Morgunblaðið - 24.02.2004, Side 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 23
yfir vatnsbaði. Límið er notað volgt
á fleti eða það sogað upp í sprautu og
því sprautað á fleti, sem erfitt er að
komast að.“
Konurnar þolinmóðari
Þegar Þórhallur er spurður um
erfiðustu viðfangsefnin í þessum
bransa svarar hann því til að ekkert
sé óyfirstíganlegt. Þetta sé spurning
um þolinmæði og tíma. „Það þarf
mikla þolinmæði í að gera upp gaml-
ar mublur. Þær mega eiga það kon-
urnar að þær hafa fengið örlítið
meiri skammt af þolinmæðinni en
karlarnir. Konur eru líka aðeins fjöl-
mennari en karlar á þessum nám-
skeiðum og þær hafa yfirleitt séð til
þess að hlutum hefur ekki verið
hent. Hingað koma alls konar hlutir í
misgóðu ástandi. Við höfum reynt
við þá alla og enginn hefur þurft að
fara til baka með hlutinn sinn í sama
ásigkomulagi og hann kom. Ég man
sérstaklega eftir konu austan af
Héraði sem var hálfpartinn í felum
með stól. Við skoðun vorum við sam-
mála um að stóllinn væri svo lélegur
að það væri varla hægt að nota hann
í eldivið. Þessi stóll fór hins vegar
heill út aftur.“
Þórhallur, sem er lærður tré-
skurðarmaður, húsgagnasmiður og
húsasmíðameistari og hefur
sérhæft sig í að gera upp gömul
hús og húsgögn, hefur verið
kennari á nám-
skeiðum Náms-
flokka Reykjavíkur
í húsgagna-
viðgerðum und-
anfarin fimm ár.
Hann segist vera
með þrjú til fjög-
ur námskeið í
gangi í einu. Í
hverjum hópi séu
aldrei fleiri en sex
manns. Hver hópur hittist viku-
lega frá 18.00 til 21.00 í níu vikur
samfleytt, en þess má geta að nám-
skeiðið kostar 20.500 krónur.
Við hjónin erfðum sex borð-stofustóla eftir tengdafor-eldra mína sem hafa verið
í notkun á mínu heimili undan-
farin ár. Þeir eru mjög illa farn-
ir, bæði sprungnir og farnir á
límingunum, svo ég ákvað að
gera þá upp.
Ég er búin með tvo stóla og er
nú með þann þriðja í klössun,“
segir Aðalheiður Helgadóttir,
sem var upptekin við að dytta að
stólunum á námskeiðinu. Hún
vinnur á næturvöktum á skamm-
tímaheimili fyrir fötluð börn.
Stólarnir eru rúmlega hálfrar
aldar gamlir, þeir eru úr beyki,
og útskurður í stólbökum er úr
birki þar sem mun auðveldara er
að skera út í birki en beyki.
„Mér finnst þetta mjög
skemmtilegt og hef verið að fikta
við þetta af og til. Ég fór fyrst á
námskeið hjá Námsflokkum
Kópavogs fyrir um aldar-
fjórðungi og teiknaði þá og
smíðaði hringlaga borðstofuborð
með renndri súlu niður úr því
miðju og þremur löppum út úr
henni. Þennan vetur smíðaði ég
líka teborð á hjólum og hef auk
þess verið töluvert í tréútskurði,
sem ég hef líka haft mjög gaman
af.“
STÓLAR|Aðalheiður Helgadóttir
Erfðum sex stóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðalheiður: Fær leiðsögn hjá Þórhalli Hólmgeirssyni kennara.
Á
S
P
R
E
N
T
Verð birt með fyrirvara um prentvillur.
Tilboðin gilda til 25. febrúar (nema annað sé tekið fram) eða meðan birgðir endast.
Nettó Akureyri - Akranesi - Mjódd - Salavegi Kópavogi
400gr
Fyrir sprengidaginn!
&baunirSaltkjötFrá99,-kr/kg
99,-
39,-
Rófur Laukur
Sellery
299,-
kr/kg
Búrfells saltkjöt
99,-Blaðlaukur
49,-
kr/kg
69,-
kr/kg
99,-
kr/kg
169,-
kr/kg
Nú erég aðláta
gamlan
draum rætast.
Það er alltaf
eitthvað af
gömlum hús-
gögnum í kring-
um mann og hefur
mig lengi langað að
læra að gera þau
upp,“ segir Soffía Ingi-
björg Guðmundsdóttir, sem
er starfsmaður á launadeild
Landspítalans.
„Mamma notaði skápinn, sem
líklega er um 100 ára, undir
dótið sitt þegar hún var að alast
upp, en frá því að ég man eftir
mér hefur þessi skápur staðið
ónotaður í sömu geymslunni. Lík-
lega hefur skápurinn nokkrum
sinnum verið gerður upp. Hann
var grænmálaður og hef ég hugs-
að mér að mála hann á ný í sams
konar lit.“
Soffía gerir ráð fyrir að finna
skápnum stað vestur í Dölum, í
sumarbústaðnum sem bráðum
verður tilbúinn. Hann myndi
passa fínt undir bollastellið. Hún
segist aldrei hafa komið nálægt
smíði, en hafi svolítið verið að
dunda sér við að gera upp, barna-
rúm, borð og sitthvað fleira, en
sig vanti að fræðast meira um efn-
isval, áhöld og réttu handtökin.
Námskeiðið sé til þess góður vett-
vangur auk þess sem frábært sé
að tilheyra þessum fámenna, góð-
menna og skemmtilega hópi.
SKÁPUR|Soffía Ingibjörg Guðmundsdóttir
Mamma átti
dótaskápinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litskrúðugt: Soffía hyggst mála skápinn grænan .