Morgunblaðið - 20.01.2004, Page 36

Morgunblaðið - 20.01.2004, Page 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa milli kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunn- ar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður að lokinni bænastund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl. 19 í neðri safnaðarsal. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður á sanngjörnu verði að helgistund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl. 13. Bridsaðstoð á föstudögum kl. 13. Þátt- taka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405. Laugarneskirkja. TTT-starfið kl. 16.15 (5.–7. bekkur). Umsjón Þorkell Sigurbjörns- son, Sigurbjörn Þorkelsson og Andri Bjarnason. Fullorðinsfræðsla Laugarnes- kirkju kl. 20. Biblíulestur í umsjá Laufeyjar Waage. (Ath. breytta tímasetningu.) Þriðju- dagur með Þorvaldi kl. 21. Þorvaldur Hall- dórsson leiðir lofgjörðina við undirleik Gunnars Gunnarssonar á flygilinn og Hann- esar Guðrúnarsonar sem leikur á klassísk- an gítar. Gengið er inn um aðaldyr kirkju, eða komið beint inn úr Fullorðins- fræðslunni. Kl. 21 fyrirbænaþjónusta við altarið í umsjá bænahóps kirkjunnar. Neskirkja: Fermingarfræðsla kl. 15. Vetr- arnámskeið. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Kynning á Alfa III kl. 20. Kynning á nýju Alfa-námskeiði þar sem Fjallræða Jesú verður til umfjöllunar. Námskeiðið er öllum opið. Umsjón hefur sr. Örn Bárður Jónsson. Foreldramorgunn þriðjudag kl. 10–12. Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl. 10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim- ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í Ártúnsskóla. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11.15 í kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Kl. 12 létt- ur málsverður, helgistund í umsjá sr. Magn- úsar B. Björnssonar, samverustund, Fann- ey Karlsdóttir kynnir sjálfboðastarf Kópavogsdeildar Rauða krossins. Kaffi. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–19. KFUM&KFUK Fyrir 10–12 ára börn kl. 17– 18.15, húsið opnað kl 16.30. Alfa kl. 19. Hver er Jesús? Kennari Magnús Björn Björnsson. Skráning stendur yfir (sjá nán- ar:www.digraneskirkja.is). Fella- og Hólakirkja: Strákastarf 8–12 ára kl. 16.30–17.30. Grafarvogskirkja. Eldri borgarar. Opið hús kl. 13.30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar, alltaf eitthvað gott með kaffinu. Kirkjukrakkar með börn á aldr- inum 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æskulýðs- félag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Graf- arvogskirkju kl. 20. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur prestar kl. 9.15 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs- sonar. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safnað- arheimilinu Borgum kl. 10–12. Samveru- stund kl. 14.30–16. Fræðandi innlegg í hverri samveru. Lagið tekið undir stjórn Sig- rúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og stutt helgi- stund. Allir hjartanlega velkomnir. Starf með 8–9 ára börnum í Borgum kl. 17–18 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar. Starf með 10–12 ára börnum á sama stað kl. 18–19 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar. Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum 3, kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12. SELA yngri deild kl. 20–22. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar stund- ir fyrir hressa krakka. Æskulýðsfélagið (Megas) heldur vikulegan fund kl. 19.30– 21 í kvöld. Umsjón með starfi þessara hópa hafa Anna Hulda Einarsdóttir og Sig- ríður Rún Tryggvadóttir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er op- ið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er op- ið hús fyrir unglinga 13–15 ára. Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16. Spilað og spjallað. Nanna Guðrún mætt aftur eftir frí galvösk að vanda. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30–19. Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 Kirkjuprakkarar Landakirkju sprækir sem aldrei fyrr, 6–8 ára krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir. Kl. 16 Kóræfing Litlu lærisveinanna. Kórstjóri Jo- anna Wlasczcyk og umsjónarmaður Kristín Halldórsdóttir. Kl. 17 Kóræfing Lítlu læri- sveinanna. Kórstjóri Joanna Wlasczcyk og umsjónarmaður Kristín Halldórsdóttir. Kl. 20.30 Kyrrðarstund í Landakirkju. Fjöl- mennum í alþjóðlegri bænaviku. Guðmund- ur H. Guðjónsson organisti leikur og sr. Fjölnir Ásbjörnsson leiðir stundina. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upp- lýsingar á www.kefas.is AD KFUK. Fundur í kvöld kl. 20. Lofgjörðar- og bænasamvera í umsjón Þórdísar K. Ágústsdóttur, Hrannar Sigurðardóttur og Kristínar Bjarnadóttur. Allar konur velkomn- ar. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 1 (Oddeyr- arskóli og 8.C Brekkuskóla). Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl. 18.10. Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17.30 Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk. Dagskrá bænaviku: Þriðjudagur: Bænastund kl. 12 í Fríkirkj- unni Veginum, Smiðjuvegi 5. Allir velkomn- ir. Safnaðarstarf Samfélagsstund með kristinni íhugun hjá KFUK KFUK heldur fund fyrir kon- ur í kvöld í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg kl. 20. Þar mun Sigríður Hrönn Sigurðardóttir kristniboði segja frá hinni merku konu Madam Guyon, fræða um kristna íhugun og leiða við- staddar inn í hana. Lofgjörð og fyrirbænir verða á stund- inni. Allar konur eru hjart- anlega velkomnar og að- gangur er ókeypis. ✝ Eyrún Auðuns-dóttir fæddist á Ysta-Skála, Vestur- Eyjafjöllum, 28. ágúst 1935. Hún lést á heimili sínu á Flyðrugranda 8 í Reykjavík miðviku- daginn 7. janúar síð- astliðinn. Hún var dóttir hjónanna Auðuns Jónssonar, f. 11.7. 1892, d. 15.1. 1959, og Jórunnar Sigurðardóttur, f. 10.8. 1895, d. 11.1. 1983. Systkin Ey- rúnar eruUnnur, f. 1918, d. 4. jan. 2004; Sigurjón, f. 1919, d. 1996, Sigurður Þorberg, f. 1921; Frí- mann, f. 1922, d. 1922; Kristinn, f. Önnu Kristínu Kristófersdóttur, f. 5.2. 1970. Dætur þeirra: Auð- björg Ósk, f. 3.3. 1993, Þórunn Jóhanna, f. 21.7. 1994; Gabríela Dögg f. 3.6. 2000. Viktor á fyrir Kolbrúnu, gift Ingvari Búa Hall- dórssyni. Börn þeirra: Halldór Matthías, f. 13.12. 2000; Tinna Ösp, f. 19.11. 2002, og Höllu Dögg Másdóttir, f. 21.6. 1985. 4) Jóhann Reynisson, f. 18.10. 1965, kvænt- ur Ingibjörgu Stefánsdóttur, f. 13.6. 1970, dætur þeirra Sigrún f. 11.5. 1989, Kristjana, f. 18.8. 1990, Rósalind, f. 17.7. 1995, Kristín, f. 2003. Eyrún fluttist til Vestmanna- eyja ung að aldri. Hún giftist 1955 (Agnari) Reyni Sigurðsyni, f. 5.8. 1933, d. 5.12. 1999. Þau skildu 1970. Eyrún flutti frá Vest- mannaeyjum 1973. Hún starfaði lengst af á barna- og unglinga- deild Landspítalans við Dalbraut. Útför Eyrúnar fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. 1923; Guðrún, f. 1925; Magnúsína Lilja, f. 1927; Elí, f. 1928; Svanlaug, f. 1930, d. 1995; Sigfús, f. 1932; Ólafur, f. 1934; Auð- ur Jóna, f. 1937; og Jón, f. 1941. Börn Eyrúnar eru: 1) Sigurður Frímann Reynisson, f. 23.1. 1956, d. 28.8. 2000, dóttir hans Anika Ey- rún, f. 20.7. 1989. 2) Auðbjörg Reynisdótt- ir, f. 21.1. 1961. Synir hennar eru Sindri Gautur Einarsson, f. 11.6. 1997; Jóel Gautur Einarsson, f. 8.12. 1999, d. 24. 2. 2001. 3) Viktor Þór Reynisson, f. 10.2. 1964, kvæntur Elsku mamma mín, nú ert þú bú- in að kveðja okkur eftir erfið veik- indi. Þetta voru erfiðar vikur hjá okkur öllum. Þú varst búin að vinna eins og berserkur alla þína ævi og loksins þegar þú áttir að taka út þitt frí veikistu. Þá tók bara önnur bar- átta við. En þú tókst þessu öllu með mikilli rósemi og gerðir ekki mikið úr þessu. Mikið eigum við eftir að sakna þess að komast ekki til þín í heimsókn, sérstaklega á sunnudög- um þá vorum við yfirleitt hjá þér. Alltaf minnist ég rósemi þinnar á gosnóttini 1973 þegar þú vaktir okkur og sagðir okkur að það væri komið gos. Við klæddum okkur og fórum niður á bryggju og um borð í Sæbjörgu VE sem Siggi bróðir var háseti á. Það var ekki að sjá á þér að þú hefðir miklar áhyggjur af að yfirgefa heimilið, skilja allt eftir og vera ein með þrjú börn og stálpaðan ungling. Alltaf varst þú tilbúin að hjálpa okkur þó að illa stæði á hjá þér, svo var líka alltaf plás fyrir okkur í litlu íbúðinni þinni til að gista. Við eigum eftir að sakna þín sárt en minningarnar eru góðar og margar og þær sjá um það að þú munt aldrei gleym- ast. Viktor Þór Reynisson, Anna Kristín Kristófersdóttir. Sólin skín svo skært, ég blindast af tárum, tárum sem blandast saman við tómarúmið sem er innan í mér. Núna hef ég misst ömmu mína sem ég elskaði svo undur heitt. Já, ég hef misst þig … (Halla Dögg.) Elsku amma mín. Ég veit að þú ert núna á betri stað, veit að þér líð- ur betur, verkirnir eru horfnir og þú getur labbað um án þess að finna til og eldað mat, gert allt sem þú hefur alltaf gert. Ég veit að það er eigingjart að vilja hafa þig hérna ennþá en það er bara þannig en ég ætla að reyna að hugsa bara fallega og muna eftir þér þegar þér leið vel, elsku amma, því þú varst svo falleg persóna og ég fylgdist með þér eins og ég gat. Hversu sárt sem það er þá fær maður ekki allt sem maður vill en ég vil trúa því að þú sért í Nangíala þar sem allt er fallegt og öllum líður vel. Ég vildi að ég hefði þekkt þig betur en er þakklát fyrir þá tíma sem við áttum saman, sér- staklega þegar ég kom til þín á spít- alann. Þó að þú hafir lítið getað tjáð þig, þá sagði ég þér hvað mér þótti vænt um þig og ég sá í augunum á þér að þér þótti það líka. Takk, elsku amma. Ég elska þig og sakna þín, elsku amma mín. Við sjáumst. Þín ömmustelpa Halla Dögg. Elsku Dúna, amma mín, mikið mun ég sakna þín. Þú ert horfin frá okkur, ert orðin engill á himnum og mun ég ætíð sakna þín, elsku besta amma mín. Þórunn Jóhanna. Amma mín, við munum sakna þín. Þú ert farin okkur okkur frá, ert nú EYRÚN AUÐUNSDÓTTIR Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlý- hug og samúð vegna andláts og jarðarfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS JAKOBSSONAR fyrrverandi stýrimanns og hafnarvarðar, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Giljalandi 33, Reykjavík. Unnur Þorsteinsdóttir, Björn L. Örvar, Bjarni Þorsteinsson, Annetta A. Ingimundardóttir, Haraldur S. Þorsteinsson, Ingunn Hansdóttir, Jakob F. Þorsteinsson, Vanda Sigurgeirsdóttir og barnabörn. Þökkum heilshugar öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, ÞÓRUNNAR EIRÍKSDÓTTUR, Kaðalsstöðum, Stafholtstungum. Sigrún Ólafsdóttir, Bjarni G. Ólafsson, Unnur Ólafsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Björk Ólafsdóttir, Kristján Zophoníasson og barnabörn, Guðrún Eiríksdóttir, Áslaug Eiríksdóttir, Steinunn J. Eiríksdóttir, Auður Eiríksdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa, lang- afa og langalangafa, PÉTURS FRIÐRIKS JÓRAMSSONAR, Faxabraut 13, (Hlévangi), Keflavík, áður til heimilis á Ásabraut 14, Keflavík. Hilmar Pétursson, Guðrún Kristinsdóttir, Kristján Pétursson, María Bergmann, Dagmar Pétursdóttir Tutton, Ronald Tutton, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur vinarhug og samúð vegna andláts og útfarar mannsins míns, bróður okkar, mágs og tengdasonar, HELGA VIÐARS MAGNÚSSONAR, Grandavegi 3, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynning- ar Krabbameinsfélagsins, deildar 11-E á Landspítala við Hringbraut og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Guðni Baldursson, Ægir Axelsson, Þórunn Axelsdóttir, Jónas Þórarinsson, Óskar Axelsson, Lára Magnúsdóttir, Smári Jóhannsson, Baldur H. Aspar Þóra Guðnadóttir. Við sendum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORBJARGAR EIRÍKSDÓTTUR frá Torfastöðum, Biskupstungum, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi föstudaginn 2. janúar. Sérstaklega viljum við þakka öllu því góða fólki, sem annaðist hana á deild 3 á Sunnuhlíð síðustu árin. Stefán Ásgrímsson, Sif Knudsen, Konráð Ásgrímsson, Elín Siggeirsdóttir, Þorbjörg Erla, Elín, Benedikt og Eiríkur Sigurðarbörn, Guðmundur Elías og Sigurlaug Stefánsbörn, Ásgeir og Karl Konráðssynir, fjölskyldur þeirra og langömmubörnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.