Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 25
ÞÓTT ótrúlegt megi virðast þá er
söngleikurinn Chicago byggður á
sannsögulegum atburðum, morðmáli
í samnefndri borg árið 1924 og hvern-
ig morðingjanum tókst að snúa á rétt-
vísina með því að spila á almennings-
álitið með aðferðum sem
spunameistarar nútímans væru full-
sæmdir af.
Í söngleiknum segir frá Rósí Há
sem dreymir um frægð en verður það
á að myrða elskhuga sinn þegar hann
segir henni upp. Eftir misheppnaða
tilraun til að koma sök á grunnhygg-
inn eiginmann sinn er hún ákærð, en
tekst að fá hinn sjóðheita lögfræðing
Billa Bé til að taka málið, en hann veit
sem er að mál eins og hennar vinnast
ekki í réttarsalnum heldur í fjölmiðl-
um. Billi hefur fleiri kúnna og kabar-
ettstjarnan Elma Ká er hreint ekki
ánægð með það að vera komin í
skuggann af nýstirninu Rósí. Í heimi
söngleiksins er allt til sölu og frægðin
er dýrasta djásnið. En ylurinn af leift-
urljósum blaðamannanna er skamm-
góður vermir eins og Rósí kemst að
þegar áhugaverðari morðingi birtist á
sviðinu. Chicago er frábær söngleik-
ur, frumlegur í forminu sem vekur
jafnvel hugrenningatengsl við Brecht
og nær bæði að vera mikill skemmt-
unarleikur og beitt ádeila á yfirborðs-
mennsku og siðspillingu án þess að
predika. Slíkt var heldur ekki fjarri
ætlun gleraugnaglámsins frá Augs-
burg þó hann hafi aldrei náð að verða
jafn skemmtilegur og þeir Kander,
Ebb og Fosse í Chicago.
Það er líklega ekki fagur vitnis-
burður fyrir samtíðina að hægt sé að
snúa atburðum söngleiksins jafn
áreynslulaust upp á Ísland í dag og
Gísla Rúnari hefur tekist í frábærri
þýðingu og staðfærslu verksins. Hér
er Séð og heyrt-menningin í algleym-
ingi, frægð hvað sem hún kostar er
hið dýrasta hnoss og aðgöngumiði að
bæði frama og réttlæti. Gísli tekur sér
stórt skáldaleyfi og hittir iðulega
beint í mark með andstyggilegum
skotum sínum. Og þó tónlistin sé
vissulega með miklum bannára-, en
þó fyrst og fremst samræmdum am-
erískum söngleikjakeim þá kemur
það lítt að sök, sýningin heldur, og
staðfærslan skilar sér bæði í beittari
ádeilu og að því er virðist óþrjótandi
möguleikum á skemmtilegheitum.
Reyndar er eins og allir aðstand-
endur sýningarinnar hafi notið þess
að ausa af skálum hugkvæmni sinnar
og sköpunargleði. Það á jafnt við um
vinnu leikara, hönnuða búninga, ljósa
og leikmyndar sem skapa sögunni
viðeigandi umgjörð, sem og tónlistar-
stjóra, danshöfundar og leikstjóra.
Það er alls ekki sjálfgefið að það borgi
sig að taka þaulreynda og útpælda
söngleiki jafn sjálfstæðum og fersk-
um tökum og hér er gert, en sú
áhætta hefur margborgað sig. Sam-
vinna Leikfélagsins og Íslenska dans-
flokksins virðist mér mun þéttari hér
en í Sól og Mána í fyrra, dansarnir
gegna stærra hlutverki í sjálfri sög-
unni, og skilin milli dansara og leikara
eru ánægjulega óljós. Hér á Jochen
Ulrich vafalaust mikinn heiður skil-
inn, og að svo miklu leyti sem ég hef
vit á þá er höfundarverk hans bæði
frumlegt og viðeigandi innan þess
forms sem söngleikurinn er. Þórhild-
ur Þorleifsdóttir er auðvitað marg-
faldur Íslandsmeistari í stórsýning-
um og hennar hlutur er stór í þessari
margbrotnu, frumlegu og snjöllu upp-
færslu. Hér hefur hvorki verið misst
sjónar á að allt þjóni heildarmyndinni
né að einstakar hugmyndir fái að
blómstra og listamenn að njóta sín.
Notkun myndbanda er dæmi um
slíka hugmynd – hér er hún sérlega
viðeigandi í öllu fjölmiðlafárinu og út-
færsla hennar hefur tekist prýðilega.
Það sem síðan kórónar skemmt-
unina er svo hin smitandi leikgleði og
listræna örlæti sem einkennir leik-
hópinn í heild sinni. Chicago er verk
sem útheimtir samhentan leikhóp,
allir verða að leggjast á eitt við að
segja söguna og þó nokkur hlutverkin
séu viðamikil eru tækifæri fyrir
marga til að blómstra. Og hér
blómstra allir. Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir er ómótstæðileg sem
Rósí, illþolandi grunnhyggin þokka-
dís með ofþroskaða sjálfsbjargarvið-
leitni. Leikur, söngur, dans – allt er
eins og best verður á kosið í meðför-
um Steinunnar. Það sama má segja
um hina sjóuðu Elmu Ká hjá Jóhönnu
Vigdísi Arnardóttur. Kannski hefði
hún þó mátt gera sér meiri mat úr
sveiflunum í veraldargengi persón-
unnar – leyfa okkur að sjá betur
hvernig hún verður að beygja sig þeg-
ar sól Rósíar rís. En persónusköpunin
er heilsteypt og söng- og dansnúm-
erin frábær. Sveinn Geirsson er í
miklum vexti sem leikari og Billi Bé
er að því ég best veit hans viðamesta
verkefni til þessa. Fyrirfram átti ég
varla von á því að Sveinn hefði þá út-
geislun og persónutöfra sem þarf til
að sætta mann við þetta lögfræðilega
afstyrmi og fylla út í svona stjörnu-
rullu, en hann fór létt með að snúa
þeirri skoðun minni. Eitthvað fannst
mér ég finna fyrir áreynslu í glímu
hans við tónlistina, aldrei til stórra
vansa þó.
Eggert Þorleifsson fór áreynslu-
laust með hlutverk Adams Há, hins
smáða eiginmanns Rósíar. Áreynslu-
laust í þeim skilningi að allt sem hann
gerði var satt og grátlega hlægilegt
eins og vera ber. Margrét Helga Jó-
hannsdóttir gerði hlutverk fangelsis-
og skemmtanastjórans Mömmu
Morthens (hvaðan koma honum Gísla
þessar nafnahugmyndir?) algerlega
að sínu og ljáði söngatriðum hennar
gamaldags revíublæ sem kom
skemmtilega út. Bergur Þór Ingólfs-
son var síðan ekkert minna en ynd-
islegur sem sjónvarpskonan og til-
finningaklámdrottningin Marta
Smart, glæsilegt dragspil og svo
syngur hann eins og sóprandíva sem
komin er fram yfir síðasta söludag.
Tónlistarflutningur er vel af hendi
leystur og ekki að heyra að minni
hljómsveit en ætlast er til komi að sök
nema síður sé. Einstaka tónlistar-
númer sem vert er að minnast á eru
til að mynda hinn frábæri fangelsis-
tangó þar sem hópur morðkvenda
segir sögur sínar með miklum tilþrif-
um, söngur Rósíar um sína björtu
framtíð undir sviðsnafninu Roxý og
glæsilegur tvísöngur Elmu og
Mömmu Morthens um nútímalegan
skort á mannasiðum. Sýningin er
reyndar nokkuð löng og lækkar óneit-
anlega flugið í síðari hlutanum, en er
samt alltaf skemmtileg og lumar stöð-
ugt á nýjum trompum í erminni.
Chicago er stórsigur fyrir aðstand-
endur sína, Þórhildi, hr. Ulrich, Ís-
lenska dansflokkinn og Leikfélag
Reykjavíkur. Þegar fullur salur af
góðborgurum á frumsýningu ýlfrar
eins og unglingsgelgjur á Verslósjói í
leikslok er verið að gera eitthvað rétt.
Illa er ég svikinn ef slík fagnaðarlæti
verða ekki fastur liður í Borgarleik-
húsinu á næstunni.
Séð og heyrt í Chicago
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski
dansflokkurinn
Höfundar: John Kander, Fred Ebb og Bob
Fosse. Þýðing og aðlögun: Gísli Rúnar
Jónsson, leikstjóri: Þórhildur Þorleifs-
dóttir, tónlistarstjórn: Jón Ólafsson,
danshöfundur: Jochen Ulrich, ljós: Lárus
Björnsson, hljóð: Gunnar Árnason, leik-
gervi: Sóley Björt Guðmundsdóttir, kvik-
myndagerð: Hákon Már Oddsson, bún-
ingar: Elín Edda Árnadóttir, leikmynd:
Sigurjón Jóhannsson. Leikendur: Að-
alheiður Halldórsdóttir, Bergur Þór Ing-
ólfsson, Birna Hafstein, Eggert Þorleifs-
son, Ellert A. Ingimundarson, Guðmundur
Elías Knudsen, Steve Lorenz, Guðmundur
Helgason, Guðmundur Ólafsson, Gunnar
Hansson, Halldór Gylfason, Hanna María
Karlsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir, Katrín Ingva-
dóttir, Katrín Johnson, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Marta Nordal, Peter
Anderson, Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir, Sveinn Geirsson, Theódór Júl-
íusson, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir og
Valgerður Rúnarsdóttir. Borgarleikhúsið
18. janúar 2004.
CHICAGO
Þorgeir Tryggvason
Morgunblaðið/ÞÖK
„Chicago er stórsigur fyrir aðstandendur sína, Þórhildi, hr. Ulrich, Ís-
lenska dansflokkinn og Leikfélag Reykjavíkur,“ segir m.a. í umsögninni.
ÞEIR tvennir tónleikar sem fjallað
er um í þessum greinarstúf eiga það
sameiginlegt að á þeim fyrri var flutt
íslensk kirkjutónlist og á þeim síðari
nokkur tónverk sem tengjast Íslandi
eða eru samin undir áhrifum af dvöl á
landinu.
Á undanförnum árum hefur verið
lögð mikil vinna í að kynna sér þann
tónlistar- og sálmaauð sem er að
finna í gömlum handritum og göml-
um sálma- og messubókum. Afrakst-
ur þessa þarfa verks er sífellt að
koma í ljós og hafa nokkur ung tón-
skáld unnið úr þessum arfi með því
að raddsetja lögin. Auk þess er að
finna nokkur tónverk eldri tónskálda
sem hafa ýmist sjálf skrifað niður
söng eldra fólks eða sótt lögin í ýmis
þjólagasöfn.
Þau Margrét Bóasdóttir og Guð-
mundur Sigurðsson buðu eingöngu
upp á gamla góða íslenska kirkjutón-
list sem byggð er á þessum tónlistar-
arfi þjóðarinnar. Tónleikarnir voru
liður í undirbúningi fyrir 10 daga tón-
leikaferð til Bandaríkjanna þar sem
þau munu kynna þessa tónlist. Ein-
hver ófróður mun sennilega telja að
hér sé um einhæfa tónlist að ræða en
svo er alls ekki. Hér er um mjög svo
fjölbreytta lagaflóru að ræða sem
tónskáldin fara misjöfnum höndum
um.
Margrét söng án undirleiks gamla
kvöldbæn. Sálmurinn Himna rós, leið
og ljós fylgdi á eftir, fyrst sálmfor-
leikur Ragnars Björnssonar yfir lag-
ið og síðan söng Margrét vers úr
sálminum. Margrét söng vers úr
Lilju Eysteins Ásgrímssonar og í því
síðasta lék Guðmundur með á orgelið
útsetningu Þorkels Sigurbjörnsson-
ar. Jón Leifs safnaði nokkrum þjóð-
lögum sem hann tók upp á vaxhólka
og vann síðan úr. Hann gaf út safn
þriggja kirkjusöngva op. 2 innihald-
andi þrjú gullkorn, Vertu Guð faðir,
Allt eins og blómstrið eina og Upp,
upp, mín sál og voru allar þessar
perlur fluttar hér. Gamalt Máríuvers
úr íslensku handriti sem Guðrún
Tómasdóttir hefur sungið mikið í
gegn um tíðina var hér flutt með lát-
lausum, kliðmjúkum orgelleik eftir
Elínu Gunnlaugsdóttur sem styður
við en tranar sér aldrei fram, bara er
þarna (frumflutningur). Sálmur um
góðan afgang í útsetningu Hildi-
gunnar Rúnarsdóttur naut sín ákaf-
lega vel. Sálmforleikur Jóns Þórar-
inssonar yfir Jesús mín
morgunstjarna og síðan 1. vers
sálmsins í útsetningu Jóns hljómaði
því næst látlaust og fallegt. Orgel-
rödd Mistar Þorkelsdóttur við Ó, ég
manneskjan auma undirstrikar aum-
leika og vesöld. Hróðmar Ingi Sig-
urbjörnsson átti tvö lög. Líknsamasti
lífgjafarinn trúr og Ó, Guð, ég aumur
leita. Orgelútsetningin fellur mjög
vel að texta. Smári Ólason hefur lengi
rannsakað gömul lög við Passíusálm-
ana, bæði eftir rituðum heimildum og
munnlegum. Í seinni tíð hefur hann
einnig snúið sér að lögum úr hand-
ritum við aðra texta og er skemmst
að minnast geisladisks
þeirra Magneu Tómas-
dóttur og Guðmundar
Sigurðssonar sem kom
út á liðnu ári innihald-
andi útsetningar hans.
Margrét og Guðmundur
fluttu lögin Greinir Jes-
ús um græna tréð þar
sem orgelið naut sín vel
í einföldum undirleik og
Ýmissra stétta, allir
þjónustumenn, sem er
Hallelújasöngur. Hér
skein gleði og gáski
miðalda í gegn og undir-
leikurinn líkur og í mið-
aldadanskvæði með
léttu tunguregistri orgelsins.
Þessir tónleikar voru hinir
ánægjulegustu. Vandvirkni flytjenda
og metnaður kom glögglega í ljós og
efnisskráin var öll sérlega vel flutt og
þeim Margréti og Guðmundi til mik-
ils sóma og mjög erfitt að draga
nokkuð fram fyrir annað.
Kvartett tvöfaldra reyrblaða
Austurrískur blásarakvartett
skipaður þrem óbóleikurum og fag-
ottleikara var á ferðinni í Gerðu-
bergi. Kvartettinn frumflutti þrjú ný
verk sem öll eru undir íslenskum
áhrifum. Samhljómur og samleikur
fjórmenninganna var sérlega góður
og samstilltur svo unun var að hlýða
á.
Johann Baptist Schenk (1753–
1836) er sennilega
þekktastur fyrir óperu-
tónsmíðar sínar, hann
var vinur Mozarts og
kenndi Beethoven
kontrapunkt. Eftir
hann léku þau Quart-
etto í F dúr fyrir óbó, 2
ensk horn og fagott í
fjórum þáttum. Quar-
tett über isländisch
Melodien op. 112 sem
Helmut Neumann (f.
1938) samdi í Hafnar-
firði í júlí 2003 var
frumfluttur hér. Neu-
mann var sellisti í Sin-
fóníuhljómsveit Íslands
1962–1964 og er mikill Íslandsvinur.
Margar af tósmíðum hans eiga rætur
á Íslandi og hafa verið frumfluttar
hér. Kvartettinn op. 112 fyrir 2 óbó,
enskt horn og fagott er í þrem þátt-
um. Moderato, Choralvariation: And-
inn þinn Guð, mér gef þú vist og
Númi hvítum hesti reið. Kvartettinn
sem er í klassísku tónmáli er gegn-
saminn og vel unnin tónsmíð, hver
þáttur hefur sín sérkenni en verkið í
heild er heilsteypt og mjög aðalað-
andi og var mjög vel flutt. Páll Pamp-
ichler Pálsson (f. 1928) samdi verkið
Bláklukka í mars 2003 fyrir óbó, óbó
d’amore, enskt horn og fagott og var
það frumflutt hér. Bláklukkan á að
vera einskonar samnefnari fyrir
manneskjuna eða lífið. Í verkinu sem
var vel leikið koma fram ýmis átök í
blíðu og stríðu, fallega syngjandi stef
og ómstríð átök, skemmtileg samtöl
hljóðfæranna og óvæntur endir. Eft-
ir Werner Schulze (f. 1952) , fagott-
leikara hópsins, var flutt Sonatina
Canonica op. 5/8 fyrir ensk horn og
óbó (1990). Sonatinan er í þremur
þáttum. Bátsferð í tunglskini (tvö
óbó), Dans froskanna á hrísakrinum
(2 ensk horn) og Þriggja radda hring-
hend keðja (þrjú óbó). Þessi þáttur er
þríradda kanon eða keðja sem má
spila jafnt afurábak sem áfram, snúa
blaðinu við og spila frá enda til upp-
hafs, það hljómar alltaf eins.
Einn óbóleikari hópsins, Adolf
Traar (f. 1960), hefur heimsótt Ísland
þrisvar sinnum og hljólað vítt og
breitt um landið og í verkinu ISLpo-
int sidewise fyrir óbó, óbó d’ amore,
enskt horn og fagott segir hann frá
upplifun sinni á þessum ferðalögum
(frumflutningur). Yfirskriftin er
„Þankar ferðamanns“. Fyrsti þáttur
speglar bjartsýni Íslendinga. Annar
þáttur dreifða byggð fyrstu ábúenda,
hljóðfæraleikararnir dreifa sér um
salinn og spilast á og enda á stuttu
samspili. Í þriðja þætti ráðast kríurn-
ar á hljólreiðamanninn, reyrblöðin án
hljóðfæranna tákna kríur í árásar-
hug. Fjórði þáttur og jafnframt sá
lengsti táknar endalausa krókótta
hliðarvegi og sá fimmti um börn að
leik sem fylla okkur öryggi og
trausti, gáskafullur þáttur þar sem
heyra má stutt stef úr ýmsum barna-
lögum. Ekki svo galið verk og virki-
lega vel og skemmtilega flutt.
Síðast á efnisskránni var STÍM
fyrir tíu tvíblöðunga (2003) 2 óbó, óbó
d’amore, 2 ensk horn, 3 fagott og 2
kontrafagott eftir Tryggva M. Bald-
vinsson. Hér komu til liðs við kvart-
ettinn þau Evan Thee á óbó, Eydís
Franzdóttir á enskt horn, Hafsteinn
Guðmundsson og Kristín Mjöll Jak-
obsdóttir á fagott og Rúnar Vilbergs-
son og Brjánn Ingason á kontrafag-
ott. Verkið var frumflutt vorið 2003.
Þetta voru mjög góðir tónleikar með
frábærum hljóðfæraleikurum sem
sýndu á sér ýmsar hliðar.
Íslenskir og aust-
urrískir tónar
Morgunblaðið/Þorkell
Austurríski blásarakvartettinn Austrian Double Reed Quartet.
Jón Ólafur Sigurðsson
TÓNLIST
Bústaðakirkja
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Margrét Bóasdóttir, sópran og Guð-
mundur Sigurðsson, orgelleikari, flytja ís-
lenska kirkjutónlist. Fimmtudagurinn 15.
janúar 2004 kl. 20.30.
Gerðuberg
KAMMERTÓNLEIKAR
Austrian Double Reed Quartet (Adolf
Traar, Katalin Kiss, Gregor Nabl og Wern-
er Schulze) leika verk eftir J. B. Schenk,
Helmut Neumann, Pál P. Pálsson, Werner
Schulze, Adolf Traar og Tryggva M. Bald-
vinsson. Laugardagurinn 17. janúar
2004 kl. 17.
Margrét Bóasdóttir