Morgunblaðið - 24.02.2004, Síða 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 27
Á UNDANFÖRNUM dögum
hefur verið hart deilt á söfn-
unarkassa Íslandsspila, sem er fyr-
irtæki í eigu Rauða kross Íslands,
Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og SÁÁ.
Gagnrýnin beinist líka
– í minni mæli þó – að
spilakössum Háskóla
Íslands en ekki að öðr-
um tegundum happ-
drættis, eins og get-
raunum, lottói og
skafmiðum, svo dæmi
séu nefnd. Fullyrt er
að spilun í kössunum
valdi eða viðhaldi
spilafíkn, með þeim af-
leiðingum að fjöldi
manna spili frá sér
aleiguna. Spurt er
hvernig félög eins og
Rauði krossinn geti
varið slíka tekjuöflun.
Því er haldið fram að
einfalt sé að banna
söfnunarkassa í sölu-
turnum, færa þá inn í
lokuð rými og þá sé
búið að leysa stóran
vanda.
Gagnrýnin er skilj-
anleg og spurningarn-
ar eðlilegar. En lítum
líka á staðreyndir.
Afleiðingar tekjumissis
Tekjur af söfnunarkössum eru
langmikilvægasti tekjustofn Rauða
kross Íslands. Verði rekstur söfn-
unarkassa bannaður án þess að
nokkuð komi í staðinn þá kemst
mannúðarstarf sem nær til þúsunda
manna innanlands og utan á hverju
ári í uppnám. Tekjur úr þeim söfn-
unarkössum sem eru í sjoppum
nema um þremur fjórðu hluta
heildartekna. Það er því lítil bót í
máli fyrir þá sem treysta á mann-
úðarstarf félagsins að banna bara
rekstur söfnunarkassa í „opnu“
rými.
Næstmikilvægasti tekjustofn
Rauða krossins er samningsbundin
verk við stjórnvöld. En þeir samn-
ingar byggjast í flestum tilvikum á
tilsvarandi framlögum félagsins.
Svo stærsta dæmið sé tekið, þá á
Rauði krossinn og rekur alla
sjúkrabíla í landinu. Í grófum drátt-
um er reksturinn fjármagnaður
með framlagi stjórnvalda upp á um
50 milljónir króna á ári, framlagi
Rauða krossins (af tekjum söfn-
unarkassa) upp á rúmar 50 millj-
ónir króna og framlagi þeirra sem
fluttir eru, sem nemur svipaðri
upphæð.
Rauði krossinn rekur athvörf fyr-
ir geðfatlaða, hjúkrunarheimili fyrir
aldraða Alzheimersjúklinga, ung-
mennahús fyrir unglinga, Hjálp-
arsíma Rauða krossins fyrir þá sem
glíma við kvíða og sjálfsvígshugs-
anir, og aðstoðar fjölda ungs fólks
við að koma undir sig fótunum í
Fjölsmiðjunni í Kópavogi. Annað
starf á vegum félagsins aðstoðar
flóttamenn við aðlögun í nýju
heimalandi, færir gleði í líf aldraðra
sem heimsóttir eru af heimsókn-
arvinum Rauða krossins, aðstoðar
einstaklinga í þrengingum, kennir
skólabörnum mikilvægi sjálfboða-
og hjálparstarfs, kynnir almenningi
skyndihjálp og vinnur gegn ein-
angrun og útskúfun á
margvíslegan hátt.
Þá eru ónefndar
þúsundir alnæm-
issjúklinga í Afríku og
fórnarlamba styrjalda,
hungurs og nátt-
úruhamfara sem fá að-
stoð Rauða kross Ís-
lands á hverju ári.
Þessi starfsemi, sem
nýtur stuðnings um
19.000 félaga Rauða
kross Íslands og fjölda
annarra velunnara,
byggist á tekjum af Ís-
landsspilum.
Við getum líka
spurt: Af hverju bein-
ist gagnrýnin einungis
að söfnunarkössum Ís-
landsspila? Það fyr-
irtæki, sem áður hét
Íslenskir söfn-
unarkassar, er sá aðili
hér á landi sem hvað
mest hefur gert til að
rannsaka og bregðast
við spilaáráttu. Fyr-
irtækið hefur staðið
fyrir viðamiklum rannsóknum á
spilun, styrkt meðferðaraðila sem
hafa sérhæft sig í spilaáráttu og
stutt við bakið á samtökum sem
vinna gegn áráttuspilun.
Ekki hef ég orðið var við að aðrir
rekstraraðilar happdrætta hafi tek-
ið mikinn þátt í umræðunni. Er það
af því að spilafíklar spili bara í söfn-
unarkössum? Samkvæmt rannsókn
sem Gallup gerði fyrir Íslenska
söfnunarkassa í upphafi árs 2001
eru 8,5% þeirra sem stunduðu fjár-
hættuspil í heimahúsum eða ólög-
legum spilavítum haldnir spilafíkn.
Sambærileg tala fyrir bingó er
4,5%, Íslenskar getraunir/Lengjuna
3,9%, þá sem spiluðu í spilakössum
2,2% og þá sem keyptu Lottó 1%.
Þeir sem vilja kynna sér nánar
þessa rannsókn eða annað sem
tengist spilafíkn eru hvattir til að
fara á www.spilafikn.is, sem Ís-
landsspil og Happdrætti háskólans
reka sameiginlega.
Spilasalir eða söluturnar?
Í þeirri umræðu sem fram hefur
farið undanfarið hefur verið bent á
það töfraúrræði að setja söfn-
unarkassa í lokaða spilasali. Því er
haldið fram að spilafíklum – sem
eru haldnir alvarlegum sjúkdómi –
muni einhvern veginn fækka við
slíka aðgerð. Mér er fyrirmunað að
sjá hvernig það á að gerast. Önnur
rök eru að þá verði hægt að koma í
veg fyrir spilun barna undir 18 ára
aldri. Mig langar að benda á að
samkvæmt lögum er spilun miðuð
við 16 ára aldur en Íslandsspil
ákváðu sjálf að miða við 18 ára ald-
ur. Nú eru um 70 söluturnar með
fjarstýringu sem gerir starfsfólki
kleift að slökkva á kössunum ef
unglingar byrja að spila. Fólk þarf
að vera orðið 18 ára til að fá vinn-
ingana greidda út. Sölustaðir sem
ekki fara eftir reglunum geta misst
kassana.
Spurt er hvernig Rauði krossinn
geti réttlætt það að hafa tekjur sín-
ar af fjárhættuspilun. Líknarfélög,
klúbbar, íþróttafélög, stjórn-
málaflokkar og kirkjur sem staðið
hafa fyrir bingóspilum geta spurt
sig sömu spurningar. Staðreyndin
er sú að félagasamtök hérlendis og
víðar hafa áratugum saman fjár-
magnað starfsemi sína með ýmiss
konar leikjum þar sem sá sem spil-
ar fær að jafnaði minna til baka en
hann leggur í pottinn. Ofangreind
könnun Gallup veitir ágæta innsýn í
spilahegðun landsmanna. Sam-
kvæmt henni tapaði fólk mestu fé í
leikjum á Netinu (1.730 krónum) og
næstmestu í ýmsum einkaleikjum
(1.706 krónum). Tap við spilun í Ís-
lenskum getraunum/lengjunni var
947 krónur á mann, í bingói 880
krónur, í Lottói 455 krónur og í
spilakössum 287 krónur.
Þessar tölur benda til að lang-
flestir sem spila í söfnunarkössum
séu að gera það sér til gamans og
séu að spila með lágar upphæðir.
Þær segja okkur líka að spilafíklar
séu hlutfallslega í meiri mæli að
spila í bingói og getraunum og tapi
þar hærri upphæðum.
Bann leysir ekki vandann
Hér á landi eru starfrækt happ-
drætti sem beinlínis hvetja börn til
að freista gæfunnar og nota dýrar
auglýsingaherferðir í sjónvarpi og
víðar til að örva spilun. Eigendur
Íslandsspila hafa ekki farið þá leið,
þótt eflaust væri hún vænleg til
tekjuaukningar. Í staðinn höfum við
lagt áherslu á að hvetja fólk til þess
að spila sér til gamans og gert það
sem í okkar valdi hefur staðið til að
benda á úrræði fyrir spilafíkla.
Við höfum líka ráðfært okkur við
sérfræðinga í spilaáráttu. Þeir
segja okkur að fólk sem haldið er
spilaáráttu fái útrás fyrir hana á
einhvern hátt – stundum í spila-
kössum, stundum annars staðar.
Verði söfnunarkassar Íslandsspila
teknir úr umferð muni þeir sem í
þeim spiluðu leita fyrir sér annars
staðar. Verði kassarnir settir í lok-
uð rými muni þeir sem nú spila í
opnum rýmum leita þangað. Í þessu
tilviki eins og öðrum er auðvelt að
bregðast við vandanum með því að
banna eina birtingarmynd hans. Í
þessu tilviki eins og öðrum leysir
það ekki vandann.
Happdrætti og hjálparstarf
Sigrún Árnadóttir skrifar um
söfnunarkassa
’Verði söfn-unarkassar Ís-
landsspila tekn-
ir úr umferð
munu þeir sem í
þeim spiluðu
leita fyrir sér
annars staðar.‘
Sigrún Árnadóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rauða kross Íslands.
VIÐ búum við öflugt heilbrigð-
iskerfi, en því miður
horfumst við í augu við
mikinn vanda sem er
rekstrarlegs og stjórn-
unarlegs eðlis. Það
hriktir í stoðum hins
ríkisrekna kerfis og því
eðlileg krafa að for-
ræðið í heilbrigðiskerf-
inu færist nær fólkinu
og opinber rekstur fái
samkeppni frá einka-
aðilum. Gerðar hafa
verið tilraunir með ný
rekstrarform á Ak-
ureyri og Hornafirði
en þar hafa sveit-
arfélögin annast rekst-
ur heilbrigðismála og
öldrunarmála með
þjónustusamningum
við ríkið síðan 1998.
Annað gott dæmi er
nýja heilsugæslan í
Salahverfi í Kópavogi
sem var boðin út og
það tilboð sem var tek-
ið var 130 milljónum
króna eða 17% undir efri mörkum
kostnaðarverðs. Þannig skilar sam-
keppnin árangri og verður athygli
vert að fylgjast með þessari merku
nýjung.
Í Hafnarfirði hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn markvisst haldið fram
því sjónarmiði að færa þjónustuna
nær fólkinu. Allar breytingar þurfa
sinn aðlögunartíma og leita þarf eftir
samstöðu. Við gerum því ráð fyrir að
framlög til heilbrigðismála verði
áfram um sinn af fjárlögum ríkisins
og það er ljóst að sveitarfélög taka
ekki að sér forræði heilbrigðismála
nema tekjustofnar verði tryggðir.
Það væri eðlilegt fyrsta skref að
koma á sameiginlegri stjórn fyrir
heilbrigðisstofnanir bæjarins, Sól-
vang, St. Jósefsspítala og heilsugæsl-
una.
Undanfarin 2 ár hafa verið miklar
umræður í fjölskylduráði og í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar um heilbrigð-
ismál. Hæst hefur borið brýna þörf
fyrir stofnun nýrrar heilsugæslu-
stöðvar og þó ekki síður um þörfina
fyrir hagræðingu, samhæfingu og að-
komu bæjarins að
stjórnun heilbrigð-
ismála í bænum. Við
sjálfstæðismenn höfum
stöðugt haldið því sjón-
armiði fram að Hafn-
arfjarðarbær eigi að
móta skýra stefnu í heil-
brigðismálum og hafa
frumkvæði að því að
hreyfa við breytingum í
átt til framfara fremur
en að bíða eftir tilskip-
unum frá hinu mið-
stýrða kerfi.
Afturhald
Samfylkingar
Samfylkingin hefur hins
vegar staðið gegn því að
nokkrar breytingar
verði gerðar og í raun
einungis tekið undir
markmið sem heilbrigð-
isráðherra hefur boðað
að kanna kosti og áhuga
á að flytja þjónustu
heilsugæslunnar og
öldrunarþjónustuna til sveitarfélag-
anna. Birtar hafa verið greinar sem
lýsa stefnuleysi Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði í heilbrigðismálum og
enn er sama málefnaþurrðin á þeim
bæ. Fulltrúar Samfylkingar kunna
ekki önnur ráð en vera á móti og fella
tillögur sem eru í framfaraátt í þess-
um málaflokki. Tillaga okkar sjálf-
stæðismanna um að koma á sameig-
inlegri stjórnun á Sólvang, St.
Jósefsspítala og heilsugæsluna og að
samhæfa hana þjónustu á vegum
bæjarfélagsins í málefnum aldraðra,
fatlaðra og heimaþjónustu var felld í
fjölskylduráði Hafnarfjarðar í síð-
ustu viku. Það vekur sérstaka athygli
að fulltrúar Samfylkingar vildu enga
efnislega umræðu um hana og er það
skýr vitnisburður um afturhaldssemi
og í reynd ótrúlega skammsýni.
Heilbrigðismál í
Hafnarfirði
Almar Grímsson skrifar um
heilbrigðismál
Almar Grímsson
’Það væri eðli-legt fyrsta skref
að koma á sam-
eiginlegri stjórn
fyrir heilbrigð-
isstofnanir bæj-
arins…‘
Höfundur situr í fjölskylduráði Hafn-
arfjarðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-16
Föt fyrir
allar konur
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali