Morgunblaðið - 24.02.2004, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 11
BRESK flugvallayfirvöld, British Airport
Authorities, sem reka sjö flugvelli í Bretlandi
áttu í gær viðræðufund í Reykjavík við full-
trúa sex lággjaldaflugfélaga sem fljúga til
Stanstedflugvöll við London frá heimalöndum
sínum. Þeirra á meðal er Iceland Express og
segir Ólafur Hauksson, talsmaður félagsins,
að með þessu hafi flugvallayfirvöldin viljað
kynna félögin hvert fyrir öðru og möguleika
þeirra á að tengja leiðanet sín um Stansted.
Hin flugfélögin eru pólska félagið Airpo-
lonia, Germanwings og Air Berlin frá Þýska-
landi, SkyEurope frá Slóvakíu, og norska fé-
lagið Norwegian. Talsmaður flugvallarins
segir að um flugvöllinn fari nú kringum 20
milljónir manna á ári og um 90% þeirra séu
farþegar lággjaldaflugfélaganna. Með ýmsum
aðgerðum megi án efa auka enn farþegafjölda
félaganna, ekki síst með því að þau bendi far-
þegum sínum á að nýta framhaldsflug hvert
hjá öðru. Ólafur Hauksson sagði það áhuga-
vert fyrir Iceland Express að hin félögin
bentu farþegum sínum á Ísland sem ferða-
möguleika og sagði hann lággjaldafélögin
m.a. eiga það sameiginlegt að þeim hefði víða
tekist að laða nýjan hóp farþega til að ferðast.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fulltrúar sex lággjaldaflugfélaga áttu fund í Reykjavík ásamt fulltrúum breskra flugvallayfirvalda.
Samstarf
um Stansted-
flugvöll rætt
Fulltrúar sex erlendra lággjaldaflugfélaga þinguðu í Reykjavík í gær
GUÐRÚN Frímannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnverndarnefndar
Reykjavíkur, vísar alfarið á bug
ummælum forsvarskvenna Fjöl-
skylduverndar í Tímariti Morgun-
blaðsins um helgina þar sem starfs-
hættir nefndarinnar í
umgengnismálum eru harðlega
gagnrýndir. Fullyrt er m.a. að rétt-
ur feðra til að umgangast börn sín
sé svo sterkur að hann veiti í sum-
um tilvikum feðrum rétt til að
áreita barnsmæður sínar og börn
svo árum skipti án afskipta barna-
verndaryfirvalda. Haft er eftir ein-
um af stofnendum Fjölskylduvernd-
ar að mörg dæmi séu um að
málstaður mæðra sé afbakaður og
tekinn af þeim andmælaréttur.
Að sögn Guðrúnar eru umgengn-
ismál sem til nefndarinnar berast
erfiðustu málin í kerfinu sem ekki
hefur tekist að leysa hjá sýslu-
mannsembættinu. „Ég get ekki tek-
ið undir að við séum að sjá mörg
dæmi þess að menn séu að áreita
konur sínar í áraraðir. Það er algjör
undantekning og þá erum við að
tala um mjög veika einstaklinga.
Það sem þessar konur eru oft að
kvarta undan eru feður sem telja
sig eiga rétt á að umgangast og
þekkja börnin sín og þeim er mein-
að það. Þessar konur koma hingað
og tala um hvað þessir menn séu
hræðilegir en þegar farið er ofan í
saumana þá er þetta oft ansi mikið
af alvarlegum fullyrðingum sem
ekki er alltaf fótur fyrir. […] Það
liggur hvergi fyrir staðfesting í
sumum þessara mála að menn eigi
að hafa verið börnunum sínum
slæmir og gerst sekir um alls konar
óhæfu sem er verið að bera upp á
þá og er hvergi hægt að finna neinn
fót fyrir nema ummæli þessara
kvenna. Í þeim tilfellum fá mæð-
urnar að sjálfsögðu ekki stuðning
barnaverndaryfirvalda við að koma
í veg fyrir rétt barnsins til að um-
gangast feður sína,“ segir Guðrún.
Hafa rétt til fundarsetu og fá
greinargerðir með fyrirvara
Að sögn Guðrúnar er fyrst reynt
að ná samkomulagi milli foreldra
um umgengni við börnin. Reynist
enginn grundvöllur fyrir samkomu-
lagi kynnir starfsfólk Barnavernd-
arnefndar sér aðstæður foreldra og
hittir börnin að máli. Rituð er
greinargerð um aðstæður foreldra
og þeim boðið að lesa drögin yfir og
leiðrétta áður en hún er yfirfarin af
lögfræðingi og framkvæmdastjóra
Barnaverndarnefndar. Að sögn
Guðrúnar er greinargerð tilbúin
fimm sólarhingum áður en Barna-
verndarnefnd fjallar um viðkomandi
mál. Þá er fólki ævinlega boðið að
mæta á fundi nefndarinnar og tjá
sig um það sem fram kemur í grein-
argerðinni og einnig að koma með
viðbótarupplýsingar sé þess óskað.
Ummæli foreldra eru síðan bókuð
og þau send ásamt umsögn Barna-
verndarnefndar til sýslumannsemb-
ættisins sem kveður upp úrskurð
um hvernig umgengni skuli háttað
ef ekki liggur fyrir samkomulag.
Guðrún vill að endingu árétta að
Barnaverndarnefnd er umsagnar-
aðili og allar ákvarðanir eru í hönd-
um sýslumannsembættisins.
Alvarlegar fullyrðingar sem
ekki reynast vera sannar
Framkvæmdastjóri Barnavernd-
arnefndar Reykjavíkur vísar gagn-
rýni Fjölskylduverndar alfarið á bug
VG fundar um
jafnréttismál
Kynbund-
inn launa-
munur fer
vaxandi
KYNBUNDINN launamunur fer
vaxandi og ástæðan er m.a. sú að
ákvarðanir á vinnumarkaði eru í
auknum mæli einstaklingsbundnar.
Þetta kom fram í máli Atla Gísla-
sonar, hrl. og varaþingmanns
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs sem haldinn var á laug-
ardag undir yfirskriftinni „Samræð-
ur um jafnréttismál“.
Atli kynnti frumvarp sem hann
ásamt öðrum þingmönnum VG hef-
ur lagt fram til Alþingis og kveður á
um auknar heimildir Jafnréttisstofu
til að krefja fyrirtæki um upplýs-
ingar um launakjör starfsmanna í
þeim tilgangi að sporna við kyn-
bundnum launamun og tryggja að
jafnréttisstefnu sé fylgt eftir.
Atli benti á að launamunur milli
karla og kvenna sé á bilinu 14–18%
og „engin teikn á lofti um að hann
sé á undanhaldi“.
Samkvæmt frumvarpinu á Jafn-
réttisstofa að fá heimildir til að
krefja fyrirtæki um upplýsingar um
laun karla og kvenna, svipaðar þeim
heimildum sem Samkeppnisstofnun
hefur til að krefja fyrirtæki um upp-
lýsingar um verðlag.
Brot á stjórnarskrá að
borga konum lægri laun
Í máli Atla á fundinum kom fram
að brot á jafnréttislögum, til dæmis
í því formi að greiða konum lægri
laun en körlum, er brot á stjórn-
arskrá. Brot á lögum um samkeppni
sé hins vegar ekki stjórnarskrár-
brot. Því sé jafnvel enn meiri
ástæða til að Jafnréttisstofa hafi
heimildir til að krefjast upplýsinga
en fyrir Samkeppnisstofnun að fá
upplýsingar um mál er hana varða.
Hann sagði núverandi heimildir
Jafnréttisstofu aðeins almenns eðlis
en með frumvarpinu vilji þingmenn
VG ganga lengra og veita stofnun-
inni vald til að nálgast sértækar
upplýsingar, t.d. um launamál, í
ákveðna deild innan fyrirtækis en
ekki bara í fyrirtækinu í heild. Hann
sagði kærunefnd jafnréttismála ekki
virka sem skyldi þar sem jafnan
skorti sannanir.
Drífa Snædal, varaþingmaður
VG, fór yfir sögu jafnréttisbaráttu
hér á landi. Hún sagðist telja margt
hafa áunnist en að langt væri í land
með að ná jafnrétti karla og kvenna.
Hún benti á að ábyrgð á börnum og
heimili væri enn á herðum kvenna.
„ÞAÐ er alveg rétt að hluti af iðnaðinum er far-
inn úr landi, það er bara staðreynd sem ekki
verður horft fram hjá,“ segir Jón Steindór Valdi-
marsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins. Á ráðstefnu Samfylkingarinnar um
efnahagsmál á laugardag, sagði Gylfi Arnbjörns-
son, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Ís-
lands, að iðnaðurinn væri á hraðri leið úr landinu
og að aðild að evrunni væri leiðin til að tryggja
samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Samtök
iðnaðarins telja einnig aðild að Evrópusamband-
inu og upptöku evru bestu leiðina til að bæta
markaðsstöðu íslenskra fyrirtækja.
Gengissveiflur erfiðar
Iðnaður er um fimmtungur af vinnuafli, lands-
framleiðslu og útflutningstekjum á Íslandi og
segir Jón Steindór að langstærstur hluti iðnaðar-
ins eigi í samkeppni við erlenda keppinauta,
hvort sem það er við innflutning til landsins eða
á erlendum mörkuðum. „Alþjóðavæðingin hefur
gert það að verkum að samkeppnin harðnar og
markaðirnir opnast. Þetta gildir um okkur líka
og þá hafa þættir eins og sveiflur í gengi krón-
unnar áhrif. Menn selja í einni mynt en útgjöldin
eru í annarri,“ segir Jón Steindór.
Hann nefnir að miklar sveiflur í gengi krón-
unnar séu fyrirtækjum í útflutningi erfiðar. Frá
árinu 2001 til dagsins í dag hafi 40% munur orðið
á hæsta og lægsta gildi bandaríkjadals. Hæsta
gildi var 110,65 krónur og það lægsta 67,45 krón-
ur. „Þetta eru sveiflur sem maður ræður ekkert
yfir sjálfur. Það sér hver heilvita maður að 40%
sveifla í verðinu getur ekki verið góð, þannig að
menn leita vars við þessu, t.d. með því að flytja
starfsemina til útlanda,“ segir Jón Steindór og
bætir við að það skipti minna máli hvort gengið
sé hátt eða lágt þegar fyrirtæki kaupi og selji í
sama gjaldmiðlinum. „En þegar þú ert sitt hvor-
um megin með fæturna er svolítið erfitt að stíga
ölduna,“ segir hann.
Jón Steindór segir að ofsagt sé að iðnaður hér
á landi sé að leggjast af, en mörgum af stærri
iðnfyrirtækjunum hafi vaxið mjög ásmegin, þau
séu með starfsemi í mörgum löndum og verði um
leið viðkvæmari fyrir þessum sveiflum. Þau eigi
auðveldara með að flytja starfsemina eða hluta
hennar út, þegar þau teygi anga sína til margra
mismunandi landa. Hann nefnir að lægri fram-
leiðslukostnaður skipti einnig sköpum þegar
menn ákveða að flytja starfsemi sína héðan.
„Þegar þú leggur saman öll þessi atriði þá
hugsa menn mjög alvarlega um að flytja sig um
set. Þetta er alveg rétt hjá Gylfa [Arnbjörns-
syni], ég held að þessi hætta fari frekar vaxandi
en hitt.“ Sjávarútvegsfyrirtæki hafa í fjölmörg ár
rekið verksmiðjur á erlendri grundu, en Jón
Steindór nefnir að þó nokkur fyrirtæki hafi leit-
að til Eystrasaltslandanna á síðustu árum, t.d.
Nói-Síríus, Byko, Plastprent og Húsasmiðjan. Þá
fari hluti af starfsemi Hampiðjunnar fram í
Portúgal.
„Það er engin launung á því að Samtök iðn-
aðarins telja að besta vörnin við þessu sé að
ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Að
auki eru vextir hér á landi háir, m.a. vegna þess
að við erum með krónuna. Það er innbyggt að
vextirnir verða alltaf hærri hér en í evrulandi,“
segir Jón Steindór.
Samtök iðnaðarins staðfesta flótta iðnfyrirtækja frá Íslandi
Evrópusambandsaðild og
upptaka evru besta vörnin
♦♦♦
Alcoa fær
umhverfisverð-
laun í Iowa
EIN af verksmiðjum Alcoa, sem
hyggst reisa álver í Reyðarfirði,
hlaut nýlega æðstu viðurkenningu
sem yfirvöld Iowa-fylkis í Banda-
ríkjunum veita fyrir árangur á sviði
umhverfismála.
Alcoa hefur á undanförnum tíu
árum varið alls 70 milljónum dollara
til að draga úr mengun í tengslum
við starfsemi verksmiðjunnar, sem
er nærri bænum Davenport við ána
Mississippi og framleiðir unnar ál-
vörur af ýmsu tagi. Í tilkynningu frá
Alcoa segir að losun mengandi loft-
tegunda vegna starfsemi verksmiðj-
unnar hafi í heild minnkað um 94% á
undanförnum áratug og vatnsþörf
verksmiðjunnar hafi dregist saman
um 97% á sama tímabili. Alcoa hefur
í samstarfi við umhverfisstofnun
Bandaríkjanna gert viðamikla út-
tekt á verksmiðjunni í því skyni að
greina hugsanleg vandamál og
tryggja að framleiðslan uppfylli
gildandi reglur og geti mætt kröfum
framtíðarinnar.