Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 20
SUÐURNES 20 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja hf. telur með öllu óviðunandi að ný skipan raforkumála leiði til stór- felldrar hækkunar raforkuverðs viðskiptavina fyrirtækisins og skorar á Alþingi að koma í veg fyr- ir að slíkt geti gerst. Forstjóri fyr- irtækisins segir að áformaðar breytingar geti leitt til 25–30% hækkunar raforkuverðs. Í ályktun stjórnarinnar sem samþykkt var á fundi í Vestmanna- eyjum er ekki sagt hvað raforku- verðið á veitusvæðinu muni hækka. Júlíus Jónsson, forstjóri fyrirtæk- isins, segist hafa metið það svo að hækkunin gæti numið 25 til 30% ef allt gengi eftir sem talað hefur verið um. Hækkar mest þar sem verð er lægst Hann vísar til þess að Hitaveita Suðurnesja sé með lægstu raforku- taxta, almennir taxtar séu 10% lægri en annars staðar og fyrir- tækjataxtar 15% lægri. Aðalástæð- an fyrir þessu sé hagkvæm orku- framleiðsla í Svartsengi sem sé undir innkaupsverði raforku. Hún hafi verið notuð til að greiða niður dreifingarkostnaðinn. Nú verði framleiðsla og dreifing aðskilin og dreifikerfið verði að bera sig sjálft, án stuðnings frá raforkuframleiðsl- unni. Miðað við kostnaðartölur frá árinu 2002 þýði þetta 12–14% hækkun raforkuverðs. Ef tillögur meirihluta nítján manna nefndar ná fram að ganga óbreyttar mun Hitaveita Suður- nesja þurfa að greiða 250 milljónir kr. í flutningsjöfnun til annarra veitna. Það segir Júlíus að þýði 12– 14% hækkun raforkuverðs að því gefnu að hægt verði að leggja þetta gjald á alla viðskiptavini. Tekur hann raunar fram að á veitusvæðinu séu nokkrir við- skiptavinir með sérstaka samn- inga, svo sem laxeldi og varnarlið- ið, og ekki víst að unnt verði að hækka verðið til þeirra. Að auki falli til ýmis kostnaður, svo sem við eftirlit og mælingar, og sá kostn- aður muni einnig koma fram í raf- orkuverðinu. Metur hann það svo að raforkuverðið muni hækka um 25 til 30% þegar allt er talið. „Það segir sig sjálft að þegar markmiðið er að jafna raforku- verðið þá hækkar mest hjá þeim sem eru með lægsta verðið. Það þarf ekki neinar reiknikúnstir til að finna það út,“ segir Júlíus. Auk Suðurnesja eru Vestmanna- eyjar, Hafnarfjörður og hluti Garðabæjar og Bessastaðahrepps á orkuveitusvæði Hitaveitu Suður- nesja. Raforkuverð hjá Hitaveitu Suðurnesja gæti hækkað um 25–30% Stjórn HS telur hækkun óviðunandi Garður | Búmenn hafa byggt alls tuttugu íbúðir í Garði. Sex voru af- hentar um helgina. Byrjað er á byggingu átta íbúða til viðbótar og stefnir í að á næsta ári verði Bú- mannaþorpið við Kríuland og Lóu- land með þrjátíu íbúðum. Íbúðirnar sem Búmenn afhentu um helgina eru í þremur parhúsum við Lóuland. Þrjár eru 90 fermetrar að stærð og þrjár 105 fermetra. Í íbúðirnar flytja þrjár fjölskyldur úr Garði og þrjár annars staðar frá. Bragi Guðmundsson bygg- ingaverktaki byggði íbúðirnar. Við athöfn sem fram fór síðdegis á föstu- dag afhenti Bragi Guðrúnu Jóns- dóttur, formanni stjórnar Búmanna, íbúðirnar og hún afhenti síðan íbú- unum lyklavöldin. Björn Sveinn Björnsson sóknarprestur blessaði húsin og að lokum var gestum boðið upp á veitingar. Áhugi á byggingu samfélagsaðstöðu Búmenn hafa nú afhent tuttugu íbúðir í Garði á tveimur og hálfu ári. Bragi Guðmundsson bygg- ingaverktaki hefur byggt allar íbúð- irnar. Að sögn Ásgeirs Hjálm- arssonar, formanns Suðurnesjadeildar Búmanna, hafa Búmenn nú fjárfest fyrir um það bil 300 milljónir á staðnum. Hann segir þessa hröðu uppbyggingu ekki síst Braga að þakka. Hann hafi ávallt byrjað á nýjum húsum þótt ekki hafi verið full trygging fyrir því að Bú- menn keyptu þau. Það hafi auðveld- að mjög framgang málsins. Bragi er nú byrjaður á átta íbúð- um til viðbótar og hafa fengist láns- loforð út á þau. Ásgeir segir stefnt að afhendingu fjögurra í desember næstkomandi og fjögurra næsta vor. Þá sé ein lóð eftir á svæðinu og þeg- ar það hús verði byggt verði þarna risið 30 íbúða Búmannaþorp. Hann getur þess að Búmenn hafi mikinn áhuga á að koma upp samfélags- aðstöðu á lóð sem tekin hefur verið frá í þeim tilgangi. Þar yrði fund- arsalur og jafnvel aðstaða fyrir fé- lagsstarf aldraðra í bæjarfélaginu. Sigurður Jónsson bæjarstjóri segir að þetta hafi verið rætt óformlega. Búmenn séu tilbúnir að byggja slíkt hús og jafnvel stærra hús með meiri þjónustu fyrir bæjarfélagið. Sig- urður segir jákvætt að þarna yrði komið upp aðstöðu fyrir fé- lagsstarfið. Hann getur þess einnig að lagðar hafi verið fram tillögur um uppbyggingu á þjónustu fyrir aldr- aða á lóð Garðvangs og þyrfti að fást niðurstaða í það mál áður en teknar yrðu upp formlegar viðræður við Búmenn. 20 íbúðir risnar í Búmannaþorpinu í Garði Ljósmynd/Hilmar Bragi Nýir Búmenn: Íbúar í nýju Búmannaíbúðunum í Garði fengu blómvönd í tilefni dagsins. BÆJARSTJÓRINN í Garði, Sig- urður Jónsson, og Ásta Arnmunds- dóttir, kona hans, voru í hópi þeirra sem tóku við lyklum að nýj- um Búmannaíbúðum úr hendi Guð- rúnar Jónsdóttur, formanns hús- næðissamvinnufélagsins. Sigurður Snær Sigurðsson, dóttursonur þeirra, var viðstaddur athöfnina. „Þetta er heppilegt fyrir gamalt fólk,“ sagði Sigurður þegar hann var spurður að því hvers vegna þau flyttu úr eigin einbýlishúsi í íbúð Búmanna sem þau eiga aðeins hlut í. Sigurður og Ásta eru á sex- tugsaldri. Sigurður sagði að komið væri að viðhaldi á húsi þeirra við Melabraut. Íbúarnir í Búmanna- íbúðunum þyrftu ekki að hafa neinar áhyggjur af viðhaldi. Yfirleitt hefur gengið vel hjá kaupendum Búmannaíbúða í Garði að selja hús sín. Sigurður sagði raunar að það væri eitthvað treg- ara nú um stundir en auðvelt yrði að leigja húsið þar til markaðurinn lifnaði við á ný, ef á þyrfti að halda. Ljósmynd/Hilmar Bragi Þarf ekki að hugsa um viðhald hússins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.