Morgunblaðið - 24.02.2004, Qupperneq 21
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 21
Heimsferðir bjóða beint flug til Barcelona alla fimmtudaga í sumar á
hreint frábærum kjörum. Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og
bíl á frábærum kjörum eða eitt af okkar vinsælu hótelum í hjarta
Barcelona. Bókaðu fyrir 15. mars og tryggðu þér
bestu kjörin.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 23.995
Flugsæti m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
m.v. 20. maí. Netverð. Sjá bækling
Heimsferða.
Verð kr. 59.990
Vikuferð, flug og gisting með
morgunmat og sköttum, m.v. 2 í herbergi,
Atlantis, 3. júní. Netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Vikulegt flug – alla fimmtudaga í sumar
Barcelona
í sumar
frá kr. 23.995
· Flug
· Flug og bíll
· Flug og hótel
Snjóbíll | Landsvirkjun hefur
keypt snjóbíl til notkunar á virkj-
unarsvæðinu við Kárahnjúka. Hann
verður staðsettur í aðalbúðunum í
umsjón framkvæmdaeftirlits
Landsvirkjunar, VIJV. Hafa starfs-
menn eftirlitsins verið þjálfaðir í
snjóbílaakstri og verður séð svo um
að einhver þeirra sé ætíð tiltækur á
staðnum ef grípa þarf til snjóbílsins
í ófærð.
Gæði | Loðnuvinnslan á Fá-
skrúðsfirði hefur hlotið við-
urkenningu frá Iceland Seafood
Corporation USA vegna fram-
úrskarandi gæða framleiðslu
sinnar fyrir Bandaríkjamarkað
árið 2003. Gísli Jónatansson fram-
kvæmdastjóri og Þorri Magn-
ússon framleiðslustjóri tóku á
móti viðurkenningunni fyrir LVF
á Lækjarbrekku í Reykjavík í lið-
inni viku. Fimm önnur fyrirtæki
hlutu einnig viðurkenningu fyrir
framleiðslu sína; Guðmundur
Runólfsson, ÚA, Fiskiðjusamlag
Húsavíkur og Sjóvík.
Djúpivogur | Svavar Sigurðsson,
skólastjóri Tónskóla Djúpavogs,
og Helgi Svavarsson, skólastjóri
Tónlistarskóla Akureyrar, eru
þessa dagana að koma af stað þró-
unarverkefni í tónlistarkennslu.
Verkefnið felst í að nota fjar-
fundabúnað til kennslu og gera
nemendum þannig kleift að fá sem
besta kennslu á það hljóðfæri sem
þeir eru að læra á.
Svavar sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki vita til að þetta
hefði verið reynt áður og að með
þessu væri vonandi brotið blað í
sögu tónlistarkennslu á Íslandi.
„Þetta er stórt skref fyrir fá-
menna skóla sem oft hafa fáa, allt
niður í einn kennara starfandi sem
þarf að kenna á öll hljóðfæri,“
sagði Svavar. „Það væri ekki gam-
an og í rauninni ósanngjarnt, ef
allir lærðu bara c-nótuna, nema
þeir auðvitað sem veldu sér aðal-
hljóðfæri kennarans.“
Arnar Jón Guðmundsson er
trommunemandi í Tónskóla Djúpa-
vogs og sat fyrsta tímann í síðustu
viku. Hann er á fjórða ári og naut
handleiðslu Karls Petersens, kenn-
ara við Tónlistarskóla Akureyrar, í
þessum fyrsta „fjarkennslu-
trommutíma“. Ekki var annað að
sjá en að nemandi og kennari
næðu vel saman, þrátt fyrir að
talsvert langt sé á milli Akureyrar
og Djúpavogs.
Stórt framfaraskref fyrir fámenna tónlistarskóla
Tónlist í fjarkennslu
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Fjarkennsluslagverkstaktar: Arnar Jón Guðmundsson er þátttakandi
í brautryðjandaverkefni í fjarkennslu tónlistarskóla.
Egilsstaðir | Fimleikadeild Hatt-
ar á Egilsstöðum hefur hlotið við-
urkenningu sem fyrirmyndarfélag
Íþrótta- og ólympíusambands Ís-
lands. Er Höttur fyrsta íþrótta-
félagið á Austurlandi sem hlýtur
þessa viðurkenningu, sem á rætur
sínar að rekja til gæðaverkefnis
ÍSÍ um íþróttafélög eða deildir
innan íþróttahreyfingarinnar sem
þykja til fyrirmyndar.
Iðkendur í fimleikadeild Hattar
eru nú um 170 talsins og er yf-
irþjálfari þeirra Auður Vala Gunn-
arsdóttir, sem þykir hafa sýnt
mikinn metnað og dugnað við efl-
ingu deildarinnar.
Stefnt að 50
fyrirmyndarfélögum
Meðal þess sem þótti lofsvert
hjá fimleikadeild Hattar var for-
eldrastarf, fræðslu- og forvarn-
arstarf og síðast en ekki síst þóttu
umhverfismál skipa stóran sess í
starfi félagsins.
Samkvæmt Petrúnu Bj. Jóns-
dóttur, verkefnisstjóra Fyr-
irmyndarfélags ÍSÍ, hafa 11 félög
eða deildir hlotið viðurkenninguna
fram að þessu.
„Mörg félög eru nú að vinna
stefnumótunarstarf sem felur í sér
að uppfylla þær kröfur sem getið
er um í handbókinni og stefnt er
að því að fyrirmyndarfélög/ deildir
verði orðin u.þ.b. 50 fyrir íþrótta-
þing sem haldið verður í endaðan
apríl 2004,“ segir Petrún.
Hún segir Fyrirmyndarfélag,
sem sett var á laggirnar 1997, vera
gæðaverkefni ÍSÍ sem taki fyrir
þá þætti sem gott félag þarf að
hafa til hliðsjónar til að geta starf-
að sem best.
Líklegan ávinning af því að ger-
ast fyrirmyndarfélag segir hún
margvíslegan. „Félög og deildir
sem hljóta viðurkenningu ættu að
eiga auðveldara með að afla sér
stuðnings frá sveitarfélögum sín-
um og öðrum stuðningsaðilum,
sem frekar vilja leggja nafn sitt
við fyrirmyndarfélög en önnur fé-
lög.“
Fimleikadeild Hattar
fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Til fyrirmyndar; Ellert B. Schram veitir Auði Völu Gunnarsdóttur og
Maríönnu Jóhannsdóttur, f.h. Fimleikadeildar Hattar, viðurkenningu ÍSÍ.
Egilsstaðir | Þessi maður vakti
óskipta athygli á Egilsstöðum á
sunnudag, þar sem hann vafraði
milli félaga sinna ofan úr Kára-
hnjúkum í Söluskála Kaupfélags
Héraðsbúa. Múnderingin var enda
fáséð á karlmanni; ákaflega stutt
pils sem flettist upp um manninn
þegar hann brá sér út fyrir í nepj-
una svo sá í nærklæðin, háhælaðir
skór, stór sólgleraugu og blá skupla
yfir fjólubláa hárkollu. Í fanginu
hafði kauði eitthvað sem átti að líkj-
ast brúðu og rorraði með hana fram
og til baka um staðinn. Hann gaf sig
einkum með þýsku tungutaki að
portúgölskum starfsmönnum, sem
vörðu frídegi sínum í bænum, milli
þess sem hann settist niður og greip
í prjónaskap við eitthvert veitinga-
borðið.
Mennirnir á staðnum voru yf-
irmáta vandræðalegir vegna þessa
furðufugls sem daðraði svo hast-
arlega við þá, og heimamenn sem
áttu leið um gátu vart hamið hlátra-
sköllin. Þegar nánar var að gáð
reyndist maðurinn vera portúgalsk-
ur verkamaður frá virkjunarsvæð-
inu og sagðist hann grípa til ýmissa
uppátækja til þess að hrekkja
vinnufélaga sína dálítið á frídögum.
Hann sagðist þegar vera farinn að
skipuleggja næsta hrekk, en neitaði
alveg að gefa upp í hverju hann
yrði fólginn. Egilsstaðabúar bíða
því spenntir til næsta sunnudags.
Hrekkjóttur með
prjónana sína
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Fáskrúðsfjörður | „Ég hef
lengi sinnt því sem kannski
má kalla hefðbundin karla-
störf,“ segir Jenný Einars-
dóttir, öryggis- og lager-
stjóri hjá Ístaki við
Fáskrúðsfjarðargöng.
Hún byrjaði sem ritari hjá
Ístaki fyrir mörgum árum,
fór þaðan í vinnu á vélaverk-
stæði og lager og hefur síðan
starfað hjá fyrirtækinu m.a. við gerð
Sultartangavirkjunar, Hvalfjarðar-
ganga, Smáralindar í Kópavogi og nú
síðast Fáskrúðsfjarðarganga.
„Ég ólst upp í byggingarbransan-
um og kannski því um að kenna að ég
lenti í þessu,“ segir Jenný. „Sérstak-
lega þótti mér gaman að vera með í
Hvalfjarðargöngunum frá upphafi til
enda. Það var góður vinnustaður og
gaman að vinna þar. Þetta er þó svip-
að. Hópurinn hér er vel samstilltur og
mjög gott að vera á Reyðarfirði.“
Öryggismálin gaumgæfð
Jenný starfar nú sem lagerstjóri
og öryggisvörður hjá Ístaki og hefur
aðsetur Reyðarfjarðarmegin við
göngin. Hún segir að ýmislegt felist í
starfinu og nefnir utanumhald á öll-
um öryggisbúnaði fyrir starfsmenn,
hvort sem það er hlífðarfatnaður eða
sjúkrakassar, súrefnistæki og reyk-
köfunartæki.
„Við erum með sérstakan lífgám í
göngunum, þar sem sex
menn geta beðið ef verður
hrun eða kviknar í fyrir
framan þá,“ heldur Jenný
áfram. „Þar er sími og
sjúkrakassi, eins og í bor-
vagninum sjálfum sem borar
út göngin. Við förum hálfs-
mánaðarlega um allt svæðið
beggja vegna ganga og
gaumgæfum öryggismál og
hvort ekki sé allt í góðu lagi, m.a. í
svefnskálum og mötuneytum, sem og
í göngunum sjálfum. Þá er einnig
fylgst með því hvort rusl og drasl sé
að fjúka um svæðið því við teljum
mikilvægt að hafa umhverfið eins
snyrtilegt og kostur er.“
Jenný sér einnig um ýmsa þætti
sem lúta að starfsmannahaldinu, svo
sem ferðir og yfirlit yfir hverjir eru
að gera hvað, svo að hún þarf að hafa
auga á hverjum fingri við Fáskrúðs-
fjarðargöng.
Valkyrjan í Fáskrúðs-
fjarðargöngum
Jenný Einarsdóttir.