Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 37 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu/sölu Við Gylfaflöt 24-30 424 m² með sýningar/afgreiðslusal og 100m² skrifstofu á millilofti. Við Fossaleyni 8 432 m² með mikilli lofthæð og tveimur góðum innkeyrsludyrum. Upplýsingar í síma 577 2050 eða 824 2050 Skrifstofuherbergi/leiga Til leigu rúmgóð, nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa. Upplýsingar í síma 896 9629. Leiguhúsnæði Samstarfsaðili óskast á Seyðisfirði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir leiguhúsnæði og samstarfsaðila fyrir vínbúð á Seyðisfirði. Húsnæðið skal vera um 25 m² og þarf að vera lokað frá annarri starfsemi. Leitað er eftir rými, samtengdu öðrum atvinnurekstri, sem á sam- leið með rekstri vínbúðar hvað snertir hreinlæti og umhverfi. Greiður aðgangur þarf að vera til vörumóttöku. Við verslunina þarf að vera góð aðkoma fyrir fatlaða. Húsnæðið verður að hljóta samþykki bygging- afulltrúa, vinnueftirlits, brunaeftirlits og heil- brigðiseftirlits. Óskað verður eftir samþykki lögreglu á staðsetningu verslunarinnar og leyfi sveitarstjórnar til að reka verslunina. Forsenda leigusamnings er að leigusali sé jafn- framt samstarfsaðili um rekstur vínbúðar og veiti ÁTVR ýmis konar þjónustu, t.d. við mót- töku vöru og aðstoð við verslunarstjóra ÁTVR á annatímum og í forföllum og leysi hann einnig af í sumarleyfum. Gögn, er lýsa nánar óskum ÁTVR um ástand húsnæðis og þjónustu, liggja frammi á skrif- stofu ÁTVR, Stuðlahálsi 2, Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Steinsson í síma 560 7700. Með umsókn leigusala/samstarfsaðila fylgi upplýsingar um atvinnuferil. Sé um fyrirtæki að ræða, er óskað eftir upplýsingum um hvenær það var stofnað, rekstrarform og nöfn eigenda. Ársreikningur síðasta árs skal fylgja með umsókn ásamt staðfestum vottorðum um skil á opinberum gjöldum og iðgjöldum í lífeyrissjóði. Með allar upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál. Tilboð, er greini hvenær leigutími geti hafist, stærð húsnæðis, húsaleigu og þjónustugjöld, berist skrifstofu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, Stuðlahálsi 2, 110 Reykjavík, eigi síðar en 15. mars 2004. Reykjavík, 22. febrúar 2004. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. 135 fm jarðhæð/leiga Til leigu 135 fm jarðhæð við Dugguvog. Tilvalin fyrir heildverslun eða léttan iðnað. Vörumóttökudyr. Upplýsingar í síma 896 9629. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, föstudaginn 27. febrúar 2004, sem hér segir: Austurvegur 7, Reyðarfirði ( 217-7395 ), þingl. eig. Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir og Guðmundur Karl Bóasson, gerðarbeiðendur Fjarðabyggð, Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf., aðalstöðvar og Lífeyrissjóður Austurlands, kl. 10:45. Borgarland 24, Djúpavogi (217-9407), þingl. eig. Guðlaugur Harðar- son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 14:45. Hlíðargata 27, Neskaupstað (216-9214), þingl. eig. Gréta Sigrún Gunnlaugsdóttir og Bóas Kristinn Bóasson, gerðarbeiðendur Gúmmí- vinnustofan hf., Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf., kl. 09:45. Skólabraut 12, Stöðvarfirði (217-8397), þingl. eig. Erling Ómar Erlingsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 13:15. Sýslumaðurinn á Eskifirði, 23. febrúar 2004. UPPBOÐ Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Bjarmastígur 15, íb. 01-0201 eignarhl. , Akureyri, þingl. eig. Aðalheið- ur K. Ingólfsdóttir, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Brekkugata 3, iðn. 03-0101, Akureyri, þingl. eig. Brekkubúðin ehf., gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Brekkugata 3B, vörugeymsla 02-0101, Akureyri, þingl. eig. Brekku- búðin ehf., gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Búnaðarbanki Íslands hf., föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Draupnisgata 7, iðnaður 01-0201, Akureyri, þingl. eig. Björgvin Jóns- son, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Glerárgata 34, iðnaðarhús, 01-0101, Akureyri (214-6552), þingl. eig. Legsteinar ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Sparisjóður Norðlendinga, föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Hafnarstræti 18, íb. 01-0101, Akureyri (214-6857), þingl. eig. Guð- mundur Þorgilsson, gerðarbeiðandi Landssími Íslands hf., föstu- daginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Hraunholt 2, Akureyri, þingl. eig. Stefanía Jóhannsdóttir og Bragi Steinsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Landsbanki Íslands hf., föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Skriðuland, eignarhl., Arnarneshreppi (152347), þingl. eig. Halldóra L. Friðriksdóttir, gerðarbeiðendur SP Fjármögnun hf. og Verkval, verktaki, föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Torfufell, Eyjafjarðarsveit (152813), þingl. eig. Víðir Ágústsson og Adda Bára Hreiðarsdóttir, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Húsa- smiðjan hf., Íbúðalánasjóður og Lánasjóður landbúnaðarins, föstu- daginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Víðilundur 8i, íb. 01-0303, Akureyri (215-1688), þingl. eig. Sonja Ró- bertsdóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Vátrygg- ingafélag Íslands hf., föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 23. febrúar 2004. Harpa Ævarrsdóttir, ftr.  HLÍN 6004022419 IV/V  FJÖLNIR 6004022419 I  EDDA 6004022419 III I.O.O.F. Rb. 1  1532248-9.O* Hátíðar- og inntökufundur hjá KFUM fimmtudaginn 26. febrúar kl. 19:00 Fundurinn hefst með borðhaldi kl. 19:00. Dagskráin er í höndum stjórnar félagsins. Verð á mat er kr. 2.800. Nauðsynlegt er að skrá sig í matinn á skrifstofunni í s. 588 8899 í síðasta lagi á miðviku- dag. Stýrimann vantar á Björgu SU 200 brt. togskip. Gerð út frá Breið- dalsvík. Uppl. í síma 690 4844 eða um borð í bátnum í síma 852 1114. LÖGREGLAN í Reykjavík hafði í nógu að snúast um helgina. Eitt af því óvenjulegasta sem á daga henn- ar dreif gerðist síðdegis á laug- ardag þegar tilkynnt var þjófnað á Vitastíg, en þaðan hafði ein- hver stolið fánastöng og íslenska fánanum. Um helgina voru 9 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur en 18 um of hraðan akstur. Þá voru tilkynnt til lögreglu 42 umferð- aróhöpp þar sem eignatjón varð og verður það að teljast óþarf- lega mikið. Á föstudagskvöld fauk biðskýli Strætó við Skógarhlíð. Skýlið lenti ofan á bifreið svo að fram- endi hennar skemmdist talsvert. Botninn í strætóskýlinu er steyptur en mjög rýr og lyftist með þegar skýlið fauk á hliðina. Höfð voru afskipti af fólki á bifreið og í framhaldi af því var farið í húsleit þar sem fannst töluvert magn af ætluðu amfeta- míni. Fólkið var fært á lög- reglustöðina og yfirheyrt. Ná- lægt miðnætti var tilkynnt um innbrot í Mýrarhúsaskóla. Spenntur var upp gluggi og stol- ið tölvuskjám og myndvarpa. Skömmu eftir miðnætti var til- kynnt um líkamsárás í Austur- stræti. Viðkomandi var sleginn eða skallaður af tveimur mönn- um. Hann reyndist með skurð á enni og var fluttur á slysadeild. Skömmu síðar var ekið á tvo gangandi vegfarendur á gatna- mótum Hafnarstætis og Póst- hússtrætis. Ökumaður mun hafa verið að taka framúr öðrum bíl þegar hann ók á mennina. Meiðslin voru ekki mikil. Þá var tilkynnt um innbrot í skóla í austurborginni. Þar hafði rúða verið brotin á austurhlið hússins og stolið flatskjá og lyklaborði. Síðla nætur aðfaranótt laug- ardags komu lögreglumenn að slagsmálum á Laugavegi. Þar hafði maður brotið rúðu í úti- hurð veitingastaðar svo að gler- brotum rigndi yfir starfsmenn og gesti. Fólkið brást illa við og réðst á manninn sem braut rúðuna. Einn starfsmaður slas- aðist og einn gestur staðarins auk geranda sem var fluttur í fangageymslu. Nakinn nágranni var með mikla háreysti Þá óskaði maður aðstoðar að veitingahúsi við miðborgina en hann sagði að dyraverðir hafi kastað honum svo harkalega út af veitingastaðnum að hann hafi lent á andlitinu og brotið tennur. Að sögn dyravarða mun mað- urinn hafa áreitt konur þarna inni en hann neitaði því. Á sunnudagsmorgun var til- kynnt um innbrot í fyrirtæki við Vitastíg. Þar var brotin rúða, stolið tölvu og unnar skemmdir. Skömmu fyrir hádegi var til- kynnt um hávaða í húsi í aust- urborginni. Maður þar sagði ná- granna sinn vera með mikla háreysti og læti en þegar mað- urinn fór að huga að þessu rudd- ist nágranni hans fram úr íbúð- inni með látum, allsnakinn og lét heldur ófriðlega. Þegar lög- reglumenn ræddu við þann nakta lofaði hann að hafa lægra. Stal fánastöng og íslenska fánanum Helstu verkefni lögreglunnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.