Morgunblaðið - 24.02.2004, Qupperneq 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 45
Ármúla 36, 108 Reykjavík,
sími 588 1560.
Rýmum fyrir nýju fótboltaskónum
Fótboltaskór með miklum afslætti - 20-40% afsláttur af innanhúss- og gerfigrasskóm - Takkaskór frá 1.000 kr.l i l f l i f l f i fi f . .
VILBORG Jóhannsdóttir, UMSS,
bætti eigið Íslandsmet í sexþraut
kvenna um 79 stig þegar hún hrós-
aði sigri á Meistaramóti Íslands í
fjölþraut sem fram fór í Egilshöll
um helgina. Vilborg fékk 4.486 stig.
Gamla metið setti hún fyrir þremur
árum. Í öðru sæti varð Kristín
Birna Ólafsdóttir, ÍR, á nýju ung-
lingameti, (19-20 ára flokki) og sem
einnig er með flokki ungkvenna
(21-22 ára), en hún hlaut samtals
4265 stig og bætti met Ágústu
Tryggvadóttur frá árinu 2001 um
104 stig. Í þriðja sæti varð svo Jó-
hanna Ingadóttir, ÍR, með 3813
stig.
Ólafur Guðmundsson, UMSS,
varð öruggur Íslandsmeistari í sjö-
þraut karla, hlaut samtals 4927
stig, annar varð Unnsteinn Grét-
arsson, ÍR, með 3764 stig. Íslands-
og Norðurlandamethafinn, Jón
Arnar Magnússon, Breiðabliki, tók
ekki þátt í mótinu.
Keppt var einnig í sjöþraut
sveina (15-16 ára) og sexþraut
meyja (15-16 ára) sem aukagrein-
um á mótinu og þar féllu metin í
báðum aldursflokkum. Í flokki
sveina sigraði Sveinn Elías Elías-
son, Fjölni, með samtals 4.225 stig-
um, og bætti met Ólafs Dans
Hreinssonar um hvorki meira né
minna en 505 stig. Í meyjaflokki
sigraði Þóra Kristín Pálsdóttir, ÍR,
á nýju meyjameti 4.031 stig, en
gamla metið sem Ágústa Tryggva-
dóttir átti var 3.980 stig, frá árinu
1999.
Vilborg Jóhannsdóttir
bætti eigið met í sexþraut
ÓLAFUR Stefánsson er í 19.–
20. sæti yfir markahæstu leik-
menn Meistaradeildar Evrópu
í handknattleik. Ólafur hefur
skorað 50 mörk fyrir Ciudad
Real í keppninni, jafnmörg og
danski landsliðsmaðurinn
Lars Krogh Jeppesen, leik-
maður þýska liðsins Flens-
burg.
Þýski skrautfuglinn Stefan
Kretzschmar hjá Magdeburg
er markahæstur í Meistara-
deildinni sem stendur, en hann
hefur gert 73 mörk.
Siarhei Rutenko, stórskytta
Celje Piovarna Lasko í Slóven-
íu, kemur næstur með 66
mörk.
Ólafur kom-
inn í 50 mörk
Óvíst er hvort Patrick Vieira, fyr-irliði Arsenal, getur leikið með
liðinu á Spáni í kvöld. Hann fékk
högg á hnéð í leik liðsins við Chelsea
um helgina og ekki er enn ljóst hvort
hann verður tilbúinn í slaginn í
kvöld. Arsenal má illa við að missa
fyrirliðann í svo mikilvægum leik,
sérstaklega þegar haft er í huga að
Ray Parlour og Sylvain Wiltord eru
meiddir og Dennis Bergkamp fór
ekki með liðinu til Spánar.
„Ég veit hversu mikið Patrick þrá-
ir að spila og því er ég alltaf bjart-
sýnn. Hann gerir allt sem hann get-
ur til að ná sér góðum fyrir leikinn,
en það er ekkert sem við getum gert
annað en að bíða og vona hið besta,“
sagði Arsene Wenger, stjóri Arsen-
al, í gær. Hann mun samt örugglega
hugsa sig um tvisvar áður en hann
skellir Vieira inn á því í október setti
hann fyrirliðann inn á sem varamann
eftir að hann hafði verið meiddur.
Það tókst ekki betur til en svo að
Vieira meiddist á ný og var frá í sex
vikur.
Þó svo Vieira verði ekki með er
óhætt að segja að miðjan hjá Arsenal
sé ágæt því trúlega yrði Edu settur
við hlið Gilberto Silva þannig að
Brasilíumennirnir fengju það hlut-
verk að stjórna leik liðsins. „Það
voru margir búnir að afskrifa Edu,
en hann hefur æft vel og tekið mikl-
um framförum og þetta tímabil er
hans besta hjá félaginu,“ segir Wen-
ger um hinn 25 ára gamla Brasilíu-
mann.
Spánverjinn Jose Reyes, sem Ars-
enal keypti nýlega, fær trúlega tæki-
færi til að leika með liðinu í heima-
landi sínu. „Jose hefur hraðann,
hreyfingarnar og þó svo hann sé að
venjast enskri knattspyrnu mun
hann örugglega spjara sig gegn Vigo
enda hálfgerður heimavöllur fyrir
hann,“ sagði stjórinn.
Arsenal á ekki góðar minningar
frá Spáni, gerði einu sinni jafntefli
við Barcelona en hefur tapað fimm
sinnum, tvívegis gegn Valencia og
Deportivo La Coruna og einu sinni
fyrir Real Mallorca. „Mér hefur
aldrei gengið vel gegn spænskum
liðum og hefði helst viljað leika við
Celta Vigo fyrir tveimur mánuðum
þegar liðið virtist í mikilli lægð. Það
virðist hins vegar vera að ná sér á
strik þessa dagana og við vitum að
þrátt fyrir að það sé mikið sjálfs-
traust í mínu liði verður þetta erfiður
leikur,“ sagði Wenger.
Leikmenn Real sigur-
stranglegri en Bæjarar
Flestir telja að Real Madrid eigi
að sigra Bayern München enda hef-
ur þýska liðinu ekki gengið neitt sér-
staklega í vetur. „Við erum búnir að
heyra og sjá að Bæjarar hafa ekki
leikið eins vel í vetur og þeir gera
oftast og sjálfsagt segja flestir að við
séum sigurstranglegri. Við erum
hins vegar með báða fætur á jörðinni
og í svona leikjum er allt undir og því
ógjörningur að segja að eitt lið sé
sigurstranglegra en annað,“ segir
David Beckham, leikmaður Real
Madrid, um viðureignir félaganna.
Hann vonar samt hið besta: „Ef við
leikum eins og við gerum best, látum
boltann ganga hratt á milli manna
með einni snertingu þá verður þetta
ekkert vandamál,“ segir kappinn.
Beckham og aðrir leikmenn Ma-
drid hljóta líka að hafa í huga að
Bæjarar hafa haft betur í leikjum fé-
laganna undanfarin ár, enda fjór-
faldir Evrópumeistarar á ferðinni.
„Við hefðum alveg viljað fá eitthvert
annað lið,“ segir varnarmaðurinn
Francisco Pavon. „Mér er engin
launung á því að þegar það var dreg-
ið fór kliður um búningsherbergi
okkar og menn stundu: Ó nei, ekki
Bayern aftur,“ sagði Pavon.
Hins vegar hefur allt gengið Real
Madrid í haginn í vetur á sama tíma
og allt gengur á afturfótunum hjá
Bæjurum og ekki bætir úr skák að
Michael Ballack verður trúlega ekki
með. Liðið vann 1:0 um helgina í ein-
um slakasta leik sem liðið hefur sýnt
lengi. „Við vorum með hugann við
leikinn gegn Madrid og því léku
menn mjög illa. Við munum leika
miklu betur gegn Madrid,“ sagði
Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bæjara.
Eiga ljúfar minningar
frá München
Þrátt fyrir að Madrid hafi gengið
illa gegn Bæjurum þá eiga tveir leik-
menn liðsins ljúfar minningar frá Ól-
ympíuleikvanginum í München. Ro-
naldo kom Brasilíu á bragðið þegar
liðið vann Þýskaland 2:0 í úrslitum
HM og síðast þegar Beckham lék
þar vann England lið Þýskalands
5:1. „Það væri ekki leiðinlegt að end-
urtaka það,“ segir Beckham.
FRAMARAR stilltu upp væng-
brotnu liði gegn ÍA í deildabikar-
keppninni í knattspyrnu í fyrrakvöld
en meiðsli og veikindi settu stik í
reikninginn hjá Safamýrarliðinu.
Meðal þeirra sem ekki gátu leikið
með Frömurum voru Færeyingarnir
Hans Fróði Hansen og Fróði Benja-
mínsen, Þorvaldur Makan Sig-
björnsson, Ríkharður Daðason,
Ingvar Ólason, Eggert Stefánsson
og Baldur Bjarnason.
FRAMARAR þurftu vegna allra
forfallanna að kalla á Kristján
Brooks og skoraði hann annað af
tveimur mörkum Fram en hann hef-
ur sem kunnugt er ákveðið að leggja
skóna á hilluna.
HANNES Þ. Sigurðsson var í
byrjunarliði Viking sem gerði
markalaust jafntefli við Bodö/Glimt
í æfingaleik á La Manga á Spáni í
gær. Hannesi var skipt út af á 75.
mínútu leiksins.
BENITO Floro, þjálfari spænska
knattspyrnuliðsins Villareal, sagði
upp störfum í gær í kjölfar 4:1 ósig-
urs liðsins gegn Real Zaragoza í
deildinni í fyrradag. Villareal, sem
lék gegn FH-ingum í Intertoto-
keppninni fyrir tveimur árum, er
sem stendur í áttunda sæti spænsku
1. deildarinnar en á síðustu leiktíð
hafnaði liðið í 15. sæti.
DAMIEN Duff verður væntanlega
í byrjunarliði Chelsea sem sækir
Stuttgart heim í fyrri leik liðanna í
16-liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.
Írinn hefur átt í meiðslum þannig að
hann hefur lítið getað leikið og hefur
ekki verið í byrjunarliði Chelsea síð-
an 20. desember en þá meiddist hann
í öxl í leik á móti Fulham.
FRAKKINN Mikael Silvestre,
varnarmaður meistaraliðs Man-
chester United, verður frá æfingum
og keppni næstu þrjár vikurnar en
hann sneri sig á ökkla í leik Man-
chester United og Leeds í ensku úr-
valsdeildinni um nýliðna helgi. Þetta
eru slæmar fréttir fyrir ensku meist-
arana sem hafa átt í miklum vand-
ræðum með varnarleik sinn allt frá
því varnarjaxlinn Rio Ferdinand var
dæmdur í bann.
FÓLK
Reuters
Það er enn óljóst hvort Patrick Viera, fyrirliði Arsenal, geti leikið með liðinu Celta Vigo.
Óvíst með Vieira í Vigo
FJÓRIR leikir verða í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld, en
þá hefjast 16-liða úrslitin og síðari fjórir leikir umferðarinnar verða
leiknir á miðvikudagskvöldið. Meistarar AC Milan heimsækja Spar-
tak í Prag, Bayern München tekur á móti Real Madrid, Lokomotiv
Moskva fær Mónakó í heimsókn og Celta Vigo tekur á móti Arsenal.
Síðari leikir liðanna verða síðan eftir tvær vikur.