Morgunblaðið - 24.02.2004, Síða 36
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Birnu Norðdahl
kynntist ég fyrst árið
1975, þegar kvenna-
deild var stofnuð í Tafl-
félagi Reykjavíkur. Þá
var fyrsta kvennamótið á Íslandi
haldið og við vorum báðar með í því
móti, ég var 14 ára, en Birna 56 ára.
Hún hafði þá teflt í mörg ár, en að-
allega við karla, sem kunnu því illa
að vera mátaðir af kvenmanni. Birna
var mikil baráttukona, tefldi alltaf til
sigurs og það var mjög sjaldgæft, að
hún gerði jafntefli. Hún varð Ís-
landsmeistari kvenna í skák 1976 og
1980.
Við vorum nokkrar sem byrjuðum
að tefla á kvennaárinu og Birnu
fannst, að Ísland ætti að senda
kvennasveit á Ólympíumót 1978,
sem var haldið í Argentínu, en
stjórn Skáksambandsins var á öðru
máli og sagði að það væru ekki til
peningar til að senda kvennasveit,
BIRNA
EGGERTSDÓTTIR
NORÐDAHL
✝ Birna Eggerts-dóttir Norðdahl
fæddist í Hólmi í
Reykjavíkursókn í
Kjósarsýslu 30. mars
1919. Hún lést á
Akranesi 8. febrúar
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Árbæjarkirkju
23. febrúar.
en Birnu tókst að safna
fyrir ferðinni og Ís-
lenskar konur tóku þá
þátt í Ólympíuskák-
móti í fyrsta sinn.
Birna tefldi á Ól-
ympíumótunum í Arg-
entínu 1978 og Möltu
1980. Við Birna tefld-
um báðar á Möltu og
þar sem okkur kom
mjög vel saman, þrátt
fyrir dálítinn aldurs-
mun, var ákveðið að við
værum saman í her-
bergi, sem reyndist svo
vera hjónaherbergi
með hjónarúmi, þannig að við þurft-
um að sofa í sama rúmi. Birna gerði
mikið grín að þessu og kallaði mig
„hjásvæfuna“ sína eftir þetta.
Birna bjó lengst af í Bakkakoti við
Hólmsá við Suðurlandsveg. Það var
alltaf gaman að heimsækja hana.
Einu sinni, þegar ég kom til hennar
var hún búin að smíða stærðar úti-
hús á lóðinni hjá sér, en þegar ég
spurði hvað hún ætlaði að gera við
þetta hús, sagðist hún ekki vita það,
hún hefði bara átt svo mikið af
timbri og þess vegna ákveðið að
smíða það! Birna var mjög handlag-
in og smíðaði mikið, skar út, málaði
myndir, teiknaði og keypti sér t.d.
rennibekk og renndi marga fallega
muni.
Birna tefldi á Skákþingi Reykja-
víkur í febrúar 1993. Hún var mjög
ánægð með hvað margar stelpur
voru með í mótinu, þegar hún var
búin að tefla síðustu skákina sagði
hún yfir allan hópinn, sem enn sat að
tafli: Og haldið svo áfram að tefla,
stelpur!. Þetta var líklega síðasta
mótið sem Birna tefldi í opinberlega.
Hún fór svo á Dvalarheimilið á
Reykhólum, þegar hún treysti sér
ekki lengur til að búa ein í Bakka-
koti.
Ég fór í heimsókn til hennar í
ágúst sl. og hitti hana þá í fyrsta
skipti eftir að hún fór vestur. Hún
varaði mig við áður en ég kom, sagð-
ist vera orðinn mikill sjúklingur og
væri næstum blind. En hún var með
sjónvarp inni hjá sér og uppáhalds-
sjónvarpsefnið hennar var Formúl-
an! Það var að byrja keppni í sjón-
varpinu þegar ég kom til hennar og
sagðist hún ekki ætla að missa af
henni. Þetta kom mér skemmtilega
á óvart, því að sjálf hef ég gaman af
Formúlunni. Og hún þekkti greini-
lega alla keppendur og McLaren var
hennar lið!
Eftir keppnina sýndi hún mér
gróðurreit sem hún var með við
Dvalarheimilið, en Birna var mikil
garðyrkjukona. Eftir kaffidrykkju
hjá dóttur hennar var dregið fram
tafl og við Birna tefldum nokkrar
skákir og þrátt fyrir að vera næstum
blind, sá hún yfirleitt besta leikinn
og mátti ég þakka fyrir að ná jafn-
tefli í síðustu skákinni.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast Birnu Norðdahl. Börn-
um hennar og öðrum ættingjum
sendi ég samúðarkveðjur.
Áslaug Kristinsdóttir.
Ég á enn erfitt með
að trúa að afi Halli sé
dáinn en ég veit að
hann er kominn á betri
stað og líður vel. Afi var frábær mað-
ur og alltaf í góðu skapi. Hann var
líka með eindæmum spurull og
þurfti maður að hafa sig allan við að
svara spurningunum hans en það var
svo gaman hvað hann hafði mikinn
áhuga að vita hvað á daga manns
hafði drifið.
Mér er líka sérstaklega minnis-
stætt þegar við vorum að spila Trivi-
al uppi í sumarbústað hvað hann var
fróður og vissi svörin við nánast öll-
um spurningunum og vildi ég helst
vera með afa í liði.
HARALDUR
ÖRN TÓMASSON
✝ Haraldur ÖrnTómasson
fæddist í Reykjavík
19. apríl 1929.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 14.
febrúar síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Kirkju
Óháða safnaðarins
23. febrúar.
Ég er svo ánægð að
litli sonur minn hann
Matthías Máni fékk að-
eins að kynnast langafa
Halla, það var yndis-
legt.
En hans verður sárt
saknað og vil ég að hann
viti að mér mun alltaf
þykja vænt um hann og
minninguna um hann
mun ég varðveita í
hjarta mínu.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Þín sonardóttir,
Erna Traustadóttir.
Frá öllum heimsins hörmum,
svo hægt í friðar örmum
þú hvílist hels við lín.
Nú ertu af þeim borinn
hin allra síðstu sporin,
sem þér unnu og minnast þín.
Með tryggð til máls og manna
á mátt hins góða og sanna
þú trúðir traust og fast.
Hér er nú starfsins endi.
Í æðri stjórnar hendi
er það sem heitt í hug þú barst.
Guð blessi lífs þíns brautir,
þitt banastríð og þrautir
og starfs þíns mark og mið.
Við hugsum til þín hljóðir.
Að hjarta sér vor móðir
þig vefur fast og veitir frið.
(Einar Ben.)
Þó sól hækki á lofti grúfir skamm-
degisskugginn yfir nágrenninu, því
góður maður er genginn. Megi
mannkostir þínir erfast til niðja
þinna, þeim til styrktar og blessun-
ar. Þín er sárt saknað. Þökk fyrir
samverustundirnar, vinur sæll.
Þórunn Sigurðardóttir.
GÍSLI
HELGA-
SON
✝ Gísli Helgason á Helgafellifæddist 2. apríl 1940. Hann
lést á Landspítalanum 14. janúar
síðastliðinn og var útför hans
gerð frá Egilsstaðakirkju 24. jan-
úar.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, stjúp-
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HILDAR ÍSFOLDAR STEINGRÍMSDÓTTUR,
Nesvegi 43,
Reykjavík.
Steingrímur Viktorsson, Kristín Ólafsdóttir,
Hilmar Kr. Viktorsson, Matthildur Ó. Þorláksdóttir,
Victor Jacobsen, Þórhildur Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær vinkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
UNA KRISTÍN GEORGSDÓTTIR,
Baugsstöðum,
lést á Landspítalanum laugardaginn 21. febrúar.
Guðmundur Eggertsson,
Páll Siggeirsson,
Svanborg Siggeirsdóttir, Pétur Ágústsson,
Elín Siggeirsdóttir, Konráð Ásgrímsson,
Þórarinn Siggeirsson, Ólafía Guðmundsdóttir,
Guðný Siggeirsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍNBORG KRISTÓFERSDÓTTIR,
Suðurhólum 30,
Reykjavík,
lést á elliheimilinu Grund sunnudaginn
22. febrúar.
Kristinn Magnússon,
Tryggvi Tryggvason,
Magnús Kristinsson,
Dóra Birna Kristinsdóttir,
Böðvar Örn Kristinsson,
Tryggvi Gunnar Tryggvason,
Helga Tryggvadóttir,
Hildur Tryggvadóttir,
tengdabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu,
dóttur, systur og mágkonu okkar,
ELÍNAR ÞÓRDÍSAR BJÖRNSDÓTTUR.
Björn Jóhannsson, Guðrún Fríður Heiðarsdóttir,
Hugrún Jóhannsdóttir, Páll Bragi Hólmarsson,
Heiðrún Jóhannsdóttir, Björgvin Sigurbergsson,
Kristrún, Guðrún Brá, Helgi Snær,
Gunnar Már og Baldur Máni,
Sólveig Sigurbjörnsdóttir,
Gróa Björnsdóttir,
Sigurður Björnsson, Ásdís Magnúsdóttir,
Sigurbjörn Björnsson, Svava Björnsdóttir
og systkinabörn hinnar látnu.
Ástkær fósturfaðir okkar,
BJARNI GUNNARSSON
vélstjóri,
Framnesvegi 63,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
aðfaranótt mánudagsins 23. febrúar.
Oddný Aldís Óskarsdóttir,
Guðný Marta Óskarsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts og
útfarar
JÓNASAR JÓHANNSSONAR,
Sléttahrauni 23,
Hafnarfirði.
Ásrún Þórhallsdóttir,
Sonja Jónasdóttir, Ingimar H. Victorsson,
Ása Rún Ingimarsdóttir,
Bjarki Þór Ingimarsson,
Jónas Logi Ingimarsson,
Una Dís Ingimarsdóttir.