Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
ALEXANDERS Petersons, ís-
lenski Lettinn í liði Düsseldorf, fór
á kostum og skoraði 9 mörk þegar
lið hans vann Gelnhausen á útivelli,
27:20, í þýsku 2. deildinni í hand-
knattleik um helgina. Arnar Geirs-
son skoraði 2 mörk fyrir Gelnhaus-
en í leiknum. Düsseldorf er með
eins stigs forystu í suðurriðli 2.
deildar og hefur unnið 17 af 19
leikjum sínum í vetur en Gelnhaus-
en er í 12. sæti.
PETERSONS varð íslenskur rík-
isborgari fyrir tæpu ári síðan en
þar sem hann lék með landsliði
Lettlands fram að því, má hann
ekki spila með íslenska landsliðinu
fyrr en eftir tvö ár.
HALLDÓR Sigfússon skoraði 2
mörk fyrir Friesenheim sem vann
Melsungen, 29:23, í suðurriðli
þýsku 2. deildarinnar á laugardags-
kvöldið. Friesenheim er í áttunda
sæti riðilsins.
BOSTJAN Ficko, einn af lands-
liðsmönnum Slóveníu sem mætir
Íslendingum á fimmtudag, hefur
samið við þýska 1. deildarliðið
Nordhorn. Ficko hefur til þessa
leikið með Prule í heimalandi sínu
en hann er 29 ára gamall leikstjórn-
andi. Nordhorn hefur verið í vand-
ræðum þar sem bæði Ljubomir
Vranjes og Maik Machulla hafa
verið lengi frá vegna meiðsla.
OLA Lindgren, þjálfari Nord-
horn, segir að Ficko fari beint í sitt
lið og spili í 60 mínútur frá og með
fyrsta leik eftir EM-hléið á þýsku 1.
deildinni. Lindgren segir að Ficko
sé agaður og reyndur leikstjórnandi
með mikla yfirsýn – einmitt leik-
maðurinn sem sig hafi vantað.
HENRIK Larsson, markahrókur
Celtic og sænska landsliðsins, mun
fara til Barcelona þegar samningur
hans við Celtic rennur út í sumar –
að sögn enska blaðsins The Sun.
Larsson hefur sýnt Newcastle lít-
inn áhuga og er sagt að vikulaun
hans hjá Barcelona verði 9,1 millj.
ísl. kr.
MORTEN Olsen, landsliðsþjálfari
Dana í knattspyrnu, er tilbúinn að
framlengja samning sinn við danska
knattspyrnusambandið fram yfir
heimsmeistaramótið í Þýskalandi
2006. Olsen tók við þjálfun lands-
liðsins af Bo Johansson, fyrrum
landsliðsþjálfara Íslands, fyrir fjór-
um árum og þessi 54 ára gamli
fyrrverandi fyrirliði danska lands-
liðsins hefur þótt afar farsæll í
starfi og vinsæll hjá leikmönnum.
FULHAM hyggst fá bandaríska
framherjann Brian McBride til að
fylla skarð Louis Saha sem er á leið
til Manchester United. McBride
leikur með liði Columbus Crew í
bandarísku atvinnumannadeildinni
en hann er ekki ókunnugur ensku
úrvalsdeildinni því hann lék með
liði Everton fyrir tveimur árum og
þótti standa sig vel.
FRAMTÍÐ knattspyrnumannsins
Tryggva Guðmundssonar er enn
óráðin en samningur hans við
norska úrvalsdeildarliðið Stabæk
rann út nú um áramótin. Tryggvi,
sem er enn að jafna sig eftir fótbrot,
leitar að nýjum vinnuveitendum.
Hann segist vilja reyna fyrir sér á
öðrum vígstöðvum heldur en með
liðum í Skandinavíu en ef ekkert
dettur inn á borð hans áður en fé-
lagaskiptaglugginn lokast um næstu
mánaðamót reiknar hann með að
spila áfram í Noregi eða í Svíþjóð.
Tryggvi segir vel mögulegt að
hann leiti á náðir norska knatt-
spyrnusambandsins og FIFA og
sæki um lengri frest til að finna sér
nýtt lið þar sem hann er án félags og
hefur átt í meiðslum allan jan-
úarmánuð.
„Það kemur vel til greina að ég
sæki um frest þar til í lok febrúar.
Ég gæti hins vegar skrifað undir
samning við norsk eða sænsk lið í
dag en ég vil bíða aðeins lengur og
sjá hvort ekki eitthvað annað bjóð-
ist,“ sagði Tryggvi við Morgunblaðið
í gær.
Tryggvi vildi ekki greina frá því
hvaða félög í Noregi og Svíþjóð
hefðu sóst eftir kröftum hans en
sagði þó að ef hann yrði áfram í Nor-
egi þá yrði það á Óslóarsvæðinu.
Það má því leiða líkur að því að
eitthvert þessara liða, Lyn, Våler-
enga eða Lilleström, hafi sett sig í
samband við Tryggva.
Tryggvi Guðmundsson
bíður og vonar
Sir Alex Ferguson knattspyrnu-stjóri hefur undanfarnar vikur
reynt ítrekað að fá hinn 25 ára
gamla Saha til Old Trafford. Hann
gekk hins vegar á veggi þegar hann
viðraði áhuga sinn við forráðamenn
Fulham en á sunnudaginn létu Ful-
ham-menn undan þrýstingi og sam-
þykktu að selja þeim leikmanninn
sem þeir keyptu fyrir fjórum árum
á 2,1 milljón punda.
Smellpassar inn í liðið
Frank Stapleton fyrrum miðherji
Manchester United og Arsenal
sagði við Sky-sjónvarpsstöðina að
Saha ætti eftir að styrkja sóknar-
leik liðsins gríðarlega mikið.
„Saha hefur sýnt og sannað að
hann er kominn í fremstu röð og ég
held að hann geti smellpassað inn í
lið Manchester United. Það hefur
allt of mikið mætt á Van Nistelrooy.
Hann hefur varla fengið hvíld og
menn hafa stólað á að hann skoraði
öll mörk liðsins. Það gengur aldrei
upp og ég er viss um að Van Nist-
elrooy fagnar komu Saha og saman
held ég að þeir geti náð afar vel
saman,“ sagði Stapleton.
Saha segir að draumur sinn sé að
rætast. Hann hafi um árabil átt sér
þann draum að leika með Man-
chester United en þegar forráða-
menn Fulham með knattspyrnu-
stjórann Chris Coleman í broddi
fylkingar neituðu Manchester-
mönnum statt og stöðugt um að fá
leikmanninn brást Saha ókvæða við
og líklega hefur það vakið Fulham-
menn til umhugsunar að Saha hót-
aði því að klára samning sinn við fé-
lagið og fara síðan frá því án
greiðslu.
Saha er leikmaðurinn sem Sir
Alex setti í forgang að fá til liðs við
sig og einn af stóru kostunum að
mati Skotans er að Saha er gjald-
gengur með liðinu í Evrópukeppn-
inni. Ruud Van Nistelrooy hefur
oftar en ekki verið einn í fremstu
víglínu meistaranna á leiktíðinni og
stuðningsmenn félagsins ásamt fyr-
irliðanum Roy Keane hafa hvað eft-
ir annað á undanförnum missterum
biðlað til Ferguson um að fjárfesta í
nýjum framherja þar sem Nistel-
rooy er ekki fær um að draga vagn-
inn einn og sér í sóknarleik liðsins.
Diego Forlan hefur valdið vonbrigð-
um og virðist ekki vera sá leik-
maður sem Ferguson getur treyst á
og Norðmaðurinn Ole Gunnar Sol-
skjær er enn frá vegna meiðsla.
Verð glaðasti maðurinn
á Englandi
„Ég vil spila í Meistaradeildinni
og vera í liði sem er að berjast um
titlana. Ég er því afar ánægður með
að samkomulag virðist vera í höfn
og ég verð glaðasti maðurinn á öllu
Englandi þegar þetta verður orðið
klárt. Ég vissi að þetta var síðasta
tækifæri fyrir mig að fara til liðsins.
Ef Fulham hefði haldið því til
streitu að leyfa mér ekki að fara þá
hefði Manchester United einfald-
lega keypt annan framherja. Ég ótt-
ast ekki samkeppnina. Í öllum
stórum félögum er mikil samkeppni
og ég ætla mér að spila eins marga
leiki og mögulegt er. Old Trafford
er minn happavöllur. Ég hóf ferilinn
í úrvalsdeildinni með Fulham á Old
Trafford og skoraði tvö mörk á
þessum frábæra velli,“ sagði Saha
við breska blaðið Daily Express í
gær en hann er markahæsti leik-
maður Lundúnaliðsins með 15 mörk
á leiktíðinni.
Meistararnir, sem töpuðu óvænt
fyrir Úlfunum um helgina og hafa
ekki skorað í síðustu tveimur deild-
arleikjum, héldu til Dubai á sunnu-
daginn þar sem þeir ætla að dvelja
fram eftir viku og hlaða batteríin
fyrir komandi verkefni en um næstu
helgi mætir United 3. deildarliði
Northampton í bikar-
keppninni. Saha er
ekki gjaldgengur með
Manchester United í
bikarkeppninni en
hann leikur væntan-
lega sinn fyrsta leik í
búningi „rauðu djöfl-
anna“ 31. janúar þeg-
ar United tekur á
móti Southampton.
Reuters
Louis Saha hefur skorað grimmt fyrir Fulham. Fellur hann inn í leik Manchester United?
Frakkinn Louis Saha gengur í raðir Manchester United
„Draumur
að rætast“
FRANSKI framherjinn Louis
Saha gengur í raðir Englands-
meistara Manchester United
síðar í vikunni en eftir japl, jaml
og fuður náðu forráðamenn
Manchesterliðsins samkomu-
lagi við Fulham um kaupin.
Áætlað kaupverð er 12 milljónir
punda sem samsvarar rúmum
1,5 milljörðum króna.
’ „Ég er viss um að Van Nistelrooy fagnar komu Saha
og ég held að þeir
geti náð afar vel saman.“ ‘
Frank Stapleton
SILJA Úlfarsdóttir úr FH hóf
innanhússtímabilið vel á móti
í Kentucky í Bandaríkjunum
um helgina.
Silja bætti
verulega
tíma sinn í
200 og 400
metra
hlaupum.
Hún hljóp
200 metr-
ana á 24,21
sekúndu og
kom í mark
í 400 metra
hlaupinu á
54,07 sek. Báðir þessir tímar
eru undir gildandi Íslands-
meti í flokki 21–22 ára og
einnig undir gildandi Íslands-
meti kvenna í 200 metra
hlaupinu, sem Sunna Gest-
dóttir á (24,30 sek.), en þar
sem keppt var á yfir 200
metra braut (291 metra
hringur) fást metin ekki stað-
fest.
Silja keppir aftur í 200
metra hlaupi um næstu helgi
í Clemson, þá á 200 m braut.
Silja
hljóp vel í
Kentucky
Silja