hvolfdi. Augljóst hefði
verið að eitthvað alvarlegt hefði
komið fyrir áður en Rocknes
fórst. „Ég heyrði mikið flaut og
leit út um gluggann. Ég sá strax
að ekki var allt með felldu. Rock-
nes virtist vera stjórnlaust og
stefndi á land,“ hafði blaðið eftir
Stein Erik Marthinsen. Fjöldi
manns varð vitni að slysinu.
Flautaði ótt og títt
„Ég heyrði skip flauta ótt og
títt. Svo sveigði það á bakborða,
sem mér þótti undarlegt. Ég taldi
að það væri að reyna að forðast að
sigla á annað skip. Því hvolfdi á fá-
einum sekúndum,“ sagði Kjær-
gård. Tveir menn komust á kjöl
strax eftir að skipinu hvolfdi og
var þeim bjargað um borð í þyrlu.
Fjölmennt björgunarlið á skip-
um, bátum og þyrlum kom fljótt á
vettvang, að því er Associated
Press hafði eftir Anders Bang-
Andersen, talsmanni Björgunar-
miðstöðvar Suður-Noregs. Her-
stöð með miklum björgunarbún-
aði væri ekki langt frá
slysstaðnum. Flak skipsins var
dregið nær landi þar til það tók
niðri og því hafði ekki verið talin
hætta á að það sykki.
Rocknes var fulllestað grjóti og
var á leið frá Björgvin til Þýska-
lands. Í áhöfn voru 23 Filippsey-
ingar, þrír Hollendingar, tveir
Norðmenn og einn Þjóðverji.
Tveir skipstjórar voru á skipinu,
Norðmaður og Þjóðverji, og tók
annar þeirra þátt í björgunarað-
gerðunum.
Nýbúið var að setja olíu á skipið
er það fórst, og á fréttavef Berg-
ens Tidende sagði að megnið af ol-
íunni hefði lekið úr því. Megn olíu-
fnykur væri á slysstaðnum.
AP
Norskur dráttarbátur við flak Rocknes í gærkvöldi. Aðstæður til björgunaraðgerða voru erfiðar, ís hlóðst á flakið og það var tekið að sökkva.
Sextán saknað eftir að norskt flutningaskip fórst skammt frá Björgvin
Chicago er
stórsigur
Skínandi umsögn um söngleik
Borgarleikhússins | Listir 25
Nútíma sjón-
varpskrimmi
Allir litir hafsins eru kaldir komin
í tökur | Fólk í fréttum 52
Hollmeti
með hraði
Á næstu grösum opnar
skyndibitastað | Daglegt líf 24
STOFNAÐ 1913 19. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
VIÐRÆÐUR um kaup flugfélagsins Atlanta á
Shannon MRO, sem er eitt af þremur stærstu
fyrirtækjum á Írlandi á sviði viðgerða og við-
halds á flugvélum, eru nú á lokastigi. Fyrir-
tækið er staðsett við Shannon-flugvöll á Ír-
landi, starfsmenn þess eru rúmlega 150 talsins
og var veltan á síðasta ári tæplega milljarður
íslenskra króna.
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta, seg-
ir um gott viðskiptatækifæri að ræða og fátt
geti komið í veg fyrir undirskrift samninga
sem stefnt er að í næsta mánuði. Engar breyt-
ingar eru fyrirhugaðar á tæknideild Atlanta á
Íslandi, að sögn Hafþórs.
Gera áætlanir ráð fyrir því að velta Shannon
MRO aukist á þessu ári um 500 milljónir og
verði um 1,5 milljarðar. Starfsmönnum verður
fjölgað um þrjá tugi vegna vinnu við þrjár nýj-
ar flugvélategundir sem bætast í hópinn vegna
eignarhalds Atlanta. Íslandsflug, sem að hluta
er í eigu sömu aðila og Atlanta, mun einnig fá
þjónustu hjá Shannon með sínar vélar.
Kevin O’Sullivan, fjármálastjóri Shannon
MRO, segir að eftir næsta ár sé ætlunin að
auka veltuna um 10% árlega, eða þar til 400
þúsund útseldum vinnustundum verði náð í
flugskýlinu á ári. Stefnt er að því að þessu tak-
marki verði náð fyrir árslok 2006.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, John
O’Loughlin, segist binda miklar vonir við
áform nýrra eigenda og að starfsmenn hafi
tekið tíðindunum vel, en aðaleigandi Atlanta,
Magnús Þorsteinsson, hélt fund með þeim í
upphafi ársins.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Einn 153 starfsmanna Shannon MRO að
vinna við Boeing 727-100 fraktvél frá UPS.
Atlanta að kaupa írskt fyrir-
tæki í viðhaldi á flugvélum
Áætluð
ársvelta 1,5
milljarðar
Atlanta kaupir/6
TUTTUGU og einn
umsækjandi er um
nýtt embætti prests í
Mosfellsprestakalli í
Kjalarnesprófasts-
dæmi. Þar af eru
sautján konur. Halldór
Reynisson, verk-
efnastjóri á Bisk-
upsstofu, telur að
aldrei hafi svo margir sótt um eitt embætti
og ennfremur að aldrei áður hafi eins marg-
ar konur verið meðal umsækjenda, en þær
eru sautján. 4
17 konur sækja um
Mosfellsprestakall
♦♦♦
FLUTNINGASKIPIÐ Rocknes
var smíðað árið 2001 og hét þá
Kvitnes en var endurbyggt á síð-
asta ári og nafni þess breytt.
Það var 166 m langt og gat bor-
ið 28.500 tonn. Kvitnes flutti
m.a. malbikunarefni hingað til
lands 2002 og hér er það í
Helguvík. Rocknes er í eigu hol-
lenska fyrirtækisins Van Oord
ACZ og var smíðað 2001 í skipa-
smíðastöðinni J.J. Sietas Ship-
yard í Hamborg í Þýskalandi.
Skipið er gert út af norska fyrir-
tækinu Jebsen Management og
hefur verið í flutningum fyrir
Norsk Hydro.
Rocknes
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
JOHN Edwards öldungadeildarþingmaður er einn þeirra sem vonuðust
eftir sigri í forkosningum demókrata í Iowa, sem fram fóru í gærkvöldi.
Átta berjast um að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins.
AP
Edwards vongóður
ARIEL Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, hefur gefið fyr-
irmæli um endurskoðun á bygg-
ingu 700 km múrs á
Vesturbakkanum, í því augna-
miði að draga úr þeim þjáning-
um sem bygging múrsins valdi
Palestínumönnum. Þetta var haft
eftir ónafngreindum, háttsettum,
ísraelskum embættismanni í
gær.
Hefði Sharon falið nefndum að
kanna möguleika á breytingum á
múrnum, hvar hann yrði byggð-
ur og hvaða möguleikar væru á
að auðvelda Palestínumönnum að
komast í gegnum hann.
Þegar er búið að reisa um
fjórðung múrsins, og segja Ísra-
elar að hann sé nauðsynlegur til
að vernda ísraelska borgara fyrir
sjálfsmorðsárásum og öðrum
voðaverkum herskárra Palest-
ínumanna. En bygging múrsins
hefur komið illa niður á tugum
þúsunda palestínskra borgara
sem vegna hans komast ekki til
vinnu sinnar, að ræktarlöndum
sínum og ekki í skóla eða á
sjúkrahús.
Sharon vill end-
urskoða múrinn
Jerúsalem. AP.