Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 41
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Léttur hádegisverður að lokinni bæna-
stund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl.
19 í neðri safnaðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður
á sanngjörnu verði að helgistund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldriborgara-
starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist
mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl.
13. Bridsaðstoð á föstudögum kl. 13. Þátt-
taka tilkynnist til Þórdísar í síma
511 5405.
Langholtskirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.
Fjölbreytt starf fyrir 7–9 ára börn. Umsjón
hafa Ólafur Jóhann og Þóra Guðbjörg. Lest-
ur Passíusálma kl. 18 í Guðbrandsstofu í
anddyri Langholtskirkju. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla Laug-
arneskirkju kl. 20. Biblíulestur í umsjá
Laufeyjar Waage. Þriðjudagur með Þorvaldi
kl. 21. Þorvaldur Halldórsson leiðir lof-
gjörðina við undirleik Gunnars Gunnars-
sonar á flygilinn og Hannesar Guðrúnar-
sonar sem leikur á klassískan gítar.
Gengið er inn um aðaldyr kirkju. Kl. 21.30
fyrirbænaþjónusta við altarið í umsjá
bænahóps kirkjunnar.
Neskirkja: Fermingarfræðsla kl. 15. Vetr-
arnámskeið. Litli kórinn – kór eldri borgara
kl. 16:30. Stjórnandi Inga J. Backman. For-
eldramorgunn þriðjudag kl. 10–12.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16:00. Starf fyr-
ir 10–12 ára kl. 17:30.
Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf
með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára
börnum í Ártúnsskóla.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum.
Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11:15 í
kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Kl. 12:00
sprengidagsmatur, sr. Ingþór Indriðason
sér um helgistund og segir frá kirkjustarfi í
Kanada, kaffi. Unglingakór Digraneskirkju
kl. 17:00–9:00. KFUM&KFUK Fyrir 10–12
ára börn kl. 17:00–18:15, húsið opnað kl.
16:30. Alfa kl. 19:00. Hvað með hand-
leiðslu guðs? Fræðsla: Halldór Konráðs-
son (sjá nánar: www.digraneskirkja.is).
Fella- og Hólakirkja: Strákastarf 8–12 ára
kl. 17.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30. Helgistund, söngur, spil og
spjall. Kaffi og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Kirkjukrakkar fyrir börn á aldrinum
7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag
fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Grafarvogs-
kirkju kl. 20.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur prestar kl.
9.15 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs-
sonar. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Konur eru konum bestar. Fimmtudags-
kvöldin 26. febrúar og 4. mars verður nám-
skeiðið „Konur eru konum bestar“, sjálf-
styrkingarnámskeið fyrir konur, haldið í
Hjallakirkju í Kópavogi. Umsjón með nám-
skeiðinu hefur sr. Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir. Á námskeiðinu gefst konum tæki-
færi til að skoða eigin styrkleika og
veikleika, til að sjá hvað þær geta gert til
að styrkja sig. Skráning fer fram í Hjalla-
kirkju en þátttökugjald er ekkert. Allar kon-
ur velkomnar.
Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Sam-
verustund kl. 14.30–16. Fræðandi innlegg
í hverri samveru. Lagið tekið undir stjórn
Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og stutt
helgistund. Allir velkomnir. Starf með 8–9
ára börnum í Borgum kl. 17–18 í umsjón
Dóru Guðrúnar og Bóasar. Starf með 10–
12 ára börnum á sama stað kl. 18–19 í
umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í
safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum 3,
kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12.
Helgistund kl. 18. Steinunn Jóhannesdótt-
ir flytur erindi um Guðríði Símonardóttur,
Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur einsöng. Létt-
ur málsverður. Skráning í síma 567-0110.
Allir velkomnir. SELA, yngri deild, kl. 20–
22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í
dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12
ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar
stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðsfélag-
ið (Megas) heldur vikulegan fund kl.
19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi þess-
ara hópa hafa Anna Hulda og Sigríður Rún.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er
opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er
opið hús fyrir unglinga 13–15 ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.30 í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og
konur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, ör-
yrkjar og atvinnulausir eru velkomnir. Spil-
að, spjallað og kíkt í blöðin. Samverunni
lýkur með helgistund kl. 16. Umsjónar-
maður Nanna Guðrún djákni. Þorlákur
sækir þá sem vilja og ekur þeim heim. Sími
869-1380.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl.
18.30–19.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15:00
Kirkjuprakkarar Landakirkju, 6–8 ára
krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson
og leiðtogarnir. Kl. 16:00 kóræfing Litlu
lærisveinanna, yngri hópur. Kl. 17:00 kór-
æfing Lítlu lærisveinanna, eldri hópur. Kór-
stjóri Joanna Wlasczcyk og umsjónarmað-
ur Kristín Halldórsdóttir. Kl. 20:30
Kyrrðarstund í Landakirkju. Guðmundur H.
Guðjónsson organisti leikur og sr. Þorvald-
ur Víðisson leiðir stundina.
Keflavíkurkirkja. Alfahópur kemur saman í
Kirkjulundi 24. febrúar kl. 12–15. Léttur
málsverður, samfélag og fræðsla um
kristna trú. Einnig verður komið inn á stöðu
atvinnulausra. Umsjón María Hauksdóttir.
Styrktaraðilar eru Verkalýðs- og sjómanna-
félag Keflavíkur og nágrennis ásamt Kefla-
víkurkirkju. Allir velkomnir. Fermingarund-
irbúningur í Kirkjulundi: Kl. 15.10–15.50,
8. I.M. & 8. J. í Myllubakkaskóla, kl.
15.55–16.35, 8. S.V. í Heiðarskóla og kl.
16.40–17.20 8. V.G. í Heiðarskóla.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upp-
lýsingar á www.kefas.is.
AD KFUK. Fundur í kvöld kl. 20. Bæn sem
trúrækt. Guðlaugur Gunnarsson kristni-
boði kemur í heimsókn. Allar konur vel-
komnar.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 3 (8.A og
8.B Brekkuskóla).
Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl.
18.10.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17.30
Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk. Kl. 19.15
Alfanámskeið.
Safnaðarstarf
Árdegismessur á
miðvikudögum
ALLA miðvikudaga kl. 8.00 eru
árdegismessur í Hallgríms-
kirkju. Ár er nú liðið síðan
morgunmessurnar hófust og
hafa þær verið haldnar alla mið-
vikudaga síðan og aldrei fallið
niður.
Í messunni er stutt hugleiðing
og altarisganga og að henni lok-
inni er einfaldur morgunverður í
safnaðarsal Hallgrímskirkju.
Gert er ráð fyrir að þau sem eiga
stutt að fara geti verið komin til
vinnu kl. 9.00.
Messurnar eru tilvaldar fyrir
sérhvern sem vill taka þátt í
helgihaldi í miðri viku og eiga
rólega stund áður en haldið er af
stað út í ys og þys vinnudagsins.
Að messunum standa Hall-
grímskirkja og áhugahópur
presta, guðfræðinga og starfs-
manna af Biskupsstofu. Fjöldi
presta og leikmanna koma að
messunum. Vonin er sú að hægt
verði að búa til áningarstað á
virkum degi þar sem maður
gengur fram fyrir Guð í miðri
vinnuviku og þiggur næringu
bæði líkamans og trúarlífsins.
Verið velkomin í Hallgríms-
kirkju á miðvikudagsmorgnum
klukkan 8.
„Á leiðinni
heim“ í
Grafarvogskirkju
ANNAÐ árið í röð verður boðið
upp á sérstakar helgistundir alla
virka daga föstunnar í kirkjunni.
Þær kallast „Á leiðinni heim“.
Hugsunin að baki þessari
nafngift er sú, að fólk geti komið
við í Grafarvogskirkju kl. 18.15
og átt góða stund og hlustað á
einn Passíusálm lesinn. Hver
helgistund tekur aðeins 15 mín-
útur.
Alls eru þessar föstustundir 31
talsins og verður sú síðasta mið-
vikudaginn 7. apríl nk. Fyrsta
stundin verður á morgun, ösku-
dag, en þá hefst fastan. Að þessu
sinni munu borgarfulltrúar og
varaborgarfulltrúar lesa úr
Passíusálmunum. Guðlaugur Þór
Þórðarson, borgarfulltrúi og al-
þingismaður, mun lesa á fyrstu
stundinni. Á fimmtudaginn mun
Kolbeinn Óttarsson Proppé
varaborgarfulltrúi lesa og á
föstudaginn sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir varaborgarfulltrúi.
SPOEX opna heimasíðu Þriðju-
daginn 24. febrúar milli kl. 14 og
16 opna SPOEX – Samtök psorias-
is- og exemsjúklinga opna heima-
síðu sína, en hún hefur verið lokuð
í nokkurn tíma vegna endurhönn-
unar. Félagsmálaráðherra Árni
Magnússon opnar heimasíðuna.
Opnunin fer fram í húsakynnum
samtakanna að Bolholti 6. Veit-
ingar verða að athöfn lokinni í boði
Bláa lónsins. Áður en ráðherra
opnar heimasíðuna mun Valgerður
Auðunsdóttir, formaður SPOEX,
og Kristinn Grétarsson, markaðs-
stjóri Novartis á Íslandi, undirrita
styrktarsamning. Novartis mun
næstu 4 árin styrkja samtökin til
viðhalds heimasíðunnar.
Skógræktarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu eru með opið hús.
Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 20
standa skógræktarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu fyrir „Opnu
húsi“ í sal Ferðafélags Íslands í
Mörkinni 6. Þetta er fyrsti fundur
ársins í fræðslusamstarfi skóg-
ræktarfélaganna og KB banka.
Skógræktarfélag Kópavogs hefur
umsjón með þessum fundi. Sig-
urður Pálsson, skáld og nýr for-
maður Yrkjusjóðs, les upp eigin
ljóð. Sigurður Freyr Guðbrands-
son skógfræðingur, starfsmaður
Vesturlandsskóga, verður með
myndasýningu er nefnist: „Frá
skógahlíðum Klettafjalla til há-
sléttu Andesfjalla“. Segir þar frá
árslangri ferð hans árin 2000–2001
frá Vancouver-eyju í Kanada, upp
í Klettafjöllin, um Bandaríkin,
Mexíkó og lönd Suður-Ameríku
allt til Bólivíu. Upplýsingar hjá
Skógræktarfélagi Íslands.
Áhrif EES-þýðinga á íslenskan
hugtakaforða Sigrún Þorgeirs-
dóttir, ritstjóri hugtakasafns Þýð-
ingamiðstöðvar utanríkisráðuneyt-
isins, flytur fyrirlestur á vegum
Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í erlendum tungu-
málaum þriðjudaginn 24. febrúar
kl. 12.15 í stofu 103 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Áhrif
EES-þýðinga á íslenskan hugtaka-
forða: kynning á hugtakasafni
Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðu-
neytisins“. Í Þýðingamiðstöð utan-
ríkisráðuneytisins hefur frá árinu
1990 verið unnið að þýðingu reglu-
gerða, tilskipana og annarra texta
sem falla undir EES-samninginn,
auk annarra milliríkjasamninga.
Textarnir hafa áhrif á starfsemi
ýmissa stofnana og fyrirtækja en
varða einnig réttindi og hagsmuni
hins almenna borgara á ýmsum
sviðum. Unnið hefur verið að söfn-
un hugtaka og orðasambanda frá
upphafi þýðingarstarfsins og var
hugtakasafnið birt á heimasíðu ut-
anríkisráðuneytisins í nýrri útgáfu
á síðasta ári.
Samræður við Guð Málstofa
verður haldin í Gerðubergi, um
samnefndar bækur eftir Neale Do-
nald Walsch. Málstofan hefst í
kvöld og verður fimm næstu
þriðjudaga kl. 19.30. Skráning er á
magnus@mannval.is. Leiðbein-
endur eru: Friðbjörg Óskarsdóttir
fræðslumiðill, Geir Rögnvaldsson
leiklistarfræðingur og Magnús
Harðarson ráðgjafi.
Í DAG
FRÉTTIR
Opið hús vegna þemadaga frá
Afríku Nú standa yfir þemadagar í
Lágafellsskóla Mosfellsbæ. Þemað
í ár er Afríka og eru krakkarnir að
vinna ýmis verkefni tengd Afríku.
Meðal þess sem boðið er upp á er
grímugerð, skartgripagerð, leiklist,
söngur, fræðsla, hljóðfæragerð,
endurvinnsla, afrískir leikir,
sundknattleikur frá Kongó og
fleira. Á öskudag verður uppske-
ruhátíð og opið hús. Boðið er að
skoða muni sem börnin hafa unnið
og sýningu á munum frá Afríku.
Einnig verður afrískur hópdans
undir stjórn Orwille frá Kramhús-
inu. Þá verður opið kaffihús þar
sem seldar verða veitingar og mun
allur ágóði renna til vinaskóla
Lágafellsskóla í Malawi. Mælst er
til þess að sem flestir klæðist bún-
ingum tengdum Afríku á öskudag.
Málstofa um menntareikninga
Þóra Helgadóttir flytur erindi á
málstofu Hagfræðistofnunar mið-
vikudaginn 25. febrúar kl. 12.15 í
Odda, stofu 101.
Fjallað verður um mennta-
reikninga sem nýtt úrræði í
menntamálum. Grunnhugmyndin
um menntareikninga byggist á því
að tekið er fast hlutfall af launum
hvers starfsmanns á móti framlagi
vinnuveitanda sem er síðan ávaxt-
að í séreignarsjóði. Markmiðið er
síðan að starfsmenn geti nýtt inn-
eignina til menntunar. Í því sam-
hengi verður rætt um mikilvægi
menntunar, stöðu menntunar á Ís-
landi og reynslu annarra þjóða af
menntareikningum.
Þóra Helgadóttir er sérfræðingur
hjá Hagfræðistofnun Háskóla Ís-
lands.
Öskudagsgleði FSG Miðvikudag-
inn 25. febrúar kl. 15.30–17 verður
haldin öskudagsgleði FSG í boði
Greiningarstöðvar, á efstu hæð
hússins að Digranesvegi 5.
Kötturinn verður sleginn úr tunn-
unni. Georg sparibaukur frá Ís-
landsbanka kemur við. Öll börn
sem hafa komið á Greiningarstöð
eru velkomin ásamt aðstand-
endum, einnig starfsfólk og börn
þeirra. Allir sem vilja koma í bún-
ingi.
Aðalfundur Menningar- og frið-
arsamtaka ísl. kvenna árið 2004
verður haldinn á öskudag, miðviku-
daginn 25. febrúar, í MÍR-salnum,
Vatnsstíg 10 kl. 20. Á dagskrá
verður skýrsla formanns, ársreikn-
ingar lagðir fram og kosið í stjórn.
Á fundinum á að kjósa formann til
næstu tveggja ára en samkvæmt
lögum félagsins eru formaður og
varaformaður kosnir sitt árið hvor,
til tveggja ára í senn.
Fyrirlestur í Kennaraháskóla Ís-
lands Berglind Rós Magnúsdóttir,
MA í uppeldis- og mennt-
unarfræðum, heldur opinn fyr-
irlestur sem ber yfirskriftina: Orð-
ræður um kyngervi, völd og
virðingu í unglingabekk. Fyrirlest-
urinn verður á morgun, miðviku-
daginn 25. febrúar, kl. 16.15 í saln-
um Skriðu í Kennaraháskóla
Íslands við Stakkahlíð.
Fyrirlestur Berglindar er unninn
upp úr meistararitgerð í uppeldis-
og menntunarfræði við Háskóla Ís-
lands og er byggður á eigindlegri
rannsókn sem gerð var í unglinga-
deild á höfuðborgarsvæðinu. Meg-
intilgangur rannsóknarinnar var að
átta sig á valdatengslum meðal
nemenda.
Hrafnaþing á Hlemmi – fræðslu-
erindi Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands. Ólafur K. Nielsen, vistfræð-
ingur á NÍ, flytur erindi sem hann
nefnir „Áhrif skógræktar á fugla-
líf“ miðvikudaginn 25. febrúar kl.
12.15 í sal Möguleikhússins á
Hlemmi, Reykjavík. Hrafnaþing
eru öllum opin, nánari upplýsingar
um erindið er að finna á heimasíðu
stofnunarinnar, www.ni.is.
Starfsþjálfunarstaðurinn Örvi
verður 20 ára miðvikudaginn 25.
febrúar. Í Örva fer fram starfs-
prófun og starfsþjálfun fatlaðra
einstaklinga. Á starfstíma Örva
hafa um 100 einstaklingar lokið
þjálfun og fengið framtíðarstörf í
fyrirtækjum á almennum vinnu-
markaði. Í dag eru í starfi og þjálf-
un 35 fatlaðir einstaklingar og aðr-
ir starfsmenn Örva eru níu talsins.
Í tilefni afmælisins býður starfs-
fólk Örva velunnurum, fyrrverandi
starfsmönnum og samstarfsfólki á
Reykjanessvæði að líta inn, þiggja
kaffiveitingar og skoða starfsem-
ina. Velkomið er að koma í heim-
sókn hvenær sem er milli kl. 9 og
15 en kaffitímar starfsmanna eru
kl. 9.45 og 14. Einnig er lokað í há-
deginu milli kl. 12 og 13.
Málstofa um um þjóðarhugtakið
og stofnun fullvalda ríkja
Í tengslum við kennslu á nám-
skeiðinu Stjórnskipunarrétti og
ágripi þjóðaréttar í lagadeild Há-
skóla Íslands verður haldin mál-
stofa um þjóðarhugtakið og stofn-
un fullvalda ríkja, og samanburð á
stöðu Íslands og Færeyja í því til-
liti miðvikudaginn 25. febrúar nk.
kl. 12.15–13.30. Málshefjendur
verða Guðmundur Halfdanarson,
sagnfræðiprófessor við Háskóla Ís-
lands, og Sigurður Líndal prófess-
or emeritus. Fundarstjóri er Björg
Thorarensen prófessor við laga-
deild HÍ.
Á málstofunni verður rætt um
þjóðarhugtakið, breytt gildi þess í
nútímanum og að hvaða leyti staða
Færeyja í dag til þess að slíta sam-
bandi við Danmörku er önnur en
staða Íslands var auk þess sem að-
dragandi að sambandsslitunum
verður kannaður í sögulegu sam-
hengi.
Að loknum erindum málshefjenda
verða fyrirspurnir og umræður.
Málstofan verður haldin í stofu
L-101 í Lögbergi og er opin öllum
sem áhuga hafa á efninu.
Á MORGUN
Símenntun um Jemen og Jórd-
aníu. Fimmtudagskvöldið 26. febr-
úar heldur Jóhanna Kristjónsdóttir
eins kvölds námskeið hjá Mími sí-
menntun um Jemen og Jórdaníu.
Farið verður yfir nútímasögu land-
anna með smásveiflu til fortíðar.
Einnig verður spiluð tónlist frá þess-
um löndum og sýndar myndir og
stutt kynning á þeim sem girnileg-
um ferðamannastöðum. Allar upp-
lýsingar um námskeiðið er að fá hjá
Mími símenntun.
Á NÆSTUNNI
SAMFYLKINGIN í Árborg og
nágrenni hefur opnað nýja fé-
lagsmiðstöð flokksins á Sel-
fossi. Hún stendur við Eyrar-
veg og verður opin til sumars
alla fimmtudaga frá kl. 17.00 og
fram eftir kvöldi. Þar verður
spjallað um pólitík og hvaðeina
og geta gestir og gangandi
gengið að því vísu að einhverjir
þingmenn og sveitarstjórnar-
menn flokksins verði á staðn-
um, segir í fréttatilkynningu.
Öðrum félögum flokksins er
velkomið að nýta húsnæðið til
vinnufunda og má nefna sem
dæmi að Samfylkingarfélagið í
Reykjavík hefur þegar ákveðið
að halda þar vinnufund. Allar
upplýsingar um húsnæðið veit-
ir formaður félagsins í Árborg,
Arna Ír Gunnarsdóttir.
Félagsmið-
stöð opnuð
í Árborg