Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. STARFSMENN sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli fundu í síðustu viku um 10 kg af hassi í sendingu af minjagripum sem talið er að hafi upp- runalega komið með flugfragt frá Nepal, í gegnum þriðja land. Maður um þrítugt var handtekinn vegna málsins á föstudag, og var hann á laugardag úrskurðaður í gæsluvarð- hald fram á föstudaginn 27. febrúar og er málið enn í rannsókn hjá lögreglu. Að sögn Harðar Jóhannessonar, yf- irlögregluþjóns hjá Lögreglunni í Reykjavík, hefur maðurinn ekki kom- ið við sögu lögreglu vegna fíkniefna- mála áður. Húsleit var gerð á heimili mannsins en ekki fundust fíkniefni þar. Miðað við meðalverð á hassi í lausa- sölu í janúar sl., uppgefnu af SÁÁ, er ætlað götuverðmæti af sölu á 10 kg af hassi um 22 milljónir króna, en hvert gramm kostaði að meðaltali 2.200 kr. Fundu 10 kg af hassi í minjagripa- sendingu ÞAÐ VAR myndarlegt saltfjallið aftan við Guðmund Sigurðsson í vöruskemmu Saltkaupa í Hafnarfirði enda nýbúið að taka inn salt frá Túnis og því ein þrjú þúsund tonn í skemmunni en mest getur hún rúmað 3.500 tonn af salti. Guðmundur segir að Saltkaup, sem er dótt- urfélag SÍF, sé að verða eina fyrirtækið sem höndli með og dreifi salti til fiskvinnslufyr- irtækja hér á landi. „Saltfiskvertíðin er að byrja og við erum að afgreiða þetta frá þúsund og upp í þrjú þúsund tonn á mánuði,“ segir Guðmundur. Morgunblaðið/Rax Situr við rætur saltfjallsins KRÖFUGERÐ ríkisins í þjóðlend- ur á Suðvesturlandi, svæðum innan Gullbringu- og Kjósarsýslu, kemur þeim lögmönnum verulega á óvart sem Morgunblaðið ræddi við í gær, skömmu eftir að kröfugerðin hafði verið kynnt á vef óbyggðanefndar. Þykir þeim ljóst að tekið verði til varna af fullri hörku. Þannig segir lögmaður Orkuveitu Reykjavíkur að ríkið sé að ásælast lönd sem fyr- irtækið hafi keypt á undanförnum árum. Ólafur Björnsson, sem hefur ver- ið lögmaður margra landeigenda í fyrri málum hjá óbyggðanefnd, segir að í fljótu bragði virðist ríkið vera að gera kröfur í eignarlönd eða hluta þeirra, s.s. í Ölfushreppi og Vatnsleysustrandarhreppi. Rík- ið sé í raun að fara inn á stóran hluta af landnámi Ingólfs. „Nam ekki Ingólfur Arnarson allt þetta land? Alla tíð hefur verið talað um landnám Ingólfs en nú kemur allt í einu í ljós að hann hefur ekki num- ið þetta land. Það er furðulegt. Er verið að gera landnámsmanninn ómerkan? Þetta hlýtur að vera ein- hver misskilningur hjá ríkinu. Reykjanesskaginn hefur alla tíð verið í einkaeigu, bæði einkaaðila og sveitarfélaga. Samningar og landamerkjabréf liggja fyrir um það,“ segir Ólafur og tekur sem dæmi malarnám og virkjunarsvæði uppi á Hellisheiði. Kemur verulega á óvart Hjörleifur B. Kvaran, lögmaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) segir sín fyrstu viðbrögð vera þau að kröfugerðin komi sér verulega á óvart. Hann eigi þó eftir að kynna sér kröfulínurnar nánar og rýna betur í kortin. Þó sé ljóst að ríkið sé „að ásælast“ lönd að hluta til sem Orkuveitan hafi keypt á undanförn- um árum. Einnig geti kröfurnar varðað hagsmuni Reykjavíkurborg- ar og annarra sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu, sem muni hafa ýmislegt við kröfur ríkisins að at- huga. Hjörleifur segist þegar hafa sent ýmis gögn til óbyggðanefndar er varða svæði sem OR athafnar sig á. Bera þurfi þessi gögn saman við kröfugerð ríkisins. Ríkið með kröfur í lönd í eigu Orkuveitunnar Er verið að gera Ingólf Arnarson ómerkan, spyr Ólafur Björnsson hrl.  Krafist hluta/6 KAUPHÖLL Íslands gerði í fyrra yfir 60 athugasemdir við útgefendur skráðra verðbréfa auk þess að beita opinberri áminningu og févíti í þrígang og óopinberri áminningu jafnoft. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju yfirliti eftirlitsmála Kauphallarinnar fyrir árið í fyrra, en það var í gær birt í fyrsta sinn. Athugasemdirnar og áminningarnar lúta flestar að upplýsingagjöf útgefend- anna. Kauphöllin hefur í mörgum tilfellum fundið að því að upplýsingar berist of seint eða séu settar fram með ófullnægjandi hætti. Yfir 60 athuga- semdir Kaup- hallarinnar  Þrjár opinberar/12 VEL miðaði í kjaraviðræðum verkalýðshreyfingarinnar og Sam- taka atvinnulífsins í gær en þá var unnið í vinnuhópum án atbeina rík- issáttasemjara. Aðalsamninga- nefndir beggja aðila munu funda í dag með Ásmundi Stefánssyni sáttasemjara þar sem staðan verð- ur metin og áætlun gerð um fundi næstu daga. Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að farið sé að rofa til í ýmsum sérmál- um og að á morgun hefjist vænt- anlega viðræður um stærri mál eins og lífeyrismálin. „Ég er hæfilega bjartsýnn um að þetta eigi allt sam- an eftir að ganga upp,“ segir Hall- dór. Ari Edwald, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir vinnu við sérkjarasamninga mikla og seinlega. Þó sé farið að sjá fyrir endann á þeirri vinnu. Launatafla sé að verða tilbúin og búið sé að fara yfir almennar kröfur. Kjaramálin voru til umræðu á Al- þingi í gær þar sem spurt var utan dagskrár um aðkomu ríkisstjórnar- innar að kjarasamningum. Ítrekaði Geir H. Haarde fjármálaráðherra í þeim umræðum að það væri stefna ríkisstjórnarinnar að lögfesta hér skattalækkanir að loknum kjara- samningum. Halldór Ásgrímsson, starfandi forsætisráðherra, sagði ekki tímabært að greina frá því með hvaða hætti ríkisstjórnin kæmi inn í gerð kjarasamninga, samskiptin við aðila vinnumarkað- arins væru í eðlilegum farvegi. Deiluaðilar funda með ríkissáttasemjara í dag  Skattalækkanir/10 UPPSELT er á 20 sýningar Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu á söng- leiknum Chicago. Í gær voru ekki laus sæti fyrr en í lok apríl nk. Þórhildur Þor- leifsdóttir, leikstjóri sýningarinnar, segir þessar viðtökur leikhúsgesta að sjálf- sögðu ánægjulegar og aðsóknin eigi sér varla mörg fordæmi. Frumsýning var 18. janúar síðastliðinn og síðan þá hefur ver- ið uppselt á vel á annan tug sýninga. Guð- jón Pedersen leikhússtjóri segir aðsókn- ina hafa farið fram úr björtustu vonum. „Öllum þykir gaman í leikhúsinu þegar vel selst,“ segir Þórhildur og þau Guðjón reikna með að taka þurfi söngleikinn upp aftur í haust, miðað við þessa miklu að- sókn. Morgunblaðið/ÞÖK Uppselt á 20 sýningar á Chicago JÓNAS Ingi Ragnarsson hefur ákveðið að kæra ekki gæsluvarð- haldsúrskurð til Hæstaréttar, en hann var úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 3. mars vegna rannsóknar á líkfundinum í Neskaupstað. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jónasar, staðfesti þetta í gærkvöldi. Segir hann að Jónas hafi ákveðið að kæra ekki vegna þess að hann meti það svo að fyrir hendi sé nægilega rökstuddur grunur sem tengi hann við málið til að ekki þýði að kæra. Kærir ekki gæsluvarð- haldsúrskurð  Rannsaka/4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.