Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 42
DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðjud. kl. 16–18. S. 867 7251. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, kl. 9 jóga, kl. 13 postulínsmálun. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9 leikfimi, kl. 9.30 dans, kl. 9.45 boccia, kl. 13–16.30 smíðar, kl. 20.30 línu- dans. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–16 handavinna, kl. 10– 11.30 sund, kl. 14–15 dans. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 10 sam- verustund, kl. 14 fé- lagsvist. Félagsstarfið, Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin og vefnaður, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16 vinnustofa, tréskurður, postulín, kl. 10–11 leik- fimi, kl. 12.40 versl- unarferð, kl. 13.15– 13.45 bókabíll. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. leir kl. 10, Tai Chi kl. 12, karlaleikfimi og málun kl. 13. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Opnað kl. 9, frjáls prjónastund, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13, saumur og biljard 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Skák kl. 13, alkort spil- að kl. 13.30. Miðvikud: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Félagsstarf eldri borg- ara, Mosfellsbæ, kl. 13– 16 föndur, spil og bók- band, leikfimi og jóga kl. 16–17, spænska kl. 16. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10 létt ganga, kl. 13 boccia. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 gler- og postulíns- málun, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 14 ganga, kl. 14.45 boccia, kl. 19 brids. Hraunbær 105. Kl. 9 postulín og gler- skurður, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 myndlist og línudans, kl. 15 línudans. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–10 boccia, kl. 9–16.30 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Korpúlfar, Grafarvogi. Á morgun, miðvikudag, dansæfing í Fjölnissal kl. 13.30. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 12 skinnasaumur, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulín, kl. 10.15–11. 45 enska, 13– 16 spilað og bútasaum- ur. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 leikfimi, kl. 13 hand- mennt, og postulín, kl. 14 félagsvist. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13– 16 keramik, taumálun, almennt föndur, kl. 15 bókabíllinn. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, kl. 20, svar- að í s. 552 6644 á fund- artíma. Kvenfélag Seljasóknar, Kvenfélagið Fjallkon- urnar ogKvenfélag Breiðholts. Sameig- inlegur fundur verður fimmtudaginn 22. jan- úar kl. 20, í Seljakirkju, kaffiveitingar, skemmtiefni. Ath. breyttan fundardag. Safnaðarfélags Ás- kirkju, Kvenfélags Laugarnessóknar og Kvenfélags Langholts- sóknar, sameiginlegur fundur verður miðviku- daginn 21. janúar kl. 20, í safnaðarheimili Ás- kirkju. Félag breiðfirskra kvenna minnir á nýút- komna bók með lögum Jóns frá Ljárskógum, „Kveðja heimanað“. Upplýsingar gefa Hild- ur s. 554 2795 og Mar- grét s. 567 4342. Lífeyrisþegadeild SFR. Þorrablót deildarinnar verður haldið laug- ardaginn 24. janúar, kl. 12. í Félagsmiðstöðinni Grettisgötu 49, 4. hæð. Tilkynna þarf þátttöku á skrifstofu SFR, s. 525 8340. Í dag er þriðjudagur 20. janúar, 20. dagur ársins 2004, Bræðra- messa. Orð dagsins: Prédika þú orðið, gef þig að því í tíma og ótíma. Vanda um, ávíta, áminn með öllu langlyndi og fræðslu. (2.Tím. 4, 2.)     Pawel Bartoszek skrif-ar í Deigluna um sparnaðaraðgerðir innan Háskóla Íslands. „Meðal annars á að afnema allar undanþágur frá hefð- bundnum skráning- arreglum. Þetta mun m.a. koma niður á fólki sem útskrifast úr menntaskólum um ára- mót sem og fólki sem vill skipta um námsleið á miðju ári.     En sparast eitthvað meðþessum tillögum? Nei. Þessum hugmyndum er því fyrst og fremst ætlað að skapa bögg. Þeim er ætlað að láta fólk finna fyrir „sparnaðinum“ á sínu eigin skinni. Háskól- inn vonast til að óánægð- ir nemendur muni fylla dagblöðin með nöldri, sitja fyrir þingmönnum og sturta undir- skriftalistum inn um lúgu hjá menntamálaráðherra. Enda eru breytingarnar fyrst og fremst einmitt pirrandi, erfitt er að sjá hvaða pening þær eigi að spara. Enda liggja ekki neinar tölur eða áætlanir um það í hverju sparn- aðurinn eigi að felast. Nei, fjöldauppsagnir spara peninga. Yfir- vinnubann sparar pen- inga. Hvaða peningar sparast við það að meina fólki sem lýkur stúdents- prófi um jólin að skrá sig í skólann? Ja, hugsanlega einhverjir. Það er, jú, dýrt að hafa fólk í námi en er skynsamlegt að banna fólki að skrá sig vegna þess að það sé svo dýrt en banna því síðan að borga fyrir nám sitt? Og segja að ástæðan sé að menn vilji tryggja jafnrétti til náms?     Háskólinn er einfald-lega að fara í verk- fall og viðskiptavinir hans (nemendur) verða að finna fyrir því svo þeir þrýsti á eigandann (ríkið) að leysa úr vandanum. Sparnaðartillögur bera sterkan keim af pólitískri baráttu. Í besta falli er um að ræða klinksöfnun sem á ekkert skylt við al- vöru hagræðingu. Enda var yfirmaður fjár- málasviðs Háskólans and- vígur tillögunum og sagðist ekki sjá hvað þær spöruðu. Annars skal því ekki neitað að staða Há- skólans er ekki öfunds- verð. Á skólanum hvíla ýmsar skyldur og sem op- inber stofnun þarf hann að framfylgja ýmsum reglum sem ekki gilda um einkareknar mennta- stofnanir. Á sama tíma er honum meinað að bregð- ast við fjárhagsvanda sín- um á þann hátt sem eðli- legastur er: með aukinni þátttöku þeirra sem nýta sér þjónustu hans.“     Pawel kveðst ekkisannfærður um að há skólagjöld séu rétta leið- in til lausnar fjárhags- vanda Háskóla Íslands. „En rétta byrjunin væri allavega að gera skólann að sjálfseignarstofnun og leyfa honum í auknum mæli að taka ábyrgð á sínum fjármálum.“ STAKSTEINAR Umdeilanlegar sparnað- araðgerðir í HÍ Víkverji skrifar... Það var í senn fróðlegt og skemmti-legt að hlusta á viðtal Guðna Bergssonar við Sven-Göran Er- iksson landsliðsþjálfara Englendinga á Sýn á sunnudag. Víkverji hefur áð- ur hælt Guðna og Heimi Karlssyni fyrir góðan þátt og gerir það enn. Boltinn með Guðna Bergs er hvalreki á fjörur áhugamanna um ensku knattspyrnuna. Faglega nálgun af þessu tagi hefur lengi vantað í sparkumfjöllun í íslensku sjónvarpi. Þarna eru hlutirnir krufnir af þekk- ingu og innsæi manns sem þekkir ensku úrvalsdeildina af eigin raun og upplifun og skilningur áhorfandans auðgast fyrir vikið. Guðni hefur í þáttunum rætt við fjölda leikmanna hjá enskum úrvals- deildarliðum, svo sem Sol Campbell, Teddy Sheringham og Les Ferdin- and. Þá átti hann í haust gott samtal við hinn umdeilda dómara Mark Halsey – sem einmitt var í essinu sínu um helgina. Allt sannkallað hnossgæti fyrir sparkþyrsta Íslend- inga. Aðgengi Guðna að þessum mönnum er betra en íslenskir fjöl- miðlamenn hafa áður kynnst og Guðni hefur vitaskuld fært sér það í nyt. Fólki til gleði. x x x Þó að ofangreindir menn séu hveröðrum mætari má með sanni segja að Guðni hafi landað þeim stóra um helgina, þegar hann sló á þráðinn til Erikssons, sem tilheyrir klárlega virtari mönnum í sínu fagi. Þeir fé- lagar ræddust við í drykklanga stund og bar fjölmargt fróðlegt á góma. Guðni hefur náð góðum tökum á hlut- verki spyrilsins – sem er alls ekki sjálfgefið hjá manni sem hlotið hefur takmarkaða þjálfun í sjónvarpi. Hann spyr markvisst en slær líka á léttari strengi inn á milli. Fyrir vikið skapast að jafnaði þægilegt and- rúmsloft í samtölunum sem verða hin áheyrilegustu. Fjölmargt forvitnilegt kom fram í samtalinu. Meðal annars að Eriksson telur vinstri vængstöðuna í enska landsliðinu, sem lengi hef- ur verið til vandræða, ekki sér- stakan höf- uðverk um þessar mund- ir. Nefndi hann nafn Joe Cole hjá Chelsea sér- staklega í því samhengi. Þá fullyrti Er- iksson að hann gæti vel hugsað sér að velja Eið Smára Guðjohnsen í enska landsliðið ef hann hefði breskt ríkisfang. Svona mætti lengi telja. Í spjallinu voru með öðrum orðum fréttapunktar, bæði fyrir innlenda fjölmiðla og er- lenda, eins og Hermann Gunnarsson, gestur þáttarins, benti réttilega á. x x x Fantavel fór á með Guðna og Her-manni í þættinum enda greindi sá fyrrnefndi frá því að Hemmi Gunn hefði verið átrúnaðargoð sitt í æsku, þegar hann lék með Val og íslenska landsliðinu. „Hann þótti minna á George Best, innan vallar sem utan,“ sagði Guðni. Eriksson. Skeleggur hjá Guðna Bergs. Misrétti áskrifenda ÉG verð að fá að lýsa van- þóknun minni á því misrétti sem áskrifendur Morgun- blaðsins búa við. Laugardaginn 10. jan- úar, þegar við vorum búin að kaupa okkur miða á landsleikinn Ísland-Sviss, var auglýst hástöfum í út- varpi að Mogginn byði áskrifendum sínum á leik- inn. Í hálfleik voru svo dregnir út happdrættis- vinningar sem fylgdu téð- um miðum. Málið er að við búum úti í sveit á svæði 311 og þessi boðsmiði kom til okkar í dag, mánudaginn 12. jan- úar, kl. 17 sem og laugar- dagsblaðið, sunnudags- blaðið og mánudagsblaðið með öllum þeim tilboðum liðinnar helgar sem stóð okkur ekki til boða. Við borgum áskriftar- gjald, sama og aðrir, geri ég ráð fyrir. Þið getið svo átt ykkar boðsmiða sjálfir en við eigum þetta lítilræði hjá ykkur. Kveðja. Kona í Borgarnesi. Gróa á Leiti og gigt EINHVERJU sinni las ég grein í læknablaði þar sem því er haldið fram að þeir sem væru hleypidómafullir og temdu sér að tala illa um náungann ættu mjög á hættu að fá streitusjúk- dóma og gigt. Á myndum sem maður hefur séð af Gróu gömlu á Leiti sést að hún gengur við staf. Ég velti því fyrir mér hvort það séu ekki nokkuð margir með gigt um þessar mundir og hvort fólk taki ekki nokkra áhættu með því að gerast hælbítar. Sér grefur gröf þótt grafi. Eldri borgari. Hristi af sér slenið MIKIÐ væri gaman ef fréttastofur ríkisreknu fjöl- miðlanna hristu af sér slen- ið og frískuðu upp frétta- tímana. Hvers vegna alltaf sömu spóluna, sömu upp- tugguna? Þetta er sérstak- lega áberandi um helgar. Það myndi heldur ekki saka að koma með eitthvað í léttari kantinum eins og Svavar Gests sagði forðum. Hvers vegna kemur ekki frétt um að Idi Amin hafi veið laminn? Hlustandi. Barnið fór ofan í töskuna ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem blessaðir blaða- mennirnir okkar eru skens- aðir fyrir að nota rétta ís- lensku, oftast er það á hinn veginn farið. Ofan er notað um hreyfingu niður. Barnið fæddist ofan (niður) í íþróttatöskuna. Sigmund verður svo sjálfur að út- skýra hvers vegna hann teiknar móðurina en ekki barnið niðri í töskunni. (Mbl. laugard. 17. jan. 2004). Þórhallur Hróðmarsson. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 traustur, 8 að svo búnu, 9 endurtekið, 10 hrygn- ing, 11 ber brigður á, 13 kvendýrið, 15 dæma í fé- sekt, 18 slaga, 21 löður, 22 með jöfnu yfirborði, 23 svarar, 24 bernskan. LÓÐRÉTT 2 sníkjudýrið, 3 klappi egg í ljá, 4 viljugt, 5 um- fang, 6 guðir, 7 hugboð, 12 megna, 14 vætla, 15 vökvi, 16 oks, 17 að baki, 18 kvenvargur, 19 ráða í, 20 siga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 lokka, 4 tepra, 7 tamar, 8 kúlan, 9 auk, 11 nýra, 13 saum, 14 fenna, 15 þjál, 17 tákn, 20 eða, 22 ölæði, 23 ljúft, 24 geisa, 25 nauti. Lóðrétt: 1 lútan, 2 kamar, 3 aðra, 4 tekk, 5 pilta, 6 af- nám, 10 unnið, 12 afl, 13 sat, 15 þröng, 16 áræði, 18 álútu, 19 nátti, 20 eira, 21 alin. Krossgáta  6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.