Morgunblaðið - 20.01.2004, Síða 17
Helmingur
styður sjálf-
stæðissinna
FÆREYINGAR ganga að kjörborð-
inu í þingkosningum í dag. Helming-
ur þjóðarinnar hyggst kjósa einn
hinna fjögurra flokka sem styðja
sjálfstæði, þ.e. Fólkaflokkinn, Þjóð-
veldisflokkinn, Sjálfstýrisflokkinn
eða Miðflokkinn, en hin 50% styðja
flokkana tvo sem vilja áfram halda
sambandinu við Danmörku, Sam-
bandsflokkinn og Jafnaðarflokkinn,
samkvæmt Gallupkönnun sem gerð
var fyrir ríkisútvarp Færeyja.
Samt sem áður er búist við því að
síðarnefndu flokkarnir, sem eru í
stjórnarandstöðu, nái meirihluta og
bindi þannig enda á sex ára meiri-
hluta sjálfstjórnarflokkanna. Erfitt
er að sjá fyrir sér annað en að Sam-
bandsflokkurinn og Jafnaðarflokk-
urinn myndi stjórn og þá líklega með
öðrum smáflokki á þinginu, að sögn
Jógvans Mørkøre félagsfræðings við
Háskólann í Færeyjum.
„Sjálfstæðisfleyið sokkið“
Færeyska landstjórnin féll í byrj-
un desember í fyrra og Anfinn Kalls-
berg, lögmaður Færeyja, sagði af
sér eftir að Þjóðveldisflokkurinn
lýsti yfir vantrausti á hann. Taldi
flokkurinn að Kallsberg hefði
skrökvað að þjóðinni og misnotað
stöðu sína sem lögmaður. Kveikjan
að því var bók þar sem sagði að
Kallsberg, sem er
endurskoðandi,
hefði fyrir 20 ár-
um flutt fé með
ólöglegum hætti
milli fyrirtækja
„Ég á erfitt
með að sjá, að
þessir flokkar
geti aftur unnið
saman,“ segir
Jógvan. „Sjálfstæðisfleyið er sokkið
vegna þessara bresta í samstarfinu.
Fólk sér að þetta gengur ekki og því
vænti ég þess að nú hefjist tímabil
þar sem fólk segi: nú hættum við að
hugsa um sjálfstæði og förum að ein-
beita okkur að öðrum hlutum.“
Jarðgöng til Noregs
Þá geta Færeyingar einnig vænst
þess að fá nýjan lögmann og að mati
Jógvans er Lisbeth L. Petersen lík-
legur kostur en hún er formaður
Sambandsflokksins. Kannanir
benda einmitt til þess að Sam-
bandsflokkurinn fái mest fylgi í
kosningunum en Þjóðveldisflokkur
Högna Hoydals verði fyrir mestu
fylgistapi. Sjö flokkar bjóða fram,
fjórir stórir en þrír minni. Nýr flokk-
ur, Skemmtilegi flokkurinn, vill m.a.
grafa jarðgöng til Noregs svo Fær-
eyingar geti leitað víkingaarfsins.
Þingkosningar í Færeyjum í dag
Þórshöfn. Morgunblaðið.
Anfinn Kallsberg
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 17
DÓMSTÓLL í Stokkhólmi úrskurð-
aði í gær að Mijailo Mijailovic, sem
hefur viðurkennt að hafa orðið Önnu
Lindh, fyrrverandi utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, að bana, þyrfti að
gangast undir ýtarlega geðrannsókn
áður en dómur yrði kveðinn upp í
málinu. Gert er ráð fyrir að geðrann-
sóknin taki fjórar til fimm vikur.
Réttarhöldunum lauk í gær og
lögmaður sakborningsins, Peter
Althin, krafðist þess að Mijailovic
yrði látinn laus og sýknaður af
ákærunni. Agneta Blidberg sak-
sóknari krafðist þess hins vegar að
sakborningurinn yrði dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi fyrir morð að yfirlögðu
ráði.
Dómstóllinn úrskurðaði að Mij-
ailovic ætti að vera áfram í gæslu-
varðhaldi þar sem hætta væri á að
ella myndi hann halda áfram glæpa-
verkum og í úrskurði dómsins sagði
að lögð hefðu verið fram sannfær-
andi gögn sem sýndu að Mijailovic
hefði framið þann verknað sem hann
er sakaður um.
Mijailovic verður fluttur á Hudd-
inge-sjúkrahúsið þar sem hópur
lækna mun rannsaka hann. „Rann-
sóknin hefst um leið og formleg ósk
kemur um það frá réttinum, senni-
lega ekki síðar en á þriðjudag,“
sagði Marianne Kristiansson yfir-
réttarlæknir.
Komist geðlæknarnir að þeirri
niðurstöðu að Mijailovic þjáist af al-
varlegum geðsjúkdómi verður hann
væntanlega dæmdur til vistar á rétt-
argeðdeild en ekki í fangelsi.
Agneta Blidberg saksóknari sagði
að árásin á Lindh hefði verið gerð að
yfirlögðu ráði og því ætti að dæma
Mijailovic í lífstíðarfangelsi. Peter
Althin sagði hins vegar að skjól-
stæðingur sinn hefði heyrt raddir í
höfði sér og hefði verið undir áhrif-
um lyfja. „Mijailovic viðurkennir að
hann hafi notað hníf við árásina og
valdið þeim sárum sem drógu Önnu
Lindh til dauða,“ sagði Althin. „En
hann neitar því að hann hafi ætlað
að valda dauða hennar.“
Althin sagði einnig að saksóknar-
ar hefðu ekki sannað að Mijailovic
hefði ætlað að myrða Lindh þegar
hann fór inn í NK-verslunarmiðstöð-
ina í Stokkhólmi 10. september í
fyrra. Saksóknarinn sagði hins veg-
ar að ekkert benti til þess að Mijail-
ovic væri haldinn svo alvarlegum
geðsjúkdómi að hann hefði ekki vit-
að hvað hann gerði.
Réttarhöldum yfir banamanni Önnu Lindh lokið
Mijailovic á að gang-
ast undir geðrannsókn
Dómur kveðinn upp eftir fjórar til fimm vikur
Stokkhólmi. AP, AFP.
Reuters
Teikning frá réttarhöldunum í gær. Mijailovic er næstur á myndinni.