Morgunblaðið - 20.01.2004, Page 43

Morgunblaðið - 20.01.2004, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 43 DAGBÓK Lífrænt ræktaðar vörur Kárastíg 1, 101 Reykjavík, sími 562 4082. Þorrinn er hafinn hjá okkur Úrvals hefðbundinn þorramatur ásamt súrum hval og skötustöppu Sendum hvert á land sem er Gerum tilboð í veisluna ykkar Verslunin Svalbarði Framnesvegi 44, Reykjavík, sími 551 2783 Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, sími 564 2783 Verkun, sími 562 2738 Netfang: svalbardi@isl.is STJÖRNUSPÁ Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert kraftmikil/l, skapandi og sjálfstæð/ur og ferð oft ótroðnar slóðir. Þú þarft að gæta þess að ganga ekki of langt í umgengni við aðra. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Reyndu ekki að slá ryki í augu vina þinna. Þeir þekkja þig og látalæti verða því bara vandræðaleg og geta jafnvel orðið til að spilla annars góðu sambandi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að gera þér grein fyrir því hvaða verkefni geta beðið og hver þú þarft að setja í forgang. Gott skipulag getur bjargað miklu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það hjálpar ekkert að líta framhjá vandamálunum. Þau hverfa ekki, heldur verða bara erfiðari viðfangs ef við tökumst ekki á við þau strax. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Öllu gamni fylgir nokkur al- vara. Góðlátlegt grín er í lagi, en gættu þess að niðurlægja ekki neinn með gamansemi þinni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gættu þess að hlaupa ekki langt yfir skammt í dag. Þó þér líði vel í sviðsljósinu er ekki rétt að gera hvað sem er til að vekja á sér athygli. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú þarft að setjast niður og reyna að gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú sæk- ist raunverulega eftir í lífinu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þegar þú ferð að uppskera árangur erfiðis þíns þarftu að muna eftir öllum þeim, sem réttu þér hjálparhönd. Leyfðu þeim að gleðjast með þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hættu að velta þér upp úr mistökunum. Reyndu heldur að læra af þeim og halda svo ótrauður áfram. Batnandi manni er best að lifa. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt þú hafir í mörg horn að líta máttu ekki gleyma vinum þínum. Gefðu þeim tíma og ræktaðu sambandið við þá. Þú þarft á þeim að halda. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú verður að skipuleggja starf þitt betur ef þú átt að koma einhverju í verk. Byrj- aðu á því að loka á málglaða vinnufélaga. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú þarft ekki að tala á torg- um og hól til að koma skila- boðum til fólks. Innihald þess sem þú segir skiptir meira máli en framsetningin. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er engu líkara en annar hver maður í veröldinni vilji ná tali af þér. Reyndu að velja úr þannig að þú getir sinnt því sem skiptir raun- verulegu máli. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. HEIMSÓKN Frá gullnu víni, ljúfum perluleik við ljóð og draum, frá rós, sem angar bleik, þú hrekkur upp með andfælum og hlustar. Því sjá, það hefur hent, sem kveiðstu mest: Hér hýsir þú í stofu þinni gest, sem óvænt kom og köldum hrolli gustar. Og þér finnst gestsins ásýnd stinga í stúf við stofu þína. Hans rödd er köld og hrjúf og vekur hjá þér gremju, ógn og ótta. Og langt að baki rís þín rödd og spyr: Hví rekurðu ekki þennan gest á dyr? Er ekki tími til að leggja á flótta? Of seint, of seint. Þig elta augu hans. Þú ert á valdi hins dapra komumanns. – – – Tómas Guðmundsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 20. jan- úar, er fimmtug Björg Ólafsdóttir. Hún er á leið til Kanaríeyja ásamt eig- inmanni sínum, Sigurði Arnþórssyni. SVEIT Orkuveitu Reykjavík- ur stóð af sér öll áhlaup á loka- spretti Reykjavíkurmótsins og vann sannfærandi sigur. Sveit- in fékk 333 stig, eða 19,59 að jafnaði úr leik. Sveit Eyktar varð önnur með 320 stig, en Essosveitin þriðja með 316. Liðsmenn OR eru: Svæar Þor- björnsson, Páll Valdimarsson, Anton Haraldsson, Sigurbjörn Haraldsson, Þröstur Ingimars- son og Bjarni H. Einarsson. Norður ♠ÁG5 ♥Á43 ♦ÁD103 ♣D98 Vestur Austur ♠10763 ♠D82 ♥D109 ♥G5 ♦K ♦97652 ♣K7543 ♣G106 Suður ♠K94 ♥K8762 ♦G84 ♣Á2 Spilið að ofan kom upp í 15. umferð á laugardaginn. Almennt spiluðu NS-pörin fjögur hjörtu, en eitt par freistaði gæfunnar í sex hjörtum. Það voru fyrrum Skagamenn, þeir Eiríkur Jónsson og Jón Alfreðsson, í sveit þess fyrrnefnda. Slemman er býsna hörð. Til að byrja með þarf tíg- ulkóngurinn að liggja fyrir svíningu og trompið að falla 3-2. En það þarf ýmilsegt annað að koma til. Eiríkur var við stýrið og fékk út lauf. Hann stakk upp drottningu blinds, tók tvo efstu í hjarta og spilaði litlum tígli að borð- inu. Þegar kóngurinn kom var hægt að leggja upp. Vestur hélt að hann hefði gefið slemmuna með út- spilinu, en svo er ekki. Ekki má koma út með spaða, því þá hleypir sagnhafi á níuna heima. Útspil í trompi kemur auðvitað ekki til greina, en tígulkóngurinn er möguleiki. Og það útspil gefur ekkert. En sagnhafi á svar við þeim leik. Hann tekur ÁK í hjarta og spilar svo tíglunum. Ef vest- ur neitar að trompa verður hann sendur inn á þriðja hjart- að í fyllingu tímans til að spila laufi frá kóngnum eða spaða frá tíunni. Sama niðurstaða. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. 0-0-0 Bd7 9. f3 Be7 10. h4 h6 11. Be3 b5 12. g4 Rxd4 13. Bxd4 b4 14. Re2 e5 15. Be3 Da5 16. Kb1 Be6 17. Rc1 d5 18. Bh3 d4 19. Bf2 g5 20. Bf1 Hg8 21. Rb3 Da4 22. hxg5 hxg5 23. Bd3 Rd7 24. De2 Dc6 25. Hh6 Bf8 26. Hh7 Bg7 27. Bg3 Bf6 28. Be1 Hb8 29. Bxa6 Hb6 30. Bd3 Ke7 31. Rc1 Rf8 32. Hh2 Rg6 33. Bd2 Ha8 34. b3 Ha3 35. Hh5 Hb8 36. Bxg5 Bxg5 37. Hxg5 Hba8 38. Dh2 Dc5 39. f4 Da5 Staðan kom upp í C-flokki Corus skákhátíðarinnar sem fer fram þessa dagana í Wijk aan Zee í Hollandi. Merab Gagun- ashvili (2.583) hafði hvítt gegn Jan Werle (2.407). 40. Hxg6! Hæglátari leikur eins og 40. fxe5 hefði einnig getað tryggt hvítum sigur. 40. ...fxg6 41. Dh7+ Kd6 42. fxe5+ Dxe5 43. Db7 Dc5 44. He1 og svartur gafst upp þótt hann hefði getað barist áfram eftir t.d. 44. ...De5. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Ljósmynd/Bonni BRÚÐKAUP. Hinn 21. júní voru gefin saman í hjónaband í Kópavogskirkju af séra Pétri Þorsteinssyni þau Þórey Ósk Árnadóttir og Heiðar Gunnarsson. Þau eru til heimilis að Forsölum 1 í Kópavogi. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík     Sveit Orkuveitu Reykjavíkur vann Reykjavíkurmótið Sveit Orkuveitu Reykjavíkur sigr- aði í Reykjavíkurmótinu í sveita- keppni sem lauk um helgina. Í sig- ursveitinni spiluðu Sævar Þorbjörnsson, Páll Valdimarsson, Sigurbjörn Haraldsson, Anton Har- aldsson, Þröstur Ingimarsson og Bjarni H. Einarsson. Tóku þeir fé- lagar forystu í fyrstu umferð og að- eins einu sinni allt mótið leiddu þeir ekki, en því var kippt snarlega í liðinn og enduðu þeir mótið 13 stigum fyrir ofan næstu sveit. Sautján sveitir spiluðu um titilinn og réttinn til að spila í undanúrslitum Íslandsmótsins. Helstu tíðindi voru þau að sveit Félagsþjónustunnar sem spilaði í úrslitum Íslandsmótsins í fyrra komst ekki í gegn um niður- skurðinn. Þeim fylgja reynslumiklir spilarar úr sveit ROCHE, ásamt fleiri góðum sveitum. En mikil keppni var á milli sveita allan tímann. Reykjavík á aðeins rétt á 12 sveitum í undanúrslit, en þær voru 15 í fyrra. Orkuveita Reykjavíkur 320 Eykt 320 Esso 316 stig Ferðaskrifstofa Vesturlands 298 Sveitin mín 288 Anna Ívarsdóttir 282 SS 279 stig Þrír Frakkar 278 Grant Thornton 278 Esja 254 stig Eiríkur Jónsson 247 Símon Símonarson 242 ROCHE 237 Félagsþjónustan 203 Halldóra Magnúsdóttir 176 Guðmundur Magnússon 167 Eiríkur & Einar Valur hf. 112 Félag eldri borgara í Kópavogi Þátttakan hjá eldri borgurum er jöfn og góð en 22 pör mættu til keppni þriðjudaginn 13. janúar sl. Efstu pör í N/S: Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufda 254 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 242 Eysteinn Einarss. - Ólafur Ingvarss. 240 Svava Ásgeirsd. - Þorvaldur Matthíass. 240 Hæsta skor í A/V: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 262 Einar Einarsson - Hörður Davíðss. 250 Bjarni Kjerulf - Þorleifur Þórarinss. 229 Sl. föstudag var hörkukeppni í báð- um riðlum en þá mættu 20 pör. Loka- staða efstu para í N/S: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 245 Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal 241 Auðunn Guðmss. - Bragi Björnss. 240 Og hæsta skor í A/V: Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 265 Júlíus Guðmundss. - Óskar Karlss. 256 Björn Kristjánss. - Gunnar Sigurbj.ss. 255 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson 80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 20. jan- úar, er áttræð Ása Guðrún Sturlaugsdóttir, nú búsett á Hjúkrunarheimilinu Sól- túni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.