Morgunblaðið - 24.02.2004, Page 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BIRGIR Ari Hilmarsson var á
laugardaginn kjörinn formaður Sigl-
ingasambands Íslands á ársþingi
þess. Hann tók við af Páli Hreins-
syni sem gaf ekki kost á sér til end-
urkjörs. Siglingasambandið er 30
ára um þessar mundir og af því til-
efni voru Gísli Árni Eggertsson,
Gunnlaugur Jónasson og Páll
Hreinsson sæmdir gullmerki fyrir
gott starf fyrir siglingaíþróttina.
UEFA, hefur ákveðið að skipta um
dómara á síðari leik Bröndby og
Barcelona í UEFA-keppninni. Áður
hafði verið ákveðið að Hollendingur-
inn Jan Wegereef dæmdi leikinn en
sökum þess að þjálfari Barcelona er
Hollendingur var ákveðið að láta
Massimo Busacca frá Sviss dæma.
FÓLK
Um helgina fór franska meistara-mótið fram og þar bar Laurent
Hernu sigur úr býtum. Hann hlaut
samtals 5.893 stig, 23 stigum minna
en Jón Arnar fékk á sjöþrautar-
mótinu í Tallinn í Eistlandi á dög-
unum. Þá fór pólska meistaramótið
einnig fram um síðustu helgi og sig-
urvegarinn í sjöþrautinni, Andrzejak
Krzysztof, náði heldur ekki að skjóta
Jóni Arnari ref fyrir rass því hann
önglaði aðeins saman 5.815 stigum.
Átta bestu fjölþrautarmenn heims
fá boð um að keppa á HM. Í þeim
hópi eru þeir fjórir sem voru efstir á
heimslistanum í tugþraut 2003,
Roman Sebrle, Tom Pappas, Bryan
Clay og Dmitriy Karpov. Reyndar
hefur heyrst að Kaprov ætli ekki að
keppa í sjöþraut í vetur en staðfest-
ing ekki borist á þeim orðrómi, en
fari svo að hann eigi við rök að styðj-
ast þá verður það vatn á myllu Jóns
Arnars. Hin fjögur sætin á HM
verða fyllt með þeim sem eru í efstu
sætum í sjöþraut á þessu ári. Fyrir
utan þá sem hafa þegar tryggt sér
keppnisréttinn á HM eru það Erki
Nool, Paul Terek, Tomas Dvorák og
Jón Arnar.
Jón Arnar hefur tekið þátt í fjór-
um heimsmeistaramótum innanhúss
og vann m.a. til silfurverðlauna á
mótinu í Portúgal árið 2001. Þá setti
hann Íslands- og Norðurlandamet
sitt, 6.293 stig, á HM í Maebashi í
Japan 1999 en það nægði honum þó
aðeins til fimmta sætis í hörðustu
sjöþrautarkeppni sögunnar, að
margra mati.
Vala reynir við HM lágmarkið
á danska meistaramótinu
Öruggt er að Þórey Edda Elís-
dóttir, stangarstökkvari úr FH,
verður með á HM að þessu sinni og
verður þetta fjórða heimsmeistara-
mótið innanhúss í röð þar sem hún
verður á meðal keppenda.
Vala Flosadóttir, stangarstökkv-
ari úr Breiðabliki, hefur ennþá tíma
til þess að ná lágmarkinu fyrir HM,
þ.e. stökkva yfir 4,35 metra. Hennar
síðasta tækifæri verður örugglega á
Opna danska meistaramótinu sem
fram fer um næstu helgi en það verð-
ur haldið í Malmö í Svíþjóð, þar sem
aðstaða til keppni í frjálsíþróttum
innanhúss er ekki upp á marga fiska
í Danmörku.
Jón Arnar enn inni
á HM í Búdapest
JÓN Arnar Magnússon er enn í sjötta sæti á heimslista Alþjóða
frjálsíþróttasambandsins í sjöþraut innanhúss og líkurnar á að
hann keppi á HM innanhúss í Búdapest 5.–7. mars eru því góðar.
Reiknað er með að upp úr næstu helgi liggi fyrir staðfesting á því
hvort Jóni Arnari verður boðið til mótsins eða ekki.
Morgunblaðið/Golli
Talsverðar líkur eru á því að Jón Arnar Magnússon verði með á HM innanhúss í Búdapest í mars.
KVENNALIÐ ÍBV í handknattleik
verður í hattinum í dag þegar dreg-
ið verður á Evrópumótunum í
handknattleik í höfuðstöðvum evr-
ópska handknattleikssambandsins í
Austurríki. Íslandsmeistararnir eru
komnir í 8-liða úrslit Áskorenda-
keppninnar og væntanlegir mót-
herjar verða frá Rúmeníu, Póllandi,
Króatíu, Tyrklandi eða Þýskalandi
en þrjú þýsk lið eru eftir.
Fram kemur á heimasíðu ÍBV í
gær að þátttaka Eyjaliðsins í
keppninni hafi verið mjög kostn-
aðarsöm og eftir leikina við franska
liðið Le Havre sé tap ÍBV 1,5 millj-
ónir króna.
Tvö Íslendingalið eru eftir í
Meistaradeildinni, Ciudad Real,
sem Ólafur Stefánsson leikur með,
og Magdeburg, lið þeirra Alfreðs
Gíslasonar og Sigfúsar Sigurðs-
sonar, en dregið verður til undan-
úrslitanna í dag. Auk Ciudad Real
og Magdeburg Flensburg og Celje
Pivovarna Lasko frá Slóveníu eftir í
keppninni.
Guðjón Valur Sigurðsson og fé-
lagar hans í þýska liðinu Essen eru
í Evrópukeppni bikarhafa og mót-
herjar þeirra verða spænsku liðin
Valladolid eða Portland San Anton-
io eða RK Gorenje frá Slóvakíu.
Ragnar Óskarsson er fulltrúi Ís-
lendinga í Áskorendakeppninni en
lið hans, Dunkerque frá Frakk-
landi, getur mætt einhverju eft-
irtalinna þriggja liða: Trieste frá
Ítalíu, Muncipal frá Rúmeníu eða
Skövde frá Svíþjóð.
Tap ÍBV nemur hálfri
annarri milljón króna
KANADAMAÐURINN Mike Weir
varði titil sinn á Nissan-PGA-
mótinu í Los Angeles en Weir sigr-
aði á Mastersmótinu á Augusta-
vellinum á síðasta ári.
Weir var með fimm högg á
næsta mann er hann hóf leik á
lokadeginum en náði aðeins að
leika á pari, 71 höggi, á síðustu 18
holunum og var aðeins einu höggi
betri en Shigeki Maruyama frá
Japan sem lék á 67 höggum á loka-
deginum. Weir lék á 17 höggum
undir pari en Maruyama á 16 undir
pari.
Tiger Woods, sem er efstur á
heimslistanum, var 14 höggum á
eftir Weir er keppni hófst á fjórða
keppnisdeginum en hann fékk átta
fugla á lokadeginum, lék á 64
höggum og varð í sjöunda sæti en
hann hóf daginn í 44. sæti. Stuart
Appleby varð þriðji en hann endaði
á 14 undir pari og John Daly virð-
ist vera á ágætu róli þessa stundina
því hann varð fjórði á 13 undir pari
Þetta er í fyrsta sinn sem hinn
lágvaxni, örvhenti kylfingur Mike
Weir nær að verja titil á ferli sín-
um en hann er þekktari fyrir að
sækja á aðra keppendur á loka-
degi.
„Ég hef aldrei varið titil áður og
núna get ég sagt að ég hafi unnið
mót þar sem ég hafði náð góðu for-
skoti. Ég reyndi að sækja á lokdeg-
inum en á sama tíma vildi ég einig
vera skynsamur,“ sagði Weir sem
hefur ekki unnið mót frá því á
Masters fyrir 10 mánuðum.
Mike Weir varði PGA-
titilinn í Los Angeles
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Kennaraháskóli: ÍS – Árm./Þróttur ....19.30
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót
Efri deild kvenna:
Egilshöll: Valur – KR.................................21
Í KVÖLD
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
ÍR - UMFN .............................................51:77
Stig ÍR: Eva Grétarsdóttir 14, Ragnhildur
Guðmundsdóttir 12, Hefna Gunnarsdóttir
10, Kristrún Sigurjónsdóttir 5, Sara Andr-
ésdóttir 4, Málfríður Jörgensen 2, Kristín
Þorgrímsdóttir 2, Bryndís Bragadóttir 2.
Stig UMFN: Andrea Gaines 32, Sæunn Sæ-
mundsdóttir 13, Auður Jónsdóttir 8, Eva
Stefánsdóttir 8, Guðrún Karlsdóttir 7, Sig-
urlaug Guðmundsdóttir 4, Dianna Jóns-
dóttir 2, María Ásgeirsdóttir 2, Erla Guð-
mundsdóttir 1.
Staðan í hálfleik var 37:21, Njarðvík í vil.
Staðan:
Keflavík 18 15 3 1470:1107 30
ÍS 18 12 6 1197:1042 24
KR 18 10 8 1200:1149 20
Grindavík 18 8 10 1135:1163 16
Njarðvík 18 7 11 1068:1239 14
ÍR 18 2 16 994:1364 4
PGA-MÓTARÖÐIN
PGA-Nissan Open, par 71:
Mike Weir, Kan ...............................267 (-17)
66-64-66-71
Shigeki Maruyama, Jap..................268 (-16)
64-66-71-67
Stuart Appleby, Ást ........................270 (-14)
70-64-70-66
John Daly, Ban ................................271 (-13)
68-64-72-67
Hank Kuehne, Ban ..........................271 (-13)
65-72-68-67
Kirk Triplett, Ban............................271 (-13)
66-67-72-68
Jay Williamson, Ban........................274 (-10)
69-69-72-64
Tiger Woods, Ban............................274 (-10)
72-69-72-64
ÚRSLIT
NÆR allir sterkustu sundmenn
landsins eru skráðir til leiks á sund-
mót KR sem fram fer í Sundhöll
Reykjavíkur um helgina en einnig
mæta einnig til leiks þrír sænskir
landsliðsmenn. Það eru Erik Dorsch,
Linda Knitsson og Annika Hult.
Knitsson er í öðru sæti á afrekaskrá
Svíþjóðar í flugsundi, á best 2.12,34
mín., í 200 m flugsundi. Dorsch var
valinn sundmaður Svíþjóðar árið
2002 í flokki 19 ára. Á laugardags-
kvöldið fer fram einvígi í 50 m flug-
sundi á milli átta bestu sundmann-
anna . Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og
Örn Arnarson munu þar m.a. keppa
við sænsku sundmennina.
Sænskir
sundmenn
væntanlegir
Á HEIMASÍÐU Körfuknattleiks-
sambands Íslands, KKÍ, er greint
frá því að kvennalið Keflavíkur hafi
tryggt sér deildarmeistaratitilinn í
áttunda sinn og annað árið í röð en
liðið lagði KR um helgina á meðan ÍS
tapaði gegn Grindavík.
Að auki er ljóst hvaða lið verða í
úrslitakeppni 1. deildar kvenna en
aðeins tvær umferðir eru eftir af
deildarkeppninni. Keflavík, ÍS, KR
og Grindavík leika í úrslitum og eins
og staðan er í dag mætast Keflavík
og Grindavík en ÍS leikur gegn KR.
Deildarmeistaratitlar í 1. deild
kvenna 1993–2004:
2004 Keflavík (8)
2003 Keflavík (7)
2002 ÍS (1)
2001 KR (3)
2000 KR (2)
1999 KR (1)
1998 Keflavík (6)
1997 Keflavík (5)
1996 Keflavík (4)
1995 Keflavík (3)
1994 Keflavík (2)
1993 Keflavík (1)
Keflavík
deildar-
meistarar í
áttunda sinn