Morgunblaðið - 20.01.2004, Síða 20
AKUREYRI
20 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SLÖKKVILIÐSMENN á Akureyri,
með Erling Þór Júlínusson
slökkviliðsstjóra í broddi fylk-
ingar, voru að prófa nýjan björg-
unarbúnað í sjónum við smábáta-
bryggjuna við Torfunef í gær.
Slökkviliðið hefur eignast flotbún-
inga og kafarabúning sem slökkvi-
liðsstjórinn sjálfur var að prófa,
enda með kafararéttindi. Erling
hafði kynnst flotgöllunum á nám-
skeiði í Bandaríkjunum og hann
sagði þá henta vel við íslenskar
aðstæður. Slökkviliðsmennirnir
léku sér á ísnum og í sjónum og
voru hinir ánægðustu með bún-
aðinn.
Prófuðu nýjan björgunarbúnað
Morgunblaðið/Kristján
Slökkviliðsmennirnir fundu ekki fyrir kulda í nýju flotgöllunum sem þeir voru að prófa í ísköldum sjónum.
Morgunblaðið/Kristján
Erling Þór Júlínusson slökkviliðs-
stjóri kemur upp um vök í sjónum.
HELENA Ólafsdóttir, landsliðs-
þjálfari A-landsliðs kvenna í knatt-
spyrnu, var gestur á fótboltadegi
fyrir stelpur sem haldinn var í
Boganum á Akureyri sl. sunnudag.
Helena sá m.a. um æfingu fyrir 2.
flokk og meistaraflokk en henni til
aðstoðar var landsliðskonan Íris
Andrésdóttir. Íþróttafélögin Þór
og KA sáu sameiginlega um fram-
kvæmd fótboltadagsins, sem var
sérstaklega fyrir stúlkur á grunn-
skólaaldri. Ágæt mæting var í
Bogann og fundu flestir eitthvað
við sitt hæfi. Yngri stelpurnar
tóku þátt í boltaþrautum eða létu
mæla hversu fast þær gátu skotið.
Það voru þó stelpurnar í 3. flokki
félaganna sem opnuðu daginn með
æfingaleik, þar sem góð tilþrif
sáust. Þá fengu þátttakendur plak-
at af íslenska kvennalandsliðinu
að gjöf, auk þess sem þeim var
boðið upp á veitingar.
Morgunblaðið/Kristján
Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu,
önnur f.h., ræðir við yngri og eldri fótboltastelpur í Boganum.
Landsliðsþjálfari
kvenna í heimsókn
FÆRRI en áður brutu umferðar-
lög í umdæmi Lögreglunnar á Ak-
ureyri að því er fram kemur í yf-
irliti yfir helstu málaflokka. „Það
vekur nokkra athygli að umferð-
arlagabrotum fer fækkandi og það
er vel,“ sagði Daníel Guðjónsson,
yfirlögregluþjónn á Akureyri. „Ég
álít að hluti af skýringunni á því sé
að við höldum uppi mjög virku og
öflugu eftirliti og svo hefur verið á
síðustu árum. Ökumenn eru greini-
lega farnir að taka tillit til þess,
einkum hvað varðar akstur innan-
bæjar og hér í nágrenninu. Þeir
vita að við erum mikið á ferðinni.“
Þannig voru 894 ökumenn kærð-
ir fyrir of hraðan akstur á liðnu
ári, en á síðustu árum hafa 1300 til
1800 manns verið staðnir að því að
aka of hratt í umdæmi lögregl-
unnar á Akureyri. Þá voru einnig
færri en áður teknir fyrir akstur
gegn rauðu ljósi, að virða ekki
stöðvunarskyldu og brot á skyldum
við umferðaróhapp.
Alls var 121 ökumaður kærður
fyrir ölvun við akstur á síðasta ári,
fleiri en árið á undan þegar þeir
voru 85 talsins. Mun færri en áður
voru kærðir fyrir að hafa ekki öku-
skírteini meðferðis við aksturinn
sem og einnig að vanrækja að færa
bifreið sína til skoðunar. Alls urðu
320 umferðaróhöpp skráð á liðnu
ári, voru 302 árið þar á undar og
348 árið 2001.
Fíkniefnabrotum fjölgaði um 10
milli ára, voru 53 talsins í fyrra en
43 árið á undan. Alls voru 17
manns kærðir fyrir brot á skot-
vopnalögum, en 7 árið á undan og
þá varð umtalsverð fjölgun á broti
á lögum um vernd barna og ung-
menna, voru 114 í fyrra en 49 árið
á undan.
Alls komu 19 kynferðisbrot til
kasta lögreglu í fyrra, en voru 33
árið 2002, en örlítið færri líkams-
árásir voru kærðar á liðnu ári, 46
alls á móti 52 árið þar á undan.
Nokkru fleiri innbrot voru framin á
síðasta ári en á árinu á undan, 61
alls á móti 48 og þá hefur lögreglan
skráð 397 þjófnaði í fyrra á móti
296 árið þar á undan.
Umferðarlagabrotum fækkar
Hjúkrunarrými | Bæjarráð hefur
samþykkt að þegar verði ráðist í
breytingar á hluta húsnæðis fyrr-
verandi dvalarheimilis í Skjaldarvík
svo þar megi taka í notkun 15 hjúkr-
unarrými fyrir aldraða 1. apríl nk.
og felur stjórn Fasteigna Akureyr-
arbæjar umsjón verksins. Þá heim-
ilar bæjarráð að nauðsynlegu fjár-
magni til breytinganna verði
ráðstafað af framkvæmdaliðnum
öldrunarmál. Bæjarráð áskilur sér
þó rétt til að sækja í Fram-
kvæmdasjóð aldraðra um endur-
greiðslu samkvæmt reglum sjóðsins.
Þá samþykkir bæjarráð að fjár-
magna af veltufé rekstur 8 hinna 15
hjúkrunarrýma á árinu 2004 gegn
endurgreiðslu á árinu 2005 eins og
fram kemur í bréfi heilbrigð-
isráðherra frá því í desember síðast-
liðnum, segir í bókun bæjarráðs.
Erfið færð | Tíu umferðaróhöpp
urðu á Akureyri um helgina sem
öll voru minniháttar. Ástæður
þeirra voru í mörgum tilfellum
erfið akstursskilyrði en víða eru
snjóruðningar sem byrgja sýn og
þrengja að akreinum. Því segir
lögregla að fyllsta ástæða sé til að
aka varlega meðan þessar að-
stæður eru á götum bæjarins. Á
heildina litið gekk umferðin þó
ágætlega, einn ökumaður var
kærður fyrir ölvun við akstur og
annar fyrir meintan akstur undir
áhrifum lyfja.
Leiguíbúðir | Á fyrsta fundi félags-
málaráðs á nýju ári voru lagðar fram
upplýsingar um leiguíbúðir Ak-
ureyrarbæjar miðað við síðustu ára-
mót. Leiguíbúðir í eigu Akureyr-
arbæjar voru þá 232 og hafði fjölgað
um 10 á árinu 2003. Á biðlista um
áramót voru 82 sem var fjölgun um 6
frá áramótunum þar á undan. Á
árinu 2003 var 29 af biðlistanum út-
hlutað íbúð. Meðal biðtími er 1–3 ár
og fer það eftir íbúðarstærð.
Fjárhagsaðstoð | Á síðasta fundi
félagsmálaráðs voru lagðar fram
upplýsingar um fjárhagsaðstoð í
desember 2003. Veitt fjárhagsaðstoð
nam 6 milljónum króna í mánuðinum
og alls 47,1 milljón króna á öllu árinu
2003 sem er 5,6% hækkun milli ára.
Smiðjuvegi 14 • Kópavogi • www.veislusmidjan.is • Pantanir og uppl. í símum 587 3800 og 899 2959.
Þorramaturinn
eins og þú vilt hafa hann
Meira af þessu og minna af hinu
Hafðu samband eins oft og þú vilt!
Þorrablótið í sal Ferðafélagsins í Mörkinni
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali