Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÝ VERSLUNARMIÐSTÖÐ Hugmyndir eru uppi um að reisa sjö til 15 þúsund fermetra versl- unarmiðstöð norðan við Lækjartorg sem myndi síðan tengjast fyrirhug- uðu tónlistar- og ráðstefnuhúsi á hafnarsvæðinu. Hefur hugmyndin verið kynnt fyrir borgarstjóra og menntamálaráðherra. Ríkið ásælist lönd Kröfugerð ríkisins í þjóðlendur á Suðvesturlandi kemur lögmönnun á óvart. Þykir þeim ljóst að tekið verði til varna af fullri hörku og segir lög- maður Orkuveitu Reykjavíkur ríkið ásælast lönd sem fyrirtækið hafi keypt á undanförnum árum. Ofurlaunin athuguð Nú á næstunni verður hafist handa við það innan Evrópusam- bandsins að kanna ofurlaun ýmissa stjórnenda og þá ekki síður ævin- týralega starfslokasamninga. Ætlar framkvæmdastjórn ESB að beita sér fyrir þessu í samráði við aðildar- ríkin og er stefnt að því að leggja fram ákveðnar tillögur um þessi mál í september. Frits Bolkestein, sem fer með málefni innra markaðarins, tilkynnti þetta í gær en ofurlaunin hafa víða vakið mikla gremju meðal almennings og hluthafa. Múrinn fyrir rétt Fulltrúar Palestínumanna hófu í gær málflutning fyrir Alþjóðadóm- stólnum í Haag vegna aðskilnaðar- múrsins, sem Ísraelar eru að reisa á landamærum Ísraels og Palestínu og einnig langt inni á palestínsku landi. Ísraelsstjórn heldur ekki uppi vörnum í málinu og segir dómstólinn ekki hafa lögsögu í því. Efndu hvor- irtveggju til mótmæla í gær, með og á móti múrnum. Rannsaka ferðir Litháans Lögreglan vinnur nú m.a. að því að rannsaka hvort Litháinn sem fannst látinn í höfninni í Neskaup- stað hafi komið áður til Íslands undir eigin nafni eða dulnefni. Lögreglan hefur lagt hald á tvo bíla sem talið er að tengist málinu. Hass í minjagripum Starfsmenn sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli fundu í síðustu viku um 10 kg af hassi í sendingum af minjagripum. Talið er að hassið hafi upprunalega komið með flug- frakt frá Nepal og var maður um þrítugt handtekinn vegna málsins á föstudaginn. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 12 Minningar 32/36 Erlent 13/16 Bréf 40 Höfuðborgin 18 Dagbók 42/43 Akureyri 19 Íþróttir 44/47 Suðurnes 20 Leikhús 48 Landið 22 Fólk 48/53 Listir 25/25 Bíó 50/53 Forystugrein 30 Ljósvakar 54 Umræðan 26/27 Veður 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Kíktu í heimsókn Velkomin í ævintýraheim Holtasmára 1 • 201 Kópavogur Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309 Netfang: langferdir@langferdir.is Heimasiða: www.langferdir.is Opnunartímar skrifstofu: 10:00-17:00 alla virka daga. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra kom í opinbera heimsókn til Úkraínu síðdegis í gær. Með ráðherra í för eru Ólafur Davíðsson ráðuneytis- stjóri, Illugi Gunnarsson, aðstoðar- maður ráðherra, og Albert Jónsson, sérfræðingur ráðuneytisins í utan- ríkismálum, auk sendinefndar at- hafnamanna úr viðskiptalífinu. Hópurinn lenti í Kíev síðdegis og var dagurinn nýttur til að heimsækja sögufræga staði. Í dag, þriðjudag, mun forsætisráð- herra hitta utanríkisráðherra Úkra- ínu, Kostyantyn Hryschchenko, á morgunverðarfundi. Þá á hann fund með forsætisráðherra landsins, Viktor Yanukovych, og í framhaldi undirrita ráðherrarnir tvíhliða samning milli landanna en að því búnu verður efnt til blaðamanna- fundar. Forsætisráðherra mun heim- sækja þjóðþingið og eiga stuttan fund með forseta þess, Volodymyr Lytvyn. Hádegisverðarfundur er boðaður með borgarstjóranum í Kíev, Olexandr Omelchenko, og síð- degis á forsætisráðherra fund með forseta Úkraínu, Leonid Kuchma. Um kvöldið efnir forsætisráð- herra Úkraínu til opinbers kvöld- verðar til heiðurs Davíð Oddssyni forsætisráðherra. Opinber heimsókn forsætisráð- herra til Úkraínu hafin Heimsótti sögu- fræga staði FYRIR Alþingi liggur tillaga til þingsályktunar, frá þingmönnum Samfylkingarinnar, um að nefnd kanni möguleika á að þróa milliliða- laust lýðræði og kosti rafrænna að- ferða við framkvæmd þess. Er markmiðið með tillögunni að þróa lýðræðið áfram í ljósi aukinnar menntunar og bætts aðgangs að upplýsingum, að því er fram kemur í greinargerð tillögunnar. Fyrsti flutningsmaður er Björgvin G. Sig- urðsson alþingismaður. Meginefni tillögunnar er að Al- þingi álykti að setja á stofn nefnd sem kanni möguleika við að þróa milliliðalaust lýðræði og kosti raf- rænna aðferða við framkvæmd þess. Nefndin kanni einnig hvernig hægt verði að nota Netið til að þróa milliliðalaust lýðræði og hafi þar að leiðarljósi öfluga persónuvernd við framkvæmd kosninga og þjóðarat- kvæðagreiðslna á Netinu. „Nefndin kanni jafnframt hvaða áhrif milli- liðalaust lýðræði hefði á samfélagið, efnahagslega, félagslega og stjórn- málalega, sérstaklega með tilliti til sveitarstjórna og sveitarfélaganna þar sem auðvelt er að nota milli- liðalaust lýðræði í miklum mæli.“ Er lagt til að nefndin skili grein- argerð eigi síðar en eftir sex mán- uði. Nær upprunanum Eins og áður sagði er markmið tillögunnar að þróa lýðræðið áfram. „Markmiðið er að Ísland verði fánaberi í framþróun lýðræðislegra stjórnarhátta þar sem hinn almenni borgari kemur í sem mestum mæli að meginákvörðunum samfélagsins. Þær miklu breytingar sem orðið hafa á félagslegum og efnahags- legum aðstæðum á Vesturlöndum síðustu áratugi kalla á breytingar á lýðræðisfyrirkomulaginu. Almenn og góð menntun, mikil tölvueign og meiri frítími en nokkurn tíma áður kallar á að almenningur hafi miklu meira um hagi sína að segja en áð- ur. Sá tími á að vera liðinn að fulltrúar almennings taki allar ákvarðanir. Tímabært er að færa valdið í ríkari mæli til fólksins,“ segir í greinargerð. Þar segir sömuleiðis að ef lýð- ræði sé skilgreint þannig að fólkið skuli ráða, þá sé milliliðalaust lýð- ræði mun nær upprunanum en það lýðræðisfyrirkomulag sem tíðkast hafi víðast hvar og feli í sér kosn- ingar til löggjafar- og/eða fram- kvæmdarvalds á nokkurra ára fresti. „Til að taka nýlegt íslenskt dæmi um raunverulegt lýðræði má nefna atkvæðagreiðsluna sem átti sér stað í Reykjavík fyrir tveimur árum um framtíðarstað flugvallar- ins í Vatnsmýrinni,“ segir í grein- argerð. „Sú atkvæðagreiðsla var merkileg tilraun í milliliðalausu lýð- ræði og líklegt er að hún gefi tón- inn fyrir innleiðingu beins lýðræðis á sveitarstjórnarstiginu, þar sem það á allra best við og er líklegast til að taka út þroska sem lýðræð- isform framtíðarinnar. Tæknin hefur breytt eðli og inn- taki lýðræðisins. Nú er einstakling- urinn hjá jafn vel upplýstri þjóð og Íslendingar eru þess umkominn að veita álit sitt og umsögn, nánast hvenær sem er í krafti þekkingar sinnar og hæfni. Menntabyltingin og aðgengi að upplýsingum gerir þetta að veruleika og á að fleyta okkur frá fulltrúalýðræði síðustu alda til milliliðalausrar þátttöku borgaranna sjálfra við stjórnun samfélagsins.“ Tillaga Samfylkingar um könn- un á milliliðalausu lýðræði ERFITT er að henda reiður á hve margar rjómabollur landsmenn inn- byrtu í gær en ljóst að þær skipta hundruðum þúsunda. Rjómabollur með súkkulaði runnu að minnsta kosti ljúflega niður hjá krökkunum í leikskólanum Laufásborg þegar ljósmyndari leit inn í miðdegis- kaffinu og fangaði stemninguna. Síðan verða bollurnar varla melt- ar þegar tekið verður til við allt salt- kjötið og baunirnar í dag, sprengi- dag. Örtröð var hjá honum Birni Sævarssyni, kjötvinnslumanni í Nóatúni, í gær þar sem heilu trogin af saltkjötinu runnu út á skammri stundu. Að sögn Björns má ætla að tvö tonn af saltkjöti hafi selst úr kjötborði Nóatúns í gær og í dag megi vænta sölu upp á 1–1,5 tonn. „Þetta er okkar stóri söludagur,“ sagði Björn, glaður í bragði. Ljóst er að áramótaheit fólks um að létta sig eru lögð til hliðar þessa daga og leyfa margir sér að njóta hefðar- innar sem þá er höfð í heiðri. Síðan má friða samviskuna og taka upp hollara líferni og mataræði. Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Ásdís Úr bollum yfir í saltkjöt og baunir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.