Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 13
FRANSKI hægrimaðurinn
Jean-Marie Le Pen var í gær
útilokaður frá því að bjóða sig
fram í hér-
aðskosning-
um í Suður-
Frakklandi
er dómari
úrskurðaði
að honum
hefði ekki
tekist að
sanna að
hann ætti
lögheimili í héraðinu Province-
Alpes-Cote d’Azur þar sem
hann hugðist fara fram. Fram-
bjóðendur áttu að tilkynna
þátttöku sína í gær svo útlit
var fyrir að ómögulegt yrði
fyrir Le Pen að vera með í
kosningunum 21. og 28. mars.
Flokkur hans hafði því einung-
is nokkrar klukkustundir til að
finna nýjan frambjóðanda.
Sprenging í
kolanámu
AÐ MINNSTA kosti átta
manns létu lífið og 29 var
saknað eftir að sprenging varð
í kolanámu í Kína í gær.
37 manns voru við vinnu
niðri í kolanámu við borgina
Jixi í norðurhluta Heilongji-
ang-héraðs þegar sprengingin
varð. Aðstæður fyrir björgun-
arfólk voru afar erfiðar, nánast
ómögulegt var að komast inn í
námuna þar sem hitinn þar
var um 50 gráður á Celsíus og
eiturgufur fylltu námagöngin.
STUTT
Le Pen
útilokaður
Jean-Marie Le Pen
FULLTRÚAR Palestínumanna
hófu í gær málflutning fyrir Al-
þjóðadómstólnum í Haag vegna að-
skilnaðarmúrsins sem stjórnvöld í
Ísrael eru að reisa umhverfis
heimastjórnarsvæði Palestínu-
manna. Héldu þeir því fram að
múrinn, sem Ísraelar kalla örygg-
ismúr, ylli því að aldrei yrði hægt
að stofna sjálfstætt ríki Palestínu-
manna.
Nasser al-Kidwa, sendiherra Pal-
estínumanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, sem flytur málið fyrir þeirra
hönd, hóf mál sitt í gær m.a. með
því að fordæma öll hryðjuverk – en
í fyrradag biðu að minnsta kosti
átta Ísraelar bana í sjálfsmorðsárás
í Jerúsalem. Hann sagði hins vegar,
skv. fréttavef BBC, að þegar öllu
væri á botninn hvolft bæru ísraelsk
stjórnvöld ábyrgð á slíkum ódæðum
vegna þeirrar stefnu sem þau fram-
fylgdu gagnvart Palestínumönnum.
Ísraelsk stjórnvöld viðurkenna
ekki úrskurðarrétt Alþjóðadóm-
stólsins í þessu máli og því heldur
enginn uppi vörnum af þeirra hálfu
í réttarsal. Ísraelar hafa þó sagt að
múrinn sé nauðsynlegur til að koma
í veg fyrir að palestínskir hryðju-
verkamenn drepi ísraelska borgara.
Það var allsherjarþing SÞ sem
fór fram á að Alþjóðadómstóllinn í
Haag ræddi tilurð múrsins. Er gert
ráð fyrir að málflutningur fyrir
dómstólnum taki þrjá daga en
margir mánuðir munu síðan líða áð-
ur en dómstóllinn fellir úrskurð
sinn, geri hann það á annað borð.
Víða róstusamt
Bæði Palestínumenn og Ísraelar
stóðu fyrir mótmælaaðgerðum í
tengslum við upphaf málflutnings
fyrir Alþjóðadómstólnum. Sendiráð
Ísraels í Haag sá til að mynda um
3.500 Ísraelum, sem gengu fylktu
liði framhjá húsakynnum dómstóls-
ins, fyrir spjöldum þar sem komið
hafði verið fyrir ljósmyndum af
fórnarlömbum sprengjutilræða Pal-
estínumanna.
Í Abu Dis í Palestínu fór Ahmed
Qurei, forsætisráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, hins vegar fyr-
ir flokki manna sem gekk að átta
metra háum múrnum og hrópaði
slagorð gegn Ísraelsstjórn. Þá
varpaði hópur barna og unglinga
grjóti að ísraelskum hermönnum,
sem svöruðu með því að skjóta
gúmmíkúlum.
Palestínumenn stóðu einnig fyrir
mótmælaaðgerðum í Nablus, Jenín,
Tulkarem, Betlehem og Hebron á
Vesturbakkanum. Í Betlehem og
Deir Al-Ghossum, nærri Tulkarem,
beittu ísraelskir hermenn táragasi
til að dreifa mannfjölda sem þar
hafði safnast saman.
ReutersPalestínsk kona heldur á lofti AK-47-riffli á mótmælafundi í Gaza-borg í gær um leið og hún hrópar slagorð gegn ísraelskum stjórnvöldum.
Víða mótmæli vegna
málflutnings í Haag
Palestínumenn segja aðskilnaðarmúr
Ísraela koma í veg fyrir að hægt verði
að stofna sjálfstætt palestínskt ríki
Reuters
Gyðingar halda á lofti spjöldum með myndum af fórnarlömbum sprengju-
tilræða í Ísrael fyrir framan húsakynni Alþjóðadómstólsins í Haag í gær.
Abu Dis. AFP.